Ferill 11. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 11 — 11. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um sameiningar háskóla.
Frá Ingvari Þóroddssyni.
1. Hver er afstaða ráðherra til áforma sem kynnt voru á síðasta kjörtímabili um sameiningar háskóla, þ.e. um sameiningu Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum í eina háskólasamstæðu og sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst?
2. Eru aðrar en framangreindar sameiningar í undirbúningi?
3. Hvernig sér ráðherra fyrir sér framtíð háskólanáms utan höfuðborgarsvæðisins með tilliti til áformaðra sameininga?
Munnlegt svar óskast.