Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 417, 155. löggjafarþing 334. mál: kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík (lögheimili).
Lög nr. 131 26. nóvember 2024.

Lög um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024 (lögheimili).


1. gr.

     Við 2. málsl. 3. mgr. 1. gr. laganna bætist: og þá er heimilt að víkja frá skilyrði um lögheimili ef þinglýstur eigandi festi kaup á húsnæðinu í þeim tilgangi að aðstoða nána fjölskyldumeðlimi við að eignast heimili.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 18. nóvember 2024.