Ferill 225. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 424  —  225. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um virðisaukaskatt vegna vinnu á verkstað.


     1.      Hversu mikið hefur innheimst af virðisaukaskatti á mánuði undanfarin fimm ár í þeim tilvikum þegar óskað hefur verið endurgreiðslu af greiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988?
    Þar sem almenn skil virðisaukaskatts (VSK) eru á tveggja mánaða fresti og innheimtuárangur er tekinn saman á ársgrundvelli er ekki unnt að sundurliða innheimtuárangur eftir mánuðum.
    Í töflum 1–4 er sýnd tölfræði yfir innheimtuárangur hjá virðisaukaskattsskyldum aðilum sem gáfu út reikninga sem þær endurgreiðslubeiðnir VSK sem spurt er um byggðust á árin 2019–2023. Sýnd er fjárhæð álagðs VSK og fjöldi aðila, skipt í tíu flokka eftir innheimtuhlutfalli. Tölur miðast við stöðuna 1. ágúst 2024.
    Ástæða er til að árétta að hér er tilgreindur innheimtuárangur í VSK fimm síðustu álagningarárin og er í öllum tilvikum miðað við stöðuna 1. ágúst 2024. Því er mismunandi langur tími að baki mældum innheimtuárangri. Viðbúið er að hlutfallslega séu fleiri með innheimtuárangur á bilinu 90%–100% vegna eldri álagningarára þar sem skuldajöfnuður er stöðugur og innheimtuúrræðum beitt.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.































Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     2.      Hvernig hefur fjárhæð þessara tekna ríkisins þróast eftir því sem endurgreiðsluhlutfall hefur lækkað?
    Endurgreiðsluhlutfall VSK af vinnu manna á verkstað hefur tekið breytingum á árunum 2019–2023 sem hér segir:
     *      Allt árið 2019 og til 29. febrúar 2020 var endurgreiðsluhlutfallið 60%.
     *      Vegna framkvæmda á tímabilinu 1. mars 2020 til 31. ágúst 2022 var endurgreiðsluhlutfallið 100%.
     *      Vegna framkvæmda á tímabilinu 1. september 2022 til 30. júní 2023 var endurgreiðsluhlutfallið 60%.
     *      Frá 1. júlí 2023 hefur endurgreiðsluhlutfallið verið 35%.
    Í töflu 5 er sýnd árleg tölfræði sem tekur til fjölda umsókna, fjárhæðar endurgreiðslu og nettófjárhæðar álagðs VSK á tímabilinu 2019–2023.
    Rétt er að nefna að margir þættir, ekki síst efnahagslegir, hafa áhrif á þróun fjölda umsókna um endurgreiðslur, endurgreiðslufjárhæða og álagðs VSK á þá aðila sem gefa út reikninga að baki umsóknum um endurgreiðslur VSK.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.