Ferill 312. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 403  —  312. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um úrbætur á stýringu umferðarljósa.


    Fyrirspurnin orðast svo:
     Hafa verið gerðar úrbætur á stýringu umferðarljósa, með aukinni notkun snjalltækni og gervigreindar, í samræmi við ákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar um:
     a.      á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar,
     b.      á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar,
     c.      á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar,
     d.      á gatnamótum Hringbrautar, Hlíðarfótar og Vatnsmýrarvegar,
     e.      á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu,
     f.      á gatnamótum Hringbrautar og Hofsvallagötu,
     g.      á gatnamótum Hringbrautar og Bræðraborgarstígs,
     h.      á gatnamótum Hringbrautar og Framnesvegar?


    Hugtakið snjöll umferðarljósastýring á við um ýmsa tækni sem hægt er að nýta við stýringu umferðar um ljósastýrð gatnamót. Í flestum tilfellum eru notaðir skynjarar hvort sem um ræðir myndavélar, radartæki eða lykkjur í götum. Upplýsingar sem skynjararnir afla eru notaðar til að taka ákvörðun um hvernig best sé að stilla ljósin. Þetta er bæði hægt að gera með notkun gervigreindar og fyrirframforritaðara sviðsmynda fyrir ljósastýringu í miðlægri stýritölvu.
    Helsta notkun snjallra umferðarljósa felst í að leyfa þeim að skynja hvar mesti umferðarstraumurinn er og gefa grænan tíma þar sem hans er helst þörf. Önnur útgáfa af notkun snjalltækni er að leyfa ljósunum að ákvarða hvenær grænn tími er gefinn fyrir hvern umferðarstraum og hversu lengi. Í slíkum tilvikum væri ljósahringurinn algjörlega ófyrirsjáanlegur fyrir bílstjóra og ekki væri hægt að læra inn á ljósin eins og bílstjórar geta gert á höfuðborgarsvæðinu eins og staðan er í dag.
    Notast er við lykkjur á kaflanum sem spurt er um að framan ásamt því að ljósastillingar eru þannig forritaðar að hægt er að lengja græna tímann þar sem hans er helst þörf og umferðarstraumurinn er mestur. Öllum þessum gatnamótum er því stýrt með snjalltækni og eru stjórnkassarnir flestallir nýlegir. Aðeins ein gatnamót á þessari leið eru með eldri stjórnkassa en hann er á uppfærsluáætlun Vegagerðarinnar. Þrátt fyrir að kassinn sé af eldri gerðinni er hann engu að síður í góðu ástandi og á þeim gatnamótum eins og öðrum er notuð snjalltækni til að stýra lengd græns tíma á háannatíma í samræmi við þyngd umferðarstraums.
    Gatnamót sem spurt er um í d–h-lið fyrirspurnarinnar eru öll á Hringbraut sem er stofnvegur í gamalgrónu hverfi. Lykilþjónusta fyrir hverfið er beggja vegna götunnar og sökum þess er mikill fjöldi gangandi og hjólandi vegfarenda sem þarf að komast yfir Hringbraut á háannatíma til að komast í skóla, tómstundir og vinnu. Því er vandmeðfarið að auka grænan tíma fyrir umferð á kostnað gangandi og hjólandi vegfarenda þar sem tryggja þarf öllum vegfarendum örugga leið yfir Hringbraut.
    Árið 2022 voru ljós endurnýjuð á þremur gatnamótum á Hringbraut, við Hofsvallagötu, Framnesveg og Bræðraborgarstíg, og eru þau nú búin sömu snjalltækni og annar búnaður á umræddri leið.