Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


155. löggjafarþing 2024–2025.
Þingskjal 426  —  286. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um bótagreiðslur til landeigenda vegna undirbúningsframkvæmda við Holtavirkjun og Hvammsvirkjun.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve margir landeigendur, hvort sem það eru einstaklingar eða félög, hafa fengið bætur vegna undirbúningsframkvæmda við Holtavirkjun og Hvammsvirkjun?
     2.      Hvenær voru bæturnar greiddar út og hvað fékk hver landeigandi háar bætur?
     3.      Hvað áttu þeir sem fengu bætur mikið land og hversu mikið tjón varð á eignum þeirra?


    Samkvæmt 23. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, getur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra heimilað eignarnám ef nauðsynlegt er fyrir framkvæmdir á grundvelli laganna, þar með talið landnot. Framkvæmd eignarnáms á grundvelli laganna og ákvörðun bóta fer eftir almennum reglum. Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um eignarnám vegna undirbúningsframkvæmda við Holtavirkjun og Hvammsvirkjun.
    Hins vegar liggur fyrir að árið 2007 var gerður samningur milli Landsvirkjunar og íslenska ríkisins um yfirtöku lands- og vatnsréttinda í eigu ríkisins í neðri hluta Þjórsár vegna fyrirhugaðra virkjana. Með samningi sem var gerður árið 1951 varð ríkissjóður eigandi að vatnsorku- og landréttindum sem Títanfélagið hafði keypt af eigendum jarða við Þjórsá á árunum 1914–1918. Ríkið er því eigandi að stærstum hluta þeirra vatnsréttinda sem falla undir Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjun.
    Í kjölfar samkomulagsins við íslenska ríkið árið 2007 hóf Landsvirkjun viðræður við landeigendur á svæðinu og hafa þær staðið yfir frá þeim tíma. Um er að ræða samninga sem teljast vera einkaréttarlegs eðlis milli viðkomandi landeiganda og Landsvirkjunar og byggjast á viðskiptalegum forsendum. Því er ekki um opinbert málefni að ræða í skilningi laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sem hægt er að veita sundurliðaðar upplýsingar um, enda hvorki um að ræða upplýsingar sem opinberar skulu vera lögum samkvæmt né heldur sem ráðuneytið telur eðlilegt að kalla eftir í krafti eignarhalds á Landsvirkjun.
    Samkvæmt upplýsingum um málið almennt, sem ráðuneytið hefur engu að síður aflað frá Landsvirkjun, hefur fyrirtækið gert samninga við landeigendur um bætur á áhrifasvæði áformaðra virkjana í neðri hluta Þjórsár, m.a. fyrir afnot af landréttindum í tengslum við fyrirhugaða Hvammsvirkjun og vegna Holtavirkjunar. Fjárhæð bóta fyrir landsréttindi er almennt skipt í flokka eftir verðmæti lands, þ.e. ræktað land, óræktað land og áreyrar, og eru bætur mismunandi eftir flokkum og taka mið af öðrum samningum sem Landsvirkjun hefur gert við landeigendur.
    Í upplýsingum frá Landsvirkjun kemur fram að fjárhæð bóta sem greidd hefur verið til landeigenda vegna Hvammsvirkjunar fram til þessa nemi samtals um 410 millj. kr. á verðlagi ársins 2024. Fjárhæð bóta sem greiddar hafa verið fram á þennan dag til landeigenda vegna Holtavirkjunar er samtals um 515 millj. kr. á verðlagi ársins 2024.