Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 7 — 7. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um siglingavernd, nr. 50/2004 (áhættumat hafnaraðstöðu).
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í innviðaráðuneytinu að höfðu samráði við Samgöngustofu. Frumvarpið var jafnframt kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tveimur ákvæðum gildandi laga um siglingavernd, nr. 50/2004. Breytingunum er ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um ófullnægjandi innleiðingu Evrópureglna.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Í maí 2023 gerði ESA úttektir á hafnaraðstöðu í tveimur höfnum á Íslandi. Í kjölfarið gaf ESA út skýrslur um úttektirnar, þar sem innleiðing á efni 2. mgr. 15. gr. viðauka II og 16. mgr. 1. gr. viðauka III við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 725/2004 frá 31. mars 2004 um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu, var talin fela í sér meiri háttar frávik. Frávikið felst í því að í 6. gr. laga um siglingavernd, nr. 50/2004, er gert ráð fyrir að verndarfulltrúi hafnaraðstöðu geti gert áhættumat fyrir hafnaraðstöðu, en samkvæmt reglugerð (EB) nr. 725/2004 skal slíkt áhættumat aðeins gert af hlutaðeigandi stjórnvaldi eða viðurkenndum verndaraðila. Með frumvarpinu er miðað að því að gera úrbætur á þeim hluta gildandi laga um siglingavernd sem ESA tilgreinir sem meiri háttar frávik.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarpið skiptist í tvær greinar, auk gildistökuákvæðis. Í 1. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á a-lið 3. mgr. 4. gr. laganna en þar segir nú að Samgöngustofa beri ábyrgð á að staðfesta áhættumat útgerða fyrir íslensk skip og áhættumat hafnaraðstöðu fyrir hafnir. Með frumvarpinu er lagt til að í stað þess segi að Samgöngustofa beri ábyrgð á að staðfesta áhættumat útgerða fyrir íslensk skip og áhættumat hafna og geri áhættumat hafnaraðstöðu. Í framangreindum skýrslum ESA vegna úttektanna árið 2023 var ekki gerð athugasemd við 4. gr. laganna en breytingin er lögð til í samræmi við breytingu sem lögð er til á 1. mgr. 6. gr. laganna.
Í 2. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna. Þar segir nú að útbúa skuli áhættumat fyrir hafnaraðstöðuna og verndaráætlun og bera undir Samgöngustofu til staðfestingar. Með frumvarpinu er lagt til að í stað þess segi að Samgöngustofa geri áhættumat fyrir hafnaraðstöðuna og staðfesti áhættumat hafnar. Þá segi að Samgöngustofa staðfesti verndaráætlun hafnaraðstöðu og hafnar. Í skýrslum ESA var það skilgreint sem meiri háttar frávik að gert væri ráð fyrir að verndarfulltrúi hafnarsvæðis gæti gert áhættumat fyrir hafnaraðstöðu, en samkvæmt reglugerð (EB) nr. 725/2004 skal slíkt áhættumat aðeins gert af hlutaðeigandi stjórnvaldi eða viðurkenndum verndaraðila. Með breytingunni er brugðist við þessu fráviki og er hún í samræmi við framkvæmd sem þegar er viðhöfð hjá Samgöngustofu við gerð áhættumats og verndaráætlunar fyrir hafnaraðstöðu.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Ísland er skuldbundið til að innleiða og tryggja að farið sé að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 725/2004 um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu. Frumvarpinu er ætlað að mæta skuldbindingum íslenska ríkisins að því leyti. Gerðin er innleidd í íslenskan rétt með reglugerð um vernd skipa og hafnaraðstöðu, nr. 474/2007, með stoð í lögum um siglingavernd, nr. 50/2004.
5. Samráð.
Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu voru unnar í samvinnu við Samgöngustofu.
Áform um lagasetningu voru birt til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 16. september 2024 (mál nr. S-179/2024). Engar umsagnir bárust.
Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frá 23. september til 14. október 2024 (mál nr. S-186/2024). Engar umsagnir bárust.
6. Mat á áhrifum.
Samþykkt frumvarpsins mun fyrst og fremst hafa þau áhrif að ákvæði laga um siglingavernd verða í samræmi við ákvæði reglugerðar (EB) nr. 725/2004 sem snúa að framkvæmd áhættumats fyrir hafnaraðstöðu í íslenskum höfnum. Gera má ráð fyrir að máli vegna fráviks hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vegna ófullnægjandi innleiðingar verði í framhaldinu lokað. Ekki er gert ráð fyrir að breytingarnar hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð eða sveitarfélög. Ekki er talið að breytingarnar hafi frekari áhrif hér á landi.