Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 79 — 79. mál.
Leiðréttur texti.
Skýrsla
Íslandsdeildar NATO-þingsins fyrir árið 2024.
1. Inngangur.
Á vettvangi NATO-þingsins árið 2024 var árásarstríð Rússlands í Úkraínu í brennidepli en 75 ára afmæli NATO setti einnig svip sinn á starfsemi þingsins, sem og innganga Svíþjóðar í bandalagið. Tímamótin voru nýtt til þess að fara yfir stöðu og framtíð NATO og áhersla lögð á mikilvægi samstöðu bandalagsríkja til þess að tryggja sameiginlegt öryggi. Í þeirri umræðu kom fram að vinna þyrfti áfram að því að tryggja forskot bandalagsins á öllum sviðum, jafnt í tækniþróun og hernaði, en að það krefðist aukinnar fjárfestingar í varnarmálum meðal bandalagsríkja. Rússland var áfram skilgreint sem stærsta beina ógnin við öryggi NATO og frið og stöðugleika á Evró-Atlantshafssvæðinu. Þá var staða lýðræðis einnig ofarlega á dagskrá og þær áskoranir sem einræðisríki á borð við Íran, Kína og Norður-Kóreu skapa fyrir bandalagið. Í því samhengi var sérstök áhersla lögð á stofnun seturs á sviði lýðræðis ( Center for Democratic Resilience) til þess að efla og vernda lýðræðislegar stofnanir og gildi meðal bandalagsríkja.
Á vorfundi NATO-þingsins í Sofíu var samstaða aðildarríkja NATO og stríðið í Úkraínu helsta dagskrármálið. Lögð var áhersla á stuðning NATO-þingsins við Úkraínu sem og áframhaldandi aðlögun NATO að nýjum veruleika í kjölfar árásarstríðs Rússlands í Úkraínu. Tvær yfirlýsingar voru samþykktar á fundinum, annars vegar um að standa með Úkraínu til sigurs og hins vegar tilmæli þingsins til leiðtoga NATO sem komu saman í Washington í júlí í tilefni af 75 ára afmæli bandalagsins. Framkvæmdastjórn NATO-þingsins sendi einnig frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna nýlegrar lagasetningar í Georgíu um erlenda erindreka þar sem varað var við því að lögin væru skref aftur á bak fyrir lýðræði í Georgíu og stríddu gegn gildum og áherslum NATO og ESB. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, ávarpaði þingið í síðasta skipti en hann lét af embætti 1. október. Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, tók við embættinu af Stoltenberg. Landsdeild Svíþjóðar tók þátt í sínum fyrsta þingfundi eftir inngöngu í NATO og þjóðþing Möltu og Kósovós hlutu aukaaðild að NATO-þinginu.
Ársfundur NATO-þingsins fór fram skömmu fyrir alþingiskosningar og því var ekki þátttaka af hálfu Alþingis. Á ársfundinum var stríðið í Úkraínu enn í brennidepli og ítrekaði þingið staðfastan stuðning við Úkraínu. Þá endurnýjaði þingið einnig skuldbindingar sínar um að standa vörð um frelsi, frið og lýðræði í takt við hlutverk bandalagsins. Marcos Perestrello, þingmaður frá Portúgal, var kjörinn nýr forseti NATO-þingsins og Avril Haines, yfirmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna, hlaut árlega viðurkenningu NATO-þingsins á sviði jafnréttis, „Konur í þágu friðar og öryggis“.
Af öðrum stórum málum sem tekin voru til umfjöllunar á fundum NATO-þingsins árið 2024 má nefna eflingu sameiginlegra loft- og eldflaugavarna, baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi tengdu átökum, tækifærin sem felast í ábyrgri notkun gervigreindar í hernaði, vatnsöryggi, verndun menningararfs á stríðstímum, samstarf við ríki á Kyrrahafssvæðinu og öryggi á vesturhluta Balkanskaga. Njáll Trausti Friðbertsson var höfundur skýrslu um mikilvægi hálfleiðara í þróun nýrrar tækni. Í skýrslunni segir m.a. að tæknilegir yfirburðir NATO hafi haft afgerandi áhrif fyrir frið, öryggi og velmegun bandalagsríkja og að þróun nýrrar og uppbrotskenndrar tækni skipti sköpum í öru samkeppnisumhverfi nútímans. Sú tækni sé ekki einungis drifkraftur nýsköpunar og hagvaxtar heldur sé hún einnig afar mikilvæg á sviði öryggis- og varnarmála. Þá gaf NATO-þingið út fjölda málefnaskýrslna og ályktana á árinu sem nálgast má á vefsvæði NATO-þingsins.
2. Almennt um NATO-þingið.
NATO-þingið hefur allt frá árinu 1955 verið umræðu- og samstarfsvettvangur þingmanna aðildarríkja NATO um öryggis- og varnarmál. Þingið tryggir ákveðið lýðræðislegt eftirlit með stefnu NATO og að rödd þingmanna heyrist þegar að stefnumótun kemur. Þá er þingið mikilvægur vettvangur til þess að styrkja samstarfið yfir Atlantsála á milli aðildarríkjanna í Evrópu annars vegar og Norður-Ameríku hins vegar. Eftir lok kalda stríðsins fjölgaði aðildar- og aukaaðildarríkjum NATO-þingsins ört og hafði stækkunin áhrif á starfsemi þingsins, m.a. varðandi aukna áherslu á uppbyggingu lýðræðislegra stjórnkerfa í Austur-Evrópu. Störf þingsins beinast í auknum mæli að öryggismálum Evrópu í heild, efnahagslegum og pólitískum áskorunum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu og hinu hnattræna öryggiskerfi.
Hlutverk og starfssvið þingsins.
Í Atlantshafssáttmálanum frá árinu 1949 var ekki gert ráð fyrir þinglegri ráðgjafarsamkundu en með tímanum jókst fylgi við þá skoðun að nauðsyn væri á skipulegu samstarfi þjóðþinga í tengslum við NATO og til stuðnings bandalaginu. Þingið hefur ekki formlega stöðu innan bandalagsins en smám saman hefur komist á náin og virk samvinna stofnananna. Meginhlutverk þingsins er að efla samstöðu og samráð þjóðþinga á sviði öryggis- og varnarmála. Þingið kemur saman tvisvar á ári, til vorfundar og ársfundar að hausti.
Starfsemi þingsins fer að mestu fram í fimm málefnanefndum: stjórnmálanefnd, varnar- og öryggismálanefnd, efnahagsnefnd, vísinda- og tækninefnd og nefnd um lýðræði- og öryggi. Auk þess fer mikið starf fram á vegum Miðjarðarhafshópsins sem þó hefur ekki stöðu formlegrar málefnanefndar og þá er þingmannaráð um málefni Úkraínu afar virkt innan NATO-þingsins en staða þess er einnig óformleg. Þessar nefndir eru meginvettvangur umræðna, þær fjalla um samtímamál sem upp koma á starfssviði þeirra og vinna um þau skýrslur. Nefndarálit eru oftast sett fram í formi tilmæla, yfirlýsinga eða ályktana sem nefndin samþykkir og þingið greiðir síðan atkvæði um. Tilmælum er beint til Norður-Atlantshafsráðsins, sem fer með æðsta ákvörðunarvald innan NATO, og í þeim er hvatt til tiltekinna aðgerða. Ályktunum þingsins er hins vegar beint til ríkisstjórna aðildarríkjanna.
Þótt þingið sé óháð NATO hafa samskipti þess við bandalagið smám saman tekið á sig fastara form. Á meðal formlegra samskipta má í fyrsta lagi nefna formleg svör við tilmælum þingsins frá framkvæmdastjóra bandalagsins fyrir hönd Norður-Atlantshafsráðsins. Í öðru lagi flytur framkvæmdastjóri bandalagsins ávarp á vorfundum og ársfundum NATO-þingsins og svarar fyrirspurnum þingmanna. Í þriðja lagi koma stjórnarnefnd NATO-þingsins og Norður-Atlantshafsráðið árlega saman til fundar í höfuðstöðvum NATO í Brussel. Að lokum skal nefndur sameiginlegur fundur þriggja nefnda NATO-þingsins í Brussel í febrúar ár hvert til að greiða fyrir samskiptum við starfsmenn og embættismenn NATO, SHAPE ( Supreme Headquarters Allied Powers Europe, æðstu bækistöðvar bandamanna í Evrópu) og Evrópusambandsins.
Fulltrúar á NATO-þinginu og forustumenn þess.
Á NATO-þinginu á sæti 281 þingmaður frá aðildarríkjunum 32. Fjöldi fulltrúa frá hverju landi ræðst að mestu af fólksfjölda. Stærsta sendinefndin er sú bandaríska með 36 þingmenn en Ísland er í hópi þeirra smæstu með þrjá þingmenn. Auk fastra fulltrúa má hvert þjóðþing tilnefna jafnmarga varamenn sem mega taka þátt í störfum þingsins en hafa ekki atkvæðisrétt. Ráðherrar í ríkisstjórnum mega ekki vera fulltrúar á NATO-þinginu. Ef einnig eru taldir þingmenn frá 11 aukaaðildarríkjum, fjórum samstarfsríkjum á Miðjarðarhafssvæðinu og sjö ríkjum sem eiga áheyrnaraðild að NATO-þinginu er heildarfjöldinn um 369 þingmenn. Þingmenn frá samstarfsríkjum NATO-þingsins geta tekið þátt í þingfundum og nefndafundum, að undanskildum fundum stjórnarnefndar, lagt fram ályktanir og breytingartillögur og gegnt trúnaðarstörfum en hafa ekki atkvæðisrétt á fundum.
Æðstu embætti NATO-þingsins eru sjö og er kosið í sex þeirra, þ.e. forseta og fimm varaforseta, af þingfulltrúum á ársfundi. Kjörtímabilið er eitt ár og er heimilt að endurkjósa sitjandi forseta eða varaforseta einu sinni. Sjöunda embættið er staða gjaldkera en stjórnarnefndin kýs hann til tveggja ára í senn og er heimilt að endurkjósa gjaldkerann tvisvar. NATO-þinginu er stjórnað af stjórnarnefnd en í henni eiga sæti forseti, varaforsetar, gjaldkeri og nefndarformenn auk formanna allra landsdeilda aðildarríkja NATO.
3. Íslandsdeild NATO-þingsins.
Árið 2024 áttu fram að alþingiskosningum 30. nóvember eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild NATO-þingsins: Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Andrés Ingi Jónsson, varaformaður, þingflokki Pírata, og Jóhann Friðrik Friðriksson, þingflokki Framsóknarflokksins. Varamenn voru Diljá Mist Einarsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Stefán Vagn Stefánsson, þingflokki Framsóknarflokksins, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokki Pírata.
Ritari Íslandsdeildar í byrjun árs var Arna Gerður Bang, sérfræðingur í alþjóðamálum, en Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum, tók við sem ritari. Íslandsdeild hélt einn fund á árinu til undirbúnings þátttöku sinni á vorfundi NATO-þingsins í Sofíu í maí.
Skipan málefnanefnda var eftirfarandi:
| Stjórnarnefnd: | Njáll Trausti Friðbertsson. | |
| Til vara: | Diljá Mist Einarsdóttir. | |
| Stjórnmálanefnd: | Njáll Trausti Friðbertsson. | |
| Til vara: | Diljá Mist Einarsdóttir. | |
| Varnar- og öryggismálanefnd: | Jóhann Friðrik Friðriksson. | |
| Til vara: | Stefán Vagn Stefánsson. | |
| Nefnd um lýðræði og öryggi: | Andrés Ingi Jónsson. | |
| Til vara: | Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. | |
| Efnahagsnefnd: | Andrés Ingi Jónsson. | |
| Til vara: | Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. | |
| Vísinda- og tækninefnd: | Njáll Trausti Friðbertsson. | |
| Til vara: | Diljá Mist Einarsdóttir. | |
| Vinnuhópur um Miðjarðarhafssvæðið: | Jóhann Friðrik Friðriksson. | |
| Þingmannaráð um málefni Úkraínu: | Andrés Ingi Jónsson. | |
Njáll Trausti Friðbertsson gegndi á árinu starfi aðalskýrsluhöfundar vísinda- og tækninefndar NATO-þingins. Þá var Andrés Ingi Jónsson varaformaður undirnefndar lýðræðis- og öryggisnefndar og átti sæti í þingmannaráði Úkraínu og NATO-þingsins.
4. Fundir NATO-þingsins.
Á venjubundnu ári kemur NATO-þingið saman til þingfundar tvisvar sinnum. Vorfundur er haldinn í maí og ársfundur í október eða nóvember. Á svokölluðum febrúarfundi heldur stjórnarnefndin fund með framkvæmdastjóra NATO og Norður-Atlantshafsráðinu, auk þess sem stjórnmálanefnd, efnahagsnefnd og varnar- og öryggismálanefnd halda sameiginlegan fund. Jafnframt kemur stjórnarnefnd þingsins saman til fundar í mars eða apríl ár hvert. Þá sækir fjöldi NATO-þingmanna árlegan fund um Atlantshafssamstarfið sem fram fer í desember í samstarfi NATO-þingsins og bandaríska Atlantshafsráðsins. Loks halda nefndir og undirnefndir þingsins reglulega málstofur og fundi á milli þingfunda.
Árið 2024 tók Íslandsdeild þátt í vorfundi í Sofíu í maí en vegna alþingiskosninga féll þátttaka niður á ársfundi í Montréal í nóvember. Einnig tóku Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, og Andrés Ingi Jónsson, varaformaður, þátt í febrúarfundi í Brussel. Þá tók Njáll Trausti þátt í fundi stjórnarnefndar í Tallinn í mars og í árlegum fundi um Atlantshafssamstarfið ( Transatlantic Forum) í Washington í desember. Að auki sótti Njáll Trausti sameiginlegan fund stjórnmálanefndar og efnahags- og öryggisnefndar í apríl í New York og Fíladelfíu, fund varnar- og öryggismálanefndar í september í Alaska og Washington-fylki og leiðtogafund NATO-þingsins í Washington-borg í júlí. Andrés Ingi Jónsson sótti fundi þingmannaráðs Úkraínu í febrúar í Brussel og í júní í Kænugarði.
Febrúarfundur NATO-þingsins í Brussel 19.–21. febrúar.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, og Andrés Ingi Jónsson, varaformaður, auk Örnu Gerðar Bang, sérfræðings í alþjóðamálum. Fyrirkomulag fundarins var með hefðbundnum hætti, þ.e. embættismenn og herforingjar Atlantshafsbandalagsins og aðrir gestir héldu erindi um afmörkuð málefni og svöruðu spurningum þingmanna. Þá var haldinn árlegur fundur stjórnarnefndar NATO-þingsins með Norður-Atlantshafsráðinu. Í samræmi við trúnaðarreglu sem gildir á febrúarfundi NATO-þingsins ( Chatham House Rule) er ekki birt frásögn af fundinum.
Stjórnarnefndarfundur NATO-þingsins í Tallinn 23.–24. mars.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins tók þátt í fundinum Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst árásarstríð Rússlands í Úkraínu, aðild Finnlands og Svíþjóðar að bandalaginu og staða og framtíð NATO. (Sjá fylgiskjal I.)
Vorfundur NATO-þingsins í Sofíu 24.–27. maí.
Árlegur vorfundur NATO-þingsins var haldinn í Sofíu dagana 24.–27. maí. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, Andrés Ingi Jónsson, varaformaður, og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á vorfundum NATO-þingsins vinna málefnanefndir skýrslur og eiga fundi með sérfræðingum og fulltrúum ríkisstjórna og alþjóðastofnana. Þá er þingfundur haldinn þar sem fjallað er um þau mál sem hæst ber í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu. Helstu umræðuefni fundarins voru samstaða aðildarríkja NATO og stríðið í Úkraínu. Lögð var áhersla á stuðning NATO-þingsins við Úkraínu sem og áframhaldandi aðlögun NATO að nýjum veruleika í kjölfar árásarstríðs Rússlands í Úkraínu. (Sjá fylgiskjal II.)
Transatlantic Forum í Washington og Norfolk 9.–12. desember.
NATO-þingið, Atlantshafsráð Bandaríkjanna og National Defense University ( NDU) efna árlega til fundar um helstu málefni Atlantshafssamstarfsins í Washington-borg. Tilgangur fundarins er einkum að veita evrópskum þingmönnum á NATO-þinginu innsýn í það sem hæst ber í bandarískri umræðu um öryggis- og varnarmál. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sótti fundinn Njáll Trausti Friðbertsson, formaður. Fyrirkomulag fundarins var með hefðbundnum hætti, þ.e. stjórnmálamenn, embættismenn, fræðimenn, fulltrúar hugveitna og aðrir gestir héldu erindi um afmörkuð málefni og svöruðu spurningum þingmanna. Að þessu sinni var einnig skipulögð sérstök dagskrá í Norfolk í framhaldi af ráðstefnunni í Washington. Í samræmi við trúnaðarreglu sem gildir á Transatlantic Forum ( Chatham House Rule) er ekki birt frásögn af fundinum.
5. Yfirlýsingar og ályktanir.
Sjá má lista yfir yfirlýsingar og ályktanir NATO-þingsins á árinu 2024 í fylgiskjali III.
Alþingi, 6. febrúar 2025.
| Dagur B. Eggertsson, form. |
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaform. |
Sigmar Guðmundsson. |
Fylgiskjal I.
FRÁSÖGN
af fundi stjórnarnefndar NATO-þingsins í Tallinn 23.–24. mars 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins tók þátt í fundinum Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Meðal helstu áherslumála á fundinum var árásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða og framtíð NATO og samstarf þess við ríki utan bandalagsins, en í ár eru 75 ár liðin frá því að stofnsáttmáli NATO var undirritaður 4. apríl 1949 í Washington-borg. Stjórnarnefndarfundurinn var jafnframt fyrsti fundur NATO-þingsins eftir að Svíþjóð gerðist aðili að bandalaginu og eru aðildarríki nú orðin 32 talsins.
Stjórnarnefndin sendi frá sér yfirlýsingu í tilefni af 75 ára stofnafmæli bandalagsins sem birt var á vef þingsins í kjölfar fundarins. Þar kemur fram að bandalagið sé staðráðið í að standa vörð um lýðræðið. Það standi sterkt og sameinað gegn hvers kyns ógnum og hryðjuverkum á grundvelli 5. gr. stofnsáttmálans og muni styðja Úkraínu til sigurs. Leiðtogafundur NATO verður haldinn í Washington-borg í júlí í tilefni af tímamótunum og mun NATO-þingið koma saman í aðdraganda fundarins. Forseti þingsins, Michal Szczerba, tekur þátt í leiðtogafundinum og lagði fram tillögu að yfirlýsingu á fundi stjórnarnefndar þar sem fram koma tilmæli þingsins til leiðtoga NATO. Yfirlýsingin verður lögð fyrir leiðtogafundinn í Washington-borg. Þá var einnig tekin til umræðu yfirlýsing forseta um nauðsyn þess að standa með Úkraínu til sigurs. Báðar þessar yfirlýsingar verða teknar til frekari umræðu á fundi stjórnarnefndar og vorþingi NATO-þingsins í Sofíu í Búlgaríu í maí.
Lauri Hussar, forseti þjóðþings Eistlands, og Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands, ávörpuðu stjórnarnefndina. Kallas átti einnig samtal við þingmenn þar sem rædd voru framlög til varnarmála, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, fjölþáttaógnir og leiðir til að auka viðnámsþrótt aðildarríkja. Flutt var upptaka af ávarpi Rúslans Stefantsjúks, forseta úkraínska þingsins, sem nefnist Verkhovna Rada, og í kjölfarið fór Jehor Tsjerníev, formaður landsdeildar Úkraínu, yfir stöðu mála í Úkraínu. Stjórnarnefndin tók einnig til umfjöllunar breytingar á skipan og hlutverki samstarfsríkja bandalagsins og ræddi tillögur að aðgerðum til aukins samstarfs við ríki í suðri og austur við Kyrrahaf. Þá voru einnig til umfjöllunar skýrsla frá endurskoðendaráði NATO ( IBAN) vegna ársreiknings þingsins fyrir árið 2023 og skýrsla framkvæmdastjóra NATO-þingsins, Ruxöndru Popa, um stöðu kynjajafnréttis innan NATO-þingsins. Þær skýrslur og tillögur að breytingum sem lagðar voru fyrir stjórnarnefnd verða áfram til umræðu á vettvangi NATO-þingsins og koma til afgreiðslu á vorþingi þess í Sofíu 24.–27. maí í vor.
Fylgiskjal II.
FRÁSÖGN
af vorfundi NATO-þingsins í Sofíu 24.–27. maí 2024.
Árlegur vorfundur NATO-þingsins var haldinn í Sofíu dagana 24.–27. maí. Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sóttu fundinn Njáll Trausti Friðbertsson, formaður, Andrés Ingi Jónsson, varaformaður, og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á vorfundum NATO-þingsins vinna málefnanefndir skýrslur og eiga fundi með sérfræðingum og fulltrúum ríkisstjórna og alþjóðastofnana. Þá er þingfundur haldinn þar sem fjallað er um þau mál sem hæst ber í alþjóðlegri öryggis- og varnarmálaumræðu. Helstu umræðuefni fundarins voru samstaða aðildarríkja NATO og stríðið í Úkraínu. Lögð var áhersla á stuðning NATO-þingsins við Úkraínu sem og áframhaldandi aðlögun NATO að nýjum veruleika í kjölfar árásarstríðs Rússlands í Úkraínu.
Tvær yfirlýsingar voru samþykktar á fundinum, annars vegar um að standa með Úkraínu til sigurs og hins vegar tilmæli þingsins til leiðtoga NATO sem komu saman í Washington í júlí í tilefni af 75 ára afmæli bandalagsins. Framkvæmdastjórn NATO-þingsins sendi einnig frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna nýlegrar lagasetningar í Georgíu um erlenda erindreka þar sem varað var við því að lögin væru skref aftur á bak fyrir lýðræði í Georgíu og stríddu gegn gildum og áherslum NATO og ESB. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, ávarpaði þingið í síðasta skipti þar sem hann lætur af embætti 1. október á þessu ári og hlaut hann viðurkenningu við það tilefni frá Michal Szczerba, forseta NATO-þingsins, fyrir framúrskarandi starf í þágu bandalagsins. Þá tók landsdeild Svíþjóðar þátt í sínum fyrsta þingfundi eftir að ríkið gerðist fullgildur aðili að NATO og þjóðþing Möltu og Kósovós hlutu aukaaðild að bandalaginu. Um 190 þingmenn sóttu fundinn frá 32 aðildarríkjum NATO auk fulltrúa frá aukaaðildar- og áheyrnarríkjum bandalagsins.
Á fundum fimm fastanefnda NATO-þingsins voru rædd drög að 16 skýrslum þar sem fjallað var um málefni allt frá loftslagsbreytingum, baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi, tengslum NATO við ríkin á Balkanskaga og hvernig standa mætti vörð um menningararfleifð á stríðstímum til örrar tækniþróunar á borð við gervigreind og áhrif hennar á öryggisumhverfi bandalagsríkja. Vísinda- og tækninefnd ræddi drög að þremur skýrslum á fundi sínum. Sú fyrsta fjallaði um áskoranir og tækifæri á sviði gervigreindar, önnur skýrslan var um hlutverk hálfleiðara (e. semiconductors) í þróun nýrrar uppbrotskenndrar tækni (e. emerging and disruptive technologies) og sú þriðja beindist að lífhönnun (e. synthetic biology) sem tvíeggjuðu sverði þar sem tekin voru til umfjöllunar tækifæri sem felast í lífhönnun en einnig ýmsar hættur vegna þróunar hennar.
Njáll Trausti Friðbertsson er aðalskýrsluhöfundur vísinda- og tækninefndar NATO-þingsins og kynnti hann drög að skýrslu um mikilvægi hálfleiðara í þróun nýrrar tækni og svaraði spurningum nefndarmanna. Hann sagði að tæknilegir yfirburðir NATO hefðu haft afgerandi áhrif fyrir frið, öryggi og velmegun bandalagsríkja og að þróun nýrrar og uppbrotskenndrar tækni skipti sköpum í öru samkeppnisumhverfi nútímans. Sú tækni væri ekki einungis drifkraftur nýsköpunar og hagvaxtar heldur væri hún einnig afar mikilvæg á sviði öryggis- og varnarmála. Hann sagði að NATO væri meðvitað um stöðuna sem sýndi sig m.a. í störfum vísinda- og tæknistofnunar bandalagsins ( STO), hraðlinum DIANA sem NATO hefði sett á fót fyrir nýsköpun á sviði varnarmála og eins í starfsemi nýsköpunarsjóðs NATO. Njáll Trausti beindi sjónum sínum sérstaklega að Kína og sagði að ríkið væri einn helsti keppinautur bandalagsins á sviði tækniþróunar, m.a. á sviði gervigreindar og skammtafræði, í þróun þjarka og sjálfvirkra kerfa, við gagnagreiningu og í geimnum. Sú tækni sem lægi til grundvallar þessari öru þróun byggðist á hálfleiðurum (e. chips) og þá væri að finna í öllum helsta tæknibúnaði, allt frá farsímum, ísskápum og bílum til háþróaðra hergagna og vopna. Hann sagði því afar mikilvægt að tryggja aðgengi að hálfleiðurum fyrir bandalagsríki NATO og í því samhengi þyrfti einnig að horfa til framleiðslu og þróunar þar sem ekki væri hægt að treysta á aðfangakeðjur eins og bersýnilega hefði komið í ljós árin 2020–2023.
Innanríkisráðherra Búlgaríu, Kalín Stojanov, flutti erindi við upphaf fundar í nefnd um lýðræði og öryggi. Andrés Ingi Jónsson spurði hann út í fjölmiðlaumhverfið í Búlgaríu og hvaða aðgerðir ríkið hefði ráðist í til þess að stemma stigu við kynbundnu ofbeldi. Stojanov lagði áherslu á þá ábyrgð stjórnvalda að deila gagnreyndum upplýsingum og að fjölmiðlum bæri skylda til að koma á framfæri áreiðanlegum upplýsingum. Þá sagði hann að ríkið væri staðráðið í að standa við allar skuldbindingar sem það hefði gengist undir í Evrópusamstarfi og að innanríkisráðuneytið starfaði náið með ríkissaksóknara til að bæta viðbrögð við kynbundnu ofbeldi. Nefndin fjallaði einnig um drög að þremur skýrslum. Í fyrstu skýrslunni var sjónum beint að kynbundnu ofbeldi, önnur skýrslan fjallaði um það hvernig hægt væri að standa vörð um menningararf á stríðstímum og Andrés Ingi kynnti þriðju skýrslu nefndarinnar sem fjallaði um það hvernig bregðast mætti við áhrifum af auknu vatnsóöryggi fyrir öryggi bandalagsríkja en skýrsluhöfundur er Merle Spellerberg frá Þýskalandi. Í skýrslunni kom m.a. fram að þurrkar, flóð og vatnsskortur fæli ekki einungis í sér beina ógn við samfélög og íbúa þess heldur ykjust líkur á átökum vegna mögulegra deilna um auðlindir og aðgengi. Það væri því brýnt að bregðast við núna til þess að auka aðlögunarhæfni ríkja og koma í veg fyrir óþarfa átök.
Stjórnmálanefndin tók til umfjöllunar þrjár skýrslur sem fjölluðu um hvernig NATO næði að standa undir þeim áskorunum sem bandalagið stæði frammi fyrir á 75 ára afmæli þess, um samstarf við ríki utan bandalagsins og um hvernig hægt væri að styðja við þau samstarfsríki sem væru í hvað viðkvæmastri stöðu. Meðal gesta á fundi nefndarinnar var Hristó Grózev, blaðamaður, sem leiddi áður rannsóknir fyrir Bellingcat í málefnum Rússlands en er nú í forsvari fyrir rannsóknarblaðamennsku fyrir The Insider en hann kom einnig fyrir lýðræðis- og öryggisnefnd NATO. Grózev varpaði ljósi á ólíkar aðferðir sem Rússland beitti í upplýsingaóreiðu og hvernig aðferðirnar hefðu breyst á undanförnum áratug. Efnahagsnefnd NATO-þingsins fjallaði sömuleiðis um drög að þremur skýrslum á fundi sínum. Ein þeirra sneri að tækni sem hægt er að nota í tvenns konar tilgangi og þeim þjóðaröryggisáskorunum vegna hennar í efnahagslegu, samfélagslegu og lagalegu tilliti. Önnur fjallaði um stríðshagkerfi Rússlands og sú þriðja um hvernig byggja mætti upp efnahagslegt samstarf við ríkin á Indó-Kyrrahafssvæðinu sem grundvallaðist á sameiginlegum hagsmunum og gildum. Þá fjallaði varnar- og öryggismálanefnd NATO-þingsins um drög að þremur skýrslum á fundi sínum, um loft- og flugskeytavarnarkerfi NATO, um innrásarstríð Rússlands og stuðning bandalagsríkja við Úkraínu og um Vestur-Balkanskaga og auknar öryggisáskoranir í útjaðri NATO.
Hinn eiginlegi þingfundur NATO-þingsins fór fram 27. maí þar sem gestir fluttu ávörp og svöruðu spurningum fundarmanna. Michal Szczerba, forseti NATO-þingsins, setti þingfund og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, ávarpaði NATO-þingið í síðasta sinn, eins og fram hefur komið. Meðal annarra gesta voru Dímítar Glavtsjev, forsætisráðherra Búlgaríu, Rósítsa Kíróva, varaforseti þjóðþings Búlgaríu, og Kerstin Lundgren, þriðji varaforseti þjóðþings Svíþjóðar, en hún ávarpaði þingið í tilefni af aðild Svíþjóðar að NATO. Þá var flutt netávarp Rústems Úmjerovs, varnarmálaráðherra Úkraínu, og myndbandi frá Vólódímír Selenskí deilt þar sem hann gaf gestum innsýn í stöðuna í Úkraínu og varpaði ljósi á verknað og fyrirætlanir Rússlands um leið og hann kallaði eftir stuðningi alþjóðaleiðtoga við að koma á friði. Í ávörpunum kom m.a. fram mikilvægi þess að styðja Úkraínu til sigurs og að standa vörð um sameiginleg gildi. Szczerba lagði áherslu á að beita þyrfti nýjum aðferðum í varnaraðstoð við Úkraínu og aðgerða væri þörf strax, ekki síst með tilliti til loftvarna. Glavtsjev benti á að stríðið væri háð með fjölþættum hætti og því mikilvægt að þróa varnir í takt við breyttar ógnir. Ein af helstu ógnunum sem steðjaði að ríkjum við Svartahaf væri upplýsingaóreiða og þær aðferðir sem rússnesk stjórnvöld beittu til þess að mylja samfélögin innan frá. Fleiri vöktu máls á stöðu lýðræðis nú á tímum, m.a. í tengslum við fjölda mikilvægra kosninga á árinu og minntu á að Rússland starfaði ekki í einangrun heldur ætti í samstarfi við einræðisríki á borð við Belarús, Íran og Kína. Mikilvægi NATO var rætt, bæði í tengslum við 20 ára aðildarafmæli Búlgaríu, aðild Svíþjóðar að bandalaginu og mögulega aðild Úkraínu að NATO en einnig í tengslum við 75 ára afmæli bandalagsins sem bæri upp á tímum ófriðar í Evrópu. Stækkun bandalagsins frá stofnun þess sýndi jafnframt fram á að lýðræðisríki teldu aðild afar mikilvæga til þess að tryggja eigið öryggi. Kíróva sagði í þessu samhengi að allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu hefði sýnt fram á hversu ótraustur friðurinn gæti verið fyrir þau ríki sem standa utan við öflugt varnarsamstarf. Úmjerov kallaði eftir því að bandalagsríkin styddu við Úkraínu með enn öflugri hætti en áður og sendu þann búnað og vopn sem nauðsynleg væru svo að halda mætti uppi vörnum landsins. Þá lagði hann einnig áherslu á að Úkraína fengi aðild að bandalaginu um leið og tækifæri gæfist.
Stoltenberg bauð Svíþjóð sérstaklega velkomna í bandalagið í ávarpi sínu og sagði mikilvægt að sýna fram á mikilvægi bandalagsins á leiðtogafundi NATO í Washington í júlí og að það hefði sannað sig í áranna rás. Hann sagði að aðalástæðan fyrir velgengninni væri sú að bandalaginu hefði tekist að sameina ólík ríki en að nú lægi á að sýna fram á að NATO gæti aðlagast og brugðist við ríkjandi áskorunum. Hann sagði brýnt að orðum fylgdu efndir og að þegar bandalagsríki hefðu samþykkt að veita meiri liðsstyrk og liðsinni yrðu þau að geta sýnt það í verki. Í þessu samhengi lagði hann áherslu á að NATO ætti að fá stærra hlutverk í samhæfingaraðgerðum, stuðningi og þjálfun í Úkraínu. Sjálfsprottinn stuðningur einstakra bandalagsríkja til skemmri tíma skipti máli en nú væri nauðsynlegt að tryggja aukinn fyrirsjáanleika og jafnari stuðning, bæði í hernaðarlegu og efnahagslegu tilliti.
Njáll Trausti Friðbertsson bar fram spurningu til Stoltenbergs þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi þess að NATO héldi forskoti sínu á sviði tækniþróunar og einnig í þróun nýrrar og uppbrotskenndrar tækni. Forysta NATO á þessu sviði væri nauðsynleg fyrir frekari framþróun samfélaga á svæðinu en skipti þó ekki síður sköpum í hernaðarlegu tilliti. Þessi tækni væri til að mynda forsenda bætts eftirlits á svæðum á borð við norðurslóðir þar sem breytt staða, með aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO, gæti jafnframt haft áhrif á aðgerðir og áform Rússlands á svæðinu. Njáll Trausti spurði því hvernig hægt væri að tryggja forskot NATO á sviði tækniþróunar og með því stuðla að auknu öryggi á norðurslóðum. Stoltenberg tók undir mikilvægi þess að NATO héldi forskoti á þessu sviði og að forskotið væri einn af þeim þáttum sem gerði bandalagið að einu farsælasta samstarfi sem um gæti á alþjóðavísu. Hann nefndi Kína sérstaklega sem helsta keppinaut NATO á sviði tækniþróunar og fór yfir þær ráðstafanir sem NATO hefði gripið til í viðleitni til þess að halda eigin forskoti. Hann nefndi í því samhengi nýsköpunarsjóð NATO og DIANA og annað starf sem bandalagið hefði ráðist í til þess að stuðla að áframhaldandi framþróun. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi þess að fjárfesta í hernaði, nýjum búnaði og vopnum því að í því fælist einnig fjárfesting í nýsköpun. Slík fjárfesting kallaði á aukin fjárframlög frá aðildarríkjum sem þyrftu að leggja sitt af mörkum svo að bandalagið gæti haldið áfram að skara fram úr á þessu sviði. Ársfundur NATO-þingsins fer næst fram í Montréal 22.–25. nóvember nk.
Fylgiskjal III.
Yfirlýsingar og ályktanir NATO-þingsins árið 2024.
. Yfirlýsing 489 um að standa með Úkraínu til sigurs.
. Yfirlýsing 490 um að móta NATO fyrir komandi kynslóðir á leiðtogafundinum í Washington.
. Ályktun 491 um að rjúfa þögnina og berjast fyrir virðingu í baráttunni gegn kynferðisofbeldi tengdu átökum.
. Ályktun 492 um að styrkja samþættar loft- og eldflaugavarnir.
. Ályktun 493 um að tryggja tæknilegt forskot til þess að stuðla að aukinni velsæld og öryggi meðal bandalagsþjóða.
. Ályktun 494 um NATO í kjölfar leiðtogafundar í Washington, framtíð þess og stuðning við Úkraínu til sigurs.
. Ályktun 495 um að nýta tækifærin sem felast í ábyrgri notkun á gervigreind í hernaðarlegum tilgangi.