Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 402  —  337. mál.




Beiðni um skýrslu


frá ríkisendurskoðanda um stjórnsýsluendurskoðun á rekstri bálstofa.


Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Andrési Inga Jónssyni, Birni Leví Gunnarssyni, Gísla Rafni Ólafssyni, Guðbrandi Einarssyni, Halldóru Mogensen, Jakobi Frímanni Magnússyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Oddnýju G. Harðardóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.

    Með vísan til 17. gr. laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, er þess óskað að ríkisendurskoðandi geri stjórnsýsluendurskoðun á rekstri bálstofa.
    Í skýrslunni verði farið yfir skyldur ríkisins varðandi rekstur bálstofu, lagastoð núverandi fyrirkomulags, umfang rekstrarins og kostnað við rekstur bálstofu í ljósi þess að starfsemin er fjármögnuð úr ríkissjóði. Að lokum verði könnuð hagkvæmni ríkisins í heild af núverandi fyrirkomulagi, m.a. með tilliti til þess hvort tilefni sé til útboðs á slíkri starfsemi eða annars konar ráðstöfunar.


Greinargerð.

    Með skýrslubeiðninni er leitast við að varpa ljósi á fyrirkomulag rekstrar bálstofu í ljósi þess að starfsemin er fjármögnuð úr ríkissjóði og hvaða tækifæri eru þar til umbóta.
    Frá árinu 1948 hafa Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma rekið bálstofu á Íslandi og er hún enn starfrækt í Fossvogi. Um nokkra hríð hefur verið ljóst að þörf er á nýrri bálstofu sem uppfyllir kröfur m.a. um mengunarvarnir, en Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur tekið ákvörðun um endurskoðun á starfsleyfi bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkur þar sem mengun af völdum starfseminnar hefur reynst meiri en búast mátti við þegar leyfi var gefið út í júní 2021.
    Er þess óskað að ríkisendurskoðandi varpi ljósi á æskilegt fyrirkomulag rekstrarins, sem fjármagnaður er úr ríkissjóði, og hvort tilefni sé til að gera breytingar til þess að tryggja að fyrirkomulagið verði eins og best verði á kosið miðað við gildandi lög og markmið um ábyrga meðferð ríkisfjármuna. Er þess m.a. óskað að ríkisendurskoðandi taki afstöðu til meðferðar og nýtingar ríkisfjármuna í rekstrinum, hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt og hvort framlög ríkisins skili þeim árangri sem að er stefnt. Við matið er gert ráð fyrir að litið verði til þess hvort starfsemin sé í samræmi við fjárheimildir, löggjöf sem um hana gildir og góða og viðurkennda starfshætti.
    Hlutverk ríkisendurskoðanda samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, er að hafa eftirlit með fjárreiðum ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja á þann hátt sem nánar greinir í lögunum. Hann skal í störfum sínum hafa eftirlit með tekjum ríkisins og með því að fjárheimildir og hvers konar verðmæti séu nýtt og þeim ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við forsendur og ákvarðanir Alþingis.