Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 80 — 80. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál fyrir árið 2024.
1. Inngangur.
Á vettvangi þingmannanefndar um norðurskautsmál (SCPAR) bar á árinu 2024 hæst umræðu um ólögmæta innrás Rússa í Úkraínu, starf þingmannanefndarinnar án þátttöku Rússa og loftslagsbreytingar.
Hinn 8. mars 2022 sendi þingmannanefndin frá sér yfirlýsingu varðandi stríðið í Úkraínu þar sem kemur fram að friðsamlegt samstarf á norðurslóðum sé nauðsynleg forsenda fyrir starfi þingmannanefndar um norðurskautsmál. Í framhaldinu gerði þingmannanefndin tímabundið hlé á starfi sínu en fylgdist áfram náið með þróun mála á svæðinu, með friðsamlega hagsmuni ríkja og íbúa norðurslóða í huga. Nefndin komst síðar að þeirri niðurstöðu að samkvæmt starfsreglum nefndarinnar gætu nefndarmenn fundað að eigin vild án þátttöku Rússlands. Nefndarmenn voru sammála um að þrátt fyrir stríðið og afleiðingar þess væri nauðsynlegt að halda áfram að vinna að mikilvægum málum á svæðinu eins og baráttunni gegn loftslagsbreytingum, bættum lífskjörum og réttindum frumbyggja og sjálfbærri þróun. Því var tekin ákvörðun um að halda starfi þingmannanefndarinnar áfram án þátttöku Rússa og hélt nefndin ráðstefnu og tvo fundi á árinu 2024.
Þingmannaráðstefna um norðurskautsmál (CPAR) var haldin í Kiruna í Svíþjóð 20.–22. mars. Á tveggja ára fresti heldur þingmannanefndin ráðstefnu um norðurskautsmál og var fyrsta þingmannaráðstefnan haldin í Reykjavík árið 1993. Á ráðstefnum þingmannanefndarinnar kemur saman stór hópur þingmanna og sérfræðinga frá ríkisstjórnum, háskólastofnunum og félagasamtökum sem láta sig málefni norðurslóða varða. Eitt meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er jafnframt að fylgja eftir samþykktum þeirrar ráðstefnu.
Á ráðstefnunni í Kiruna voru fjögur meginþemu valin til sérstakrar umræðu. Í fyrsta lagi var sjónum beint að öryggi og viðbúnaði á norðurslóðum. Þar var lögð áhersla á leiðir til að tryggja að norðurslóðir verði áfram lágspennusvæði þrátt fyrir aukna hernaðaruppbyggingu og spennu á svæðinu. Í öðru lagi var rætt um loftslagsbreytingar og úrgangsstjórnun á norðurslóðum. Loftslagsbreytingar eru stærsta váin á norðurslóðum og ræddu þátttakendur m.a. hvernig draga mætti úr hækkun hitastigs af völdum loftslagsbreytinganna sem er þrisvar sinnum meiri á svæðinu en annars staðar í heiminum. Í þriðja lagi var rætt um menntun og rannsóknir og í fjórða lagi um viðskipti og atvinnulífið og hvernig hægt sé að nýta möguleika fyrirtækja á sem arðbærastan og sjálfbærastan hátt á svæðinu.
Í yfirlýsingu ráðstefnunnar er tilmælum beint til ríkisstjórna á norðurskautssvæðinu, Norðurskautsráðsins og stofnana Evrópusambandsins. Þar er m.a. kallað eftir aukinni viðleitni til að draga úr loftslagsbreytingum. Einnig er lögð áhersla á nauðsyn þess að viðhalda sterku alþjóðlegu samstarfi á norðurslóðum til að stuðla að áframhaldandi friði og stöðugleika á svæðinu. Fulltrúar Íslandsdeildarinnar lögðu m.a. áherslu á hvernig styrkja megi samfélög á norðurslóðum, sjálfbærni og jafnréttismál.
Formennskuáætlun Noregs í Norðurskautsráðinu, samstarfsvettvangi ríkisstjórna norðurslóðaríkja, var ofarlega á dagskrá vegna breyttra aðstæðna eftir innrás Rússa í Úkraínu en Noregur tók við formennsku af Rússum í maí 2023. Aðildarríki ráðsins náðu samkomulagi um fyrirkomulag til að hefja aftur störf á vettvangi vinnuhópa ráðsins sem legið hafði niðri vegna stríðsins í Úkraínu. Nýju viðmiðunarreglurnar byggjast á skriflegum samskiptum og gera vinnuhópunum kleift að halda áfram með verkefni sín.
Af fleiri málum sem voru ofarlega á baugi hjá þingmannanefndinni má nefna jafnréttismál og auðlindamál með áherslu á námuvinnslu og orkuöryggi. Að auki fóru fram umræður um stefnur aðildarríkjanna og Evrópusambandsins í málefnum norðurslóða.
2. Almennt um þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál (CPAR).
Þingmannaráðstefna um norðurskautsmál ( CPAR – Conference of Arctic Parliamentarians) er umræðuvettvangur þingmanna frá ríkjum við norðurskaut, sem og fulltrúa ríkisstjórna, háskólastofnana og félagasamtaka sem láta sig málefni norðursins varða. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár. Þingmannaráðstefnan samþykkir og sendir frá sér yfirlýsingu um málefni norðurskautsins til ríkisstjórna aðildarríkjanna, stofnana Evrópusambandsins og Norðurskautsráðsins. Síðasta ráðstefna CPAR fór fram í Kiruna í Svíþjóð í mars 2024. Fyrirhugað er að halda næstu ráðstefnu árið 2026 í Bandaríkjunum.
Samvinna norðurskautsríkja hófst þegar samþykkt var áætlun um umhverfisvernd á norðurslóðum í Rovaniemi í Finnlandi árið 1991. Tveimur árum síðar var haldin ráðstefna í Reykjavík sem markaði upphafið að stofnun þingmannanefndar um norðurskautsmál en hún var formlega sett á laggirnar árið 1994. Árið 1996 var Norðurskautsráðið stofnað, m.a. eftir ötula undirbúningsvinnu þingmannanefndarinnar. Ráðið er samstarfsvettvangur ríkisstjórna norðurskautsríkja. Nefndin er stjórnarnefnd þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem haldin er á tveggja ára fresti.
Þingmannanefnd um norðurskautsmál ( SCPAR – Standing Committee of Parliamentarians of the Arctic Region) er stjórnarnefnd þingmannaráðstefnunnar. Á milli þess sem ráðstefnan er haldin er þingmannanefndin að störfum. Þingmannanefndin fundar að jafnaði tvisvar til þrisvar sinnum á ári og einn þingmaður frá hverju aðildarríki situr í nefndinni. Þjóðþing Bandaríkjanna, Kanada, Rússlands og Norðurlanda auk Evrópuþingsins eiga fulltrúa í nefndinni og fulla aðild. Nokkur samtök frumbyggja og ólíkra þjóðarbrota á norðurslóðum eiga einnig fasta fulltrúa í nefndinni. Auk þess eiga ýmis ríki, alþjóðasamtök og frjáls félagasamtök áheyrnaraðild að þingmannanefndinni með rétt til þátttöku í umræðum, svo sem Norðurlandaráð og Vestnorræna ráðið.
Fundir þingmannanefndarinnar eru haldnir til skiptis í aðildarríkjunum átta og Evrópuþinginu. Ísland verður næst í gestgjafahlutverki á árinu 2027. Ekki er föst regla á því hvar fundir eru haldnir en algengast er að aðildarríkin og Evrópuþingið haldi fund í heimalandi sínu annað hvert ár. Meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er að skipuleggja þingmannaráðstefnuna og fylgja eftir samþykktum hennar sem og að fylgjast grannt með störfum Norðurskautsráðsins.
Formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál er jafnan fulltrúi Alþingis í þingmannanefndinni. Formaður þingmannanefndarinnar er grænlenska þingkonan Aaja Chemnitz en hún var kjörin í apríl 2021 ásamt varaformanni nefndarinnar, bandarísku öldungadeildarþingkonunni Lisu Murkowski og þær endurkjörnar í mars 2024. Formaður og varaformaður eru kosnir til tveggja ára í senn á ráðstefnu þingmannanefndarinnar annað hvert ár. Ekki eru ákveðnar starfsreglur um hversu oft formaður og varaformaður mega bjóða sig fram til endurkjörs eða hvernig embætti formanns og framkvæmdastjóra skiptist milli aðildarríkjanna. Framkvæmdastjóri þingmannanefndarinnar er Arna Gerður Bang, sérfræðingur á alþjóðadeild Alþingis, en hún tók við stöðu framkvæmdastjóra í mars 2024. Þing þess aðildarríkis sem fer með framkvæmdastjórn leggur til starfsmann til að gegna embættinu.
Helstu viðfangsefni þingmannanefndarinnar lúta að sjálfbærri þróun og umhverfismálum með áherslu á loftslagsbreytingar. Rík áhersla er einnig lögð á varðveislu menningararfleifðar og lífshátta norðlægra þjóðflokka sem og aukna efnahagslega og félagslega velferð íbúa norðursins.
Enn fremur er rík áhersla lögð á að halda norðurslóðum sem lágspennusvæði í alþjóðasamskiptum. Þá hefur þingmannanefndin á undanförnum árum lagt sérstakan metnað í að eiga frumkvæði að margs konar verkefnum sem hægt er að leggja fyrir Norðurskautsráðið til framkvæmdar.
Áhersla hefur verið lögð á verkefni sem snúa að ýmsum málum sem snerta forgangsverkefni Norðurskautsráðsins. Jafnvel þótt samstarf norðurskautsríkja eigi sér fremur stutta sögu hefur það leitt til margvíslegra sameiginlegra verkefna og stofnana. Eftirlit með og mat á umhverfi norðurskautssvæðanna hefur frá byrjun verið forgangsverkefni ráðsins. Fjölmargar vandaðar vísindarannsóknir hafa verið unnar á vegum vinnuhópa ráðsins, m.a. um mengunarhættu, áhrif mengunar á vistkerfi norðurslóða og varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika.
Þrír lagalega bindandi samningar hafa verið gerðir á vettvangi Norðurskautsráðsins. Sá fyrsti var undirritaður af aðildarríkjunum á leiðtogafundi Norðurskautsráðsins í Nuuk í maí 2011, um leit og björgun á norðurslóðum (SAR). Talið hefur verið brýnt að bregðast við fyrirsjáanlega aukinni umferð á hafi og í lofti og annarri starfsemi á norðurslóðum, m.a. vegna loftslagsbreytinga, sem og aukinni hættu á slysum. Í samningnum eru afmörkuð leitar- og björgunarsvæði sem hvert ríkjanna átta ber ábyrgð á og kveðið er á um skuldbindingar þeirra og samstarf við leitar- og björgunaraðgerðir. Annar samningurinn var undirritaður á leiðtogafundi ráðsins í Kiruna í Svíþjóð árið 2013, um gagnkvæma aðstoð vegna olíumengunar í hafi, og sá þriðji árið 2017, um aukið alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum.
3. Skipan Íslandsdeildar.
Á árinu 2024 og fram að alþingiskosningum 30. nóvember sl. áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild: Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður, þingflokki Framsóknarflokks, Eyjólfur Ármannsson, varaformaður, þingflokki Flokks fólksins, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks. Varamenn eru Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokki Flokks fólksins, Halla Signý Kristjánsdóttir, þingflokki Framsóknarflokks, og Óli Björn Kárason, þingflokki Sjálfstæðisflokks. Ritari Íslandsdeildar var Arna Gerður Bang.
Formaður situr fyrir hönd Íslandsdeildar í þingmannanefndinni en í forföllum hans situr varaformaður fundi nefndarinnar. Öll Íslandsdeildin sækir ráðstefnu nefndarinnar sem haldin er á tveggja ára fresti. Íslandsdeildin kemur saman eftir þörfum og þá gerir formaður grein fyrir starfi þingmannanefndarinnar og nefndarmenn fá jafnframt upplýsingar um starf Norðurskautsráðsins.
Íslandsdeild hélt tvo fundi á árinu þar sem þátttaka í fundum var undirbúin og starf nefndarinnar rætt.
4. Fundir þingmannanefndar um norðurskautsmál árið 2024.
Á venjubundnu ári kemur þingmannanefndin saman til funda tvisvar til þrisvar sinnum á ári. Á árinu var haldin þingmannaráðstefna og tveir fundir þingmannanefndar og tók formaður Íslandsdeildar þátt í ráðstefnunni og báðum fundunum.
Þingmannaráðstefna um norðurskautsmál (CPAR) og fundur þingmannanefndar (SCPAR) í Kiruna, 20.–22. mars.
Þingmannaráðstefnan um norðurskautsmál var haldin í Kiruna í Norður-Svíþjóð 20.–22. mars 2024. Ráðstefnuna sótti fyrir hönd Alþingis Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Jafnframt fór fram fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál þar sem dagskrá ráðstefnunnar var rædd og drög að yfirlýsingu hennar. Nefndarmönnum var gefinn kostur á að koma með athugasemdir um drögin og þeim komið á framfæri við nefnd sem vann að gerð yfirlýsingar ráðstefnunnar. Á ráðstefnunni var lögð áhersla á fjögur þemu. Í fyrsta lagi öryggi og viðbúnað á norðurslóðum. Þar var sjónum beint að því hvernig við tryggjum að norðurslóðir verði áfram lágspennusvæði þrátt fyrir aukna hernaðaruppbyggingu og spennu á svæðinu. Í öðru lagi var fjallað um menntun og rannsóknir. Í þriðja lagi var sjónum beint að loftslagsmálum og úrgangsstjórnun á norðurslóðum og í fjórða lagi var rætt um viðskipti og atvinnulífið og hvernig hægt sé að nýta möguleika fyrirtækja á sem arðbærastan og sjálfbærastan hátt (sjá fylgiskjal I).
Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál (SCPAR) 3. september í Happy Valley-Goose Bay, Labrador.
Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál (SCPAR) var haldinn í Happy Valley-Goose Bay, Labrador 3. september 2024. Af hálfu Alþingis sóttu fundinn Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Helstu mál á dagskrá voru umræður um starf þingmannanefndar um norðurskautsmál og hvernig halda megi starfinu áfram án þátttöku Rússa vegna stríðsins í Úkraínu. Jafnframt kynnti Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Kanada, norðurslóðastefnu Íslands og helstu verkefni. Þá fór fram kynning á málefnum norðurslóða innan einstakra aðildarríkja (sjá fylgiskjal II).
Alþingi, 10. febrúar 2025.
| Eiríkur Björn Björgvinsson, form. |
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, varaform. | Ragna Sigurðardóttir. |
Fylgiskjal I.
FRÁSÖGN af þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál og fundum þingmannanefndar í Kiruna, 20.–22. mars 2024.
Þingmannaráðstefna um norðurskautsmál var haldin í Kiruna í Norður-Svíþjóð 20.–22. mars 2024. Á tveggja ára fresti heldur þingmannanefnd um norðurskautsmál ráðstefnu um málefni norðurslóða. Á ráðstefnunni kemur saman stór hópur þingmanna og sérfræðinga frá ríkisstjórnum, háskólastofnunum og félagasamtökum sem láta sig málefni norðurslóða varða. Eitt meginviðfangsefni þingmannanefndarinnar er að fylgja eftir samþykktum þeirrar ráðstefnu sem og að fylgjast með störfum Norðurskautsráðsins. Ráðstefnuna sóttu fyrir hönd Alþingis Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Jafnframt fór fram fundur þingmannanefndar um norðurslóðamál þar sem dagskrá ráðstefnunnar var rædd og drög að yfirlýsingu hennar. Nefndarmönnum var gefinn kostur á að koma fram með athugasemdir um drögin. Var þeim komið á framfæri við nefnd sem vann að gerð yfirlýsingar ráðstefnunnar.
Ráðstefnan hófst á því að gestir voru ávarpaðir og boðnir velkomnir. Það gerðu Andreas Norlén, forseti Ríkisdags Svíþjóðar, Aaja Chemnitz, formaður þingmannanefndar um norðurskautsmál, og Alexandra Anstrell, formaður sænsku þingmannanefndarinnar. Norlén lagði áherslu á áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum þar sem hitastig hækkar hraðar en nokkurs staðar í heiminum. Það hefur djúpstæð áhrif á líf frumbyggja sem standa frammi fyrir ýmsum áskorunum varðandi lífsviðurværi sitt og lífshætti. Þá sagði hann víðtæka og langa reynslu frumbyggja af náttúru norðurslóða dýrmæta uppsprettu þekkingar til framtíðar og þakkaði fulltrúum Samaþingsins fyrir þátttöku í ráðstefnunni.
Í opnunarræðu sinni lagði Chemnitz áherslu á samstarf norðurskautsríkja þar sem sjónum er beint að loftslagsbreytingum og þróun mannlífs á svæðinu. Einnig ræddi hún um nauðsyn alþjóðlegrar samvinnu og góðan árangur Norðurskautsráðsins í því sambandi. Sameiginleg markmið ríkja á norðurslóðum væru að viðhalda friði og stöðugleika á svæðinu og Norðurskautsráðið gegndi þar brýnu hlutverki.
Morten Høglund, sendiherra Noregs á norðurslóðum og formaður formennsku Noregs í Norðurskautsráðinu, kynnti formennskuáætlun Noregs og helstu verkefni. Hann sagði að áhersla væri lögð á fjögur atriði: hafið, loftslags- og umhverfismál, sjálfbæra efnahagsþróun og fólkið í norðri. Að auki myndu Norðmenn leggja sérstaka áherslu á ungmenni á norðurslóðum og frumbyggja. Þá sagði hann að vegna stríðsins í Úkraínu og þeirrar erfiðu stöðu sem það hefði skapað væri ekki hægt að halda formlega fundi í vinnuhópum með öllum aðildarríkjum. Samkomulag væri um að nota skriflegar verklagsreglur við ákvarðanatöku sem næðu til allra aðildarríkja. Norðurskautsráðið væri stofnun sem byggðist á samstöðu og öll ríki hefðu jafnan rétt.
Rætt var um stöðu mála í Norðurskautsráðinu í ljósi breyttra aðstæðna eftir ólögmæta innrás Rússa í Úkraínu í febrúar árið 2022 og um formennskuáætlun Noregs í ráðinu árin 2023–2025. Í ágúst árið 2023 náðu aðildarríki samkomulagi um fyrirkomulag við að hefja aftur störf á vettvangi vinnuhópa ráðsins sem legið höfðu niðri vegna stríðsins. Nýjar viðmiðunarreglur byggjast á skriflegum samskiptum og gera vinnuhópum kleift að halda áfram að eflast og vinna verkefni sín. Í því felst m.a. að taka ákvarðanir um framhaldið, svo sem að leggja til ný verkefni um aðkallandi mál á norðurslóðum. Þá geta þeir haldið áfram samstarfi við áheyrnarfulltrúa og utanaðkomandi sérfræðinga en framlag þeirra til verkefnavinnu ráðsins er mikilvægt.
Á ráðstefnunni var lögð áhersla á fjögur þemu. Í fyrsta lagi öryggi og viðbúnað á norðurslóðum þar sem sjónum var beint að því hvernig tryggt yrði að norðurslóðir yrðu áfram lágspennusvæði þrátt fyrir hernaðaruppbyggingu og vaxandi spennu á svæðinu. Í öðru lagi var fjallað um menntun og rannsóknir. Í þriðja lagi var rætt um loftslagsmál og úrgangsstjórnun á norðurslóðum. Í fjórða lagi var þingað um viðskipti og atvinnulíf og hvernig hægt væri að nýta möguleika fyrirtækja á sem arðbærastan hátt. Umræður fóru fram um sömu þemu á unglingaviðburði daginn fyrir setningu ráðstefnunnar. Niðurstöður umræðna voru kynntar í pallborðsumræðum þar sem öllum þátttakendum var gefinn kostur á að eiga samskipti við fulltrúa ungmenna frá aðildarríkjum að þingmannanefnd um norðurskautsmál.
Líneik Anna Sævarsdóttir hélt erindi um atvinnulíf í dreifbýli á norðurslóðum. Hún sagði að atvinnulífið stæði frammi fyrir stórum áskorunum, þar á meðal einhæfu hagkerfi sem leiddi til þess að mörg samfélög hefðu öll egg í sömu körfu. Hún sagði að lítil og meðalstór fyrirtæki kvörtuðu oft yfir skorti á fjármagni til nýsköpunar og fjárfestinga. Þegar stór fyrirtæki störfuðu í litlu samfélagi væri hætta á því að þau yrðu mjög ráðandi og tengdust ekki samfélaginu heldur treystu á farandverkamenn og starfsmenn sem hefðu ekki fasta búsetu á svæðinu. Hún greindi frá því að á Íslandi hefði hagkerfið byggst á búskap í þúsund ár. Undanfarin 150 ár hefði verðmæti sjávarauðlinda vaxið jafnt og þétt, fyrst með auknum afla úr sjó og síðan með auknu verðmæti fyrir aflann. Landbúnaður væri einnig mikilvægur og nú ykist mikilvægi fiskeldis og ferðaþjónustu jafnt og þétt á landsbyggðinni.
Við undirbúning ráðstefnuyfirlýsingar var skipuð sérstök nefnd sem hittist á tveimur fundum og fór yfir framkomnar athugasemdir og tillögur. Líneik Anna Sævarsdóttir var fulltrúi Íslandsdeildar í nefndinni og lagði m.a. áherslu á mikilvægi þess að styrkja samfélög á norðurslóðum og beina sjónum að jafnréttismálum og sjálfbærni. Aaja Chemnitz lagði áherslu á mikilvægi þess að ályktun ráðstefnunnar væri stutt og hnitmiðuð.
Undir lok ráðstefnu var samþykkt samhljóða ráðstefnuyfirlýsing sem að hluta var beint til ríkisstjórna á norðurskautssvæðinu, Norðurskautsráðsins og stofnana Evrópusambandsins. Þar var kallað eftir aukinni viðleitni til að draga úr loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir íbúa norðurskautsins. Einnig var lögð áhersla á nauðsyn þess að viðhalda sterku alþjóðlegu samstarfi á norðurslóðum til að stuðla að áframhaldandi friði og stöðugleika á svæðinu. Að lokum var þátttakendum boðið til næstu ráðstefnu þingmannanefndar um norðurskautsmál sem fyrirhugað er að halda í Bandaríkjunum árið 2026.
Þingmannanefnd um norðurskautsmál hélt fund samhliða ráðstefnunni 20. mars. Fyrsta mál á dagskrá var kynning formanns nefndarinnar, Aaju Chemnitz, á störfum þingmannanefndarinnar og kosning formanns og varaformanns. Starf nefndarinnar var stöðvað árið 2022 vegna ólögmætrar innrásar Rússa í Úkraínu og lá niðri í hálft ár. Var því lagt til að umboð formanns og varaformanna yrði framlengt þar til mögulegt væri að halda ráðstefnu með fullri þátttöku nefndarmanna án Rússlands. Á fjarfundi nefndarinnar 12. maí 2022 var Aaja Chemnitz endurkjörin formaður og bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lisa Murkowski endurkjörin varaformaður. Þær voru báðar endurkjörnar í embætti sín sem formaður og varaformaður nefndarinnar frá 2024–2026.
Peder Pedersen, framkvæmdastjóri nefndarinnar, sem gegnt hefur embættinu frá árinu 2020, lét af störfum. Hann mun þó halda áfram sem ritari landsdeildar Danmerkur og Grænlands. Formaður tilkynnti að nýr framkvæmdastjóri nefndarinnar yrði Arna Gerður Bang, sérfræðingur í alþjóðadeild Alþingis og ritari Íslandsdeildar. Tók hún við starfinu í upphafi fundar. Á síðasta fundi þingmannanefndarinnar, sem haldinn var á Egilsstöðum 16.–18. október 2023, lýsti Yvonne Jones, þingmaður frá Kanada, því að hún vildi takast á hendur aukna ábyrgð í nefndinni. Aaja Chemnitz lagði til að Jones yrði fjölmiðlafulltrúi nefndarinnar og hefði það markmið að ná til almennings og virkja samfélög og fjölmiðla í aðdraganda funda nefndarinnar og meðan á þeim stæði. Nefndin útnefndi jafnframt Alexöndru Anstrell, formann landsdeildar Svíþjóðar, sem skýrsluhöfund um loftslagsmál.
Nefndin fundaði með áheyrnarfulltrúum áður en ráðstefna hófst. Hver áheyrnarfulltrúi fékk fimm mínútur til að kynna áhersluatriði sín og verkefni. Enn fremur kynnti nefndin þemu ráðstefnunnar fyrir áheyrnarfulltrúum. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn 2.–3. september 2024 í bænum Happy Valley-Goose Bay, nyrst á Labrador-skaga í Kanada. Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar þingmannanefndar um norðurskautsmál og á vefsvæðinu arcticparl.org.
Fylgiskjal II.
FRÁSÖGN af fundi þingmannanefndar um norðurslóðamál í Happy Valley-Goose Bay, 3. september 2024.
Fundur þingmannanefndar um norðurslóðamál (SCPAR) var haldinn í Goose Bay, Labrador 3. september 2024. Af hálfu Alþingis sóttu fundinn Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Helstu mál á dagskrá voru umræður um starf þingmannanefndar um norðurskautsmál og hvernig halda megi starfinu áfram án þátttöku Rússa vegna stríðsins í Úkraínu. Jafnframt kynnti Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Kanada, norðurslóðastefnu Íslands og helstu verkefni. Þá fór fram kynning á málefnum norðurslóða innan einstakra aðildarríkja.
Fyrsta mál á dagskrá var umræða um starfsreglur þingmannanefndarinnar, SCPAR. Formaður, Aaja Chemnitz, lagði til viðamiklar breytingar á starfsreglunum og kynnti þær fyrir nefndinni. Formenn aðildarríkjanna lýstu yfir áhyggjum sínum af því að það væri ekki rétti tíminn til að gera breytingar vegna ástandsins með Rússland þar sem þeim er ekki boðið á fundi nefndarinnar vegna ólöglegrar innrásar þeirra í Úkraínu. Einnig eru starfsreglurnar skýrar í 2. hluta 8. liðar þar sem segir: Ákvarðanir í nefndinni eru teknar með samhljóða samþykki nefndarmanna. Þess vegna, með núverandi stöðu, er ekki hægt að breyta starfsreglunum.
Formenn norsku og sænsku landsdeildanna lögðu til að stofnaður yrði vinnuhópur til að skoða starfsreglurnar og hvort hægt sé að finna leið til að aðlaga þær breyttum aðstæðum. Nefndin tók ákvörðun um að fara að tillögunni og skipa starfshóp svo leita megi leiða til breytinga á starfsreglunum og tryggja að starf nefndarinnar hafi ramma í samræmi við núverandi aðstæður. Ritarar landsdeilda aðildarríkjanna sjö og Evrópuþingsins skipa starfshópinn og framkvæmdastjóri nefndarinnar stýrir starfinu.
Þá fór fram umræða um samfélagsmiðla og rifjaði formaður upp að á síðasta fundi nefndarinnar í Kiruna hefði hún fjallað um hlutverk samfélagsmiðla fyrir nefndina og ákveðið að halda Facebook-síðunni opinni. Jafnframt var ákveðið að hver og einn nefndarmaður legði sitt af mörkum til síðunnar með innleggi. Síðan þá hefur síðan fengið mikla aukningu á útbreiðslu en flestir fylgjendur eru frá Svíþjóð og Danmörku. Rætt var um hvort hægt sé að veita hverjum formanni aðildarríkjanna aðgang að síðunni, en það hefur reynst erfiðara en búist var við. Því ber starfsmaður danska þingsins ábyrgð á því að birta efnið. Formaður lagði til að áheyrnarfulltrúar nefndarinnar fengju einnig vettvang til að útskýra störf sín og tengsl sín við þingmenn á norðurslóðum. Þeir eru mikilvægur hluti af starfi nefndarinnar og mikilvægt að þeirra rödd heyrist.
Þá hélt sendiherra Íslands í Kanada, Hlynur Guðjónsson, erindi. Hann sagði frá norðurslóðastefnu Íslands sem var uppfærð og samþykkt á Alþingi í maí 2021 þegar Ísland fór með formennsku í Norðurskautsráðinu. Ísland leggur m.a. áherslu á að varðveita sjávarvistkerfi norðurslóða. Það felur í sér að vernda heilbrigði sjávar gegn mengun eða öðrum ógnum, auk þess að tryggja öruggar siglingar og leitar- og björgunargetu á erfiðum hafsvæðum. Stefna Íslands á norðurslóðum hvetur einnig til þess að draga megi úr mengun með því að efla hreina orkukosti á norðurslóðum og styður eindregið við eflingu alþjóðlegs vísindarannsóknasamstarfs.
Guðjón lagði einnig áherslu á að hagkerfi norðurslóða þyrftu að endurspegla viðskiptalega möguleika með áherslu á sjálfbæra þróun auðlinda og náttúru. Hann lagði áherslu á að við þyrftum að byrja heima fyrir og byggja upp vettvang til árangurs, hlúa að frumkvöðlastarfi, menntun og heilbrigðisþjónustu svo íbúar norðurslóða geti vaxið og dafnað heima fyrir. Á sama tíma geta aukin samskipti milli nágrannaríkja, svæða og fyrirtækja verið til góðs við að innleiða sjálfbærar lausnir.
Næst á dagskrá var kynning formanns sænsku landsdeildarinnar, Alexöndru Anstrell, sem var kjörin loftslagsskýrsluhöfundur nefndarinnar á síðasta fundi í Kiruna í mars sl. Hún greindi frá því að sænska þingið myndi standa fyrir málstofu um sjálfbæra úrgangsstjórnun á norðurslóðum í nóvember 2024. Sænska landsdeildin hefur skipulagt röð málstofa á þinginu síðastliðið ár um ýmis málefni sem tengjast norðurslóðum. Tilgangurinn er að miðla þekkingu um mikilvægi þess að hugsa um rusl á og við norðurslóðir og vekja athygli á málefnum norðurslóða og loftslagsbreytingum.
Pipaluk Lynge, þingmaður og formaður utanríkismálanefndar Inatsisartuts í Grænlandi, greindi frá því að í febrúar 2024 hafi Grænland gefið út stefnu um utanríkis-, öryggis- og varnarstefnu. Stefnunnar hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu í nokkur ár og miðar hún að því að tryggja stöðuga stefnu í utanríkismálum fyrir Grænland í áratug og gefa til kynna ásetning til að ná til breiðs áheyrendahóps. Meginskilaboð stefnunnar eru í titlinum „Ekkert um okkur án okkar“. Hún lagði enn fremur áherslu á áhuga Grænlands á að taka meiri þátt í AP-samstarfinu.
Morten Høglund, formaður Norðurskautsráðsins, tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði. Hann greindi frá því að í ágúst 2023 hefðu aðildarríki ráðsins náð samkomulagi um fyrirkomulag til að hefja aftur störf á vettvangi vinnuhópa ráðsins sem legið hefur niðri vegna stríðsins í Úkraínu. Nýju viðmiðunarreglurnar gera vinnuhópunum kleift að halda áfram að eflast og vinna verkefni sín. Í því felst m.a. að taka ákvarðanir um framhaldið, svo sem að leggja til ný verkefni um aðkallandi mál á norðurslóðum. Þá geta þeir einnig haldið áfram samstarfi við áheyrnarfulltrúa og utanaðkomandi sérfræðinga en framlag þeirra til verkefnavinnu ráðsins er mikilvægt.
Að lokum var rætt um málefni norðurslóða innan einstakra aðildarríkja. Líneik Anna Sævarsdóttir sagði frá árlegri ráðstefnu, Hringborði norðurslóða, sem fór fram í Reykjavík í október. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangurinn fyrir málefni norðurslóða og hefur verið haldin árlega í Hörpu frá árinu 2013. Þar koma saman þjóðarleiðtogar, stjórnendur vísindastofnana og fyrirtækja, sérfræðingar í umhverfismálum, fulltrúar frumbyggja og frumkvöðlar víðs vegar að úr heiminum.
Lars Haltbakken frá Noregi greindi frá því að hvítbók um Svalbarða (2023–2024) hafi verið gefin út 31. maí 2024, sem veitir yfirgripsmikið yfirlit yfir stefnu og markmið norska dómsmálaráðuneytisins og almannaöryggisráðuneytisins, sem og alþjóðlegan lagaramma sem gildir um svæðið. Svalbarði er berskjaldaður fyrir mengun af völdum eiturefna í umhverfinu sem berast með lofti og sjávarstraumum. Hann greindi einnig frá Arendalsvikunni sem fór fram 12.–16. ágúst sl. Það er hátíð og vettvangur fyrir stjórnmálamenn, samtök, fyrirtæki og almenning til að koma saman til að ræða samfélagsleg málefni. Áhersla var m.a. lögð á alþjóðlegt samstarf á norðurslóðum.
Alexandra Anstrell greindi frá því að Svíþjóð biði eftir skipan nýs sendiherra norðurslóða en um þessar mundir sé rík áhersla lögð á NATO, varnarmál og alþjóðlegt samstarf. Hún ræddi einnig niðurstöður nýrrar rannsóknar um ofbeldi gegn samískum konum. Rannsóknin hefur hlotið viðurkenningu fyrir vönduð vísindaleg vinnubrögð. Hún rannsakar ofbeldi gegn samískum konum í samanburði við sænsku þjóðina, sem og ofbeldi gegn þeim innan stuðningskerfis samfélagsins. Rannsóknin leiddi í ljós að kynferðisofbeldi gegn samískum konum er alvarlegt samfélagslegt vandamál með hærri tíðni nauðgana og nauðgunartilrauna samanborið við hjá konum almennt í Svíþjóð.
Enn fremur sagði kanadíska þingkonan Yvonne Jones frá því að Kanada muni hafa þingkosningar í október 2025. Varðandi Labrador ræddi hún vatnsafl og vetnisframleiðslu og þróun vindorku á hafi úti fyrir utan Halifax. Einnig er aukin áhersla lögð á grænar byggingar og fæðuöryggi þar sem skipulagðar veiðar og hefðbundnar gildrur eru sameinaðar venjulegri matvælaframleiðslu. Hún fjallaði jafnframt um varnarstefnu þjóðarinnar, NORAD, og að undanfarið hafi 100 milljörðum dollara verið eytt í fjárfestingar í flugvélum, kafbátum og aukinni viðveru á kanadíska heimskautasvæðinu.
Finnska þingkonan Olga Oinas-Panuma greindi frá því að mikil áhersla væri lögð af hálfu ríkisstjórnarinnar á utanríkis- og öryggismál og að NATO og norðurslóðir væru í forgangi. Hún sagði einnig áherslu á að norðurslóðir væru heimili fólks og ekki ætti aðeins að líta á svæðið út frá öryggi. Mikilvægt væri að heimamenn tækju þátt í þróun svæðisins á öllum sviðum. Um þessar mundir væru finnsk stjórnvöld að þróa áætlun um sjálfbæran vöxt. Hún sagði skort á vinnuafli vera viðvarandi vandamál í Norður-Finnlandi og bregðast þurfi við því, m.a. með fjarvinnu sem sé hluti af lausninni. Varðandi loftslagsmarkmið sagði Olga að ekki liti út fyrir að Finnland næði þeim miðað við núverandi þróun.
Að lokum fór Aaja Chemnitz yfir stöðuna á Grænlandi og greindi frá því að Danmörk/Grænland taki við formennsku Noregs í Norðurskautsráðinu í maí 2025. Undirbúningur er hafinn og áhersla verður lögð á ungt fólk og frumbyggja. Nýlega var fundur milli forsætisráðherranna þriggja (Danmörku, Grænlands og Færeyja) til að skipuleggja formennskuna. Þá sagði hún aukinn fjölda ísbjarna vera í borgum og samfélögum á Grænlandi og það valdi íbúum mikilli hættu. Loftslagsbreytingarnar hafi sýnileg og alvarleg áhrif á Grænland. Ríkisstjórnin hefur sett lög svo almenningur geti verndað sig fyrir ísbjörnunum og drepið þá ef þörf krefur. Þessari lagasetningu hefur verið mótmælt frá Evrópu og veldur það áhyggjum.
Doris J. Jensen, þingkona frá Grænlandi og formaður Vestnorræna ráðsins, sagði að ráðið væri um þessar mundir að undirbúa málstofur og viðburði sem halda ætti í tengslum við Arctic Circle ráðstefnuna sem fer fram í október nk. í Reykavík. Tvær málstofur eru unnar í samstarfi við þingmannanefnd um norðurslóðamál og Norðurlandaráð. Yfirskrift fyrri málstofunnar er „Framtíð þingmannasamstarfs norðurslóða: Áskoranir og tækifæri“, og yfirskrift þeirrar síðari er „Réttindi hinsegin fólks á norðurslóðum“. Vestnorræna ráðið undirbýr einnig viðburð í samstarfi við Norræna Atlantshafssamstarfið, NORA, um gervigreind.
Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn í Tromsö í janúar 2025. Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar þingmannanefndar um norðurskautsmál og á vefsvæðinu arcticparl.org.