Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 81  —  81. mál.




Skýrsla


Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins fyrir árið 2024.



1. Inngangur.
    Á vettvangi Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) bar á árinu 2024 hæst umræðu um stuðning við fjölþjóðlegt samstarf í þágu friðar, réttlætis og sjálfbærni, áhrif gervigreindar á lýðræði, mannréttindi og réttarríkið og aukið samstarf um loftslagsaðgerðir og aðgengi að grænni orku.
    Á vorþingi IPU í mars var samþykkt ályktun sem beindi sjónum sínum að þingræði og því hvernig stuðla megi að bættum samskiptum og skilningi milli þjóðþinga með frið að markmiði. Rætt var um alvarleg mannúðaráhrif stríðs, einkum með tilliti til flóttamanna og kynferðislegs ofbeldis í átökum. Í ályktuninni er alþjóðasamfélagið hvatt til þess að leggja sig fram um að berjast gegn ójöfnuði með réttindatengdri efnahags- og félagsmálastefnu sem leggur áherslu á jafnrétti og reisn.
    Á haustþingi IPU í október var samþykkt neyðarályktun um brýnt ákall til aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um stuðning við fjölþjóðlegt samstarf í þágu friðar, réttlætis og sjálfbærni á heimsvísu. Lögð var áhersla á nauðsyn sameiginlegra viðbragða og samvinnu á alþjóðavettvangi í ljósi stigvaxandi átaka í heiminum. Í umræðum um ályktunina lýstu þingmenn yfir áhyggjum af átökum og styrjöldum og vísuðu m.a. til alvarlegs ástands í Súdan, Gaza og Miðausturlöndum, Mjanmar og Úkraínu.
    Einnig fór fram almenn umræða um það hvernig nýta megi vísindi, tækni og nýsköpun til að stuðla að friðsamlegri og sjálfbærari framtíð. Rætt var um mögulegan ávinning gervigreindar jafnframt því að vakin var athygli á margvíslegri áhættu sem tengist tækninni og ábyrgð þjóðþinga við að byggja upp regluverk til að vernda almenning. Fjallað var um leiðir til að búa þingmönnum vettvang til skoðanaskipta um gervigreind og tækniþróun og hvata til þinglegra aðgerða varðandi málaflokkinn.
    Baráttan gegn loftslagsbreytingum var jafnframt áherslumál á árinu. Samþykkt var ályktun um samstarf um aðgerðir í loftslagsmálum og hvernig stuðla megi að aðgangi að grænni orku á viðráðanlegu verði og tryggja nýsköpun, ábyrgð og jafnræði. Jafnframt var sjónum beint að herferð IPU, Parliaments for the Planet, sem ætlað er að virkja þing og þingmenn til að bregðast við neyðarástandi í loftslagsmálum. Með herferðinni eru þjóðþing hvött til að sýna fordæmi, draga úr eigin kolefnisfótspori og grípa til raunhæfra aðgerða til að innleiða Parísarsamkomulagið um loftslagsmál til að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5 gráður á Celsíus. Þá skipulagði IPU málstofu til undirbúnings fyrir þátttöku þingmanna í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP29) sem fór fram í Aserbaísjan í nóvember 2024.
    Jafnframt fundaði starfshópur IPU um friðsamlega lausn stríðsins í Úkraínu með það fyrir augum að halda diplómatískum leiðum þingsins opnum fyrir friðaruppbyggingu í framtíðinni. Viðvarandi valdbeiting Rússa gegn Úkraínu var fordæmd sem brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal á meginreglunni um fullveldi og landhelgi. Þá lýstu þingmenn ítrekað yfir áhyggjum af því að stríðið í Úkraínu ógnaði alþjóðaöryggi og ylli efnahagslegri óvissu.
    Á árinu voru haldnir fundir þingkvenna þar sem m.a. var rætt um jafnréttismiðuð þjóðþing, kynjamisrétti og ofbeldi gegn konum. Af öðrum stórum málum sem tekin voru til umfjöllunar á fundum IPU á árinu 2024 má nefna endurbætur á öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, aðgerðir til að efla kjarnorkuöryggi í heiminum, hvernig stuðla megi að tveggja ríkja lausn í Palestínu og hlutverk þjóðþinga við að koma í veg fyrir skattundanskot fyrirtækja.
    Að lokum ber að nefna mikilvægt starf Alþjóðaþingmannasambandsins við að efla lýðræði en mörg aðildarþing þess eru ekki lýðræðislega kjörin og í sumum fer ekkert eiginlegt löggjafarstarf fram. Sem dæmi um slíkt starf á árinu 2024 má nefna svæðisbundnar málstofur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Enn fremur gefur Alþjóðaþingmannasambandið út handbækur og skýrslur fyrir þingmenn til að aðstoða þá við að hafa áhrif í ólíkum málaflokkum. Á árinu var m.a. gefin út bók í tilefni af 10 ára afmæli sameiginlegra meginreglna IPU um stuðning til þjóðþinga.
    
2. Almennt um Alþjóðaþingmannasambandið.
         Aðild að Alþjóðaþingmannasambandinu á nú 181 þjóðþing en aukaaðild að því eiga 14 svæðisbundin þingmannasamtök. Markmið sambandsins er að stuðla að skoðanaskiptum þingmanna frá öllum heimshornum um alþjóðleg málefni, vinna að friði og samstarfi þjóða og treysta í sessi lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing. Áhersla er lögð á að standa vörð um mannréttindi sem einn af grundvallarþáttum lýðræðis og þingræðis. Þá vinnur IPU að styrkingu þjóðþinga og aðstoðar við þróun lýðræðislegra vinnubragða innan þeirra. Sambandið styður starfsemi Sameinuðu þjóðanna og á margvíslegt samstarf við stofnanir þeirra. Höfuðstöðvar sambandsins eru í Genf, en sambandið rekur jafnframt skrifstofu í New York.
         Alþjóðaþingmannasambandið heldur tvo þingfundi árlega, þing að vori sem haldið er í einu af aðildarríkjum sambandsins og þing að hausti sem haldið er í Genf nema annað sé ákveðið sérstaklega. Auk þess heldur sambandið alþjóðlegar ráðstefnur og málstofur á ári hverju, oft um málefni sem eru efst á baugi hjá Sameinuðu þjóðunum hverju sinni og þá gjarnan í tengslum við tiltekna ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þá eru haldnar námsstefnur fyrir þjóðþing sem óska eftir slíku um ýmsa þætti löggjafarstarfsins og eflingu lýðræðis.
    Fjórar fastanefndir starfa innan Alþjóðaþingmannasambandsins:
     1.      nefnd um friðar- og öryggismál,
     2.      nefnd um sjálfbæra þróun og efnahags- og viðskiptamál,
     3.      nefnd um lýðræði og mannréttindamál,
     4.      nefnd um málefni Sameinuðu þjóðanna.
    Ráð Alþjóðaþingmannasambandsins markar stefnu samtakanna og hefur umsjón með starfi nefnda og vinnuhópa. Í því eiga sæti þrír fulltrúar frá hverri landsdeild en fulltrúum fækkar í tvo ef í sendinefndinni eru ekki fulltrúar beggja kynja oftar en þrjú þing í röð. Á milli funda hefur 17 manna framkvæmdastjórn umsjón með daglegum rekstri samtakanna, undirbýr fundi ráðsins og fylgir eftir ákvörðunum þess. Auk fastanefnda sambandsins skila aðrar nefndir og vinnuhópar sem starfa innan sambandsins skýrslum til ráðsins til afgreiðslu, en það eru nefnd um mannréttindi þingmanna, nefnd um málefni Miðausturlanda, vinnuhópur um málefni Kýpur, nefnd til að auka virðingu fyrir alþjóðlegum mannúðarlögum, undirbúningsnefnd kvennafundar sambandsins og vinnuhópur um samstarf kynjanna.
    Nefnd um mannréttindi þingmanna gefur út skýrslu fyrir hvert þing sambandsins þar sem fjallað er um brot á mannréttindum þingmanna, hvort sem um er að ræða fangelsanir, hótanir, ofbeldi, mannshvörf eða dauðsföll. Nefndin heimsækir viðkomandi ríki, ræðir við málsaðila og aflar gagna. Málum er fylgt eftir, oft árum saman, þar til niðurstaða fæst. Nefndin hefur það að markmiði að styrkja þjóðþing í að tryggja öryggi og friðhelgi þingmanna svo að þeir geti sinnt starfi sínu á lýðræðislegan og öruggan hátt. Ráð IPU samþykkir á hverju þingi ályktanir sem grundvallast á skýrslu nefndarinnar. Ályktanir sambandsins eru ekki bindandi fyrir þjóðþing aðildarríkjanna. Þær endurspegla hins vegar umræðu um mikilvæg málefni sem hinar ýmsu þjóðir glíma við.
    
3. Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins.
    Á árinu 2024 og fram að alþingiskosningum 30. nóvember sl. áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild: Hildur Sverrisdóttir, formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Þórunn Sveinbjarnardóttir, varaformaður, þingflokki Samfylkingar, og Jóhann Friðrik Friðriksson, þingflokki Framsóknarflokks. Varamenn voru Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Dagbjört Hákonardóttir, þingflokki Samfylkingar, og Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokks. Arna Gerður Bang var ritari Íslandsdeildar.
    Íslandsdeild hélt tvo fundi á árinu þar sem þátttaka í fundum IPU var undirbúin og starf sambandsins rætt.
    
4. Fundir Alþjóðaþingmannasambandsins 2024.
         Á venjubundnu ári kemur IPU tvisvar saman til þings og jafnframt fundar ráð IPU í tengslum við þingin. Tveir norrænir samráðsfundir eru haldnir árlega til að fara yfir málefni komandi þings og samræma afstöðu Norðurlanda eins og hægt er. Norðurlöndin skiptast á að fara með formennsku í norræna hópnum og gegndi Noregur formennsku á árinu. Fyrri norræni fundurinn var haldinn í Washington í febrúar en sá síðari sem fjarfundur í september.
    Árið 2024 tók Íslandsdeild þátt í vorþingi í mars og haustþingi í október og í tveimur norrænum samráðsfundum. Einnig tók Þórunn Sveinbjarnardóttir þátt í sameiginlegum fundi IPU og Sameinuðu þjóðanna í New York og vinnuheimsókn í norrænu sendiráðin í Washington í febrúar. Þá tóku Hildur Sverrisdóttir og Jóhann Friðrik Friðriksson þátt í fundi á vegum IPU og þjóðþings Indónesíu sem fór fram í maí í tengslum við 10. heimsráðstefnu um vatn.
    
Norrænn fundur Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) 5.–7. febrúar og sameiginlegur fundur IPU og Sameinuðu þjóðanna 8.–9. febrúar.
    Dagana 5.–7. febrúar stóðu norrænu sendiráðin í Washington fyrir fundardagskrá fyrir norrænar landsdeildir Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) og var íslenska sendiráðið í forystu við skipulagninguna. Af hálfu Íslandsdeildar IPU sótti fundinn Þórunn Sveinbjarnardóttir, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Á dagskrá fundanna var stríðið í Úkraínu, innganga Svíþjóðar og Finnlands í NATO, öryggismál í Evrópu með áherslu á Rússland og NATO, samskipti Bandaríkjanna og Kína og norðurslóðamál. Einnig fóru fram pallborðsumræður um loftslagsmál, tvíhliða samskipti við Bandaríkin, norrænt samstarf og innanríkisstefnu Bandaríkjanna. Að auki fengu þingmenn kynningu á starfsemi norrænu sendiráðanna og norrænu samstarfi.
    IPU og Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) stóðu fyrir árlegum sameiginlegum fundi 8.–9. febrúar í tengslum við Framtíðarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í september nk. Þema fundarins var friðarumleitanir og hvernig binda megi enda á átök í heiminum og stuðla að aukinni friðsæld. Af hálfu Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins sótti fundinn Þórunn Sveinbjarnardóttir, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Fundurinn var haldinn í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna þar sem 150 þingmenn frá 46 aðildarríkjum IPU, auk sérfræðinga og embættismanna, komu saman með það að markmiði að stuðla að þingræðislegum aðgerðum til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Þema fundarins var valið í ljósi vaxandi spennu og aukinnar útbreiðslu átaka um allan heim. Á fundinum fóru fram pallborðsumræður og fyrirlestrar sérfræðinga á sviði friðar- og öryggismála (sjá fylgiskjal I).
    
148. þing Alþjóðaþingmannasambandsins í Genf, 23.–27. mars.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar IPU sóttu fundinn Hildur Sverrisdóttir, formaður, Þórunn Sveinbjarnardóttir, varaformaður, og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Helstu mál á dagskrá voru ályktun um hvernig takast eigi á við félagsleg og mannúðaráhrif sjálfstæðra vopnakerfa og gervigreindar. Jafnframt fór fram almenn umræða um þingræði og hvernig stuðla megi að bættum samskiptum og skilningi milli þjóðþinga með frið að markmiði (sjá fylgiskjal II).
         
Fundur IPU í tengslum við 10. heimsráðstefnu um vatn í Nusa Dua, 19.–22. maí.
    IPU stóð fyrir þingmannafundi í tilefni af 10. heimsráðstefnu um vatn ( World Water Forum), sem haldin er þriðja hvert ár af Alþjóðavatnsráðinu ( World Water Council). Fundurinn var haldinn í samstarfi IPU, Alþjóðavatnsráðsins og þjóðþings Indónesíu og fór fram í Nusa Dua, Indónesíu, 19.–22. maí. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Hildur Sverrisdóttir formaður og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Fundurinn leiddi saman þingmenn frá 43 aðildarríkjum IPU, auk sérfræðinga og embættismanna, með það að markmiði að miðla þekkingu, starfsháttum og reynslu og byggja upp samstarf til að efla sameiginlegar aðgerðir vegna vatnstengdra áskorana. Yfirskrift fundarins var hvernig stuðla megi að þingræðislegum aðgerðum til framfara í málefnum vatns í þágu sameiginlegrar velmegunar (sjá fylgiskjal III).
         
Norrænn rafrænn samráðsfundur 27. september.
    Rafrænn samráðsfundur norrænu formanna landsdeilda var haldinn til undirbúnings þátttöku norrænu landsdeildanna í 149. þingi IPU í Genf, 13.–17. september 2024. Af hálfu Íslandsdeildar sótti Hildur Sverrisdóttir, formaður Íslandsdeildar, fundinn ásamt Örnu Gerði Bang, ritara Íslandsdeildar. Á fundinum fór fram kynning formanns norsku landsdeildarinnar á helstu málum sem til umræðu eru í framkvæmdastjórn og stýrihópi Tólfplús-hópsins. Þar bar hæst umræðu um fund Tuliu Ackson, forseta IPU, með Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem átti sér stað í Sankti Pétursborg í júní 2024. Var fundurinn gagnrýndur af þingmönnum Tólfplús-hópsins þar sem hann þótti ekki hafa verið kynntur fyrir aðildarríkjunum (sjá fylgiskjal IV).     
    
149. þing Alþjóðaþingmannasambandsins í Genf, 13.–17. október.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar IPU sóttu þingið Þórunn Sveinbjarnardóttir varaformaður og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Helstu mál á dagskrá voru ályktun fastanefndar um lýðræði og mannréttindi sem ber yfirskriftina „Áhrif gervigreindar á lýðræði, mannréttindi og réttarríkið“. Jafnframt fór fram almenn umræða um það hvernig nýta megi vísindi, tækni og nýsköpun til að stuðla að friðsamlegri og sjálfbærari framtíð og hvernig hægt sé að búa þingmönnum vettvang til skoðanaskipta og hvetja til þinglegra aðgerða. Þá fór fram utandagskrárumræða um viðbrögð þingmanna við brýnu ákalli aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um að skuldbinda sig til að styðja fjölþjóðlegt samstarf í þágu friðar, réttlætis og sjálfbærni á heimsvísu og var samþykkt ályktun á grundvelli hennar (sjá fylgiskjal V).
    

Alþingi, 10. febrúar 2025.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form.
Hildur Sverrisdóttir, varaform. Víðir Reynisson.

Fylgiskjal I.
         

FRÁSÖGN af norrænum fundum Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) í Washington 5.–7. febrúar og sameiginlegum fundi IPU og Sameinuðu þjóðanna í New York 8. og 9. febrúar.

    
    Dagana 5.–7. febrúar stóðu norrænu sendiráðin í Washington fyrir fundardagskrá fyrir norrænar landsdeildir Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) og var íslenska sendiráðið í forystu við skipulagninguna. Af hálfu Íslandsdeildar IPU sótti fundinn Þórunn Sveinbjarnardóttir, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Á dagskrá fundanna var stríðið í Úkraínu, innganga Svíþjóðar og Finnlands í NATO, öryggismál í Evrópu með áherslu á Rússland og NATO, samskipti Bandaríkjanna og Kína og norðurslóðamál. Einnig fóru fram pallborðsumræður um loftslagsmál, tvíhliða samskipti við Bandaríkin, norrænt samstarf og innanríkisstefnu Bandaríkjanna. Að auki fengu þingmenn kynningu á starfsemi norrænu sendiráðanna og norrænu samstarfi.
    Þórunn Sveinbjarnardóttir tók þátt í umræðum um norðurslóðir og NATO og sagði Þórunn ljóst að svæðið væri sífellt að verða mikilvægara í efnahags- og öryggislegu tilliti. Aukið aðgengi að norðurslóðum hefði ýtt undir áhuga ríkja utan norðurslóða á svæðinu. Hún beindi spurningu sinni til Finnlands og spurði hvort aðild að NATO breytti stefnu ríkisins í norðurslóðamálum ekki síst varðandi öryggismál. Mari Eteläpää, öryggisráðgjafi hjá finnska sendiráðinu, svaraði því til að í ljósi innrásar Rússa í Úkraínu væri aukin áhersla á öryggismál óhjákvæmileg. Engu að síður væri áframhaldandi áhersla á að halda norðurslóðum sem lágspennusvæði og Norðurskautsráðinu sem mikilvægustu stofnun sem fer með málefni norðurslóða.
     Jafnframt átti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Bergdís Ellertsdóttir, fund með sendinefnd Íslands og kynnti fyrir henni helstu verkefni sendiráðsins og áherslur. Einnig hitti Íslandsdeildin fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York og fékk kynningu á helstu verkefnum frá Jörundi Valtýssyni, fastafulltrúa Íslands. Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar.
    IPU og Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) stóðu fyrir árlegum sameiginlegum fundi 8. og 9. febrúar í tengslum við Framtíðarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í september nk. Þema fundarins var friðarumleitanir og hvernig binda megi enda á átök í heiminum og stuðla að aukinni friðsæld. Af hálfu Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins sótti fundinn Þórunn Sveinbjarnardóttir, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Fundurinn var haldinn í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna þar sem 150 þingmenn frá 46 aðildarríkjum IPU, auk sérfræðinga og embættismanna, komu saman með það að markmiði að stuðla að þingræðislegum aðgerðum til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
    Þema fundarins var valið í ljósi vaxandi spennu og aukinnar útbreiðslu átaka um allan heim. Á fundinum fóru fram pallborðsumræður og fyrirlestrar sérfræðinga á sviði friðar- og öryggismála. Lögð var áhersla á að veita þingmönnum tækifæri til að styrkja fjölþjóðlegt samráð til að bregðast við hnattrænum áskorunum í nútíð og framtíð með skilvirkari hætti.
    Dr. Tulia Ackson, forseti IPU, bauð þátttakendur velkomna og undirstrikaði mikilvægi nýrrar áætlunar um frið. Hún sagði að stefnuskráin benti á að mannlegur, umhverfislegur og efnahagslegur kostnaður af átökum væri vaxandi og allt of mikill og heimurinn yrði að þróast í átt að aukinni friðsæld. Svo að það væri gerlegt þyrfti að endurnýja fjölþjóðlega kerfið svo að það gæti tekist á við yfirstandandi átök með góðum árangri í ljósi áskorana á heimsvísu.
    Forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, Dennis Francis, hélt opnunarávarp fundarins og lagði áherslu á sameiginleg markmið SÞ og IPU varðandi fjölþjóðastefnu og alþjóðlegt samstarf. Hann sagði þjóðþing mikilvægan vettvang þar sem hægt væri að færa efni ályktana SÞ í landslög. Enn fremur væri hægt að koma áhyggjum af málefnum heima fyrir á framfæri við SÞ og alþjóðasamfélagið í gegnum þjóðþing aðildarríkjanna. Einnig lagði hann áherslu á ómetanlegt hlutverk þingmanna við að ná heimsmarkmiðum SÞ, þar sem stefnumótun og lagasetning gegndi lykilhlutverki. Hann sagði jafnframt þema fundarins í ár gríðarlega mikilvægt og að heimurinn stæði frammi fyrir auknum átökum sem finna þyrfti varanlegar friðsamlegar lausnir á. Framkvæmdastjóri IPU, Martin Chungong, lagði enn fremur áherslu á að sameiginlegur fundur sem þessi gerði þingmönnum kleift að leggja sitt af mörkum til vinnu SÞ og alþjóðlegrar lagasetningar.
Fylgiskjal II.


FRÁSÖGN af 148. þingi Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) og tengdum fundum í Genf, 23.–27. mars 2024.

    
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar IPU sóttu fundinn Hildur Sverrisdóttir, formaður, Þórunn Sveinbjarnardóttir, varaformaður, og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Helstu mál á dagskrá voru ályktun um hvernig takast eigi á við félagsleg og mannúðaráhrif sjálfstæðra vopnakerfa og gervigreindar. Jafnframt fór fram almenn umræða um þingræði og hvernig stuðla megi að bættum samskiptum og skilningi milli þjóðþinga með frið að markmiði.
    Um 1.480 þátttakendur sóttu þingið, þar af 716 þingmenn (252 þingkonur, eða 36%) frá 144 aðildarríkjum og 58 þingforsetar. Einnig var mæld þátttaka ungra þingmanna (yngri en 45 ára) og voru þeir 28% þátttakenda. Dr. T. Ackson, forseti IPU, lagði í opnunarræðu sinni áherslu á mikilvægi þess að sjónum sé í auknum mæli beint að mikilvægi þingræðis, friðarumleitana og öryggismála, sem eru áhersluatriði IPU fyrir árið 2024. Hún sagði að í ljósi aukinnar útbreiðslu átaka um allan heim þurfi IPU að leita aftur til grunngilda sinna sem þungamiðju umræðna þjóðþinga um allan heim. Þá vitnaði hún í fjölmörg átakasvæði þar sem IPU vinnur stöðugt að því að leiða saman þingmenn frá t.d. Miðausturlöndum og Úkraínu og Rússlandi og lét í ljós þá von sína að í umboði sínu sem forseti IPU takist henni að auka samtal milli þjóðþinga við erfiðar aðstæður.
    Tólfplús-hópurinn, sem er samstarfsvettvangur vestrænna lýðræðisríkja, hittist að venju flesta morgna meðan á þinginu stóð. Á þeim fundum var farið yfir helstu mál þingsins og afstaða sendinefnda samræmd eins og hægt var, auk þess sem valdir voru fulltrúar hópsins í embætti og störf á vegum IPU. Fulltrúar hópsins í stýrihópum og framkvæmdastjórn IPU kynntu helstu niðurstöður síðustu funda stjórnarinnar og fundar stjórnarnefndar. Hópur norrænna þingmanna hittist jafnframt í tengslum við þingið í vinnuhádegisverði 25. mars, en Noregur fer með formennsku í norræna hópnum árið 2024.
    Enn fremur var haldinn kvennafundur 22. mars þar sem m.a. var rætt um jafnréttismiðuð þjóðþing, kynjamisrétti og ofbeldi gegn konum. Sérstök nefnd um mannréttindi þingmanna gegnir veigamiklu hlutverki innan IPU og gefur hún út viðamikla skýrslu fyrir hvert þing. Á grundvelli skýrslunnar samþykkir ráð IPU fjölmargar ályktanir um brot á mannréttindum þingmanna. Nefndin vinnur mikið starf á milli þinga þar sem hún fer yfir mál þingmanna sem mannréttindi hafa verið brotin á, hvort sem um er að ræða fangelsanir, hótanir, barsmíðar, mannshvörf eða dauðsföll. Nefndin skoðaði mál um meint mannréttindabrot gegn þingmönnum í 15 löndum, þar á meðal í Kambódíu, Írak, Úganda og Venesúela.
    Þrjár tillögur að neyðarályktun voru lagðar fram til atkvæðagreiðslu og beindu þær allar sjónum sínum að neyðarástandinu á Gaza. Aðeins er hægt að taka fyrir eitt mál utan dagskrár á hverju þingi samkvæmt reglum IPU. Kosning fór fram um hvaða tillaga yrði fyrir valinu og náði engin þeirra 2/3 hluta atkvæða sem er skilyrði fyrir því að efni sé sett á dagskrá samkvæmt starfsreglum IPU. Gætti óánægju meðal þingmanna með niðurstöðuna en verið er að vinna í tillögum að breytingum á starfsreglum IPU svo koma megi í veg fyrir að engin neyðarályktun verði til umræðu á þingum IPU í framtíðinni og er fyrirhugað að afgreiða þær á næsta þingi IPU.
    Almenn umræða fór fram um pólitískt, efnahagslegt og félagslegt ástand í heiminum og var sjónum beint að mikilvægi þingræðis og hvernig stuðla megi að bættum samskiptum og skilningi milli þjóðþinga með frið að markmiði. Umræðan snerist um mannúðaráhrif stríðs, einkum með tilliti til flóttamanna, og kynferðislegt ofbeldi í átökum. Við lok almennrar umræðu samþykkti þingið yfirlýsingu þar sem helstu áhersluatriði umræðunnar voru dregin saman. Þar eru aðildarríkin hvött til þess að leggja sig fram um að berjast gegn ójöfnuði með réttindatengdri efnahags- og félagsmálastefnu sem leggur áherslu á jafnrétti og reisn hverrar persónu.
    Hildur Sverrisdóttir tók þátt í umræðunum fyrir hönd Íslandsdeildar. Hún sagði m.a. að í ljósi erfiðra aðstæðna í alþjóðasamskiptum, þar sem við stöndum frammi fyrir stríði í Evrópu, skelfilegum átökum í Miðausturlöndum og öðrum heimshlutum og aukinni pólaríseringu, sé nauðsynlegt að velta fyrir sér uppruna Sameinuðu þjóðanna sem var stofnað til í kjölfar tveggja heimsstyrjalda. Meginmarkmið mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna sé að vera mikilvægt tæki til að koma í veg fyrir stríðsátök og byggja brýr fyrir frið og aukinn skilning. Hún sagði okkur hafa orðið vitni að uggvænlegri afturför í mannréttindum og réttarríkjum um allan heim, þar á meðal í Evrópu. Þar af leiðandi hafi Ísland skuldbundið sig til að setja mannréttindi og grundvallarfrelsi í forgang og sækjast eftir sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir tímabilið 2025–2027. Ísland leggi áherslu á mikilvægi þess að varðveita alþjóðlegt regluverk með það að markmiði að vera uppbyggilegur þátttakandi í fjölþjóðlegum stofnunum og beina framlagi okkar að þeim sviðum þar sem við getum haft mest áhrif. Kjarninn í utanríkisstefnu Íslands sé skuldbinding um að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og réttarríkið. Þessi gildi séu grundvöllur bandalaga okkar og leiðarljós í starfi okkar innan alþjóðastofnana.
    Í fastanefndum var fjallað um fyrirframákveðin mál og ályktanir afgreiddar. Í 1. nefnd, um frið og öryggismál, fór fram umræða og afgreiðsla á ályktun um það hvernig takast megi á við félagsleg og mannúðaráhrif sjálfstæðra vopna og gervigreind. Ályktunin undirstrikar þörfina á alþjóðlegu samstarfi til að takast á við áskoranir gervigreindar. Ályktunin er afrakstur langs samráðsferlis og voru m.a. sendar inn 200 breytingartillögur frá þingmönnum sem afgreiddar voru af nefndinni. Í ályktuninni er lögð áhersla á ábyrgð þinga við að byggja upp regluverk til að vernda borgara fyrir nýjum ógnum sem fylgja hraðri tækniþróun nútímans. Samþykkt var að næsta viðfangsefni nefndarinnar yrði hlutverk þjóðþinga við að stuðla að tveggja ríkja lausn í Palestínu.
    Í 2. nefnd, um sjálfbæra þróun, fór fram umræða og afgreiðsla á ályktun um samstarf um aðgerðir í loftslagsmálum og hvernig stuðla megi að aðgangi að grænni orku á viðráðanlegu verði og tryggja nýsköpun, ábyrgð og jafnræði. Nefndinni bárust 293 breytingartillögur sem afgreiddar voru og var ályktunin samþykkt samhljóða. Þá tók nefndin ákvörðun um að næsta umræðuefni hennar yrði hlutverk þjóðþinga við að koma í veg fyrir skattsvik fyrirtækja með áherslu á sjálfbæra þróun. Að auki mun nefndin skipuleggja málstofu til undirbúnings fyrir þátttöku þingmanna í næstu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP29) sem fer fram í Aserbaísjan í nóvember nk.
    Í 3. nefnd, um lýðræði og mannréttindi, voru rædd drög að ályktun um áhrif gervigreindar á lýðræðið, mannréttindi og réttarríkið. Rætt var um mögulegan ávinning gervigreindar jafnframt því að vekja athygli á margvíslegri áhættu sem tengist þessari nýju tækni. Þá fundaði nefnd um málefni Sameinuðu þjóðanna og samþykkti tillögu til að hvetja þingmenn til að vinna í landi sínu að endurbótum á öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þar eru þeir hvattir til að stuðla að umræðu í þjóðþingum sínum, ræða endurbætur við fastafulltrúa sína gagnvart Sameinuðu þjóðunum og vera reiðubúnir til að staðfesta samþykktar breytingar á ráðinu.
    Ráð IPU kom tvisvar saman á þinginu og afgreiddi fjölda mála. Aðildarríki IPU eru nú 180 talsins. Rætt var um fjárhagsáætlun IPU og var yfirlit yfir skipulagða fundi fram undan kynnt. Þá var framgangur samskiptastefnu IPU, sem var samþykkt árið 2022, til 2026 kynnt en henni var komið á til að knýja fram og styðja við heildarstefnu IPU sem samþykkt er til fimm ára. Næsta þing IPU verður haldið í Genf 13.–17. október 2024. Frekari upplýsingar má nálgast á nefndasviði og á vefsvæðinu www.ipu.org/.
Fylgiskjal III.


FRÁSÖGN af fundi IPU í tengslum við 10. heimsráðstefnu um vatn í Nusa Dua, 19.–22. maí.

    
    IPU stóð fyrir þingmannafundi í tilefni af 10. heimsráðstefnu um vatn (World Water Forum), sem haldin er þriðja hvert ár af Alþjóðavatnsráðinu ( World Water Council). Fundurinn var haldinn í samstarfi IPU, Alþjóðavatnsráðsins og þjóðþings Indónesíu og fór fram í Nusa Dua í Indónesíu 19.–22. maí. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Hildur Sverrisdóttir formaður og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Á fundinum komu saman þingmenn frá 43 aðildarríkjum IPU, auk sérfræðinga og embættismanna, með það að markmiði að miðla þekkingu, starfsháttum og reynslu og byggja upp samstarf til að efla sameiginlegar aðgerðir vegna vatnstengdra málefna. Yfirskrift fundarins var hvernig stuðla megi að aðgerðum þjóðþinga til framfara um málefni vatns í þágu sameiginlegrar velmegunar.
    Fundinum var skipt niður í fjórar málstofur. Í fyrsta lagi var rætt um aðgang að vatni og hreinlætisaðstöðu, í öðru lagi um nýstárleg vinnubrögð til að stuðla að jöfnum aðgangi að vatni, í þriðja lagi um vatn og loftslagsbreytingar og í fjórða lagi um vatnsmálastefnu (e. water diplomacy), samvinnu og vísindi í þágu friðar. Á fundinum héldu erindi sérfræðingar alþjóðastofnana og borgaralegra samtaka og þingmenn frá öllum heimshornum. Eftirfarandi er samantekt á helstu áhersluatriðum sem rædd voru á fundinum.
    Fyrsti hluti fundarins fjallaði um aðgang að vatni og hreinlætisaðstöðu. Vatn hefur áhrif á líf alls mannkyns og vistkerfi okkar, vatn og hreinlætisaðstaða eru grundvallarmannréttindi. Hins vegar hefur vatnsskortur áhrif á meira en 40% jarðarbúa og 4,2 milljarða manna skortir hreinlætisaðstöðu. Konur og stúlkur verða sérstaklega fyrir barðinu á því, sem og viðkvæmir og jaðarsettir hópar sem standa frammi fyrir hindrunum og mismunun í aðgangi að vatni. Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun verður ekki náð án framfara og aukinnar áherslu á sjötta heimsmarkmiðið um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, en innleiðing þess er ekki á réttri leið eins og er. Vatn og hreinlætisaðstaða er nauðsynleg heilsu og vellíðan, en einnig til að draga úr fátækt, bæta menntun – einkum fyrir stúlkur og konur – stuðla að friði og mannréttindum. Að ná sjötta heimsmarkmiðinu leggur enn fremur sterkan grunn að sjálfbærri þróun.
    Í öðrum hluta fundarins voru nýjar leiðir til að stuðla að jöfnum aðgangi að vatni í brennidepli. Jafnframt var fjallað um ályktun UNGA nr. 77/159 þar sem lögð er áhersla á mikilvægt hlutverk þjóðþinga við að hrinda í framkvæmd áætlun um sjálfbæra þróun til ársins 2030. Þá var lögð áhersla á ómetanlegt hlutverk þingmanna við að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, þar sem stefnumótun og lagasetning gegndi lykilhlutverki. Voru fundarmenn einnig sammála um að þema fundarins væri afar mikilvægt og að heimurinn stæði frammi fyrir grafalvarlegri vatnskreppu sem þyrfti að leysa sem allra fyrst.
    Þriðji hluti fundarins beindi sjónum sínum að vatni og loftslagsbreytingum. Áhersla var lögð á leiðir til að koma í veg fyrir vatnsskort og að jafnt aðgengi að öruggu vatni og hreinlætisaðstöðu teldist til mannréttinda. Þá var skipst á skoðunum um fjármögnun á innviðum fyrir hreinlætis- og vatnsþjónustu og sjálfbæra þróun. Umræða um auknar öfgar í veðri vegna loftslagsbreytinga sem leitt hafa til aukinnar tíðni þurrka og flóða var í brennidepli. Breytingar á veðurfari hafa haft neikvæð áhrif á vatns- og hreinlætisþjónustu sem síðan hefur skaðleg áhrif á þróun og heilsu. Flestar loftslagsbreytingar raungerast í gegnum vatn, sem er annaðhvort of mikið af, ekki nóg eða það er ekki drykkjarhæft. Nauðsynlegt sé að bregðast strax við vandanum sem blasir við.
    Fjórði hluti fundarins fjallaði um vatnsmálastefnu, samvinnu og vísindi í þágu friðar. Umræður voru líflegar og tóku fjölmargir þingmenn þátt í þeim. Þeir voru sammála um að helstu úrlausnarefni við að hraða framgangi sjötta heimsmarkmiðsins séu m.a. undirliggjandi ójöfnuður innan og milli ríkja. Einnig eru hindranir eins og takmarkað fjármagn, lágt fjárfestingarstig, sundrung í stjórnun vatns og skortur á pólitískum vilja sem hægja á framförum. Þingmenn ræddu mögulegar áætlanir fyrir þjóðþing til að stuðla að bættri hreinlætisaðstöðu og vatnsbúskap ríkja. Áhersla var lögð á eftirfarandi atriði: Að tryggja að vatn sé fastur liður á dagskrá þjóðþinga og að nota ramma heimsmarkmiðanna til að móta langtímastefnu um bætt aðgengi að vatni fyrir alla. Að vernda réttinn til vatns og hreinlætisaðstöðu og stuðla að mannréttindamiðaðri nálgun hvað vatnsmálefni varðar, með því m.a. að setja vatn og hreinlætisaðstöðu í löggjöf og stefnur sem miða að því að takast á við kynjamisrétti og efla þingræði og samvinnu.
    Jóhann Friðrik Friðriksson tók þátt í umræðum og sagði brýnt að beina athyglinni að vatni sem grundvallarnauðsynjum lífs. Þótt sumir líti á vatnsskort sem fjarlægt áhyggjuefni sé raunveruleikinn sá að hann hafi áhrif þvert á landamæri. Hann sagði nauðsynlegt að setja sjálfbæra stjórnun vatnsauðlinda í forgang og standa vörð um undirstöður bæði vist- og hagkerfa. Leggja verði áherslu á að afleiðingar vatnsskorts nái yfir landamæri einstakra ríkja og hafi neikvæð áhrif á lífsviðurværi, heilsufar og umhverfi.
    Jóhann Friðrik greindi jafnframt frá markmiðum Íslands um að ganga lengra en Parísarskuldbindingarnar segja til um með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um meira en helming fyrir árið 2030, ná algjöru kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 og verða jarðefnaeldsneytislaust árið 2050. Enn fremur áréttaði hann mikilvægi þess að ríki stæðu við skuldbindingar sínar um sanngjarna og sjálfbæra stjórnun vatnsauðlinda. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi þess að gerðar yrðu áætlanir um sjálfbæra vatnsnotkun á heimsvísu og að samvinna milli ríkisstjórna yrði efld á sviði rannsókna, þróunar, fjármögnunar og alþjóðlegrar heilsu.
    Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum skortir fjórðung jarðarbúa öruggt drykkjarvatn og næstum 50% jarðarbúa skortir örugga hreinlætisaðstöðu. Vatn tengist flestum náttúruhamförum þar sem 1,2 milljarðar manna eru í hættu vegna flóða um allan heim. Á undanförnum 20 árum hafa flóð og þurrkar valdið yfir 166.000 dauðsföllum, raskað lífi milljarða manna og valdið að minnsta kosti 700 milljarða bandaríkjadala tjóni. Nánari upplýsingar fást hjá ritara Íslandsdeildar.
Fylgiskjal IV.


FRÁSÖGN af norrænum samráðsfundi 27. september 2024.

    
    Rafrænn fundur var haldinn til undirbúnings þátttöku norrænu landsdeildanna í 149. þingi IPU í Genf, 13.–17. september 2024. Af hálfu Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) sótti Hildur Sverrisdóttir, formaður Íslandsdeildar, fundinn ásamt Örnu Gerði Bang, ritara Íslandsdeildar. Hér á eftir fer stutt yfirlit yfir helstu málefni sem voru til umræðu á fundinum sem Tellef Inge Mørland, formaður norsku landsdeildarinnar, stýrði.
    Fyrsta mál á dagskrá var kynning formanns norsku landsdeildarinnar á helstu málum sem til umræðu eru í framkvæmdastjórn og stýrihópi Tólfplús-hópsins. Sænski þingmaðurinn Mattias Karlsson tók þátt í fundi stýrihópsins sem fór fram 23. september 2024 í Madríd og greindi hann frá helstu niðurstöðum og áhersluatriðum. Þar bar hæst umræðu um fund Tuliu Ackson, forseta IPU, með Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem átti sér stað í Sankti Pétursborg í júní sl. Var fundurinn harðlega gagnrýndur af þingmönnum aðildarríkja IPU þar sem hann þótti ekki hafa verið kynntur fyrir aðildarríkjunum. Í kjölfar harðrar gagnrýni nefndarmanna Tólfplús-hópsins minnti Gryffroy, forseti Tólfplús-hópsins, nefndarmenn á að Tulia yrði forseti IPU í langan tíma enn og bað þingmenn um að sýna varkárni og hafa í huga að hún hefði líklega stuðning meiri hluta fulltrúa IPU varðandi fundinn. Þá vildu Þjóðverjar vekja athygli á þeirri staðreynd að 500 meðlimir stjórnarandstöðunnar í Tansaníu hefðu verið handteknir. Fundur forseta IPU í Kína var ekki ræddur. Norrænu formennirnir voru sammála um að fundur forseta IPU og Pútíns væri óásættanlegur og var tekin ákvörðun um að grípa til eftirfarandi aðgerða:
     a.      Að biðja forseta Tólfplús-hópsins að bjóða forseta IPU á fund Tólfplús-hópsins í Genf og útskýra hvers vegna hún hafi mætt á fund með Pútín án þess að kynna hann sérstaklega fyrir aðildarríkjunum.
     b.      Að semja bréf/yfirlýsingu þar sem aðgerðir forseta IPU eru gagnrýndar, með það fyrir augum að fá það samþykkt af Tólfplús-hópnum svo að hægt sé að senda það til IPU-þingsins og bæta við samskiptareglur sambandsins. Formaður norsku landsdeildarinnar mun hafa forgöngu í málinu og senda drög að bréfi til samþykktar til landsdeildanna.
    Breytingar á lögum og reglum IPU hafa einnig verið til umræðu á fundum framkvæmdastjórnar undanfarin misseri. Sænska þingkonan Margareta Cederfelt sat fund framkvæmdastjórnar og samþykkti breytingartillögu um að takmarka mögulegan fjölda kjörtímabila forseta IPU við eitt kjörtímabil og gefa þannig ekki kost á endurkjöri. Þá verður kosinn nýr forseti Tólfplús-hópsins á haustþinginu og hefur einn frambjóðandi kynnt framboð sitt, Laurent Wehrli frá Sviss. Voru fundarmenn jákvæðir gagnvart framboði hans.
    Því næst fór fram umræða um niðurstöður vorþings IPU í mars 2024 og annarra ráðstefna og funda sem nefndarmenn höfðu sótt á vegum IPU-þingsins undanfarna sex mánuði. Þá var farið yfir helstu umræðuefni haustþingsins og skiptingu þingmanna í fastanefndir. Óskað var eftir áhugasömum fulltrúum í lausar stöður fyrir þingmenn Tólfplús-hópsins sem skipað verður í á þinginu. Anne Kalmari frá Finnlandi lýsti yfir áhuga á að vera frambjóðandi Tólfplús-hópsins í fastanefnd um Sameinuðu þjóðirnar. Norrænu ríkin hafa átt fulltrúa í trúnaðarstörfum í flestum nefndum IPU, auk framkvæmdastjórnar, undanfarin ár og voru nefndarmenn sammála um mikilvægi þess. Sérstaklega var rætt um mikilvægi umræðuvettvangs þingkvenna og ungra þingmanna hjá IPU, en sá umræðuvettvangur er mjög virkur og hefur vaxið á undanförnum misserum.
    Almenn umræða fer fram um það hvernig virkja megi vísindi, tækni og nýsköpun til að stuðla að friðsamlegri og sjálfbærari framtíð. Fundarmenn voru sammála um mikilvægi umræðunnar og ætluðu öll Norðurlöndin að flytja ræðu um efnið og taka þátt í umræðunum. Jafnframt mun landsdeild Úkraínu halda hliðarviðburð um rán Rússa á úkraínskum börnum og endurheimt þeirra. Rætt var um sameiginlegan fund IPU og Sameinuðu þjóðanna sem fer árlega fram í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York og fyrirhugað er að halda 12.–13. febrúar 2025. Voru fundarmenn sammála um að fundirnir væru mikilvægur hluti af starfi IPU og veittu þingmönnum einstakan og mikilvægan vettvang til að ræða málefni Sameinuðu þjóðanna og mynda tengslanet við embættismenn þar. Að lokum var fjallað um mögulega vinnuheimsókn norrænna landsdeilda til San Francisco, Silicon Valley í febrúar 2025 í tengslum við árlegan fund IPU og Sameinuðu þjóðanna í New York, þar sem fræðst yrði m.a. um þróun gervigreindar. Fundarmenn voru sammála um að áhugi væri á að skipuleggja slíka heimsókn eins og gert hefði verið í febrúar 2024 til Washington.
    Að lokum var rætt um framtíðarfyrirkomulag norrænu samráðsfundanna sem haldnir hafa verið tvisvar á ári, til skiptis í norrænu ríkjunum, til þess að undirbúa vor- og haustþing IPU. Voru nefndarmenn sammála um að núverandi fyrirkomulag væri ákjósanlegt þar sem fundirnir væru haldnir í höfuðborg viðkomandi formennskuríkis eða nágrenni hennar. Árið 2025 tekur Danmörk við formennsku í norræna samráðshópnum af Noregi. Formaður dönsku landsdeildarinnar bauð nefndarmenn velkomna til næsta fundar hópsins sem fyrirhugaður er í Kaupmannahöfn eða í New York í tengslum við fund IPU og Sameinuðu þjóðanna í febrúar 2025. Verður fundurinn haldinn til undirbúnings fyrir vorþing IPU sem fram fer í Taskent í Úsbekistan 5.–9. apríl 2025. Frekari upplýsingar og fundargögn fást hjá ritara nefndarinnar.
Fylgiskjal V.


FRÁSÖGN af 149. þingi Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) og tengdum fundum í Genf, 13.–17. október 2024.

    
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar IPU sóttu þingið Þórunn Sveinbjarnardóttir, varaformaður, og Jóhann Friðrik Friðriksson, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Helstu mál á dagskrá voru ályktun fastanefndar um lýðræði og mannréttindi sem ber yfirskriftina „Áhrif gervigreindar á lýðræði, mannréttindi og réttarríkið“. Jafnframt fór fram almenn umræða um það hvernig nýta megi vísindi, tækni og nýsköpun til að stuðla að friðsamlegri og sjálfbærari framtíð og hvernig hægt sé að búa þingmönnum vettvang til skoðanaskipta og hvetja til þinglegra aðgerða. Þá fór fram utandagskrárumræða um viðbrögð þingmanna við brýnu ákalli aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um að skuldbinda sig til að styðja fjölþjóðlegt samstarf í þágu friðar, réttlætis og sjálfbærni á heimsvísu og var samþykkt ályktun á grundvelli hennar.
    Um 1.267 þátttakendur sóttu þingið, þar af 631 þingmenn (224 þingkonur, eða 36%) frá 129 aðildarríkjum og 53 þingforsetar. Einnig var mæld þátttaka ungra þingmanna (yngri en 45 ára) og voru þeir 25% þátttakenda. Dr. T. Ackson, forseti IPU, lagði í opnunarræðu sinni áherslu á mikilvægi þess að sjónum sé í auknum mæli beint að mikilvægi friðarumleitana, þingræðis og öryggismála, sem eru áhersluatriði IPU fyrir árið 2024. Hún sagði brýnt að sjónum væri beint að því hvernig nýta megi vísinda- og tækniframfarir til góðs. Þörf væri á afgerandi aðgerðum á þremur lykilsviðum, þ.e. hvað varðar löggjöf og regluverk, eftirlit og ábyrgð og þátttöku almennings og fræðslu. IPU væri reiðubúið að aðstoða þjóðþingin við að aðlagast tæknibyltingunni sem mótar heiminn um þessar mundir.
    Tólfplús-hópurinn, sem er samstarfsvettvangur vestrænna lýðræðisríkja, hittist að venju flesta morgna meðan á þinginu stóð. Á þeim fundum var farið yfir helstu mál þingsins og afstaða sendinefnda samræmd eins og hægt var, auk þess sem valdir voru fulltrúar hópsins í embætti og störf á vegum IPU. Fulltrúar hópsins í stýrihópum og framkvæmdastjórn IPU kynntu helstu niðurstöður síðustu funda stjórnarinnar og fundar stjórnarnefndar. Hópur norrænna þingmanna hittist jafnframt í tengslum við þingið í vinnuhádegisverði 14. mars, en Noregur fer með formennsku í norræna hópnum árið 2024.
    Sérstök nefnd um mannréttindi þingmanna gegnir veigamiklu hlutverki innan IPU og gefur hún út viðamikla skýrslu fyrir hvert þing. Á grundvelli skýrslunnar samþykkir ráð IPU fjölmargar ályktanir um brot á mannréttindum þingmanna. Nefndin vinnur mikið starf á milli þinga þar sem hún fer yfir mál þingmanna sem mannréttindi hafa verið brotin á, hvort sem um er að ræða fangelsanir, hótanir, barsmíðar, mannshvörf eða dauðsföll. Nefndin skoðaði mál um meint mannréttindabrot gegn 395 þingmönnum (26% þeirra eru konur) í 14 löndum, þar á meðal í Bangladess, Lýðveldinu Kongó, Níkaragva og Taílandi. Enn fremur var haldinn kvennafundur 13. mars þar sem m.a. var rætt um jafnréttismiðuð þjóðþing og kynjamisrétti.
    Sex tillögur að neyðarályktun voru lagðar fram til atkvæðagreiðslu en aðeins er hægt að taka fyrir eitt mál utan dagskrár á hverju þingi samkvæmt reglum IPU. Kosning fór fram um hvaða tillaga yrði fyrir valinu og fékk tillaga Frakklands, Bretlands og Þýskalands flest atkvæði og náði 2/3 hluta atkvæða sem er skilyrði fyrir því að efni sé sett á dagskrá samkvæmt starfsreglum IPU. Hún beindi sjónum að viðbrögðum þingmanna við brýnu ákalli aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um stuðning við fjölþjóðlegt samstarf í þágu friðar, réttlætis og sjálfbærni á heimsvísu.
    Í ljósi stigvaxandi átaka um allan heim, afleiðinga loftslagsbreytinga og hættu á heimsfaraldri, sem leiðir til aukinnar mannúðarkreppu, lögðu þingmenn áherslu á nauðsyn sameiginlegra viðbragða og samvinnu á alþjóðavettvangi í umræðum um neyðarályktunina. Þeir lýstu yfir áhyggjum af margvíslegum krísum, átökum og styrjöldum í heiminum og vísuðu m.a. til ástandsins í Súdan, Gaza og Miðausturlöndum, Mjanmar og Úkraínu. Meðhöfundur ályktunarinnar frá Bretlandi lagði áherslu á að það væri siðferðileg skylda þingmanna að stuðla að friði, styðja diplómatíska viðleitni til að draga úr spennu og tryggja að mannúðaraðstoð nái til þeirra sem á þurfa að halda, þingmönnum væri skylt að forgangsraða verkefnum sem gera börnum ekki aðeins kleift að lifa af heldur geri þeim einnig fært að dafna eðlilega og til þess þyrfti sameiginlegt átak allra.
    Almenn umræða fór fram um pólitískt, efnahagslegt og félagslegt ástand í heiminum og var sjónum beint að því hvernig nýta megi vísindi, tækni og nýsköpun til að stuðla að friðsamlegri og sjálfbærari framtíð. Þá var rætt um leiðir til að búa þingmönnum vettvang til skoðanaskipta um gervigreind og tækniþróun og hvata til þinglegra aðgerða varðandi málaflokkinn. Lögð var áhersla á ábyrgð þjóðþinga við að byggja upp regluverk til að vernda almenning fyrir nýjum ógnum sem fylgja hraðri tækniþróun nútímans. Við lok almennrar umræðu samþykkti þingið yfirlýsingu þar sem helstu áhersluatriði umræðunnar voru dregin saman.
    Í fastanefndum var fjallað um fyrirframákveðin mál og ályktanir afgreiddar. Í 1. nefnd, um frið og öryggismál, fóru fram tvær pallborðsumræður. Sú fyrri lagði áherslu á hlutverk þingmanna við að koma í veg fyrir átök um náttúruauðlindir. Þar var lögð áhersla á mikilvægi þess að traustur lagarammi væri til staðar til að tryggja sanngjarna stjórn auðlinda eins og vatns, ræktarlands og jarðefna. Í seinni pallborðsumræðunni ræddu þingmenn hlutverk þjóðþinga varðandi kjarnorkuöryggi. Í umræðunni var lögð áhersla á friðsamlega notkun kjarnorkutækni í heilbrigðisþjónustu og landbúnaði og mikilvægi þess að þingmenn veki athygli á þessum ávinningi á sama tíma og þeir verjist áhættunni. Umræðunum lauk með ákalli um sameiginlegar aðgerðir til að efla kjarnorkuöryggi í heiminum. Einnig fór fram umræða um hlutverk þjóðþinga við að stuðla að tveggja ríkja lausn í Palestínu.
    Í 2. nefnd, um sjálfbæra þróun, fóru fram þrjár pallborðsumræður. Sú fyrsta bar yfirskriftina „Áætlanir þjóðþinga til að draga úr langvarandi áhrifum átaka, þ.m.t. vopnaðra átaka, á sjálfbæra þróun“. Ályktun um sama efni hefur verið lögð fram til afgreiðslu á næsta vorþingi í apríl 2025. Í annarri pallborðsumræðunni voru kynnt drög að niðurstöðu þingfundar IPU sem mun fara fram í Aserbaísjan á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 16. nóvember 2024 (COP29). Þriðju pallborðsumræðurnar beindust að hlutverki þjóðþinga við að koma í veg fyrir skattundanskot fyrirtækja og hvernig stuðla megi að sjálfbærri þróun. Þátttakendur í pallborðinu lögðu áherslu á mikilvægt hlutverk þingmanna við að virkja tiltæk úrræði innan lands, tryggja samstarf skattyfirvalda og fræða almenning um mikilvægi skatta fyrir opinbera þjónustu og sjálfbæra þróun.
    Í 3. nefnd, um lýðræði og mannréttindi, fóru fram umræður um drög að ályktuninni um áhrif gervigreindar á lýðræði, mannréttindi og réttarríkið. Við meðferð málsins tók nefndin til skoðunar 194 breytingartillögur. Skýrsluhöfundarnir lögðu endurskoðuð drög að ályktun fyrir nefndina á lokafundi hennar þann 16. október og voru þau samþykkt samhljóða. Tekin var ákvörðun um næsta umræðuefni nefndarinnar sem ber yfirskriftina „Viðurkenning og stuðningur við fórnarlömb ólöglegra alþjóðlegra ættleiðinga og ráðstafanir til að koma í veg fyrir slíkt“. Þá fundaði nefnd um málefni Sameinuðu þjóðanna og ræddi m.a. fjármögnun Sameinuðu þjóðanna og sáttmála út frá fullgildingu þeirra og gildistöku.
    Einnig fór fram hátíðarviðburður á þinginu til að fagna tíu ára afmæli sameiginlegra meginreglna IPU. Framkvæmdastjóri IPU kynnti nýja útgáfu bókar í tilefni afmælisins sem ber yfirskriftina „Í tilefni af 10 ára afmæli sameiginlegra meginreglna um stuðning til þjóðþinga: Hvers vegna þær eru mikilvægar og hvernig þær eru notaðar“. Jafnframt var Cremer-Passy-viðurkenning fyrir árið 2024 veitt dr. Haroun Kabadi, fyrrverandi forseta þjóðþings Tsjad (2011–2021) og nú forseta bráðabirgðaþjóðarráðs Tsjad, fyrir einstakt starf hans við að stuðla að friði og öryggi.
    Ráð IPU kom tvisvar saman á þinginu og afgreiddi fjölda mála. Aðildarríki IPU eru nú 181 talsins. Rætt var um fjárhagsáætlun IPU og var yfirlit yfir skipulagða fundi fram undan kynnt. Næsta þing IPU verður haldið í Taskent í Úsbekistan 5.–9. apríl 2025. Frekari upplýsingar má nálgast á nefndasviði og á vefsvæðinu www.ipu.org/.
Fylgiskjal VI.


Ályktanir og yfirlýsingar Alþjóðaþingmannasambandsins árið 2024.

    
    Ályktanir Alþjóðaþingmannasambandsins:
     *      Um viðbrögð þingmanna við brýnu ákalli aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um stuðning við fjölþjóðlegt samstarf í þágu friðar, réttlætis og sjálfbærni á heimsvísu.
     *      Um áhrif gervigreindar á lýðræði, mannréttindi og réttarríkið.
     *      Hvernig takast eigi á við félagsleg og mannúðaráhrif sjálfstæðra vopnakerfa og gervigreindar.
     *      Samstarf um loftslagsaðgerðir: Hvernig stuðla megi að aðgengi að grænni orku á viðráðanlegu verði og tryggja nýsköpun, ábyrgð og jöfnuð.
    
    Yfirlýsingar Alþjóðaþingmannasambandsins:
     *      Um það hvernig nýta megi vísindi, tækni og nýsköpun til að stuðla að friðsamlegri og sjálfbærari framtíð.
     *      Um þingræði og hvernig stuðla megi að bættum samskiptum og skilningi milli þjóðþinga með frið að markmiði.