Ferill 213. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 423 — 213. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um niðurfellingu mála.
1. Hvert var hlutfall þeirra mála í rannsókn hjá lögreglu sem voru felld niður á ákærusviði ár hvert sl. fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir brotaflokkum.
Eftirfarandi svar við fyrirspurninni er byggt á upplýsingum frá ríkislögreglustjóra.
Í fyrirspurninni er spurt um hlutfall mála þar sem rannsókn lögreglu er felld niður á ákærusviði. Svarið sýnir hlutfall brota þar sem rannsókn var hætt hjá ákæruvaldi.
Rannsókn sakamála er í höndum lögreglu, undir stjórn héraðssaksóknara eða lögreglustjóra, skv. 52. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Lögregla getur hætt rannsókn, sbr. 4. mgr. 52. gr. fyrrnefndra laga, ef ekki þykir grundvöllur til að halda henni áfram, svo sem ef brot er smávægilegt eða kæra hefur ekki verið á rökum reist.
Hafi lögregla fullrannsakað mál getur ákærandi jafnframt hætt rannsókn, sbr. 145. gr. laga um meðferð sakamála, telji hann að það sem fram hefur komið við rannsókn sé ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis.
Svarið við fyrirspurninni tekur til áranna 2019–2022 og nær aðeins til þeirra brota sem fengið hafa endanlega niðurstöðu hjá lögreglu. Ekki liggur fyrir sambærileg tölfræði vegna ársins 2023 þar sem mikill fjöldi mála frá árinu 2023 er enn til meðferðar.
Í eftirfarandi töflu má sjá hlutfall hegningarlagabrota með ferilinn rannsókn hætt hjá ákæruvaldi. Ekki liggja fyrir sambærilegar upplýsingar um aðrar tegundir brota eða nánari sundurliðun þeirra. Hafa ber í huga að þessar tölur miðast við þá dagsetningu þegar brot er tilkynnt til lögreglu.
Tafla 1. Hegningarlagabrot, ferill miðað við stöðuna 13.11.2024.
| 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | |
| Rannsókn hætt hjá ákæruvaldi | 30,7% | 28,3% | 23,8% | 24,3% |
2. Hve mörg þeirra mála, sem felld voru niður, voru felld niður vegna ófullnægjandi rannsóknar lögreglu? Svar óskast sundurliðað eftir brotaflokkum og árum sl. fimm ár.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra liggur ekki fyrir tölfræði um mál sem felld voru niður vegna ófullnægjandi rannsóknar lögreglu.