Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 406, 155. löggjafarþing 316. mál: vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga (framlenging).
Lög nr. 135 26. nóvember 2024.

Lög um breytingu á lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, nr. 84/2023 (framlenging).


1. gr.

     Í stað orðanna „Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: Umhverfis- og orkustofnun, Náttúruverndarstofnun, Náttúrufræðistofnun.

2. gr.

     Í stað dagsetningarinnar „1. janúar 2025“ í 2. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 1. janúar 2026.

3. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025.

Samþykkt á Alþingi 18. nóvember 2024.