Ferill 11. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 422 — 11. mál.
Svar
matvælaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um dýratilraunir.
1. Hversu mörg leyfi hafa verið veitt til dýratilrauna undanfarin fimm ár og hversu mörgum umsóknum um dýratilraunir hefur verið hafnað á sama tímabili?
Undanfarin fimm ár hafa verið gefin út 99 leyfi vegna tilrauna samkvæmt reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Á sama tíma hefur átta umsóknum um leyfi til dýratilrauna verið hafnað.
2. Til hvaða dýra hafa umræddar tilraunir náð og hvers eðlis hafa þær verið?
Áðurgreind leyfi hafa verið veitt vegna nagdýra, fiska, svína, hrossa, fugla, hvala, nautgripa og sauðfjár. Leyfin hafa verið veitt í vísindaskyni, svo sem til lyfjarannsókna, ræktunar tilraunadýra, þróunar á heilbrigðisvörum, þróunar og virkni bóluefna, atferlisrannsókna og vistfræðirannsókna, í menntunarskyni og til rannsókna á dýrasjúkdómum.
3. Hvaða fyrirtæki hafa fengið leyfi til dýratilrauna undanfarin fimm ár?
Á undanförnum fimm árum hefur verið gefið út leyfi til dýratilrauna á nafn fyrirtækisins 3Z ehf.
4. Hafa leyfi til dýratilrauna verið veitt í öðrum tilgangi en í vísindaskyni?
Leyfi til dýratilrauna sem veitt eru samkvæmt reglugerð nr. 460/2017 lúta að tilteknum verkefnum, þ.e. áætlun um vinnu sem hefur skilgreint vísindalegt markmið og felur í sér eina eða fleiri tilraunir. Með tilraun er átt við notkun á dýri, hvort sem er í tilraunaskyni eða öðrum vísindalegum tilgangi, eða í menntunarskyni, sem kann að valda dýrinu sársauka, þjáningu, hræðslu eða varanlegum skaða sem jafngildir eða er meiri en það sem skapast af nálarstungu í samræmi við góðar starfsvenjur í dýralækningum. Þar með er talinn hver sá verknaður sem ætlast er til eða líklegt er að leiði til þess að við slíkar aðstæður fæðist eða ungist út dýr eða til verði erfðabreyttir dýrastofnar sem er viðhaldið, að undanskilinni aflífun dýra í þeim tilgangi einum að nýta úr þeim líffæri eða vefi. Með vísan til framangreinds eru öll leyfi því veitt í vísindaskyni.
5. Hvernig er eftirliti með dýratilraunum á Íslandi háttað?
Matvælastofnun ber ábyrgð á framkvæmd reglugerðar nr. 460/2017 og hefur eftirlit með því að ákvæðum hennar sé framfylgt í samræmi við lög um velferð dýra, nr. 55/2013. Eftirlit með dýratilraunum og tilraunastarfsstöðvum er að öllu jöfnu sinnt af umdæmisskrifstofum Matvælastofnunar undir stjórn og ábyrgð héraðsdýralækna. Eftirlitið snýr að starfsstöðvunum sem halda dýr sem notuð eru til dýratilrauna, en auk þess eru gögn rýnd.