Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 77 — 77. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins fyrir árið 2024.
1. Inngangur.
Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur þingmanna frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Á hefðbundnu starfsári kemur ráðið tvisvar saman, annars vegar á þemaráðstefnu að vetri og hins vegar á ársfundi að hausti. Á árinu 2024 átti þemaráðstefnan að fara fram í Tasiilaq á Grænlandi en vegna veðurs varð að aflýsa henni og fór hún fram á netinu nokkru síðar. Ársfundur fór fram í Þórshöfn í Færeyjum.
Þema Vestnorræna ráðsins árið 2024 var vestnorræn tungumál í stafrænum heimi. Þemaráðstefnan var haldin á fjarfundi á Teams 8. mars.
Ársfundur ráðsins var haldinn í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum í lok ágúst. Á fundinum voru samþykktar tvær ályktanir sem verða sendar til ríkisstjórna og þjóðþinga landanna þriggja til umfjöllunar. Í báðum ályktunum var fjallað um vestnorræn tungumál í stafrænum heimi. Önnur þeirra kom frá Íslandsdeild en í henni var lagt til að menntamálaráðherrar vestnorrænna landa fundi um stefnu landanna í málefnum tungumála og gervigreindar. Hin kom frá landsdeild Færeyja. Í henni var lagt til að samstarf milli Færeyja, Grænlands og Íslands í tengslum við tungumál og máltækni yrði styrkt. Einnig voru á ársfundi samþykktar tvær yfirlýsingar, annars vegar þar sem Vestnorræna ráðið lýsti stuðningi við grænlenskar konur og stúlkur sem brotið var á í lykkjumálinu og hins vegar þar sem ráðið lýsti stuðningi við sjálfstæða aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði. Þá voru nýjar starfsreglur ráðsins samþykktar á ársfundi.
Í tengslum við ársfund voru barna- og ungmennabókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins afhent. Var boðið til afhendingarhátíðar í fyrsta sinn og hlaut færeyski rithöfundurinn Elin á Rógvi verðlaunin fyrir bókina Flytifuglar.
Vestnorræna ráðið hélt tvær málstofur á ráðstefnunni Hringborði norðurslóða í samstarfi við Norðurlandaráð og þingmannaráðstefnu um norðurslóðamál sem fram fór í Reykjavík í október. Önnur málstofan bar yfirskriftina „Réttindi hinsegin fólks á norðurslóðum“ (e. Queer Rights in the Arctic). Þar var fjallað um réttindi og réttindabaráttu hinsegin fólks á norðurslóðum og þær áskoranir sem fylgja. Hin málstofan bar yfirskriftina „Framtíð þingmannasamstarfs á norðurslóðum“. Þar var fjallað um þær áskoranir og breytingar sem fram hafa komið í samstarfi á norðurslóðum. Áskoranir tengjast m.a. þátttöku Rússa og að hvaða marki hægt er að eiga í samstarfi við þá, t.d. vísindasamstarfi. Spurt var hver væru helstu verkefni og málefni sem slíkt samstarf tæki til.
Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins tók þátt í þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík og fundaði við það tilefni með samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands.
2. Almennt um Vestnorræna ráðið.
Lögþing Færeyja, Landsþing Grænlands (grænl. Inatsisartut) og Alþingi stofnuðu Vestnorræna þingmannaráðið í Nuuk 24. september 1985 sem samstarfsvettvang þinganna þriggja. Með því varð fastmótað samstarf landanna sem oft ganga undir nafninu Vestur-Norðurlönd (d. Vestnorden). Stofnun ráðsins byggðist fyrst og fremst á sameiginlegum bakgrunni landanna á ýmsum sviðum með hliðsjón af nánum sögulegum og menningarlegum arfi og tengslum og sameiginlegum hagsmunum í umhverfis-, samgöngu- og efnahagsmálum. Á aðalfundi árið 1997 var samþykktur nýr stofnsamningur og nafni samtakanna um leið breytt í Vestnorræna ráðið. Á sama fundi var skerpt á markmiðum samstarfsins og nýjar vinnureglur samþykktar. Einnig var ákveðið að setja á fót skrifstofu ráðsins og ráða framkvæmdastjóra. Lögþing Færeyinga, Alþingi Íslendinga og Landsþing Grænlendinga velja hvert um sig sex fulltrúa til setu í Vestnorræna ráðinu, átján fulltrúa alls.
Markmið Vestnorræna ráðsins eru að starfa að hagsmunum Vestur-Norðurlanda, vernda auðlindir og menningararfleifð Norður-Atlantshafssvæðisins, stuðla að samvinnu ríkisstjórna og landsstjórna Vestur-Norðurlanda um mikilvæg mál og vera tengiliður milli vestnorrænna þinga og samstarfsaðila. Vestnorræna ráðið hefur ályktað um ýmis mál, þar á meðal umhverfismál, auðlinda- og samgöngumál, björgunar- og öryggismál, málefni norðurslóða, heilbrigðismál, menningarmál og íþrótta- og æskulýðsmál svo að fátt eitt sé nefnt.
Vestnorræna ráðið kemur saman tvisvar á ári, annars vegar til þemaráðstefnu í byrjun árs og hins vegar til ársfundar í ágúst eða byrjun september. Ársfundur fer með æðsta ákvörðunarvald ráðsins. Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins skipuleggur verkefni og störf ráðsins milli ársfunda. Forsætisnefnd samanstendur af einum fulltrúa frá hverju landi, formanni, fyrsta varaformanni og öðrum varaformanni. Formennska í ráðinu skiptist árlega milli landanna þriggja. Ráðið getur einnig skipað sérstakar vinnunefndir um einstök mál. Ársfundur samþykkir ályktanir um ýmis mál sem síðan eru teknar til umfjöllunar í þjóðþingum landanna sem þingsályktunartillögur. Á hverjum ársfundi er tekin ákvörðun um hvaða þema verði tekið fyrir á þemaráðstefnu ráðsins árið eftir.
Árið 2002 var undirrituð yfirlýsing um samstarf Vestnorræna ráðsins og ríkisstjórna Vestur-Norðurlanda. Með yfirlýsingunni var kveðið á um að ríkisstjórnir landanna þriggja gæfu ráðinu skýrslu um stöðu framkvæmda gildandi ályktana fyrir ársfund ráðsins. Forsætisnefnd gæfist auk þess tækifæri til að funda með ráðherrum landanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs ár hvert. Eftir því sem kostur væri tækju ráðherrar landanna einnig þátt í fundum Vestnorræna ráðsins.
Vestnorræna ráðið vinnur jafnframt að framgangi markmiða sinna með virkri þátttöku í norrænu og evrópsku samstarfi og norðurskautssamstarfi. Árið 2006 var undirritaður samstarfssamningur Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs og var hann tekinn til endurskoðunar árið 2021. Samningurinn veitir Vestnorræna ráðinu og Norðurlandaráði gagnkvæman þátttökurétt hvoru á fundum annars og mótar samstarf milli ráðanna frekar. Samningurinn gerir það m.a. mögulegt að taka ályktanir Vestnorræna ráðsins til umfjöllunar í Norðurlandaráði.
Árið 2008 komu Vestnorræna ráðið og Evrópuþingið sér saman um að halda reglubundna upplýsinga- og samráðsfundi. Auk þess hefur Vestnorræna ráðið áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu og þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál og árið 2016 gerði ráðið jafnframt samning um samstarf við Hringborð norðurslóða. Loks gerði Vestnorræna ráðið samstarfssamning við þingmannanefnd um norðurskautsmál í tengslum við ársfund ráðsins í ágúst 2022 sem veitir Vestnorræna ráðinu og þingmannanefndinni gagnkvæman þátttökurétt hvoru á fundum annars og kveður á um árlegan fund formannanna tveggja í tengslum við aðra fundi sem bæði samtök sækja.
Á ársfundi sínum árið 2024 samþykkti Vestnorræna ráðið nýjar starfsreglur. Veigamestu breytingarnar voru gerðar á reglum um tungumál sem notuð eru í starfi Vestnorræna ráðsins. Fram til þessa hefur vinnutungumál verið danska. Fundir hafa farið fram á því máli og öll skjöl, fundargerðir og dagskrá verið á dönsku. Samkvæmt nýjum starfsreglum eru tungumál Vestnorræna ráðsins nú færeyska, grænlenska, íslenska og norrænt tungumál. Öll meginskjöl eru gefin út á færeysku, grænlensku, íslensku, norrænu tungumáli og ensku. Fundargerðir eru jafnframt gefnar út á norrænu tungumáli og ensku og dagskrá sömuleiðis. Í starfsreglum segir að forsætisnefnd setji frekari reglur varðandi túlkun og þýðingar.
3. Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.
Fram að alþingiskosningum 30. nóvember árið 2024 voru aðalmenn í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins þau Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Eyjólfur Ármannsson, varaformaður, þingflokki Flokks fólksins, Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokksins, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingflokki Viðreisnar, Jón Gunnarsson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingflokki Miðflokksins. Varamenn voru Orri Páll Jóhannsson, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Jakob Frímann Magnússon, þingflokki Flokks fólksins, Halla Signý Kristjánsdóttir, þingflokki Framsóknarflokksins, Guðbrandur Einarsson, þingflokki Viðreisnar, Hildur Sverrisdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, og Bergþór Ólason, þingflokki Miðflokksins. Ritari Íslandsdeildar var Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins tók virkan þátt í starfi ráðsins á árinu og vann að framgangi vestnorrænna mála á Alþingi. Íslandsdeild lagði fram tillögu til þingsályktunar á 154. löggjafarþingi um framfylgd fjögurra ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi 2023. Tillagan var samþykkt sem ályktun Alþingis nr. 14/154 30. apríl 2024.
Íslandsdeild hélt fimm fundi á árinu þar sem þátttaka og undirbúningur fyrir fundi Vestnorræna ráðsins var ræddur. Á þeim fundum voru drög að nýjum starfsreglum einnig á dagskrá og kom Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, á fund til að kynna þau.
4. Fundir Vestnorræna ráðsins 2024.
Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins árið 2024 fór fram á fjarfundi á Teams. Vestnorræna ráðið kom saman til ársfundar í Þórshöfn í Færeyjum í ágúst þar sem tvær ályktanir og tvær yfirlýsingar voru samþykktar. Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins tók þátt á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík í október og átti auk þess fjóra fjarfundi.
Fjarfundur forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 29. janúar 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar tóku þátt í fundinum Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Á dagskrá fundarins var undirbúningur fyrir þemaráðstefnu, innri fund og fund forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins sem fara átti fram í Tasiilaq á Grænlandi 4.–6. mars (sjá fylgiskjal I).
Fjarfundur forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins, 6. mars 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar sóttu ráðstefnuna Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Meginefni fundarins var að ákveða hvernig halda ætti þemaráðstefnu þar sem þeirri sem átti að fara fram í Tasiilaq á Grænlandi dagana 4.–6. mars var aflýst vegna veðurs. Ákveðið var að halda styttri ráðstefnu á fjarfundi föstudaginn 8. mars (sjá fylgiskjal II).
Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins 8. mars 2024.
Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins fór fram á fjarfundi á Teams 8. mars. Þema ráðstefnunnar var vestnorræn tungumál í stafrænum heimi. Fyrirlesarar voru Katti Frederiksen frá Grænlandi, eigandi Iperaq Consult, Linda Heimisdóttir frá Íslandi, framkvæmdastjóri Miðeindar, og Iben Nyholm Debess frá Færeyjum, doktorsnemi við Fróðskaparsetur Færeyja, (sjá fylgiskjal III).
Fjarfundur forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 29. apríl 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar tóku þátt í fundinum Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Á dagskrá fundarins var undirbúningur fyrir ársfund Vestnorræna ráðsins og alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðsins (sjá fylgiskjal IV).
Fjarfundur forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 12. ágúst 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar tóku þátt í fundinum Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Á dagskrá fundarins var undirbúningur fyrir ársfund Vestnorræna ráðsins, sem fram fór í Þórshöfn í Færeyjum 27.–28. ágúst, og ársreikningur og fjárhagsáætlun (sjá fylgiskjal V).
Ársfundur Vestnorræna ráðsins 27.–28. ágúst 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu ársfund Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, Eyjólfur Ármannsson, varaformaður, Jón Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Á fundinum gerðu fulltrúar landsdeilda grein fyrir starfinu á liðnu ári. Þá ávörpuðu samstarfsaðilar Vestnorræna ráðsins fundinn. Menningarmálaráðherra Færeyja tók þátt í fundinum og hélt fyrst erindi um almannaöryggi á Vestur-Norðurlöndum og síðan erindi um vestnorræn mál í stafrænum heimi. Ársfundur samþykkti tvær ályktanir og tvær yfirlýsingar. Þá voru nýjar starfsreglur ráðsins samþykktar á fundinum (sjá fylgiskjal VI).
Þátttaka á 75. þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík 28.–31. október 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar sóttu þingið Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, og Arna Bang, sérfræðingur í alþjóðamálum. Auk þátttöku á þingi Norðurlandaráðs átti forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fundi annars vegar með fulltrúum forsætisnefndar Norðurlandaráðs og hins vegar með samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands (sjá fylgiskjal VII).
5. Ályktanir og yfirlýsingar Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 27.–28. ágúst 2024.
. Ályktun nr. 1/2024, um samstarf milli Færeyja, Grænlands og Íslands í tengslum við tungumál og máltækni.
. Ályktun nr. 2/2024, um stefnu í málefnum tungumála og gervigreindar.
. Yfirlýsing um stuðning við grænlenskar konur í lykkjumálinu.
. Yfirlýsing um stuðning við sjálfstæða aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði.
Alþingi, 6. febrúar 2025.
| Jón Gnarr, form. |
Ingibjörg Davíðsdóttir, varaform. |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. |
| Guðlaugur Þór Þórðarson. | Guðrún Hafsteinsdóttir. | Sigurjón Þórðarson. |
Fylgiskjal I.
F R Á S Ö G N
af fjarfundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 29. janúar 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður Íslandsdeildar, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Aðrir fundarmenn voru Jenis av Rana, formaður Vestnorræna ráðsins og formaður landsdeildar Færeyja, Poula Árnadóttir, ritari landsdeildar Færeyja, Aqqalu Jerimiassen, varaformaður landsdeildar Grænlands, Atli Arnfinsson Thomassen, ritari landsdeildar Grænlands, og Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.
Meginefni fundarins var undirbúningur fyrir þemaráðstefnu, innri fund og fund forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins í Tasiilaq 4.–6. mars. Forsætisnefnd samþykkti dagskrá ráðstefnunnar og þátttakendalista sem og dagskrá innri fundar ráðsins sem einnig verður haldinn í Tasiilaq. Þá ræddi nefndin drög að reglum varðandi skiptingu útgjalda og ábyrgðar á fundum Vestnorræna ráðsins og ákvað að halda þeirri umræðu áfram á fundi sínum í Tasiilaq.
Þá ræddi nefndin veru og sýnileika Vestnorræna ráðsins á samfélagsmiðlum og heimasíðu ráðsins og hvernig best væri að sinna upplýsingastarfi fyrir ráðið og hver bæri ábyrgð á því. Að lokum var rætt um 40 ára afmæli Vestnorræna ráðsins því að árið 2025 verða 40 ár liðin frá stofnun þess og ákveðið var að gefa út afmælisrit af því tilefni.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.
Fylgiskjal II.
F R Á S Ö G N
af fjarfundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 6. mars 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður Íslandsdeildar, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Aðrir fundarmenn voru Jenis av Rana, formaður Vestnorræna ráðsins og formaður landsdeildar Færeyja, Poula Árnadóttir Lervig, ritari landsdeildar Færeyja, Doris J. Jensen, formaður landsdeildar Grænlands, Atli Arnfinsson Thomassen, ritari landsdeildar Grænlands, og Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.
Meginefni fundarins var að fjalla um og ákveða hvernig halda ætti þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins. Þemaráðstefnunni sem fara átti fram í Tasiilaq á Grænlandi 4.–6. mars var aflýst vegna veðurs. Ákveðið var að halda styttri ráðstefnu á fjarfundi föstudaginn 8. mars. Fyrirlesarar myndu halda erindi sín, einn frá hverju landi, og síðan yrðu spurningar leyfðar. Forsætisnefnd fól framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins í samráði við ritara landsdeilda að finna tíma fyrir innri fund ráðsins og ákveðið var að hann yrði einnig fjarfundur.
Þá ræddi nefndin fyrirhugaðan ársfund Vestnorræna ráðsins sem haldinn verður í Þórshöfn í Færeyjum í ágúst og opinn borgarafund í tengslum við hann.
Fjallað var um alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðsins og ákveðið að framkvæmdastjóri tæki saman minnisblað þar um og að landsdeildir ræddu það á fundum sínum fyrir ársfund ráðsins í ágúst.
Þá samþykkti forsætisnefnd reglur um ábyrgð og hlutverk í tengslum við fundi Vestnorræna ráðsins.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.
Fylgiskjal III.
F R Á S Ö G N
af þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins 8. mars 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, Eyjólfur Ármannsson, varaformaður, Jón Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson, ásamt Hildi Edwald, sérfræðingi í alþjóðamálum.
Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins átti að fara fram í Tasiilaq á austurströnd Grænlands 4.–6. mars en var aflýst vegna veðurs. Þess í stað var ákveðið að halda þemaráðstefnu á fjarfundi 8. mars og var hún talsvert minni í sniðum en ráðstefnan sem upphaflega var skipulögð. Þema ráðstefnunnar var vestnorræn tungumál í stafrænum heimi.
Þrjú erindi voru flutt á ráðstefnunni. Fyrirlesarar voru Katti Frederiksen frá Grænlandi, eigandi Iperaq Consult, Linda Heimisdóttir frá Íslandi, framkvæmdastjóri Miðeindar, og Iben Nyholm Debess frá Færeyjum, doktorsnemi við Fróðskaparsetur Færeyja.
Erindi Katti Frederiksen bar yfirskriftina „Frá munnlegri sagnahefð til gervigreindar: Hver er framtíðarsýn grænlensku í stafrænum heimi?“ Í erindinu ræddi Frederiksen um sögu grænlenskrar tungu og stöðu hennar á tímum stafrænnar þróunar og aukinnar enskunotkunar í tengslum við almennara aðgengi að tækni og snjalltækjum. Titill erindis Lindu Heimisdóttur var „Gervigreind í tengslum við lítil tungumál“. Linda fjallaði um þróun gervigreindar í tengslum við tungumál og málskilning gervigreindarforrita. Hún gerði grein fyrir því hvernig gagnasöfn og stærð þeirra geta skipt höfuðmáli þegar tölvum eru kennd tungumál. Linda sagði frá þeirri vinnu sem fram hefur farið á Íslandi, m.a. hjá Miðeind, við að koma íslenskri tungu á framfæri í heimi gervigreindarforrita. Að lokum flutti Iben Nyholm Debess erindi sem nefndist „Framtíð vestnorrænna tungumála í stafrænum heimi og sameiginlegar áskoranir“. Í erindi Nyholm Debess kom fram að tungumál sem hafa litla útbreiðslu og skilja eftir sig fá spor á internetinu í formi gagna eða gagnasafna komast síður að í hinum stafræna heimi. Gervigreindarforrit nota gögn sem til eru á internetinu til að læra tungumál. Þess vegna fækkar lítil útbreiðsla tungumáls tækifærum gervigreindar til að læra viðkomandi mál og veldur fleiri mistökum í málnotkun gervigreindar. Nyholm Debess benti jafnframt á að máltækni er mjög fjölbreytt svið sem nær yfir mörg stig málvinnslu. Máltækni megi nýta við þýðingar og við iðkun málvísinda. Hún sagði að máltækni væri mjög mikilvæg fyrir lítil tungumál en máltæknilausnir væru mun færri fyrir þau en útbreiddari tungumál eins og ensku.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.
Fylgiskjal IV.
F R Á S Ö G N
af fjarfundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 29. apríl 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður Íslandsdeildar, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Aðrir fundarmenn voru Jenis av Rana, formaður Vestnorræna ráðsins og formaður landsdeildar Færeyja, Annika Mouritsen, ritari landsdeildar Færeyja, Doris J. Jensen, formaður landsdeildar Grænlands, Atli Arnfinsson Thomassen, ritari landsdeildar Grænlands, og Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.
Forsætisnefnd fjallaði um ársfund Vestnorræna ráðsins sem fram fer í Þórshöfn í Færeyjum 27.–29. ágúst 2024. Rætt var um dagskrá fundarins, boð til gesta og fleiri atriði.
Alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðsins var meginefni fundarins. Á ársfundi Vestnorræna ráðsins, sem fram fór í Reykjavík í ágúst 2023, var tekin innri ákvörðun nr. 1/2023, um endurskoðun og endurmat á samstarfi Vestnorræna ráðsins við önnur alþjóðasamtök. Vestnorræna ráðið hefur áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu og á í samstarfi við Evrópusambandið og Norðurlandaráð. Ákveðið var að halda áfram umfjöllun um alþjóðasamstarf Vestnorræna ráðsins á næsta forsætisnefndarfundi.
Hringborð norðurslóða og þátttaka Vestnorræna ráðsins á þeim vettvangi var einnig til umræðu á fundinum. Forsætisnefnd ákvað að halda viðburði og málstofur í samstarfi við önnur samtök og stofnanir á ráðstefnunni.
Að lokum var tekin ákvörðun um að framlengja ráðningu Lárusar Valgarðssonar sem framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.
Fylgiskjal V.
F R Á S Ö G N
af fjarfundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins 12. ágúst 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður Íslandsdeildar, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Aðrir fundarmenn voru Jenis av Rana, formaður Vestnorræna ráðsins og formaður landsdeildar Færeyja, Poula Árnadóttir Lervig, ritari landsdeildar Færeyja, Doris J. Jensen, formaður landsdeildar Grænlands, Inga Olsen, ritari landsdeildar Grænlands, og Lárus Valgarðsson, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.
Forsætisnefnd fjallaði um ársfund Vestnorræna ráðsins í Þórshöfn í Færeyjum 27.–29. ágúst. Farið var yfir tillögur að ályktunum sem borist höfðu frá landsdeildum Íslands og Færeyja og teknar verða fyrir á ársfundinum.
Þá kynnti framkvæmdastjóri ársreikning og fjárhagsáætlun ráðsins og voru málin rædd. Starfsreglur Vestnorræna ráðsins verða ræddar á ársfundi og fór forsætisnefnd yfir þær tillögur að breytingum sem framkvæmdastjóri hefur unnið að og lagt fram.
Fram var haldið umræðum um alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðsins en forsætisnefnd leggur fram tillögur um það á ársfundi. Forsætisnefnd hyggst einnig leggja fram tillögu að þema fyrir næsta starfsár ráðsins sem var samþykkt á fundi forsætisnefndar.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.
Fylgiskjal VI.
F R Á S Ö G N
af ársfundi Vestnorræna ráðsins í Þórshöfn í Færeyjum 27.–28. ágúst 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins sóttu fundinn Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður, Eyjólfur Ármannsson, varaformaður, Jón Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum.
Í þemaumræðu fundarins var sjónum beint að almannaöryggi á Vestur-Norðurlöndum. Sirið Stenberg, menningarmálaráðherra Færeyja, hélt erindi og svaraði spurningum fundarmanna. Hún sagði að samstarf Íslands, Færeyja og Grænlands væri mikilvægara en nokkru sinni áður. Alþjóðastjórnmál og heimurinn allur hefði breyst til frambúðar með árásarstríði Rússa í Úkraínu. Staðan nú væri áskorun sem kallaði á aukið samstarf. Áskoranir manna á Vestur-Norðurlöndum væru aðrar en þeirra sem búa á meginlandi Evrópu. Íbúar á Vestur-Norðurlöndum yrðu að standa vörð um aðfangakeðju, alla innviði og netöryggi og þar væru sæstrengir mjög mikilvægir. Fólk á þessum slóðum þyrfti ekki einungis að vera viðbúið árásum heldur einnig náttúruhamförum. Samstarf væri mikilvægt. Hver og einn þyrfti að vinna að því að tryggja öryggi svæðisins og allir þyrftu að vinna saman. Þá fjallaði ráðherra um það hversu mikilvæg viðvera NATO á svæðinu væri varðandi allan öryggisviðbúnað.
Í umræðum eftir framsögu ráðherra var rætt um mikilvægi þess að halda norðurslóðum sem lágspennusvæði. Nú færu kjarnorkuknúnir kafbátar frá Rússlandi um norðurslóðir og það byði hættu á umhverfisslysum heim. Slík slys gætu haft alvarleg áhrif á haf, umhverfi og fólk á svæðinu. Eitt hlutverk Vestnorræna ráðsins væri að minna á vilja íbúa til að halda svæðinu sem lágspennusvæði.
Einnig var rætt um mikilvægi þess að vestnorræn lönd byggju sig undir stór áföll, til að mynda alvarlegar náttúruhamfarir eða slys. Umferð skemmtiferðaskipa hefði aukist mikið og fjöldi fólks á hverju skipi væri mikill. Ef slík skip yrðu fyrir óhappi eða slysi þyrfti að hafa bjargráð til að koma farþegum til hjálpar og hlúa að þeim. Í þessu sambandi kom fram að gera þyrfti greinarmun á borgaralegum vörnum og hernaðarlegum vörnum.
Ísland, Grænland og Færeyjar geta og hafa unnið vel og mikið saman þegar kemur að borgaralegum vörnum og ættu að efla og styrkja það samstarf. Að því er varðar hernaðarlegar varnir treysta þessi lönd fremur á hernaðarbandalagið NATO. Sjálfboðaliðastarf er hryggjarstykkið í almannavörnum á Íslandi og í Færeyjum. Grænlendingar þurfa á hinn bóginn að byggja upp borgaralegar varnir og horfa helst til Íslendinga og Færeyinga sem fyrirmyndar. Fjölgun ferðamanna á Grænlandi og uppbygging ferðamannaiðnaðar kallar á aukinn viðbúnað viðbragðsaðila.
Sirið Stenberg, menningarmálaráðherra Færeyja, hélt framsöguerindi í umræðu um vestnorræn mál í stafrænum heimi samkvæmt þema ársins. Hún sagði að tungumál manna væru þeim mjög mikilvæg og að þau væru stór hluti af sjálfsmynd þeirra og samfélagi. Tungumálið væri lykill að lestri og kennslu og grunnur samfélagsins alls. Vestnorræn mál væru öll mjög lítil en íslenska skæri sig úr þar sem hún væri mun stærri en hin tvö. Huga þyrfti vel að þessum tungumálum og gæta þess að þau héldu í við öra tækniþróun, sérstaklega í máltækni. Ekki væri sjálfgefið að hafa aðgang að kennslu og fræðslu á eigin tungu. Það væri hins vegar afar mikilvægt. Ör tækniþróun og stafvæðing gerði það að verkum að fleira fólk öðlaðist aðgang að ýmiss konar þekkingu og fræðslu. Vestnorræn tungumál mættu ekki verða eftirbátur annarra málsamfélaga. Ráðherra sagði frá því hvað Færeyingar hafa gert í þessum efnum. Út væri komin ný réttritunarorðabók á netinu, boðið væri upp á ókeypis aðgang að netorðabókum, unnið væri að því að auka aðgang að hljóðbókum og nýlega hefðu ný bókasafnslög verið samþykkt. Tónlist væri einnig mikilvæg fyrir tungumál og stafrænar tónlistarveitur góður vettvangur til að koma henni á framfæri. Fundarmenn ræddu síðan um það hvar hvert og eitt af tungumálunum þremur stendur. Íslenska stæði hinum framar þar sem aðgengi að tækni eins og lesurum, þ.e. tækni sem getur lesið íslenskan texta, og skrifurum, tækni sem getur skrifað eftir tali, og þýðingum væri meiri á íslensku en á grænlensku og færeysku. Í öllum löndunum þremur væri unnið að þessum málum. Dýrt gæti reynst að fjárfesta í þessari tækni og hún væri mjög fljót að úreldast. Mikilvægt væri að vestnorræn lönd ynnu saman, miðluðu reynslu sinni og tækni og hugsanlega gætu þau starfað saman í samningaviðræðum við stór og alþjóðleg tæknifyrirtæki.
Fulltrúar samstarfsaðila Vestnorræna ráðsins ávörpuðu fundinn að umræðum loknum. Fulltrúi Norðurlandaráðs var Maria Stockhaus, þingmaður frá Svíþjóð, og flutti hún erindi fyrir hönd ráðsins. Hún sagði frá vorþingi þess sem haldið var í Þórshöfn í apríl en þar var þemað öryggi á norðurslóðum. Þau málefni sem efst eru á baugi í Vestnorræna ráðinu og í Norðurlandaráði væru oft þau sömu eða mjög svipuð. Það væri því mikilvægt að þau sem láta sig málefni á norðurslóðum varða ynnu saman og miðluðu þekkingu sín á milli. Þá var rætt um ósk Grænlendinga og Færeyinga um sjálfstæða aðild að Norðurlandaráði. Sú umræða hefur verið umfangsmikil á vettvangi Norðurlandaráðs, sérstaklega í tengslum við endurskoðun Helsingforssáttmálans. Stockhaus sagði að unnið væri að því á vettvangi Norðurlandaráðs að finna lausnir og að mál yrðu rædd ítarlega á þingi Norðurlandaráðs sem fram færi í Reykjavík í október.
Nils T. Bjørke, þingmaður á norska Stórþinginu, tók þátt fyrir hönd þjóðþings Noregs í ársfundi en hefð er fyrir því að bjóða fulltrúa Stórþingsins á ársfund Vestnorræna ráðsins. Í erindi sínu sagði Bjørke frá því sem er á döfinni í Stórþinginu. Þar er helst rætt um auknar varnir Noregs, árásarstríð Rússa í Úkraínu, þróun mála í Miðausturlöndum og nýtingu náttúruauðlinda. Bjørke fjallaði einnig um NORA, Norrænt Atlantssamstarfið, sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja, Grænlands og strandhéraða Noregs. Lýsti hann mikilli ánægju með starf sem þar fer fram.
Nikkulaat Jeremiassen, varaforseti Heimskautaráðs inúíta (ICC, Inuit Circumpolar Council), sagði frá samtökunum en meðlimir þeirra eru frá Grænlandi, Kanada og Rússlandi. Hann lagði mikla áherslu á mikilvægi þess að íbúar á norðurslóðum fengju að vera með í ákvarðanatöku varðandi málefni norðurslóða. Þátttaka þeirra í samtökum eins og Norðurskautsráðinu væri grundvallaratriði. Frumbyggjar á norðurslóðum ættu alltaf að koma að borðinu og nauðsynlegt væri að styrkja samtök þeirra á svæðinu.
Að lokum flutti Jósúa Gabríel Davíðsson erindi fyrir hönd Norðurlandaráðs æskunnar. Hann vakti máls á því að lítið færi fyrir þátttöku ungmenna á vettvangi Vestnorræna ráðsins og spurði hvort auka mætti aðkomu ungs fólks að ráðinu. Ungt fólk ætti að eiga varanlegan fulltrúa í Vestnorræna ráðinu því að ungt fólk léti sig málefni ráðsins varða. Þingmenn Vestnorræna ráðsins tóku vel í þessar hugmyndir og hugðust skoða málið.
Fulltrúar landsdeilda héldu því næst erindi þar sem þeir greindu frá helstu atriðum í starfi hverrar landsdeildar á síðastliðnu ári. Henrik Old gerði grein fyrir starfi landsdeildar Færeyja, Doris J. Jensen sagði frá starfi landsdeildar Grænlands og fyrir hönd Íslandsdeildar talaði Eyjólfur Ármannsson. Formaður Vestnorræna ráðsins, Jenis av Rana, gerði þá grein fyrir samstarfi Vestnorræna ráðsins við Norðurskautsráðið og þingmannanefnd um norðurslóðamál. Doris J. Jensen greindi frá samstarfi Vestnorræna ráðsins við Norðurlandaráð en hún er einnig meðlimur landsdeildar Grænlands í Norðurlandaráði. Þá fjallaði Jenis av Rana um alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðsins, þar á meðal um samstarf ráðsins við Evrópuþingið.
Tvær tillögur að ályktunum voru lagðar fyrir ársfund, önnur frá Íslandsdeild og hin frá landsdeild Færeyja. Í báðum tillögum var fjallað um vestnorræn tungumál í stafrænum heimi. Fyrst var tekin fyrir tillaga landsdeildar Færeyja þar sem lagt var til að samstarf milli Færeyja, Grænlands og Íslands í tengslum við tungumál og máltækni yrði styrkt. Tryggja þyrfti lífsþrótt vestnorrænna mála og auka áherslu á fjárfestingu í þróun máltækni. Í tillögunni voru kynnt fimm atriði:
1. Móta skuli stefnu fyrir frekari þróun máltækni í færeysku og grænlensku.
2. Styrkja skuli samstarf í rannsóknum á máltækni og þróun hennar og samnýta tækifæri og sérfræðiþekkingu sem til er í löndunum þremur.
3. Hefja skuli samvinnu um námskeið og fræðslu til að byggja upp og viðhalda staðbundinni hæfni og sérfræðiþekkingu.
4. Hefja skuli samstarf um lagasetningu um efnisöflun og gagnasöfn.
5. Hefja skuli samstarf á stjórnmálavettvangi til að stuðla að og auka sýnileika og útbreiðslu málanna í stafrænum miðlum.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Í tillögu Íslandsdeildar var lagt til að menntamálaráðherrar vestnorrænna landa funduðu um stefnu landanna í málefnum tungumála og gervigreindar og könnuðu hvort grundvöllur væri fyrir auknu samstarfi. Þá voru ráðherrar hvattir til að kortleggja þá þróun og uppbyggingu sem á sér stað heima fyrir, hvetja til aukinnar samvinnu meðal aðila á þessu sviði og greiða götu þeirra í slíku samstarfi. Tillaga Íslandsdeildar var einnig samþykkt samhljóða.
Gerðar voru breytingar á dagskrá ársfundar þar sem fram höfðu komið tvær tillögur að yfirlýsingum. Tillögur þessar voru ræddar og samþykktar á fundinum. Í fyrri yfirlýsingu lýsti Vestnorræna ráðið stuðningi við grænlenskar konur og stúlkur sem brotið var á í lykkjumálinu og við baráttu þeirra fyrir viðurkenningu og réttlæti. Í síðari yfirlýsingu lýsti Vestnorræna ráðið stuðningi við sjálfstæða aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði.
Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins lagði fram tillögu að breyttu samstarfi við önnur alþjóðasamtök og var hún samþykkt. Einnig lagði forsætisnefnd fram tillögu að breyttum starfsreglum Vestnorræna ráðsins og var hún einnig samþykkt.
Í lok ársfundar var Doris J. Jensen kjörin formaður Vestnorræna ráðsins. Þá voru auk hennar kjörin í forsætisnefnd Steinunn Þóra Árnadóttir, fyrsti varaformaður, og Jenis av Rana, annar varaformaður.
Í tengslum við ársfund voru barna- og ungmennabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins veitt en verðlaunin eru veitt annað hvert ár. Færeyski rithöfundurinn Elin á Rógvi hlaut verðlaunin fyrir bókina Flytifuglar. Auk hennar voru tilnefnd Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir fyrir bókina Héragerði og Apollus Inûsugtoq fyrir bókina Eli aalisagarsuarlu.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.
Fylgiskjal VII.
F R Á S Ö G N
af fundum Vestnorræna ráðsins á 76. þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík 28. október til 31. október 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar sóttu þingið Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Arna Bang, sérfræðingur í alþjóðamálum. Auk þátttöku á þingi Norðurlandaráðs átti forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fundi með fulltrúum forsætisnefndar Norðurlandaráðs og með vestnorrænum samstarfsráðherrum Norðurlanda. Einnig var haldinn undirbúningsfundur fyrir þessa fundi. Af hálfu landsdeildar Grænlands sóttu þingið Doris J. Jensen, formaður Vestnorræna ráðsins, og Inga Olsen, alþjóðaritari. Jenis av Rana, formaður landsdeildar Færeyja, og Poula Árnadóttir Lervig, alþjóðaritari, tóku þátt fyrir hönd landsdeildar Færeyja.
Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins hélt fund í Smiðju 28. október. Þar voru aðrir fundir sem voru á dagskrá á þingi Norðurlandaráðs undirbúnir. Þá fór forsætisnefnd yfir síðasta ársfund og ræddi hvað vel hefði gengið og hvað betur mætti fara. Þá var rætt um fjármál og nýjar starfsreglur sem samþykktar voru á síðasta ársfundi. Ársfundur sem haldinn verður árið 2025 fyrir árið 2025 og þemaráðstefna árið 2025 voru einnig rædd. Að lokum voru barna- og ungmennabókmenntaverðlaun og hugsanleg breyting á fyrirkomulagi þeirra rædd sem og afmælisrit sem ákveðið hefur verið að gefa út í tilefni af 40 ára afmæli Vestnorræna ráðsins árið 2025.
Fundarstjóri á fundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins með forsætisnefnd Norðurlandaráðs var Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs. Gestur fundarins var Anders Hansen, forseti Norðurlandaráðs æskunnar. Meginefni fundarins var samstarf Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs árið 2024 og fyrirhugað samstarf árið 2025. Doris J. Jensen sagði frá ársfundi Vestnorræna ráðsins og þeim ályktunum sem þar voru samþykktar. Þar var einnig samþykkt yfirlýsing um stuðning Vestnorræna ráðsins við sjálfstæða aðild Færeyinga og Grænlendinga að Norðurlandaráði. Hún þakkaði fyrir gott samstarf Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs á Hringborði norðurslóða og lýsti miklum vilja til aukins samstarfs við Norðurlandaráð æskunnar. Þá upplýsti hún um það að þema Vestnorræna ráðsins árið 2025 yrði samgöngur og innviðir á Vestur-Norðurlöndum. Bryndís Haraldsdóttir þakkaði fyrir samstarfið á árinu, sérstaklega í tengslum við Hringborð norðurslóða. Hún þakkaði einnig fyrir góðar móttökur í Færeyjum en hún var viðstödd Ólafsvöku í sumar. Þá ræddi hún um að yfirlýsing Vestnorræna ráðsins um sjálfstæða aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði hefði verið móttekin og tekin til umræðu á vettvangi Norðurlandaráðs og að löndin sem aðild ættu að Norðurlandaráði væru átta. Þema Vestnorræna ráðsins árið 2024 var vestnorræn tungumál í stafrænum heimi og var það talsvert rætt á fundinum. Staða í alþjóðamálum og mikilvægi samvinnu allra norrænna landa var einnig til umræðu. Voru fundarmenn sammála um mikilvægi samvinnu, sérstaklega nú á óvissutímum.
Hefð er fyrir því að forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fundi með vestnorrænum samstarfsráðherrum Norðurlanda meðan á þingi Norðurlandaráðs stendur. Að þessu sinni fór fram fundur með samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Íslands, Willum Þór Þórssyni. Auk hans sátu fundinn Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir og Vilborg Ólafsdóttir frá utanríkisráðuneyti. Ráðherra sagði frá því að hann hefði verið samstarfsráðherra í 12 daga. Hann fjallaði um mikilvægi vestnorræns samstarfs og sagði frá samstarfi vestnorrænna heilbrigðisráðherra.
Doris J. Jensen sagði að því miður hefði ríkisstjórn Grænlands ákveðið að taka ekki þátt í þingi Norðurlandaráðs í þetta sinn. Þá sagði hún frá starfi Vestnorræna ráðsins árið 2024, til að mynda frá þemaráðstefnu sem haldin var á fjarfundi og frá ársfundi sem fram fór í Þórshöfn í Færeyjum. Ráðherra og formaður Vestnorræna ráðsins voru sammála um að samstarf vestnorrænna landa í heilbrigðis- og menntamálum væri mjög mikilvægt.
Á fundinum var sjálfstæð aðild Færeyja og Grænlands að Norðurlandaráði eitt meginumræðuefnið. Lýsti Willum Þór Þórsson stuðningi við sjálfstæða aðild landanna. Einnig var rætt um fyrri ályktanir Vestnorræna ráðsins, sérstaklega á sviði jafnréttis og heilbrigðis. Þá var ráðherra upplýstur um þema Vestnorræna ráðsins árið 2025 og að þemaráðstefna færi fram í Reykjavík í janúar það ár.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og á vefsvæðinu www.vestnordisk.is.