Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 419  —  310. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Sveinbjarnardóttur um jafnrétti milli kynja við skipun skiptastjóra.


    Við vinnslu svars við fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir gögnum og upplýsingum frá dómstólasýslunni. Það athugist að þar sem handtelja þurfti nokkuð af þeim tölfræðiupplýsingum sem óskað er eftir er ekki unnt að útiloka smávægilegar skekkjur. Þá er kyn lögmanna ekki sérstaklega skráð í upplýsingum frá dómstólasýslunni.

     1.      Hversu margir lögmenn hafa verið skipaðir skiptastjórar samkvæmt lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., frá árinu 2014 til dagsins í dag? Óskað er sundurliðunar eftir umdæmum héraðsdómstóla og kyni.
    Tímabilið 2. janúar 2014 til 6. nóvember 2024 var 761 einstaklingur (lögmaður), þar af um 30% konur, skipaður skiptastjóri samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, í samtals 12.213 málum. 1 Skipting eftir kynjum og héraðsdómstólum er eftirfarandi, en það athugist að í mörgum tilvikum hefur sami lögmaður verið skipaður skiptastjóri af fleiri en einum héraðsdómstóli:

Dómstóll Karlar Konur
Héraðsdómur Austurlands 12 5
Héraðsdómur Norðurlands eystra 28 14
Héraðsdómur Norðurlands vestra 3 1
Héraðsdómur Reykjaness 382 187
Héraðsdómur Reykjavíkur 463 194
Héraðsdómur Suðurlands 60 29
Héraðsdómur Vestfjarða 31 15
Héraðsdómur Vesturlands 45 12

     2.      Telur ráðherra að við skipun skiptastjóra sé gætt jafnréttis milli kynja líkt og kveðið er á um í i-lið 1. mgr. 4. gr. reglna um fjárhæð skiptatrygginga og skipun skiptastjóra og umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum nr. 5/2024?
    Dómstólasýslan heldur skrá yfir þá sem óska eftir skipun sem skiptastjórar eða umsjónarmenn með nauðasamningsumleitunum sem héraðsdómstólar hafa aðgang að. Þeir sem óska eftir slíkri skipun geta skráð sig á skrána og er hún uppfærð reglulega. Samtals eru 443 á skránni nú, 316 karlar og 127 konur.
    Gert er ráð fyrir að skiptastjórar séu skipaðir af skránni í þeirri röð sem þeir eru skráðir á skrána að teknu tilliti til þeirra atriða sem kveðið er á um í 4. gr. reglna nr. 5/2024. Samkvæmt 5. gr. reglnanna birtir dómstólasýslan frá ársbyrjun 2025 upplýsingar um hversu mörgum búum hverjum skiptastjóra hefur verið falið að skipta af hverjum héraðsdómstóli og samtals á þeim öllum svo og upplýsingar um það í hversu mörgum búum hver skiptastjóri hefur ekki tilkynnt skiptalok í lok árs. Tilgangur þess er meðal annars að auka gegnsæi við skipun skiptastjóra og veita dómstólunum aðhald.

     3.      Telur ráðherra nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að tryggja að jafnréttis verði gætt við skipun skiptastjóra? Ef já, hvaða?
    Í ljósi framangreindra aðgerða sem dómstólasýslan hefur ráðist í, sérstaklega með vísan til setningar reglna nr. 5/2024, sem tóku gildi í janúar 2024, telur ráðherra ekki nauðsynlegt að svo stöddu að gripið sé til frekari aðgerða til að tryggja að jafnréttis sé gætt við skipun skiptastjóra.

1    Nöfn skiptastjóra eru skráð í upplýsingakerfi dómstólanna en ekki kyn. Framsetning svarsins miðast við skiptingu milli karla og kvenna og miðar ráðuneytið þá við að nafn skiptastjóra gefi til kynna kyn samkvæmt íslenskri mannanafnahefð og skoðast svarið í því ljósi.