Ferill 336. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 401  —  336. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um skipun nefndar til skilgreiningar á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar.


Flm.: Eva Dögg Davíðsdóttir, Jódís Skúladóttir, Orri Páll Jóhannsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Svandís Svavarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að skipa nefnd sérfróðra aðila til að ljúka við skilgreiningu á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar til undirbyggingar ákvæðis um auðlindir í stjórnarskrá Íslands, þar sem kveðið væri á um auðlindir í þjóðareigu. Nefndin skal skilgreina hvað teljist til auðlinda þjóðarinnar, hvernig tímabundinn afnotaréttur yfir þeim skuli veittur og hvernig gjaldtöku af afnotum þeirra skuli háttað.
    Nefndin skili tillögum eigi síðar en 1. júní 2025.

Greinargerð.

    Hugmyndin um auðlindaákvæði í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands á sér langa forsögu, enda er landið ríkt af auðlindum sem eru efnahagslega, samfélagslega og vistfræðilega mikilvægar. Til þess að tryggja að auðlindirnar séu nýttar í þágu allra landsmanna er brýnt að þær séu skilgreindar með skýru stjórnarskrárákvæði sem sameign þjóðarinnar. Að sama skapi er mikilvægt að hægt sé að veita tímabundinn afnotarétt yfir auðlindum, þar sem slíkur réttur nýtur stjórnskipulegrar eignarréttarverndar. Þessi nálgun myndi tryggja að auðlindum yrði ekki ráðstafað varanlega til einkaaðila, en leyfi um afnot þeirra verði veitt samkvæmt ströngum reglum sem tryggi sanngjarna og ábyrga nýtingu þeirra og geri að verkum að þjóðin fái í sinn skerf réttlátan hlut af hagnaði þeirrar nýtingar.
    Þegar litið er til eldri skilgreininga á náttúruauðlindum er ljóst að þær eru ekki einhlítar. Í skýrslu auðlindanefndar frá árinu 2000 og auðlindastefnunefndar frá árinu 2012 voru náttúruauðlindir til að mynda skilgreindar í hagfræðilegu samhengi. Í skýrslu auðlindastefnunefndar var hugtakið auðlind þannig skilgreint á eftirfarandi hátt: „Auðlind er þannig þau gæði sem efnahagslegur hagur er af að nýta þannig að nýting skili meiri arði (auði) en sem nemur kostnaði við nýtinguna. Þau náttúrugæði sem efnahagslega er hagkvæmt að nýta teljast þá til náttúruauðlinda.“ Í skýrslu stjórnlagaráðs frá árinu 2011 var hugtakið náttúruauðlind hins vegar notað í breiðari merkingu og var látið ná til „hvers kyns gæða sem felast í jörð, lífríki, vatni, lofti, sólarljósi, o.s.frv. [...]“.
    Í íslenskum lögum eru ólíkar auðlindir skilgreindar á mismunandi hátt; til dæmis eru auðlindir sjávar skilgreindar sem þjóðareign samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða en aðrar auðlindir, svo sem orka eða jarðefni, njóta ekki sömu formlegu skilgreiningar í lögum, sem getur skapað óvissu um hver eigi réttinn til þeirra og hvernig þeim skuli stjórnað.
    Lagt er til að nefndin byggi á þeirri viðamiklu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Í fyrsta lagi má nefna vinnu stjórnlagaráðs, sem fjallaði ítarlega um auðlindir og lagði áherslu á að þær væru sameign þjóðarinnar. Ráðið lagði til að allar auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki væru háðar einkaeignarrétti, yrðu í þjóðareigu til að tryggja nýtingu þeirra til hagsbóta fyrir almenning í samræmi við sjálfbæra þróun.
    Í öðru lagi er vísað til frumvarps Katrínar Jakobsdóttur um stjórnarskrárbreytingar sem lagt var fram á 151. löggjafarþingi, þar sem lögð var áhersla á sjálfbæra nýtingu auðlinda með framtíðarkynslóðir í huga. Í frumvarpinu er lagt til grundvallar að allur almenningur njóti arðs af auðlindum landsins og að auðlindir séu nýttar á réttlátan hátt og í sátt við náttúruna.