Ferill 27. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 420  —  27. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kostnað við endurbætur og stækkun á húsnæði Seðlabanka Íslands.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað hafa framkvæmdir vegna endurbóta og stækkunar á húsnæði Seðlabanka Íslands kostað til þessa og hver er áætlaður endanlegur kostnaður? Hver var upphafleg kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna?

    Við vinnslu svarsins var óskað eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands og byggist svarið á upplýsingum bankans.
    Í aðdraganda sameiningar Seðlabanka og Fjármálaeftirlits árið 2019 var ljóst að fara þyrfti í umtalsverðar breytingar á húsnæði bankans á Kalkofnsvegi 1.
    Framkvæmdum við endurbætur húsnæðisins á Kalkofnsvegi 1 er skipt í tvo fasa. Framkvæmdir á 2.–5. hæð í turni falla undir fyrri fasa framkvæmdanna og endurnýjun 1. hæðar og hluta af 2. hæð bankans sem tilheyrir kálfinum svokallaða fellur undir síðari fasa.
    Í meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir kostnaðaráætlun og raunkostnað vegna framkvæmdanna.
         
Kostnaðaráætlun – útboð Tilboð Raunkostnaður Framvinda
Fasi 2 1. hæð 192.668.686 250.607.088 254.640.059 100%
Fasi 1 2. hæð 199.704.455 198.607.603 211.280.542 100%
Fasi 1 3. hæð 197.015.468 207.822.316 206.992.053 100%
Fasi 1 4. og 5. hæð 482.952.239 477.981.069 485.102.975 100%
Fasi 1 Bráðabirgðaaðstaða 83.490.608 100%
Fasi 2 Alrými 1.655.852.163 1.926.160.546 1.802.442.970 87%
Verbætur, vísitölugrunnur 174,1 132.908.902
Samtals 2.728.193.011 3.061.178.622 3.176.858.109