Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 1 — 1. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frá forsætisráðherra.
Alþingi ályktar, með vísan til 1. mgr. 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, að styðja fyrirhugaða breytingu á fjölda og heitum ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem felur í sér að í stað félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, matvælaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis komi atvinnuvegaráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Greinargerð.
Með þingsályktunartillögu þessari er leitað eftir stuðningi Alþingis við fyrirhugaða breytingu á heiti og fjölda ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem forsætisráðherra hyggst gera tillögu um til forseta Íslands í samræmi við 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Áður en slík tillaga er lögð fyrir forseta til staðfestingar skal skv. 3. málsl. 1. mgr. 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands leggja hana fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu svo sem hér er gert og er í ákvæðinu sérstaklega kveðið á um að tillagan skuli þegar koma til umræðu og afgreiðslu í þinginu.
Fyrirhugaðar breytingar á Stjórnarráði Íslands fela í sér að í stað félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, matvælaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis komi atvinnuvegaráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Með breytingunni fækkar ráðuneytum úr tólf í ellefu.
Fyrirhuguð fækkun ráðuneyta og breyting á heitum þeirra er hluti af breytingum á skipulagi Stjórnarráðs Íslands sem kynntar voru í tengslum við myndun nýrrar ríkisstjórnar 21. desember sl. með útgáfu forsetaúrskurðar um skiptingu starfa ráðherra, nr. 142/2024. Með úrskurðinum voru gerðar breytingar á embættisheitum ráðherra og þeim fækkað úr tólf í ellefu. Með útgáfu forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti að lokinni afgreiðslu Alþingis á tillögu þessari verður unnt að ljúka þeim skipulagsbreytingum sem lagt var upp með við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Þannig verða í fyrrnefnda úrskurðinum ýmis stjórnarmálefni færð til í samræmi við fækkun ráðuneyta og nýjar áherslur lagðar í starfsemi sumra þeirra.
2. Skipulag Stjórnarráðs Íslands og meginsjónarmið að baki breytingum.
Meðal mikilvægra stjórntækja framkvæmdarvaldsins er samhæfingar- og verkstjórnarvald forsætisráðherra og virk beiting þess í samræmi við þróun verkefna, nýjar áskoranir og pólitískar áherslur ríkisstjórnar á hverjum tíma.
Forsenda þess að stjórnsýslan sé árangursrík og skilvirk er að skipulag hennar og verkaskipting sé til þess fallin að hún geti sem best tekist á við þær áskoranir sem við er að etja hverju sinni. Endurskipulagning og tilfærsla verkefna milli ráðuneyta Stjórnarráðsins getur þannig verið nauðsynlegur liður í því að mæta nýjum áskorunum og takast á við ný eða breytt verkefni í takt við þarfir hvers tíma.
Á umliðnum árum hefur verið unnið að margvíslegum umbótum innan stjórnkerfisins m.a. með niðurstöður og ábendingar rannsóknarnefndar Alþingis að leiðarljósi. Markmið umbótanna hefur verið að auka sveigjanleika stjórnkerfisins með aukinni samhæfingu og samvinnu þvert á ráðuneyti til að tryggja að þekking og mannauður sé nýttur til fulls. Þetta hefur m.a. verið gert með því að byggja upp miðlæga þjónustu, ýta undir þverfaglega nálgun og hvetja til aukins hreyfanleika starfsfólks. Áfram verður unnið að umbótum og breytingum á umgjörð stjórnsýslunnar sem miða að því að efla ráðuneytin, samhæfingu og samvinnu stjórnvalda sem fara með skyld verkefni og getu stjórnsýslunnar til viðbragða og stefnumótunar til að mæta örum samfélagslegum breytingum og áskorunum framtíðarinnar. Við innleiðingu stjórnarstefnu er mikilvægt að vinna skipulega að auknu samstarfi og samhæfingu milli ráðuneyta og ráðuneyta og stofnana. Þannig má stuðla að því að Stjórnarráðið búi á hverjum tíma yfir nauðsynlegum sveigjanleika til að innleiða breytingar hratt og vel með sem minnstri röskun á starfsemi stjórnsýslunnar.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024 segir að eitt af forgangsverkefnum hennar verði að hagræða í ríkisrekstri, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Markmið breytinga sem lagðar eru til á skipulagi Stjórnarráðsins er að hagræða í rekstri þess og styrkja um leið stjórnsýslu ráðuneytanna. Í því efni er stigið fram af festu í upphafi kjörtímabils. Ráðuneytum verður fækkað úr tólf í ellefu með niðurlagningu menningar- og viðskiptaráðuneytis og verða þeir málaflokkar sem áður tilheyrðu ráðuneytinu færðir annars vegar til fyrirhugaðs atvinnuvegaráðuneytis og hins vegar til fyrirhugaðs menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
Fækkun ráðuneyta er liður í því að stuðla að aukinni hagkvæmni í rekstri ríkisins og bæta nýtingu fjármuna með samlegðaráhrifum sem skapast við sameiningu málaflokka í færri ráðuneytum. Með því er hægt að draga úr rekstrarkostnaði Stjórnarráðsins. Áætlað er að sú hagræðingaraðgerð sem ráðist verði í með niðurlagningu ráðuneytis skili u.þ.b. 350 millj. kr. hagræðingu á árinu 2026 og að hún komi að miklu leyti fram um mitt ár 2025.
Fækkun ráðuneyta um eitt gerir það einnig að verkum að tækifæri skapast til að efla önnur ráðuneyti og búa svo um hnúta að skipulag ráðuneyta endurspegli enn betur meginregluna um að eðlislík stjórnarmálefni heyri undir sama ráðuneyti. Þetta á, einkum til skemmri tíma litið, við um þau ráðuneyti sem taka við stjórnarmálefnum þess ráðuneytis sem lagt verður niður. Stærri ráðuneyti geta betur tekist á við krefjandi verkefni og veitt öflugri þjónustu, auk þess að tryggja betri yfirsýn og samþættingu stefnumótunar. Stærri ráðuneyti geta einnig gert stjórnsýsluna sveigjanlegri gagnvart áskorunum í ríkisrekstri og auðveldað endurskipulagningu og aðlögun að breyttum aðstæðum, svo sem að takast á við ný varanleg verkefni og tímabundin áhersluverkefni. Þannig skapast tækifæri til að færa starfsfólk til á milli málaflokka eftir því sem áherslur gefa tilefni til. Þá er það einnig þekkt að stærri og öflugri ráðuneyti leiða til betri og skilvirkari samskipta við undirstofnanir ráðuneyta og aukins fjárhagslegs og faglegs eftirlits með þeim. Með framangreindum breytingum er þannig stefnt að því að bæta rekstur ríkisins og tryggja að fjármunir séu nýttir á sem skilvirkastan hátt í þágu samfélagsins.
Þeim breytingum á ráðuneytaskipan Stjórnarráðs Íslands sem hér er gerð tillaga um er ætlað að tryggja að Stjórnarráðið sé í stakk búið til þess að takast á við samfélagslegar áskoranir og fylgja um leið eftir þeim megináherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrir komandi kjörtímabil. Breytt heiti ráðuneyta endurspegla þannig áherslur ríkisstjórnarinnar, m.a. um aukna verðmætasköpun í atvinnulífi og aðgerðir sem stuðla eiga að jafnvægi á húsnæðismarkaði.
Breytingarnar hafa verið undirbúnar í stjórnarmyndunarviðræðunum og frá myndun ríkisstjórnarinnar 21. desember sl. Fram að því átti sér einnig stað undirbúningur af hálfu forsætisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins í samstarfi við Umbru – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og Fjársýslu ríkisins með hliðsjón af skýrslu Ríkisendurskoðunar um þá uppstokkun ráðuneyta sem gerð var eftir alþingiskosningarnar 2021 (Ríkisendurskoðun: Breytingar á stjórnarmálefnum ráðuneyta – stjórnsýsluúttekt, skýrsla til Alþingis, desember 2023).
3. Nánar um breytingar á skipan ráðuneyta og verkefnum þeirra.
Hér verður gerð grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á skipulagi Stjórnarráðsins og verkefnum ráðuneytanna en frá myndun ríkisstjórnarinnar hefur verið unnið að nánari útfærslu á þeim ákvörðunum sem þá voru teknar.
Forsætisráðuneyti.
Fyrirkomulag forsætisráðuneytisins verður óbreytt.
Atvinnuvegaráðuneyti.
Matvælaráðuneytið fær nýtt heiti, það verður að atvinnuvegaráðuneyti og tekur við málaflokkum sem nú heyra undir menningar- og viðskiptaráðuneyti og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Meðal stjórnarmálefna sem færast til ráðuneytisins eru viðskipti, neytendamál og ferðamál. Þau heyrðu áður undir þáverandi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti en voru flutt í menningar- og viðskiptaráðuneyti með forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022. Þá færist stjórnarmálefnið iðnaður frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Frá ráðuneytinu færast m.a. skógrækt og landgræðsla í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Með þessari breytingu er undirstrikað að áherslur ráðuneytisins eru víðtækari en svo að þær nái fyrst og fremst til matvælaframleiðslu líkt og núverandi heiti gefur til kynna. Ætlunin er að allir helstu atvinnuvegir þjóðarinnar heyri undir ráðuneytið, sem eflist og verður betur í stakk búið til að fjalla heildstætt um atvinnulífið. Þannig verður aðkoma stjórnvalda að stærstu atvinnuvegum þjóðarinnar samræmd á einum stað. Með því að sameina málaflokka sem tengjast viðskiptum og ferðamálum undir atvinnuvegaráðuneyti gefst betra tækifæri til að samræma stefnu fyrir atvinnulíf, bæta þjónustu við fyrirtæki og neytendur og efla samkeppnishæfni atvinnugreina á landsvísu. Þannig fæst aukinn slagkraftur í stefnu og aðgerðir stjórnvalda í tengslum við atvinnulíf, auk þess að fjölga tækifærum til að sameina stofnanir sem munu heyra undir ráðuneytið.
Með breytingu á heiti ráðuneytisins er betur endurspeglað fjölbreytt hlutverk þess, sem nær yfir atvinnugreinar á borð við landbúnað, sjávarútveg, ferðaþjónustu, iðnað og viðskipti. Nýtt heiti gefur því skýrari mynd af ábyrgð ráðuneytisins á efnahagslegri þróun og stuðningi við allar helstu atvinnugreinar landsins.
Dómsmálaráðuneyti.
Fyrirkomulag dómsmálaráðuneytisins verður að mestu leyti óbreytt en þó færast þangað tvö tiltekin stjórnarmálefni.
Stjórnarmálefnið mannréttindi og mannréttindasamningar færist til ráðuneytisins frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, að undanskildum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem verður eftir hjá félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Inntak stjórnarmálefnisins mannréttindi og mannréttindasamningar er almenn stefnumótun á sviði mannréttinda, innleiðing og eftirfylgni alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga og yfirumsjón með framkvæmd og stöðu mannréttindamála með hliðsjón af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist sem og aðkoma að og málsforræði vegna dómsmála sem höfðuð eru gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu o.fl. Um er að ræða margþætt verkefni sem fela m.a. í sér yfirumsjón með lagabreytingum þegar þeirra er þörf vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga og skýrslugjöf til nefnda um framkvæmd þeirra mannréttindasamninga sem Ísland er aðili að. Þess má geta að þetta stjórnarmálefni var í dómsmálaráðuneytinu fram til nóvember 2021 þegar það var fært undir forsætisráðuneytið. Málefnið fluttist síðan til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis í tíð þáverandi ríkisstjórnar í ágúst sl. en flyst nú aftur til dómsmálaráðuneytisins.
Þá færist stjórnarmálefnið jafnréttismál einnig til dómsmálaráðuneytis frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti. Jafnréttismál snerta starfssvið allra ráðuneyta og mörg ráðuneytanna fara með viðamikla málaflokka sem geta haft mikil áhrif á stöðu og þróun jafnréttismála hér á landi. Vægi jafnréttismála hefur aukist verulega undanfarin ár og er litið til Íslands sem fyrirmyndar hvað varðar löggjöf og þróun málaflokksins á heimsvísu. Jafnréttismál voru á málefnasviði forsætisráðuneytisins um nokkurra ára skeið fram til 2024 en þau heyrðu þar á undan um árabil undir ráðuneyti félagsmála. Við flutning á þessum tveimur stjórnarmálefnum til dómsmálaráðuneytisins er m.a. litið til þeirra augljósu samlegðaráhrifa sem eru með málefnasviðunum mannréttindi og jafnrétti, en jafnrétti er samtvinnað öðrum mannréttindum. Þá má nefna í þessu sambandi að stofnun sérstakrar skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála á sínum tíma í forsætisráðuneytinu hefur haft veruleg jákvæð áhrif á báða málaflokka og eflt þá svo um munar.
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti fær nýtt heiti og verður félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Málaflokkarnir húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál flytjast til ráðuneytisins. Er þessi breyting í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í húsnæðismálum sem eiga að auka húsnæðisöryggi almennings og stuðla að kerfisbreytingum til lengri tíma.
Öruggt húsnæði er mikilvæg forsenda fyrir velferð íbúa og snerta þessir málaflokkar með beinum hætti alla einstaklinga í íslensku samfélagi. Skipulagsmál eru að hluta til samofin húsnæðis- og mannvirkjamálum og til að framangreind markmið ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum náist er mikilvægt að áætlanir og framkvæmdir í þessum málaflokkum séu samræmdar og að unnið verði að nægilegu framboði byggingarlóða til lengri tíma í samvinnu við sveitarfélögin í landinu. Stuðla þarf að jafnvægi á húsnæðismarkaði með húsnæðisstuðningi, aukinni skilvirkni í leyfisveitingum framkvæmda, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Mikilvægt er að tryggja almenningi raunverulegt val um búsetuform þannig að einstaklingar hafi aðgengi að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði. Þess er vænst að samstaða um þessi verkefni bæti lífskjör landsmanna enda snýr jafnvægi á húsnæðismarkaði einnig að efnahagsmálum sem ein af forsendum þjóðhagslegs stöðugleika.
Auk húsnæðis- og mannvirkjamála og skipulagsmála verður tilfærsla á málaflokkum sem varða öldrunarþjónustu frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Heilbrigðisþjónusta við hruma og veika aldraða, þ.e. þjónusta í hjúkrunarrýmum, sérhæfðri dagdvöl og heimahjúkrun, verður áfram í heilbrigðisráðuneyti en stjórnarmálefni sem snúa að opinni öldrunarþjónustu, þ.m.t. félags- og virkniþjónusta, búsetuúrræði og uppbygging hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir aldraða, verða í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Sú skipting er í samræmi við það viðhorf að öldrun sé ekki sjúkdómur sem kallar á heilbrigðisþjónustu heldur almenna öldrunar- og stuðningsþjónustu. Er þessi tilfærsla liður í þjóðarátaki í umönnun eldra fólks sem ríkisstjórnin mun leiða, m.a. með verkefnum um aukna fjárfestingu til að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt, fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar. Jafnframt verður komið á fót hagsmunafulltrúa eldra fólks, sem mun fylgjast náið með högum eldra fólks, hvort sem það dvelur á stofnun eða heldur eigið heimili.
Lýðfræðilegar breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar, þar sem eldra fólki fjölgar hratt en jafnt og þétt dregur úr fæðingartíðni, kalla á áherslur sem endurspegla vilja löggjafans til að styðja við heilbrigða öldrun. Þessari þróun fylgja bæði tækifæri og áskoranir og mikilvægt er að stjórnvöld bregðist við með bættri stefnumótun í málefnum aldraðra. Mörg stjórnarmálefni félags- og húsnæðismálaráðuneytis varða málefni eldra fólks og aldraðra, svo sem almannatryggingar þeirra og lífeyristryggingar, atvinnutengd starfsendurhæfing og félagsleg þjónusta auk þess sem uppbygging hjúkrunarheimila á augljósa samlegð með skipulags-, húsnæðis- og mannavirkjamálum. Með breytingunum næst betri yfirsýn yfir málaflokka sem varða hagsmuni eldra fólks á einn eða annan hátt sem mun auðvelda stjórnvöldum að endurskoða og bæta stefnumótun á grunni víðtæks samráðs við hagaðila og heildstæðra og ítarlegra greininga innan stjórnsýslunnar. Meginmarkmið þeirrar vinnu verður að styrkja umgjörð stjórnsýslunnar í málefnum aldraðra í því skyni að auka lífsgæði þessa stækkandi þjóðfélagshóps og mæta betur margbreytilegum þörfum hans.
Þá flytjast stjórnarmálefni er varða Heyrnar- og talmeinastöð Íslands frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Ráðuneytið fer nú þegar með málefni fatlaðs fólks auk þess sem málefni Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu heyra undir ráðuneytið. Með flutningi Heyrnar- og talmeinastöðvar mun ráðuneytið einnig fara með þjónustu við heyrnarlausa, heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar- og talmein. Markmið breytinganna er að auka samfellu og samþættingu í þjónustu við framangreinda hópa fatlaðs fólks.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður áfram hjá félags- og húsnæðismálaráðuneyti en aðrir mannréttindasamningar flytjast frá ráðuneytinu til dómsmálaráðuneytis Telja verður að augljós samlegðaráhrif felist í því að skilja samninginn eftir hjá ráðuneyti félagsmála sem fer með málefni fatlaðs fólks. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hyggst hún lögfesta samninginn. Það er liður í því að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra en samningurinn felur í sér bann við hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og að fötluðu fólki sé tryggð jöfn og árangursrík réttarvernd gegn mismunun á öllum sviðum.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Fyrirkomulag fjármála- og efnahagsráðuneytisins verður óbreytt.
Heilbrigðisráðuneyti.
Fyrirkomulag heilbrigðisráðuneytisins verður að mestu leyti óbreytt en þó flytjast stjórnarmálefni sem snúa að öldrunarþjónustu og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands til félags- og húsnæðismálaráðuneytis.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur farið með yfirstjórn öldrunarmála samkvæmt lögum um málefni aldraðra og nú flytjast málefni dagdvalar, dvalarheimila og Framkvæmdasjóðs aldraðra til þess. Eftir sem áður verður heilbrigðisþjónusta við aldraða á hendi heilbrigðisráðuneytisins, þ.m.t. hjúkrunarheimili, sérhæfð dagdvöl og heimahjúkrun, enda um sérhæfða heilbrigðisþjónustu við hruma og veika aldraða að ræða. Þá verður heilbrigðisþjónusta vegna heyrnar- og talmeina eftir sem áður hjá heilbrigðisráðuneytinu.
Innviðaráðuneyti.
Málaflokkar bæði flytjast til innviðaráðuneytisins og frá því. Þannig færist stjórnarmálefnið fjarskipti til ráðuneytisins frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti en sá málaflokkur heyrði um árabil undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, forvera innviðaráðuneytisins. Flutningurinn endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar á að unnið verði að eflingu fjarskiptainnviða á landsbyggðinni og þá framtíðarsýn að Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög og framsækna þjónustu og að tækni tengi allar byggðir landsins við umheiminn í jafnvægi við umhverfið. Þá verði örugg upplýsingatækni og örugg þjónusta á netinu mikilvægar meginstoðir hagsældar á Íslandi, byggðar á traustri samvinnu og studdar af öflugri öryggismenningu, virku alþjóðasamstarfi og traustri löggjöf. Mikilvægt er að stjórnvöld tryggi skilvirkt skipulag og samhæfingu fjarskipta, þar með talið netöryggis, þvert á stjórnsýsluna til að tryggja örugga fjarskiptainnviði og -varnir í þágu samfélagsins.
Stjórnarmálefnin skipulagsmál og húsnæðis- og mannvirkjamál færast til félags- og húsnæðismálaráðuneytis.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið fær nýtt heiti, það verður að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og tekur við tilteknum málaflokkum sem nú heyra undir menningar- og viðskiptaráðuneyti. Meðal málefna sem flytjast til ráðuneytisins frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu eru fjölmiðlar, safnamál, listir og menning og íslenska. Breytingin á heiti ráðuneytisins í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og tilfærsla málaflokka frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu er liður í að skapa skýrari verkaskiptingu og betri samþættingu málaflokka. Með því að sameina menningu, nýsköpun og háskólastarf undir eitt ráðuneyti er lögð áhersla á að efla tengsl skapandi greina og þekkingarsamfélagsins.
Frá ráðuneytinu færist málaflokkurinn fjarskipti til innviðaráðuneytisins.
Þá færist málaflokkurinn iðnaður til atvinnuvegaráðuneytis.
Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Fyrirkomulag mennta- og barnamálaráðuneytisins verður að mestu leyti óbreytt en þó færast til ráðuneytisins málaflokkarnir framhaldsfræðsla og Fræðslusjóður frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er boðuð sókn í menntamálum og segir að m.a. að sérstaklega eigi að huga að sí- og endurmenntun. Framhaldsfræðsla snertir mörg svið samfélagsins en á augljósa samleið með menntamálum þar sem hún miðar að því að veita fullorðnum einstaklingum með stutta formlega skólagöngu viðeigandi námstækifæri og auðvelda þeim að hefja nám að nýju. Framhalds- og símenntun er ekki aðeins málefni einstaklingsins heldur einnig mikilvægt úrræði á vinnumarkaði til að bregðast við hröðum tæknibreytingum og nýta þær til stöðugra umbóta. Áhersla á framhalds- og símenntun um land allt getur þannig skapað aukin tækifæri fyrir einstaklinga og verið til hagsbóta fyrir efnahagslegar framfarir.
Innan Stjórnarráðsins er unnið að heildstæðu kerfi framhaldsfræðslu og að því að styrkja hana sem fimmtu stoð hins opinbera menntakerfis og verður þeirri vinnu framhaldið í mennta- og barnamálaráðuneyti.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Fyrirkomulag umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins mun að mestu leyti haldast óbreytt. Stjórnarmálefni skógræktar og landgreiðslu munu þó flytjast til ráðuneytisins frá matvælaráðuneytinu. Meðal helstu verkefna í skógrækt og landgræðslu er að stuðla að aukinni bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi og draga úr losun í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Málaflokkurinn á því mikla samlegð með þeim málaflokkum sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Með tilfærslu skógræktar og landgræðslu til ráðuneytisins skapast betri forsendur til að samþætta árangur loftslagsverkefna í landbúnaði og landnýtingu við önnur verkefni þess á sviði loftslagsmála. Verkefnaflutningurinn styður þannig við markmið ríkisstjórnarinnar í umhverfis- og loftslagsmálum samkvæmt stefnuyfirlýsingu.
Utanríkisráðuneyti.
Fyrirkomulag utanríkisráðuneytisins verður óbreytt en unnið verður að eflingu ráðuneytisins á sviði fiskveiðisamninga, öryggis- og varnarmála og þar m.a. litið til flutnings verkefna á því sviði til ráðuneytisins, þ.m.t. netöryggismála.
4. Tímasetning breytinga.
Stefnt er að því að nýr forsetaúrskurður um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti með þeim breytingum sem gerð eru skil í tillögu þessari komi til framkvæmda 1. mars 2025. Þá verður einnig gefinn út nýr forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í samræmi við þau áform sem lýst er hér á undan. Til skoðunar er tilfærsla fleiri málefna og vera kann að síðarnefndi úrskurðurinn taki fleiri breytingum en hér hafa verið raktar. Þá hefur, frá því að ríkisstjórnin var mynduð, verið fallið frá því að breyta heiti innviðaráðuneytisins og færa málaflokkinn dýravelferð milli matvælaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
Um leið og ríkisstjórnin var mynduð hófust samningaviðræður milli ráðuneyta um þær breytingar sem hér hefur verið lýst. Formlega verða þær þó ekki innsiglaðar fyrr en að umræddir forsetaúrskurðir hafa verið gefnir út.