Ferill 82. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 82 — 82. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins fyrir árið 2024.
1. Inngangur.
Á vettvangi Evrópuráðsþingsins árið 2024 var innrásarstríð Rússlands í Úkraínu enn í brennidepli en einnig bar mikið á umræðu um átök fyrir botni Miðjarðarhafs og mannúðarástand á Gaza. Þá var umræða um þróun lýðræðisins ofarlega á baugi, m.a. í tengslum við ógnir við lýðræðið í Georgíu og Aserbaísjan, og áhersla lögð á mikilvægt hlutverk Evrópuráðsins við að efla lýðræðið, mannréttindi og réttarríkið á 75 ára afmælisári þess en Evrópuráðið var stofnað 5. maí 1949. Evrópuþingið veitti álit um rammasamning Evrópuráðsins um gervigreind og um umsókn Kósovós að ráðinu. Verðlaun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur fyrir valdeflingu kvenna voru veitt í fyrsta skipti á árinu. Alain Berset, fyrrverandi forseti Sviss, var kosinn framkvæmdastjóri Evrópuráðsins og tók hann við því embætti af Mariju Pejcinovic Buric í september. Þá var Michael OFlaherty, fyrrverandi framkvæmdastjóri Evrópustofnunar grundvallarmannréttinda, kjörinn mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins til næstu sex ára og tók hann við þeirri stöðu í apríl af Dunju Mijatovic.
Á fyrsta þingfundi ársins í janúar voru gerðar athugasemdir við kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans á efnislegum grundvelli með vísun til skorts á samstarfsvilja og til lítillar virðingar fyrir lýðræðinu, mannréttindum og réttarríkinu. Í kjölfar umfjöllunar málsins í eftirlitsnefnd og reglunefnd þingsins varð það niðurstaða þingmanna að samþykkja ekki kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans en aukinn meiri hluta þarf til þess að hafna kjörbréfum landsdeilda. Á fundi stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Lúxemborg í lok nóvember lýstu þingmenn áhyggjum af þróun mála í Aserbaísjan og sögðu stöðuna í raun hafa versnað frá því að ákvörðun var tekin í byrjun árs um að samþykkja ekki kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans. Áhyggjur þingmanna beindust ekki síst að þeim áhrifum sem synjun á kjörbréfi gæti haft til lengri tíma fyrir Evrópuráðið og hvar draga ætti mörkin. Lýðræðið stæði einnig höllum fæti í Georgíu og teikn á lofti í fleiri ríkjum. Í umræðunni mátti greina tvö meginsjónarmið, annars vegar að mikilvægt væri að nýta þau úrræði sem stæðu til boða á vettvangi þingsins til að knýja á um að aðildarríki þess stæðu við skuldbindingar sínar og störfuðu samkvæmt sameiginlegum gildum Evrópuráðsins um mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið. Hins vegar lýstu þingmenn áhyggjum af mögulegum afleiðingum þess að hefta þátttöku ríkja á Evrópuráðsþinginu og eiga með því á hættu að ríki drægju sig endanlega úr samstarfinu.
Í umræðu um innrásarstríð Rússlands í Úkraínu var sjónum beint að stöðu úkraínskra barna, að lagalegum afleiðingum og mannréttindaáhrifum stríðsins, að því hvort viðskiptaþvinganir hefðu borið nægilegan árangur og að því hvernig styðja mætti enduruppbyggingu í Úkraínu. Þá var lögð áhersla á aðgerðir Evrópuráðsins til að draga stjórnvöld í Rússlandi til ábyrgðar vegna innrásarstríðsins í Úkraínu og minnt á þau mikilvægu skref sem stigin hefðu verið á leiðtogafundinum í Reykjavík í maí árið 2023. Markverður áfangi í þeirri vegferð hefði verið opnun skrifstofu tjónaskrár í Kænugarði á árinu en henni er ætlað að tryggja samræmi í gagnaöflun í samstarfi við alþjóðastofnanir, úkraínsk stjórnvöld og borgarasamtök. Ólena Selenska, forsetafrú í Úkraínu, tók þátt í umræðu um stöðu úkraínskra barna á fjarfundi og minnti á að börnin væru ekki einungis tölur á blaði, þau væru framtíð Úkraínu. Rúslan Stefantsjúk, forseti Æðsta ráðsins, þjóðþings Úkraínu, ávarpaði Evrópuráðsþingið í umræðu um stuðning við enduruppbyggingu í Úkraínu og hvatti til tafarlausra aðgerða og sagði að tími fordæmingarinnar væri liðinn. Nú væri nauðsynlegt að ráðast í sameiginlegar aðgerðir gegn rússneskum stjórnvöldum.
Umræða um mannúðarástand á Gaza og átök fyrir botni Miðjarðarhafs var einnig áberandi á þinginu með þátttöku formanna landsdeilda Ísraels og Palestínu. Ísrael er áheyrnarfulltrúi á Evrópuráðsþinginu og Palestína er samstarfsaðili þess á sviði lýðræðis. Þingið samþykkti ályktun á þingfundi í janúar þar sem hrottaleg árás Hamas 7. október 2023 var fordæmd harðlega. Í ályktuninni lýstu þingmenn stuðningi sínum við Ísrael sem hefði rétt á að verja sig í kjölfar grimmilegustu hryðjuverkaárása sem ríkið hefði þolað. Þingmenn hörmuðu einnig gríðarlegt mannfall meðal almennra borgara á Gaza og lögðu áherslu á að aðgerðir Ísraelshers hefðu leitt til dauða og flótta þúsunda Palestínumanna og falið í sér eyðileggingu á mikilvægum innviðum og borgarmannvirkjum á Gaza. Í ályktuninni var krafist varanlegs vopnahlés á svæðinu og þess að komið yrði á virkum friðarviðræðum sem miðuðust við tveggja ríkja lausn. Sérstakar umræður fóru einnig fram í apríl, júní og október þar sem kallað var eftir auknum viðbrögðum við neyðarástandi á Gaza og að komið yrði í veg fyrir stigmögnun átaka á svæðinu. Þá var lögð áhersla á mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið sýndi sameiginlega ábyrgð í því að koma á tafarlausu vopnahléi, krefjast lausnar gísla Hamas-samtakanna og tryggja óheftan aðgang nauðsynlegrar mannúðaraðstoðar inn á svæðið.
Verðlaun fyrir valdeflingu kvenna í nafni Vigdísar Finnbogadóttur voru veitt í fyrsta skipti í þingfundaviku í júní og komu þau í hlut grísku grasrótarsamtakanna Irida Women's Center. Samtökin vinna gegn fátækt og félagslegri einangrun kvenna og gegn kynbundnu ofbeldi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, voru viðstaddir afhendinguna og ávörpuðu þingið. Evrópuráðsþingið og ríkisstjórn Íslands standa að verðlaununum sem veitt eru einstaklingum, stofnunum eða samtökum sem þykja hafa skarað fram úr við að stuðla að valdeflingu kvenna. Alls bárust 123 tilnefningar til verðlaunanna frá öllum heimshlutum og hlutu þrjú úr þeirra hópi sérstaka tilnefningu dómnefndar. Auk kvennamiðstöðvarinnar voru það pólsku samtökin Feminoteka Foundation og Pascuala López López, sem er baráttukona fyrir mannréttindum í Mexíkó.
Kósovó sótti formlega um aðild að Evrópuráðinu í maí árið 2022 og hlaut umsóknin meðferð þingsins á árinu. Evrópuráðsþingið veitir álit á umsóknum um aðild áður en málið gengur til ráðherraráðs Evrópuráðsins sem tekur ákvörðun. Í álitinu mælti Evrópuráðsþingið með því að Kósovó yrði boðin aðild að Evrópuráðinu með því skilyrði að landið framfylgdi skuldbindingum sínum gagnvart ráðinu og þeim skilyrðum sem sett væru fyrir aðild. Í álitinu sagði jafnframt að aðild myndi styrkja stöðu mannréttinda þar sem í henni fælist einnig aðild borgara í Kósovó að Mannréttindadómstól Evrópu.
Evrópuráðsþingið veitti álit um drög að rammasamningi Evrópuráðsins um gervigreind, mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið en samningurinn er fyrsti alþjóðlegi samningurinn um gervigreind sem opinn er öllum ríkjum heims. Evrópuráðsþinginu ber að veita álit sitt á drögum að fjölþjóðasamningum áður en þeir fara fyrir ráðherranefnd Evrópuráðsins til endanlegrar samþykktar. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður Íslandsdeildar, mælti fyrir álitinu fyrir hönd laga- og mannréttindanefndar. Samningurinn er afrakstur viðræðna fulltrúa aðildarríkja Evrópuráðsins, Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Japans, Kanada, Mexíkós, Ísraels, Argentínu, Ástralíu, Kosta Ríku, Perús og Úrúgvæs.
Bjarni Jónsson gegndi formennsku í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins á árinu og átti sæti í þingmannaneti um heilnæmt umhverfi og í sérnefndum um brottnám úkraínskra barna og um framtíð lýðræðisins í Belarús. Þá var Bjarni kjörinn varaformaður flokkahóps frjálslyndra (e. ALDE) á Evrópuráðsþinginu. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir var varaformaður undirnefndar um gervigreind og mannréttindi og framsögumaður nefndarinnar um málefni pólitískra fanga. Hún var jafnframt framsögumaður tveggja skýrslna á árinu og álits þingsins um rammasamning Evrópuráðsins um gervigreind, mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið, eins og fram hefur komið. Þá var Þórhildur Sunna skipuð formaður kosningaeftirlitsnefndar Evrópuráðsþingsins gagnvart forsetakosningum í Moldóvu. Birgir Þórarinsson var skipaður framsögumaður í málefnum afgansks flóttafólks af hálfu flóttamannanefndar. Hann var einnig kjörinn varaformaður flokkahóps evrópskra þjóðarflokka (e. EPP) og annar varaformaður nefndar um menningar- og menntamál, fjölmiðla og vísindi.
2. Almennt um Evrópuráðið og Evrópuráðsþingið.
Evrópuráðið var stofnað 5. maí 1949 af tíu Vestur-Evrópuríkjum. Aðildarríkin eru nú 46 talsins með samtals um 700 milljónir íbúa og mynda eina órofa pólitíska heild í álfunni að Rússlandi, Belarús og Kósovó undanskildum. Rússlandi var vikið úr Evrópuráðinu eftir allsherjarinnrás þess í Úkraínu. Kósovó hefur sótt um aðild að Evrópuráðinu og mælti þingið með aðild hinn 16. apríl 2024. Málið er nú í höndum ráðherraráðsins.
Hlutverk Evrópuráðsins er að standa vörð um grundvallarhugsjónir aðildarríkjanna um mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið og stuðla að efnahagslegum og félagslegum framförum. Með það að markmiði beitir ráðið sér m.a. fyrir gerð og samþykkt bindandi fjölþjóðasáttmála. Mannréttindasáttmálinn er þeirra þekktastur og á honum grundvallast Mannréttindadómstóll Evrópu. Dómstóllinn tekur til meðferðar kærur frá aðildarríkjum, einstaklingum og hópum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmálans og eru dómar hans bindandi að þjóðarétti fyrir viðkomandi ríki.
Ályktanir og fjölþjóðasáttmálar Evrópuráðsins hafa haft víðtæk áhrif í álfunni allri. Fjölmargir sáttmálar ráðsins á ýmsum sviðum þjóðlífsins eru mikilvægar mælistikur fyrir þjóðir sem eru að koma á lýðræði og réttarríki, en mælistikur Evrópuráðsins gilda einnig fyrir aðrar fjölþjóðastofnanir og alþjóðleg samtök. Evrópuráðið hefur stutt dyggilega við lýðræðisþróun í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu til samræmis við hlutverk sitt og tilgang. Til þess beitir ráðið sér fyrir gerð og samþykkt bindandi fjölþjóðasamninga og ályktana sem hafa víðtæk áhrif í álfunni allri auk þess sem það veitir aðstoð á sviði laga- og stjórnsýsluumbóta og veitir aðhald í krafti eftirlits með því að ríki virði aðildarskuldbindingar sínar og með eftirliti með þing- og forsetakosningum.
Framkvæmdarvald Evrópuráðsins er í höndum ráðherranefndarinnar, en í henni sitja utanríkisráðherrar aðildarríkjanna eða fastafulltrúar þeirra í Strassborg. Evrópuráðsþingið er vettvangur fulltrúa þjóðþinga aðildarríkjanna en einnig hafa sveitar- og héraðsstjórnir aðildarríkjanna samráð á ráðstefnu sveitar- og héraðsstjórna.
Evrópuráðsþingið er nokkurs konar hugmyndabanki Evrópuráðsins um stjórnmál, efnahagsmál, félagsmál, mannréttindamál, umhverfis- og orkumál og menningar- og menntamál. Á Evrópuráðsþinginu eiga 306 fulltrúar sæti og jafnmargir til vara. Ólíkt ráðherranefnd Evrópuráðsins þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði fer fjöldi fulltrúa á þinginu eftir stærð þjóðar. Á þinginu starfa níu fastanefndir og sex flokkahópar. Þá sitja forseti, 20 varaforsetar og formenn fastanefnda og flokkahópa í framkvæmdastjórn þingsins, sem hefur umsjón með innri málefnum þess. Sami hópur skipar stjórnarnefnd þingsins ásamt formönnum landsdeilda. Þingið kemur saman ársfjórðungslega, eina viku í senn, að jafnaði í janúar, apríl, júní og október. Stjórnarnefndin fundar tvisvar til þrisvar á milli þingfunda. Loks kemur sameiginleg nefnd þingsins og ráðherranefndar Evrópuráðsins reglulega saman samhliða fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg.
Hlutverk þingsins felst einkum í því að:
– eiga frumkvæði að aðgerðum og beina tillögum til ráðherranefndarinnar,
– hafa eftirlit með efndum fjölþjóðlegra skuldbindinga og þrýsta á um skjótar aðgerðir ef misbrestur verður þar á, og
– vera vettvangur fyrir skoðanaskipti og samráð þingmanna aðildarríkjanna og styrkja þannig lýðræðismenningu og efla tengsl þjóðþinga.
Á þingfundum Evrópuráðsþingsins eru skýrslur nefnda ræddar og ályktað á grundvelli þeirra. Þingið getur beint tilmælum og álitum til ráðherranefndarinnar sem fjallar um þau og bregst við eftir atvikum með beinum aðgerðum. Evrópuráðsþingið á þannig oft frumkvæði að gerð fjölþjóðlegra sáttmála sem eru lagalega bindandi fyrir aðildarríkin. Sem dæmi má nefna að Evrópusáttmálinn um aðgerðir gegn mansali, sem tók gildi árið 2008, á rætur sínar að rekja til ályktana Evrópuráðsþingsins frá árunum 1997 og 2002. Þar eru stjórnvöld hvött til þess að grípa til samstilltra aðgerða til að stemma stigu við þeirri skipulögðu glæpastarfsemi sem mansal er. Sáttmáli Evrópuráðsins um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi, sem einnig er nefndur Istanbúl-samningurinn, er einnig í samræmi við ályktanir Evrópuráðsþingsins. Istanbúl-samningurinn tók gildi árið 2014 og Ísland fullgilti hann í apríl 2018. Þingmenn á Evrópuráðsþinginu gegna einnig því mikilvæga hlutverki að velja dómara við Mannréttindadómstól Evrópu og kjósa í embætti Evrópuráðsins.
Evrópuráðsþingið er fjölþjóðastofnun þar sem þingmenn frá öllum ríkjum Evrópu, að Rússlandi, Belarús og Kósovó undanskildum, starfa saman á jafnréttisgrundvelli. Jafnframt hafa störf Evrópuráðsþingsins bein áhrif á störf þjóðþinganna þar sem fulltrúar á Evrópuráðsþinginu eru þingmenn í heimalöndum sínum, ólíkt því sem á t.d. við um Evrópuþingið. Þingfundir Evrópuráðsþingsins, þar sem þingmenn bera saman bækur sínar og skiptast á hugmyndum, eru því afar mikilvægt framlag til löggjafarstarfs heima fyrir og hafa þeir hraðað mjög þeirri öru lýðræðisþróun sem hefur orðið í Evrópu eftir lok kalda stríðsins og stutt hana. Þá hefur reynslan sýnt að þjóðir sem hafa skýr markmið í störfum sínum innan þingsins og kappkosta að ná þeim fram geta haft áhrif langt umfram stærð og pólitískt bolmagn. Sú staðreynd varpar skýru ljósi á mikilvægi íslenskrar þátttöku á Evrópuráðsþinginu og þá hagsmuni sem í henni felast.
3. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins.
Eftirfarandi aðalmenn áttu sæti í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins árið 2024 fram að alþingiskosningum 30. nóvember: Bjarni Jónsson, formaður, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, þingflokki Pírata, og Birgir Þórarinsson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Þá voru varamenn Jódís Skúladóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingflokki Pírata, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ritari Íslandsdeildar var Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum.
Skipan Íslandsdeildar í nefndir Evrópuráðsþingsins var sem hér segir:
* Stjórnarnefnd: Bjarni Jónsson.
* Sameiginleg nefnd Evrópuráðsþingsins og ráðherraráðsins: Bjarni Jónsson.
* Stjórnmála- og lýðræðisnefnd: Bjarni Jónsson.
* Laga- og mannréttindanefnd: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
* Nefnd um félagsmál, heilbrigðismál og sjálfbæra þróun: Bjarni Jónsson.
* Nefnd um fólksflutninga og málefni flóttafólks: Birgir Þórarinsson.
* Nefnd um menningar- og menntamál, fjölmiðla og vísindi: Birgir Þórarinsson.
* Jafnréttisnefnd: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Flokkahópar Evrópuráðsþingsins skipuðu meðlimi Íslandsdeildar í eftirfarandi nefndir:
* Reglunefnd: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
* Eftirlitsnefnd: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Birgir Þórarinsson.
Bjarni Jónsson sótti tvo fundi stjórnarnefndar, í Vilníus og Lúxemborg, og átti sæti í þingmannaneti um heilnæmt umhverfi, í sérnefndum um brottnám úkraínskra barna og um framtíð lýðræðisins í Belarús. Þá sótti Bjarni tvo fundi stjórnmálanefndar á árinu utan þingfundaviku og ráðstefnu um Evrópuráðsþingið og NATO-þingið sem mikilvægar stoðir lýðræðisins. Bjarni var einnig kjörinn varaformaður flokkahóps frjálslyndra (e. ALDE).
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tók þátt í tveimur fundum eftirlitsnefndar, þremur fundum laga- og mannréttindanefndar og einum fundi um kosningu dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Hún gegndi stöðu formanns undirnefndar laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins um gervigreind og stöðu framsögumanns í málefnum pólitískra fanga. Þórhildur Sunna var framsögumaður tveggja skýrslna á árinu, annars vegar um ólögmæta frelsissviptingu rússneska stjórnarandstæðingsins Vladímírs Kara-Múrsa og kerfisbundnar ofsóknir gegn gagnrýnendum innrásarstríðsins í Rússlandi og Belarús, og hins vegar um varðhald og dóm Julians Assange og slæm áhrif hans fyrir mannréttindi og tjáningarfrelsið. Auk þess mælti Þórhildur Sunna fyrir áliti Evrópuráðsþingsins um rammasamning Evrópuráðsins um gervigreind. Hún var jafnframt skipuð formaður kosningaeftirlitsnefndar Evrópuráðsþingsins gagnvart forsetakosningum í Moldóvu og var fulltrúi Evrópuráðsþingsins á fjórum fundum og ráðstefnum á árinu, m.a. um lýðræðisöfl í Belarús og öryggi á tímum gervigreindar.
Birgir Þórarinsson sótti fimm nefndarfundi utan þingfundaviku, tvo fundi menningarmálanefndar og þrjá fundi flóttamannanefndar. Birgir var framsögumaður skýrslu um eftirlit með skuldbindingum Úkraínu gagnvart Evrópuráðinu. Hann var einnig skipaður framsögumaður í málefnum afgansks flóttafólks af hálfu flóttamannanefndar. Þá var hann kjörinn varaformaður flokkahóps evrópskra þjóðarflokka (e. EPP) og annar varaformaður nefndar um menningar- og menntamál, fjölmiðla og vísindi.
4. Fundir Evrópuráðsþingsins 2023.
Þingfundir Evrópuráðsþingsins eru að jafnaði haldnir í Evrópuhöllinni í Strassborg fjórum sinnum á ári, í janúar, apríl, júní og október. Auk þess koma framkvæmdastjórn og stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins saman til funda á milli þinga og afgreiða mál sem æðsta vald þingsins.
Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 22.–26. janúar.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Bjarni Jónsson, formaður, og Birgir Þórarinsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst umræðu um kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans, um hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael, um hernaðaraðgerðir Ísraela á Gaza, og um stöðu úkraínskra barna. Þá fór fram kosning mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins og forseta Evrópuráðsþingsins (sjá fylgiskjal I).
Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 15.–19. apríl.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, og Birgir Þórarinsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst umræðu um aðildarumsókn Kósovós að Evrópuráðinu, um dauða Alexeis Navalnís og nauðsyn þess að stemma stigu við harðræðisstjórn Pútíns, og um ólögmæta frelsissviptingu Vladímírs Kara-Múrsa og kerfisbundnar ofsóknir á hendur þeim sem gagnrýna stríðsrekstur rússneskra stjórnvalda í Rússlandi og Belarús. Rúslan Stefantsjúk, forseti þjóðþings Úkraínu, ávarpaði Evrópuráðsþingið í umræðu um enduruppbyggingu í Úkraínu. Þá lagði þingið fram álit um drög að rammasáttmála Evrópuráðsins um gervigreind, mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið og hélt sérstaka umræðu um viðbrögð við mannúðarástandi á Gaza og hvernig fyrirbyggja mætti frekari átök fyrir botni Miðjarðarhafs í kjölfar árásar Írans á Ísrael (sjá fylgiskjal II).
Fundur stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Vilníus 25.–26. maí.
Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Bjarni Jónsson, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Hæst bar umræðu um 75 ára afmæli Evrópuráðsins og hvernig stuðla mætti að þátttöku allra Evrópubúa í starfi samtakanna til framtíðar og um nýlegar ógnir við lýðræðið í Georgíu (sjá fylgiskjal III).
Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 24.–28. júní.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Bjarni Jónsson, formaður, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, og Birgir Þórarinsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst sameiginlega umræðu um lagalegar afleiðingar og mannréttindaáhrif innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu, árangur viðskiptaþvingana og afmáningu menningarlegrar sjálfsmyndar Úkraínumanna. Vigdísarverðlaun fyrir valdeflingu kvenna voru veitt í fyrsta skipti og 75 ára afmæli Evrópuráðsins setti svip sinn á störf þingsins í vikunni. Þá fór fram kosning framkvæmdastjóra Evrópuráðsins (sjá fylgiskjal IV).
Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 30. september til 4. október 2024.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst umræðu um varðhald og dóm Julians Assange og slæm áhrif hans fyrir mannréttindi og tjáningarfrelsi sem og ávarp Vladímírs Kara-Múrsa, rússnesks stjórnarandstæðings, við veitingu mannréttindaverðlauna sem kennd eru við Václav Havel (sjá fylgiskjal V).
Fundur stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Lúxemborg 29. nóvember.
Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Bjarni Jónsson, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Hæst bar umræðu um hertar aðgerðir gegn andófi í Aserbaísjan, ástand pólitískra fanga, ógnir við frelsi, lýðræðið og þingbundin réttindi í landinu og um erlend afskipti og ógn þeirra við lýðræðið. Einnig voru kynntar tvær skýrslur um nýafstaðið kosningaeftirlit, annars vegar í forsetakosningum og kosningum um stjórnarskrárbreytingar í Moldóvu 20. október 2024 og hins vegar í þingkosningum í Búlgaríu 9. júní og aftur 27. október 2024 (sjá fylgiskjal VI).
5. Ályktanir, tilmæli og álit Evrópuráðsþingsins árið 2024.
Ályktun er ákvörðun Evrópuráðsþingsins eða yfirlýsing um afstöðu þess í tilteknu máli. Tilmæli eru tillögur sem jafnan byggjast á ályktunum þingsins og er beint til ráðherranefndarinnar sem tekur þær til umfjöllunar og bregst við eftir atvikum með beinum aðgerðum eða tillögu að lagasetningu í aðildarríkjunum. Álit eru oftast gefin sem umsögn eða svör við spurningum sem ráðherranefndin beinir til þingsins, t.d. varðandi inngöngu nýrra aðildarríkja, en einnig um fjárlög Evrópuráðsins og drög að nýjum Evrópusamningum.
Nálgast má upplýsingar um ályktanir, álit og tilmæli til ráðherranefndar Evrópuráðsins sem samþykkt voru á þingfundum og fundum stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins árið 2024 á vefsíðu þess. 1
Alþingi, 6. febrúar 2025.
| Ragnar Þór Ingólfsson, form. |
Sigríður Á. Andersen, varaform. | Sigurður Helgi Pálmason. |
FRÁSÖGN
af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 22.–26. janúar 2024.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Bjarni Jónsson, formaður, og Birgir Þórarinsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst umræðu um kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans, um hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael, um hernaðaraðgerðir Ísraela á Gaza og um stöðu úkraínskra barna. Þá fór fram kosning mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins og forseta Evrópuráðsþingsins.
Við upphaf þingfundar voru gerðar athugasemdir við kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans á efnislegum grundvelli (e. substantive grounds) með vísun til skorts á samstarfsvilja og til lítillar virðingar fyrir lýðræðinu, mannréttindum og réttarríkinu af hálfu aserskra stjórnvalda. Einnig var vísað til aðkomu stjórnvalda að atburðum í Nagornó-Karabak í september árið 2023 sem leiddu til flótta 100.000 íbúa á svæðinu af armenskum uppruna. Eins var vísað til þess að stjórnvöld í Aserbaísjan veittu sendinefnd Evrópuráðsþingsins ekki kost á að sinna kosningaeftirliti í forsetakosningum þar í landi 7. febrúar 2024. Þá var staða pólitískra fanga í landinu harðlega gagnrýnd. Í kjölfar umfjöllunar málsins í eftirlitsnefnd og reglunefnd þingsins varð það niðurstaða þingmanna að samþykkja ekki kjörbréf landsdeildar Aserbaísjans. Bjarni Jónsson talaði fyrir hönd flokkahóps frjálslyndra (e. ALDE) þar sem hann lagði áherslu á trúverðugleika og sagði að Evrópuráðsþingið þyrfti að velja á milli þess að verja trúverðugleika sinn eða glata honum með því að styðja ríkisstjórn sem starfaði ekki eftir gildum Evrópuráðsins. Hann sagði að þessi ákvörðun væri hluti af samtalinu en ekki merki um rof í samskiptum. Mikilvægt væri að senda skýr skilaboð og það væri ekki síður gert með velferð asersku þjóðarinnar í huga. Stjórnvöld í Aserbaísjan þyrftu að sýna fram á að þau væru tilbúin til að starfa eftir sameiginlegum gildum og að þau bæru virðingu fyrir lýðræðinu, mannréttindum og réttarríkinu. Niðurstaðan felur í sér að Aserbaísjan getur ekki sent þingmenn til þátttöku á Evrópuráðsþinginu til loka ársins 2024 nema stjórnvöld í landinu sýni fram á aukinn samstarfsvilja og breytingar í þágu lýðræðisins og mannréttinda. Ákvörðunin hefur ekki áhrif á aðild Aserbaísjans að Evrópuráðinu.
Michael OFlaherty, fyrrverandi framkvæmdastjóri Evrópustofnunar grundvallarmannréttinda, var kjörinn mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins til næstu sex ára og tekur hann við stöðunni 1. apríl af Dunju Mijatovic frá Bosníu og Hersegóvínu. Önnur í framboði voru Meglena Kúneva frá Búlgaríu og Manfred Nowak frá Austurríki. Kjósa þurfti í tveimur umferðum og hlaut OFlaherty 104 atkvæði gegn 70 atkvæðum sem greidd voru Kúnevu og 37 atkvæðum sem greidd voru Nowak.
Sérstök umræða um stöðu úkraínskra barna fór fram með rafrænni þátttöku Ólenu Selensku, forsetafrú í Úkraínu, sem felld var undir dagskrárlið um knýjandi málsmeðferð (e. urgent procedure). Selenska sagði frá úkraínskum dreng sem numinn var á brott á unglingsaldri og kvaddur í rússneska herinn um leið og hann varð 18 ára. Þvinga átti drenginn til að ganga í herlið árásaraðilans en honum tókst að flýja og var loks bjargað. Selenska sagði að börn sem hefðu verið frelsuð og flutt heim færðu fólki von. Börnin væru ekki tölur á blaði, þau væru framtíð Úkraínu. Birgir Þórarinsson talaði fyrir hönd flokkahóps evrópskra þjóðarflokka (e. EPP) og lagði áherslu á að rússnesk stjórnvöld hefðu rænt úkraínsk börn vonum sínum og draumum, numið þau með kerfisbundnum hætti á brott frá fjölskyldu og heimili og svipt þau sjálfsmynd sinni. Hann sagði að brottnám úkraínskra barna fæli í sér þjóðarmorð og kallaði eftir aukinni aðkomu alþjóðastofnana og samstarfi þvert á stjórnvöld í Úkraínu og Rússlandi. Í því samhengi nefndi hann umræðu á vettvangi Evrópuráðsþingsins um bætt alþjóðlegt lagaumhverfi á þessu sviði með áherslu á framsalssamninga og umræðu um að komið yrði á fót sameiginlegri skrifstofu til að auka skilvirkni og auðvelda samskipti aðila og ríkja. Bjarni tók einnig til máls undir þessum dagskrárlið og óskaði jafnframt eftir skilvirkum aðgerðum til að tryggja brottnumdum úkraínskum börnum örugga leið aftur til síns heima. Hann sagði að mikilvægt væri að hlúa að velferð úkraínskra barna og að tryggja þeim aðgengi að heilbrigðisþjónustu og menntun hvar sem þau væru niður komin. Þá fór hann fram á aukið samstarf í þessum málum milli stjórnvalda, alþjóðastofnana, frjálsra félagasamtaka og annarra hagaðila.
Formenn landsdeilda Ísraels og Palestínu tóku þátt í umræðum um hryðjuverkaárásir Hamas í Ísrael og viðbrögð stjórnvalda við þeim. Ísrael er áheyrnarfulltrúi á Evrópuráðsþinginu og Palestína er samstarfsaðili þess á sviði lýðræðis. Þingið samþykkti ályktun þar sem hrottaleg árás Hamas 7. október 2023 var fordæmd harðlega. Í ályktuninni lýstu þingmenn stuðningi sínum við Ísrael sem hefði rétt á að verja sig í kjölfar grimmilegustu hryðjuverkaárása sem ríkið hefði þolað. Þingmenn hörmuðu einnig gríðarlegt mannfall meðal almennra borgara á Gaza og lögðu áherslu á að aðgerðir Ísraelshers hefðu leitt til dauða og flótta þúsunda Palestínumanna og falið í sér eyðileggingu á mikilvægum innviðum og borgarmannvirkjum á Gaza. Í ályktuninni var krafist varanlegs vopnahlés á svæðinu og þess að komið yrði á virkum friðarviðræðum sem miðuðust við tveggja ríkja lausn.
Birgir Þórarinsson tók til máls fyrir hönd menningarmálanefndar sem annar varaformaður hennar í sameiginlegri umræðu um frjálsa fjölmiðlun og skipulagðar málssóknir gegn þátttöku í opinberri umræðu. Birgir fagnaði þeim mikilvægu skrefum sem þingið hefði stigið til að standa vörð um fjölmiðlafrelsi. Hann sagði að skýrslurnar báðar sem lægju til grundvallar umræðunni fælu í sér ákall um aukna árvekni varðandi öryggi fjölmiðlafólks og að þingmenn sem einstaklingar og fulltrúar þjóðar sinnar ættu að taka virkan þátt í baráttunni fyrir auknu öryggi. Hann minnti á að á árinu færu fram afar mikilvægar kosningar, ekki einungis til Evrópuþingsins heldur einnig í aðildarríkjum Evrópuráðsins. Frjáls og óháð fjölmiðlun væri forsenda lýðræðisins og ábyrgð fjölmiðla mikil við að miðla áreiðanlegum upplýsingum á tímum stríðsátaka í Evrópu. Evrópuráðsþingið og þingmenn þyrftu að gera sitt til að tryggja öryggi og frelsi fjölmiðla og fjölmiðlafólks. Í húfi væri þróun lýðræðisins í Evrópu.
Svjatlana Tsíkanóskaja, leiðtogi lýðræðisafla í Belarús, tók þátt í umræðu um framtíð lýðræðisins í Belarús þar sem þingmenn Evrópuráðsþingsins kynntu tillögur að leiðum til aukins lýðræðis í ríkinu. Meðal tillagna var að skipa sérstakan framsögumann í málefnum lýðræðisins í Belarús og eins að setja á fót fulltrúanefnd lýðræðisafla frá Belarús sem gæti átt aðkomu að starfsemi Evrópuráðsþingsins. Þingmenn lýstu áhyggjum sínum af sífellt versnandi stöðu mannréttinda, lýðræðisins og réttarríkisins í Belarús undir forystu Alexanders Lúkasjenka og töldu að kúgun núverandi einræðisafla í ríkinu væri svo alvarleg, útbreidd og kerfisbundin að jaðraði við glæp gegn mannkyni. Þingmenn hvöttu til áframhaldandi aðgreiningar á stjórn Lúkasjenka og lýðræðisöflum í Belarús og ítrekuðu mikilvægi þess að stefna að aðild sjálfstæðs, fullvalda og lýðræðislegs Belarúss að Evrópuráðinu. Í ræðu sinni sagði Tsíkanóskaja að stríðsherrar og einræðisherrar gætu fangelsað fólk, eyðilagt borgir, kúgað borgarana og beitt hræðsluáróðri en að þeim myndi aldrei takast að kæfa frelsisanda Belarúsa og úkraínsku þjóðarinnar. Hún sagði að örlög Belarúss og Úkraínu væru samofin og að án sigurs í Úkraínu yrði Belarús ekki frjálst. Án frjáls Belarúss væri ekki hægt að sjá fyrir sér varanlegan frið í Evrópu.
Á fyrsta degi þingsins var Theodoros Rousopoulos, meðlimur í flokkahópi evrópskra þjóðarflokka (e. EPP), kjörinn forseti þingsins. Rousopoulos er fyrsti Grikkinn sem kjörinn er forseti Evrópuráðsþingsins. Hann tekur við af Tiny Kox, öldungadeildarþingmanni frá Hollandi og meðlimi í flokkahópi sameinaðra evrópskra vinstrimanna (e. UEL). Rousopoulos var einn í framboði og einróma kjörinn forseti þingsins. Nikos Christodoulides, forseti Kýpurs, Jakov Milatovic, forseti Svartfjallalands, og Daniel Risch, forsætisráðherra Liechtensteins, ávörpuðu þingið og áttu samtal við þingmenn. Dominique Hasler, utanríkis-, mennta- og íþróttamálaráðherra Liechtensteins, kynnti skýrslu ráðherranefndar Evrópuráðsins. Venju samkvæmt ávarpaði Marija Pejcinovic Buric , framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, þingfund og sat fyrir svörum. Mathias Cormann, framkvæmdastjóri OECD, ávarpaði einnig þingið í umræðu um hlutverk stofnunarinnar við að draga úr neikvæðum áhrifum hnattvæðingar á tímum átaka og erfiðleika. Þá fóru fram umræður um forvirkar aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun á börnum innan stofnana í Evrópu. Sömuleiðis var fjallað um áhrif umræðu um flóttafólk og innflytjendur í kosningabaráttu. Bjarni Jónsson var kjörinn varaformaður flokkahóps frjálslyndra (e. ALDE) og Birgir Þórarinsson var kjörinn varaformaður flokkahóps sameinaðra þjóðarflokka (e. EPP).
Samhliða þingfundum fundaði Íslandsdeild með Ragnhildi Arnljótsdóttur, fastafulltrúa Íslands gagnvart Evrópuráðinu. Bjarni Jónsson sat fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) og tók þátt í sameiginlegum fundi með ráðherranefndinni þar sem framboð til framkvæmdastjóra Evrópuráðsins voru kynnt. Frambjóðendur eru Didier Reynders frá Belgíu, Alain Berset frá Sviss og Indrek Saar frá Eistlandi. Birgir Þórarinsson sat fund forsætisnefndar Evrópuráðsþingsins og stýrði þremur nefndarfundum en hann var kjörinn annar varaformaður nefndar um menningar- og menntamál, fjölmiðla og vísindi á fundi nefndarinnar í Strassborg.
Fylgiskjal II.
FRÁSÖGN
af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 15.–19. apríl 2024.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, og Birgir Þórarinsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst umræðu um aðildarumsókn Kósovós að Evrópuráðinu, um dauða Alexeis Navalnís og nauðsyn þess að stemma stigu við harðræðisstjórn Pútíns, og um ólögmæta frelsissviptingu Vladímírs Kara-Múrsa og kerfisbundnar ofsóknir á hendur þeim sem gagnrýna stríðsrekstur rússneskra stjórnvalda í Rússlandi og Belarús. Rúslan Stefantsjúk, forseti þjóðþings Úkraínu, ávarpaði Evrópuráðsþingið í umræðu um enduruppbyggingu í Úkraínu. Þá lagði þingið fram álit um drög að rammasáttmála Evrópuráðsins um gervigreind, mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið og hélt sérstaka umræðu um viðbrögð við mannúðarástandinu á Gaza og hvernig fyrirbyggja mætti frekari átök fyrir botni Miðjarðarhafs í kjölfar árásar Írans á Ísrael.
Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, bað þingmenn um að hafa mínútu þögn við upphaf fundar til að minnast fórnarlamba innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu. Hann beindi athygli einnig að stríðinu á Gaza og að öllum þeim mannslífum sem stríðið hefði kostað. Hann sagði að árás Írans hefði ekki orðið til þess að bæta ástandið og kallaði eftir sjálfbærum friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Þá vék forseti einnig að áhrifum og mikilvægi nýlegs dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í loftslagsmálum sem og að aðild Kósovós að Evrópuráðinu.
Varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Moldóvu, Mihai Popsoi , ávarpaði Evrópuráðsþingið. Þingmenn óskuðu honum til hamingju með þann árangur sem náðst hefði í Moldóvu í stjórnartíð hans en lýstu einnig áhyggjum af afskiptum Rússa af innanríkismálum Moldóvu og stöðunni í Transnistríu. Deildi ráðherra þeim áhyggjum með þingmönnum. Popsoi þakkaði jafnframt úkraínsku þjóðinni fyrir baráttu hennar og sagði að hún hefði bjargað Moldóvu frá beinum árásum rússneska hersins. Þá vék hann orðum sínum að stuðningi vesturvelda og sagði að afar mikilvægt væri að koma í veg fyrir að þreyta gagnvart stríðsátökum hefði áhrif á áframhaldandi stuðning ríkjanna.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir kynnti skýrslu laga- og mannréttindanefndar um ólögmæta frelsissviptingu rússneska stjórnarandstæðingsins Vladímírs Kara-Múrsa og kerfisbundnar ofsóknir gegn gagnrýnendum innrásarstríðsins í Rússlandi og Belarús í sameiginlegri umræðu. Einnig voru til umfjöllunar refsiaðgerðir gegn einstaklingum á „Kara-Múrsa-listanum“, dauði Alexeis Navalnís og hvernig stemma ætti stigu við einræði Pútíns og stríði hans gegn lýðræðinu. Jevgenía Kara-Múrsa, rússneskur mannréttindafrömuður og eiginkona Vladímírs Kara-Múrsa, ávarpaði þingið í tengslum við umræðuna og deildi reynslu sinni og þekkingu á stöðu pólitískra fanga í Rússlandi. Ályktun sem byggð var á skýrslu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur var samþykkt á þingfundi. Í henni eru alvarlegar ofsóknir á hendur pólitískum andstæðingum og gagnrýnendum stríðsins fordæmdar harðlega. Þess er krafist að Rússland og Belarús láti tafarlaust af öllum hótunum og ólögmætum aðgerðum gegn einstaklingum sem hafa orðið skotmark vegna afstöðu þeirra til stríðsins og farið er fram á lausn pólitískra fanga sem þegar hafa verið sviptir frelsi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir kynnti einnig skýrslu og álit um drög að rammasamningi Evrópuráðsins um gervigreind, mannréttindi, lýðræðið og réttarríkið en þinginu ber að veita álit sitt á drögum að samningum áður en þeir fara fyrir ráðherranefnd Evrópuráðsins til endanlegrar samþykktar. Í álitinu lýsir þingið ánægju sinni með gerð rammasamningsins en gagnrýnir um leið að samningurinn nái ekki jafnt yfir opinbera aðila og einkaaðila. Samningurinn sé afar mikilvægur þar sem hann sé fyrsti alþjóðlegi samningurinn um gervigreind sem opinn er öllum ríkjum heims og myndi því grunn að lagasetningu í þeim ríkjum sem gerast aðilar að samningnum. Þórhildur Sunna benti á að einkaaðilar væru stórir gerendur í þróun og nýtingu gervigreindar og því myndi ólík nálgun gagnvart einkageiranum og hinu opinbera skapa verulegt gat í regluverkinu. Hún hvatti öll aðildarríki til þess að beita ákvæðum samningsins til jafns gagnvart starfsemi einkaaðila og hins opinbera. Í álitinu eru lagðar til nokkrar breytingar á drögunum og mælst til þess að takmarkanir á beitingu samningsins í þágu þjóðaröryggis eða varnarhagsmuna samræmist alþjóðlegum mannréttindalögum. Ríki ættu einnig að innleiða skýrar hömlur, eða jafnvel bann, við notkun gervigreindar sem samrýmist ekki mannréttindum. Þá var lagt til að sérstöku ákvæði um heilsu og umhverfi yrði bætt við samninginn. Samningurinn er afrakstur viðræðna fulltrúa aðildarríkja Evrópuráðsins, Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Japans, Kanada, Mexíkós, Ísraels, Argentínu, Ástralíu, Kosta Ríku, Perús og Úrúgvæs.
Rúslan Stefantsjúk, forseti Æðsta ráðsins, þjóðþings Úkraínu, ávarpaði Evrópuráðsþingið við umræðu um stuðning við enduruppbyggingu í Úkraínu. Í ræðu sinni líkti hann Rússlandi „dýr“ sem hunsaði alþjóðalög, ógnaði heiminum og bæri enga virðingu fyrir mannslífum, hvorki eigin borgara né borgara í öðrum ríkjum. Hann hvatti til tafarlausra aðgerða og sagði að tími fordæmingarinnar væri liðinn. Nú væri nauðsynlegt að ráðast í sameiginlegar aðgerðir og sýna samstillt átak gegn rússneskum stjórnvöldum. Í umræðu sammæltist þingið um að frysta ætti og nota eignir rússneska ríkisins til uppbyggingar í Úkraínu. Slíkar aðgerðir myndu styrkja Úkraínu, draga Rússland til raunverulegrar ábyrgðar og fæla ríki frá viðlíka árásum í framtíðinni. Þá lagði þingið áherslu á að Rússland bæri ábyrgð á að bæta að fullu allt tjón sem hlytist af aðgerðum þess, þar á meðal eyðileggingu innviða, mannfall og efnahagslegt tjón.
Þingið tók einnig til umræðu álit um aðildarumsókn Kósovós að Evrópuráðinu sem fer fyrir ráðherraráð Evrópuráðsins. Í álitinu er mælt með því að Kósovó verði boðin aðild að Evrópuráðinu með því skilyrði að landið framfylgi skuldbindingum sínum gagnvart ráðinu og þeim skilyrðum sem sett eru fyrir aðild. Í álitinu segir jafnframt að aðild myndi styrkja stöðu mannréttinda þar sem í henni fælist einnig aðild fyrir íbúa Kósovós að Mannréttindadómstól Evrópu. Innleiðing dóms stjórnlagadómstóls Kósovó vegna deilu um Visoki Decani-klaustur gæfi einnig góð fyrirheit varðandi vilja stjórnvalda til að starfa í samræmi við lög, óháð pólitískum ágreiningi. Með því að stofna samtök serbneskra meirihlutasveitarfélaga væri einnig hægt að stíga mikilvægt skref í átt að því að tryggja réttindi Serba í Kósovó. Þá hvatti þingið til þess að aðildarríki myndu beita samtali og málamiðlunum, ekki síst í ljósi þess að meðal aðildarríkja að Evrópuráðinu væru ríki sem viðurkenndu ekki sjálfstæði Kósovós. Álitið var samþykkt með 131 atkvæði gegn 29. Ellefu sátu hjá.
Dominique Hasler, utanríkis-, mennta- og íþróttamálaráðherra Liechtensteins og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, lagði áherslu á áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Hún fór yfir forgangsatriði formennsku Liechtensteins í ávarpi sínu á þingfundi Evrópuráðsþingsins. Hún minnti á Reykjavíkuryfirlýsinguna frá leiðtogafundinum í maí árið 2023 þar sem leiðtogar hefðu lýst yfir óbilandi stuðningi við Úkraínu og fordæmt harðlega ólögmætt innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Mikilvæg skref hefðu verið stigin á árinu, svo sem með opnun skrifstofu tjónaskrár í Kænugarði í mars. Tjónaskrá er ætlað að tryggja samræmi í gagnaöflun í samstarfi við alþjóðastofnanir, úkraínsk stjórnvöld og borgarasamtök.
Samhliða þingfundum fundaði Íslandsdeild með Ragnhildi Arnljótsdóttur, fastafulltrúa Íslands gagnvart Evrópuráðinu, og Oddnýju Mjöll Arnardóttur, dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Íslandsdeild fundaði einnig með frambjóðendum til embættis framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Í framboði voru Indrek Saar frá Eistlandi, Didier Reynders frá Belgíu og Alain Berset frá Sviss. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sat fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8). Birgir Þórarinsson sat fund forsætisnefndar Evrópuráðsþingsins og stýrði sameiginlegum fundi menningarmálanefndar og félagsmálanefndar.
Fylgiskjal III.
FRÁSÖGN
af fundum stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Vilníus 25.–26. maí 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Bjarni Jónsson, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum.
Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, setti fund. Hann fór fram viku eftir að Litáen tók við formennsku í ráðherraráði Evrópuráðsins á 133. fundi þess sem markaði jafnframt 75 ára afmæli stofnunarinnar. Rousopoulos sagði að utanríkisráðherrar aðildarríkjanna 46 hefðu lagt drög að stefnu Evrópuráðsins á fundinum sem tæki mið af Reykjavíkuryfirlýsingunni. Þá ítrekuðu ráðherrarnir einnig mikilvægi stuðnings við baráttu Úkraínu fyrir réttlæti. Viktorija Cmilyte-Nielsen, forseti þjóðþings Litáens, flutti ávarp þar sem hún minntist baráttu litáísku þjóðarinnar fyrir sjálfstæði og sagði að ástandið þá minnti á stöðuna í Kænugarði nú. Þjóðþing Litáens, sem nefnist Seimas, hefði verið varið með sandpokum og óbreyttir borgarar myndað mannlegan skjöld um bygginguna þegar sovéski herinn gerði innrás í janúar árið 1991. Þjóðþing Úkraínu, sem nefnist Æðsta ráðið, væri nú varið með svipuðum hætti og væri öflug stoð lýðræðisins í Úkraínu frammi fyrir árásarher Rússlands.
Vytautas Landsbergis, prófessor og einn helsti leiðtogi Litáa þegar þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum, flutti ávarp þar sem hann talaði um mikilvægi kjörinna fulltrúa, öflugra þjóðþinga og þingmannasamtaka. Sagði hann að lýðræðið í Evrópu verðskuldaði að staðinn væri vörður um það. Sonarsonur hans, Gabrielius Landsbergis, núverandi utanríkisráðherra Litáens, flutti einnig ávarp og svaraði spurningum þingmanna. Í ávarpi sínu lagði hann áherslu á aðgerðir Evrópuráðsins til að draga stjórnvöld í Rússlandi til ábyrgðar vegna innrásarstríðsins í Úkraínu. Hann sagði að tjónaskrá væri mikilvægt skref en að einnig væri nauðsynlegt að koma á sjálfstæðum dómstól. Þá fór hann yfir áherslur Litáens í formennsku ríkisins í ráðherraráðinu. Í umræðum var sjónum enn beint að stöðu lýðræðisins í álfunni og að innrásarstríði Rússlands í Úkraínu. Einnig var rætt um aðild Kósovós að Evrópuráðinu, um neyðarástandið á Gaza og um stöðu Osmans Kavala, sem tyrknesk stjórnvöld hnepptu í varðhald fyrir skoðanir hans og baráttu fyrir mannréttindum. Þá barst talið að öryggismálum og mannréttindum. Rætt var hvernig hægt væri að tryggja mannréttindi og að farið yrði að þeim sáttmálum sem ríki hafa fullgilt og samþykkt þegar öryggi svæða og samfélaga er ógnað. Í þessu samhengi sagði Landsbergis að brýnt væri að bregðast við fjölþáttaógnum og óhefðbundnum hernaði. Litáen hefði þurft að kljást við krefjandi aðstæður þar sem fólki á flótta væri beitt í hernaði af hálfu Rússlands og það þvingað að landamærum Litáens í gegnum Belarús. Landsbergis sagði að skiljanlegt væri að fólk hefði áhyggjur af því hvernig tryggja mætti öryggi einstaklinga í slíkum aðstæðum og að allir nytu mannréttinda á sama tíma. Koma þyrfti í veg fyrir að aðgerðir yllu þeim pólitíska skaða sem vonast væri eftir.
Haldnar voru sérstakar umræður (e. current affairs debate) um 75 ára afmæli Evrópuráðsins og um nýlegar ógnir við lýðræðið í Georgíu. Í síðarnefndu umræðunni tóku þátt Sjalva Papúasvílí, forseti þjóðþings Georgíu, og Veronika Bílková, varaforseti Feneyjanefndarinnar. Papúasvílí sagði að georgíska ríkið væri einungis að verja eigið öryggi, efnahag og stjórnmálakerfi gegn erlendum afskiptum. Staða ríkisins og landfræðileg lega landsins væri afar flókin og lögunum einungis ætlað að auka gagnsæi varðandi erlend áhrif innan frjálsra félagasamtaka í landinu. Væri það í fullu samræmi við alþjóðleg viðmið um mannréttindi. Hann gagnrýndi alla umræðu sem miðaði að því að gera lögin tortryggileg í augum almennings og hvetti til aukins óróa í landinu. Bílková benti á að lagasetning sem beindist gegn aðilum sem fengju hluta af fjármagni sínu að utan, og nefnd eru lög um erlend áhrif, hefðu almennt sætt mikilli gagnrýni, þar með talið frá Feneyjanefndinni og Mannréttindadómstól Evrópu. Lögin í Georgíu væru engin undantekning. Hún sagði að allar stofnanir og lögaðilar féllu undir ný lög, m.a. fjölmiðlar. Félögum og fyrirtækjum væri nú skylt að gefa sig fram og skrá sig á þar til gerða lista ef þau hlytu meira en 20% af fjármagni sínu frá erlendum aðilum, svo sem stofnunum á borð við Evrópuráðsþingið. Þá veittu lögin dómsmálaráðuneyti Georgíu óhóflegar heimildir til að hafa eftirlit með og grípa inn í starfsemi sem talin væri undir erlendum áhrifum. Lagasetningin væri því ekki í samræmi við gildandi sáttmála og ákvæði um tjáningarfrelsi og fjölmiðlafrelsi. Í umræðum lýstu þingmenn áhyggjum af þróun mála og sumir þeirra kölluðu eftir aðgerðum áður en það yrði um seinan. Ekki mætti horfa aðgerðalaus á að Georgía yrði gerð að leppríki Rússlands með sama hætti og Belarús og að aðildarríki Evrópuráðsins hyrfu af braut lýðræðisins. Sams konar lög sem sett voru í Rússlandi árið 2012 hefðu verið notuð til að kæfa alla gagnrýni á stjórnvöld þar í landi. Þá kölluðu þingmenn eftir því að Evrópuráðsþingið skipulegði ferð til Georgíu til að eiga fundi með ráðamönnum og reyna að afstýra frekari aðgerðum í átt til einræðis og auknum áhrifum Rússlands á störf þings og stjórnvalda. Bílková benti á að þjóðþingi Georgíu væru ýmsar leiðir færar til að bregðast við, m.a. að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á hinum umdeildu lögum. Því væri afnám laganna ekki eina lausnin í stöðunni. Til orðaskaks kom milli þingmanns landsdeildar Georgíu, Eku Sepasvílí, og formanns landsdeildar Þýskalands, Franks Schwabe, eftir að Sepasvílí varði lögin og sagði að þau væru í samræmi við væntingar um aukið gagnsæi á vettvangi Evrópusambandsins. Schwabe gagnrýndi orð forseta þjóðþings Georgíu varðandi afvegaleiðandi umræðu af hálfu Evrópuráðsins. Evrópuráðið væri einfaldlega að sinna þeirri skyldu sinni að standa vörð um lýðræðið, réttarríkið og mannréttindi. Lögin væru skaðleg og hefðu þau áhrif að komandi kosningar í Georgíu væru í uppnámi þar sem þau útilokuðu frjáls félagasamtök frá því að sinna mikilvægu hlutverki sínu við kosningaeftirlit í landinu. Þá kom fram í umræðum að aukið gagnsæi fengist ekki með því að skerða félagafrelsi, fjölmiðlafrelsi og tjáningarfrelsi í einstökum ríkjum.
Í sérstakri umræðu um 75 ára afmæli Evrópuráðsins var undirstrikað mikilvægi þess að standa saman um og tryggja virðingu fyrir sameiginlegum gildum ráðsins. Evrópubúar glímdu við beina öryggisógn og stæðu frammi fyrir áskorunum á borð við loftslagsbreytingar og áhrif gervigreindar á samfélög. Þar hefði Evrópuráðið mikilvægu hlutverki að gegna í umræðu um mögulegar lausnir. Afar brýnt væri að eiga í samtali við hinn almenna borgara í Evrópu, ekki síst yngri kynslóðina, og auka þannig vitund um mikilvægi stofnana á borð við Evrópuráðið.
Svjatlana Tsíkanóskaja, leiðtogi lýðræðisafla í Belarús, var sérstakur gestur á fundi stjórnarnefndarinnar. Í ávarpi sínu þakkaði hún Evrópuráðsþinginu og aðildarríkjum þess fyrir stuðninginn og færði Litáen sérstakar þakkir fyrir að taka á móti þúsundum flóttafólks frá Belarús. Hún sagði að afar brýnt væri að koma í veg fyrir nýtt járntjald á mörkum Belarúss og Evrópu. Mikilvægt væri að sjá Belarús ekki sem ógn heldur tækifæri. Með því að fjárfesta í frjálsu Belarús væru ríkin að fjárfesta í friði, lýðræði og auknum stöðugleika á svæðinu. Ef lýðræði kæmist á í landinu yrði það mikið áfall fyrir Pútín og stjórnvöld í Rússlandi. Það yrði jafnframt til þess að hjálpa Úkraínu í baráttu sinni til sigurs. Tsíkanóskaja kallaði eftir áframhaldandi stuðningi við lýðræðisöfl í Belarús. Stuðningur skipti sköpum en það væri verkefni Belarúsa að koma á lýðræði í landinu. Þá tók stjórnarnefndin til umfjöllunar fjórar skýrslur. Í þeirri fyrstu var gerð tillaga um að hætta að beita gæsluvarðhaldi þegar um „félagslega mishæfða“ (e. „socially maladjusted“) einstaklinga væri að ræða. Í annarri skýrslu var fjallað um börn á vinnumarkaði og um það hvernig uppræta mætti skaðlega vinnu barna. Í þeirri þriðju var rætt um menningararf og loftslagsbreytingar. Umfjöllunarefni fjórðu skýrslunnar var gæði menntunar fyrir börn með sérþarfir með hliðsjón af áskorunum á borð við faraldra, stríð og stafvæðingu. Töluverð umræða spannst um skýrslu félagsmálanefndar um beitingu gæsluvarðhalds. Laga- og mannréttindanefnd gerði athugasemdir við þá skýrslu vegna mögulegra áhrifa hennar á mannréttindasáttmála Evrópu. Tillögur í skýrslunni gætu falið í sér ófyrirséðar afleiðingar sem nefndin gæti ekki stutt. Skiptar skoðanir voru meðal þingmanna um efni og áhrif skýrslunnar. Samþykktar voru með naumum meiri hluta tvær breytingartillögur við skýrsluna og fól sú síðari í sér töluverða breytingu á upphaflegum áherslum skýrsluhöfundar.
Samhliða fundum stjórnarnefndar sat Bjarni Jónsson fundi með frambjóðendum til embættis framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, þeim Indrek Saar, fyrrverandi menningarmálaráðherra Eistlands, og Alain Berset, fyrrverandi forseta Sviss. Fundur með Didier Reynders, dómsmálastjóra Evrópusambandsins, var fyrirhugaður í tengslum við fund stjórnmálanefndar í Ósló síðar í mánuðinum.
Fylgiskjal IV.
FRÁSÖGN
af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 24.–28. júní 2024.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Bjarni Jónsson, formaður, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, og Birgir Þórarinsson, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst sameiginlega umræðu um lagalegar afleiðingar og mannréttindaáhrif innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu, árangur viðskiptaþvingana og afmáningu menningarlegrar sjálfsmyndar Úkraínumanna. Sérstakar umræður fóru einnig fram um stöðu lýðræðisins í Georgíu, um stríðið á Gaza-svæðinu og um auknar aðgerðir á vettvangi Evrópuráðsins til að stemma stigu við aðför að tjáningarfrelsinu. Vigdísarverðlaun fyrir valdeflingu kvenna voru veitt í fyrsta skipti og 75 ára afmæli Evrópuráðsins setti svip sinn á störf þingsins í vikunni. Þá fór fram kosning framkvæmdastjóra Evrópuráðsins og hlaupið var með Ólympíueldinn inn í þingsal Evrópuráðsins.
Í sameiginlegri umræðu um afmáningu menningarlegrar sjálfsmyndar Úkraínumanna lagði Bjarni Jónsson ríka áherslu á að útrýming menningararfs yrði viðurkennd sem stríðsglæpur. Óhæfuverk Rússa í Úkraínu væru alvarlegt brot gegn þjóðarvitund og sjálfsmynd Úkraínumanna þar sem þau fælu í sér markvissa eyðileggingu menningararfs, bókmennta, tungumáls og hefða. Hann benti á mikilvægi þeirrar vinnu sem Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sinnti nú þegar við að safna og varðveita gögn um þessa glæpi. Hann sagði að brýnt væri að öll öflun og úrvinnsla gagna færi fram með samræmdum hætti milli ólíkra aðila. Skráning á brotum og tjóni af völdum rússneskra stjórnvalda væri nauðsynleg svo að draga mætti þau til ábyrgðar. Þar gegndi tjónaskrá sem samþykkt hefði verið á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík í maí árið 2023 veigamiklu hlutverki.
Vigdísarverðlaun fyrir valdeflingu kvenna voru veitt í fyrsta skipti og komu í hlut grísku grasrótarsamtakanna Irida Women's Center. Samtökin vinna gegn fátækt, félagslegri einangrun kvenna og kynbundnu ofbeldi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, voru viðstaddir afhendinguna og ávörpuðu þingið. Evrópuráðsþingið og ríkisstjórn Íslands standa að verðlaununum sem veitt eru einstaklingum, stofnunum eða samtökum sem þykja hafa skarað fram úr við að stuðla að valdeflingu kvenna. Alls bárust 123 tilnefningar til verðlaunanna frá öllum heimshlutum og voru þrjú tilnefnd úr þeirra hópi. Auk kvennamiðstöðvarinnar voru það pólsku samtökin Feminoteka Foundation og Pascuala López López, baráttukona fyrir mannréttindum í Mexíkó.
Bjarni Jónsson tók til máls fyrir hönd flokkahóps frjálslyndra (e. ALDE) við sérstaka umræðu um stöðu lýðræðisins í Georgíu. Hann lýsti áhyggjum af lýðræðislegri afturför í landinu, sérstaklega í ljósi nýsamþykktra laga um erlend áhrif. Hann hvatti Evrópuráðsþingið til að standa með áliti Feneyjanefndarinnar sem gagnrýndi lögin harðlega þar sem þau væru ekki í samræmi við evrópsk viðmið um mannréttindi. Bjarni benti einnig á að lögin gætu orðið þrándur í götu Georgíu í átt til aukins samstarfs við Evrópu og á Atlantshafssvæðinu. Hann hvatti til þess að landinu yrðu veitt viðeigandi úrræði svo að það næði að snúa aftur á braut lýðræðis.
Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, flutti þinginu ræðu og átti í samtali við þingmenn um mikilvægi alþjóðastofnana, aukinnar samvinnu og skuldbindingar á sviði mannréttinda, lýðræðisins og réttarríkisins á tímum vaxandi áskorana. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir ávarpaði Türk og benti á að pólitíska kyndilbera mannréttinda, lýðræðisins og réttarríkisins innan alþjóðastofnana skorti oft nægilegar valdheimildir og aðstöðu til að sinna starfi sínu sem skyldi. Þórhildur Sunna innti Volker Türk eftir því hvort Sameinuðu þjóðirnar gætu tekið að sér að leiða starf þessara kyndilbera þvert á stofnanir og stýra samstilltu átaki í þágu mannréttinda. Türk tók undir ákall Þórhildar Sunnu en sagði jafnframt að skortur á fjármagni einkenndi allt starf í þágu mannréttinda. Hann biðlaði því til stjórnmálaleiðtoga að auka framlög til mannréttinda og lagði áherslu á mikilvægi samstöðu alþjóðlegra stofnana í mannréttindamálum.
Birgir Þórarinsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tóku bæði til máls í sérstakri umræðu um stríðið á Gaza-svæðinu þar sem lögð var áhersla á frelsun gísla, tafarlaust vopnahlé og mannúðaraðstoð. Birgir Þórarinsson lagði áherslu á hryðjuverkaárás Hamas 7. október 2023 þar sem fleiri en 1.200 Ísraelar, aðallega óbreyttir borgarar, voru drepnir. Hann sagði að fjölda flugskeyta hefði verið skotið á Ísrael og lagði áherslu á gíslana 250, þar á meðal börn og aldraða, sem Hamas hefði lagt hald á. Enn væru 120 þeirra á Gaza-svæðinu en líkur væru á því að einungis 50 væru á lífi. Birgir gagnrýndi það að Hamas-samtökin notuðu almenna borgara sem mannlega skildi og lýsti gíslatöku samtakanna sem stríðsglæp. Hann krafðist þess að Hamas legði niður vopn og frelsaði gísla til að binda enda á stríðið og þjáningar almennra borgara. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir gagnrýndi Ísraela harðlega fyrir að virða ekki úrskurð Alþjóðadómstólsins um að stöðva hernaðaraðgerðir á Gaza-svæðinu. Hún benti á að Ísraelum hefði ekki verið gert að stöðva stríðið og sakaði alþjóðasamfélagið, ekki síst Evrópuríki og Evrópuráðsþingið, um að gera ekki nóg til að koma í veg fyrir þjóðarmorð á Palestínumönnum. Alþjóðasamfélaginu bæri skylda til að bregðast við. Hún lagði áherslu á að glæpir eins réttlættu ekki glæpi annars og sagði að tvöfalt siðferði græfi undan alþjóðalögum. Þórhildur Sunna krafðist tafarlausra aðgerða. Tími réttlætis fyrir Palestínu væri núna.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tók einnig til máls við sérstaka umræðu um möguleg viðbrögð Evrópuráðsins við aðför að tjáningarfrelsinu. Hún sagði að tjáningarfrelsið væri ómissandi þáttur í lýðræðissamfélögum og að skerðing þess væri skref í átt að einræði. Hún tók dæmi um alvarlegar árásir gegn tjáningarfrelsinu í Rússlandi með vísan í mál Alexeis Navalnís og Vladímírs Kara-Múrsa. Hún minntist einnig á mál Julians Assange. Hún fagnaði því að hann hefði verið látinn laus en benti á að mál hans hefði haft slæm áhrif á tjáningarfrelsið í hinum vestræna heimi og að afleiðingar af þeim fórnum sem færðar hefðu verið við frelsun hans ættu eftir að koma í ljós.
Tvær umferðir fóru fram við kjör framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Í framboði voru Alain Berset, fyrrverandi forseti Sviss, Didier Reynders, dómsmálastjóri Evrópusambandsins, og Indrek Saar, fyrrverandi menningarmálaráðherra Eistlands. Allir frambjóðendurnir þrír gáfu kost á sér við aðra umferð kosninga sem fram fór þriðjudaginn 25. júní. Berset var kosinn framkvæmdastjóri Evrópuráðsins með 114 atkvæðum gegn 85 atkvæðum sem greidd voru Saar og 46 atkvæðum sem greidd voru Reynders.
Utanríkisráðherra Litáens og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins, Gabrielius Landsbergis, kynnti skýrslu ráðherranefndarinnar og fráfarandi framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, Marija Pejcinovic Buric, ávarpaði þingið í síðasta sinn á ferli sínum. Yvette Palatino, afrekskona í hnefaleikum, hljóp síðan með Ólympíueldinn inn í þingsal Evrópuráðsþingsins. Alls ferðaðist eldurinn um 12.000 km um Frakkland og frönsk sjálfstjórnarsvæði áður en hann kom til Parísar fyrir upphaf leikanna. Þá fóru fram umræður um hvernig efla megi lýðræðið almennt með aukinni áherslu á þátttökulýðræði og hvernig auka megi aðkomu ungs fólks að Evrópuráðsþinginu. Sjónum var einnig beint að Varosíu á Norður-Kýpur og rætt hvernig hægt væri að færa bæinn aftur í hendur lögmætum íbúum hans. Tyrknesk yfirvöld hertóku bæinn árið 1974 og hefur hann staðið auður allar götur síðan. Rætt var um það hvernig verja megi þau sem berjast fyrir réttindum kvenna í Evrópu, um það hvernig standa megi vörð um mannréttindi við meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og um sáttaferli í kjölfar átaka. Þá var fjallað um stefnumótandi lausnir og stuðning við fólk á flótta frá Úkraínu, um það hvernig tryggja megi örugga endurkomu fólks á flótta til síns heima, um það hvernig standa megi vörð um mannréttindi fyrir komandi kynslóðir og um skuldbindingar Armeníu gagnvart Evrópuráðinu.
Samhliða þingfundum fundaði Íslandsdeild með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Ragnhildi Arnljótsdóttur, fastafulltrúa Íslands gagnvart Evrópuráðinu. Bjarni Jónsson sat fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8). Þórhildur Sunna Ævarsdóttir gaf laga- og mannréttindanefnd skýrslu frá fundi Helsinki-nefndar um pólitíska fanga sem fram fór í Bandaríkjunum og kynnti skýrslu sína um Julian Assange og slæm áhrif frelsissviptingar hans á tjáningarfrelsið á opnum fundi sömu nefndar.
Fylgiskjal V.
FRÁSÖGN
af fundum Evrópuráðsþingsins í Strassborg 30. september til 4. október 2024.
Af hálfu Alþingis tóku þátt í fundinum Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum. Á dagskrá bar einna hæst umræðu um skýrslu Þórhildar Sunnu um varðhald og dóm Julians Assange og slæm áhrif dómsins fyrir mannréttindi og tjáningarfrelsið sem og ávarp Vladímírs Kara-Múrsa við veitingu mannréttindaverðlauna sem kennd eru við Václav Havel. Umræða fór einnig fram um áróður og upplýsingafrelsi í Evrópu, um innleiðingu Þróunarbanka Evrópuráðsins á Reykjavíkuryfirlýsingunni, um yfirvofandi þjóðarmorð í Úkraínu 90 árum eftir hópmorð Sovétríkjanna á úkraínsku þjóðinni, um sameiginlega evrópska nálgun gegn mansali á flóttafólki, og um stöðuna í Íran og vernd íranskra aðila sem berjast fyrir mannréttindum í aðildarríkjum Evrópuráðsins. Sérstakar umræður fóru fram um versnandi stöðu mannréttinda, réttarríkisins og lýðræðisins í Aserbaísjan, um stöðuna í Mið-Austurlöndum og stigmögnun átaka á Gaza-svæðinu, og um stríðsfanga, óbreytta borgara sem haldið er í varðhaldi og þau sem hafa horfið í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu. Alain Berset ávarpaði þingið í fyrsta sinn sem nýr framkvæmdastjóri Evrópuráðsins og þá afgreiddi þingið í fyrsta skipti beiðni um afléttingu friðhelgi þingmanns Evrópuráðsþingsins.
Theodoros Rousopoulos, forseti Evrópuráðsþingsins, helgaði opnunarávarp sitt baráttu Vladímírs Kara-Múrsa og annarra pólitískra fanga sem Rússar hafa hneppt í varðhald fyrir gagnrýni á stjórnvöld og innrásarstríð Rússlands í Úkraínu. Hann sagðist þakklátur fyrir það að Kara-Múrsa hefði hlotið frelsi og gæti því verið viðstaddur veitingu mannréttindaverðlauna þeirra sem kennd eru við Václav Havel. Rousopoulos minntist allra þeirra sem hafa þolað fangelsisvist og látið lífið fyrir andstöðu sína gegn stjórnvöldum. Meðal þeirra væri María Kalesníkava sem hlaut Havel-verðlaunin árið 2021. Hún væri enn í haldi rússneskra stjórnvalda. Ekki mætti láta deigan síga fyrr en María og allir aðrir pólitískir fangar í Rússlandi og Belarús hefðu hlotið frelsi.
Kara-Múrsa var heiðraður með standandi lófataki þegar hann gekk inn í þingsal Evrópuráðsþingsins. Í ávarpi sínu beindi hann, líkt og forseti þingsins, sjónum sínum að þeim verðlaunahöfum sem enn er haldið föngnum. Hann sagðist sjálfur hafa verið á þeim lista fyrir einungis átta vikum. Hann þakkaði frelsi sitt baráttu og stuðningi þingmanna Evrópuráðsþingsins og annars baráttufólks fyrir frelsi og mannréttindum. Um þessar mundir væri vitað um ríflega 1.300 pólitíska fanga í Rússlandi en allur sá fjöldi væri engu að síður aðeins hluti af stærri vanda í ríki sem fangelsar fólk fyrir að tjá skoðanir sínar. Engin leið væri að vita hvað rússnesku þjóðinni fyndist raunverulega í slíku andrúmslofti. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir ávarpaði Kara-Múrsa fyrir hönd flokkahóps jafnaðarmanna. Hún fagnaði frelsi hans og sagði að eitt banvænasta vopn Rússlands gegn lýðræðinu væri frelsissvipting þeirra sem þora að opinbera gagnrýni sína og skoðanir á stjórnvöldum í Rússlandi. Á móti væri eitt banvænasta vopnið gegn ógnarstjórninni í Rússlandi endurheimt frelsi þeirra. Að þessu sinni hlaut Havel-verðlaunin María Corina Machado, einn helsti pólitíski leiðtogi Venesúela. Auk hennar voru aserski mannréttindafrömuðurinn og aðgerðasinninn Akíf Gúrbanov, sem er í haldi í Bakú í Aserbaísjan, og georgíski femínistinn, aðgerðasinninn og mannréttindalögfræðingurinn Babútsa Pataraja tilnefnd til verðlaunanna.
Julian Assange kom fyrir laga- og mannréttindanefnd á opnum fundi þar sem hann deildi reynslu sinni með þingmönnum og sat fyrir svörum. Með honum á fundinum voru Stella Assange, eiginkona hans, og Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks. Fundurinn var skipulagður í tengslum við skýrslu nefndarinnar um varðhald og dóm Assange sem Þórhildur Sunna Ævarsdóttir vann að. Var þetta í fyrsta skipti sem Assange kom fram opinberlega eftir að hann var látinn laus úr varðhaldi í Belmarsh-fangelsinu í Bretlandi fjórum mánuðum fyrr. Assange sagði þingmönnum að hann vildi að það væri öllum ljóst að hann væri ekki frjáls vegna þess að kerfið hefði virkað. Hann væri frjáls vegna þess að hann hefði játað sig sekan um að stunda blaðamennsku eftir margra ára fangelsisvist. Hann hefði játað sig sekan um að leita eftir upplýsingum frá heimildarmanni og síðan deilt þeim upplýsingum með almenningi.
Skýrslu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og ályktun um varðhald og dóm Julians Assange og slæm áhrif hans á tjáningarfrelsið og mannréttindi var vísað til frekari umræðu á þingfundi. Í ályktuninni er áhyggjum lýst vegna illrar meðferðar á Assange og varað við mögulegum fælingaráhrifum af henni fyrir uppljóstrara og fjölmiðlafólk um heim allan. Einnig er gagnrýnt að einmitt hann hafi sætt slíkri aðför en meintir stríðsglæpir og mannréttindabrot, sem umfjöllun Assange og WikiLeaks afhjúpaði, hafi aldrei verið rannsökuð. Þingið samþykkti ályktun Þórhildar Sunnu en með því samþykkti það jafnframt að skilgreina ætti Julian Assange sem pólitískan fanga. Því til stuðnings var bent á að þær óhóflega þungu ákærur og dómar og sú meðferð sem hann hlaut fyrir það eitt að stunda blaðamennsku féllu undir skilgreiningu þingsins á pólitískum föngum. Í því samhengi var vísað til alvarleika ákæru sem Bandaríkin gáfu út á hendur honum á grundvelli bandarískrar njósnalöggjafar. Sú ákæra hefði getað leitt til lífstíðardóms fyrir það sem í grundvallaratriðum væri einungis upplýsingagjöf og birting frétta. Vanræksla Bandaríkjanna í þessum efnum, ásamt harðri meðferð Julians Assange og Chelsea Manning, gæfi í skyn að markmið bandarískra stjórnvalda með málssókn gegn Assange væri að hylma yfir misgjörðir ríkisstarfsmanna fremur en að standa vörð um þjóðaröryggi. Þingið hvatti bandarísk stjórnvöld, sem eru áheyrnarfulltrúar í Evrópuráðinu, til að gera brýnar umbætur á njósnalöggjöfinni frá 1917 til að útiloka það að þeim verði beitt gegn útgefendum, blaðamönnum og uppljóstrurum sem birta leynilegar upplýsingar í þeim tilgangi að vekja athygli almennings á alvarlegum glæpum. Þingmennirnir bentu einnig á að yfirvöld í Bretlandi hefðu ekki staðið sig í því að vernda tjáningarfrelsi Assange og rétt hans til frelsis. Þeir sögðu að hann hefði verið vistaður lengi í hámarksöryggisfangelsi þrátt fyrir pólitískt eðli alvarlegustu ákæra gegn honum.
Alain Berset, nýkjörinn framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, lagði í fyrsta ávarpi sínu til þingsins áherslu á mikilvægt hlutverk Evrópuráðsins, sem nú fagnaði 75 ára afmæli, við að tryggja frið, stöðugleika, velmegun og öryggi fyrir borgara í Evrópu. Hann lagði sérstaka áherslu á þrjú meginsvið: áframhaldandi stuðning við Úkraínu, að styrkja lýðræðið og að skapa einingu í Evrópu á grundvelli fjölbreytileika. Opin umræða var aftur sett á dagskrá þingsins eftir töluvert hlé og fór hún fram undir lok þingfundar föstudaginn 4. október. Þingmenn notuðu tækifærið til að varpa ljósi á stöðu öryggis- og friðarmála í heiminum og bentu á ýmis teikn á lofti um frekari átök og hörmungar á næstu misserum. Þingið tók í fyrsta skipti til umfjöllunar beiðni um afléttingu á friðhelgi þingmanns Evrópuráðsþingsins, Marcins Romanowskis frá Póllandi. Ríkissaksóknari í Póllandi og dómsmálaráðherra Póllands sendu beiðni um það til forseta Evrópuráðsþingsins. Eftir umfjöllun í reglunefnd var málið leitt til lykta í þingsal þar sem friðhelgi Romanowskis var aflétt svo að tryggja mætti framgang réttvísinnar. Var það mat reglunefndar að málið gegn Romanowski varðaði ekki störf hans á vettvangi Evrópuráðsþingsins heldur hefðu meint brot átt sér stað áður en hann tók sæti á Evrópuráðsþinginu. Þá töldu þingmenn að engin ástæða væri til þess að efast um ásetning ríkissaksóknara í Póllandi.
Fylgiskjal VI.
FRÁSÖGN
af fundi stjórnarnefndar Evrópuráðsþingsins í Lúxemborg 29. nóvember 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sóttu fundinn Bjarni Jónsson, formaður, og Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum.
Forseti Evrópuráðsþingsins, Theodoros Rousopoulos, setti þing og Claude Wiseler, forseti þjóðþings Lúxemborgar, bauð þingmenn velkomna til Lúxemborgar. Yuriko Backes, varnarmálaráðherra og ráðherra samgöngumála, opinberra framkvæmda, jafnréttis og fjölbreytileika í ríkisstjórn Lúxemborgar, ávarpaði fundinn. Backes sagðist vona að í framtíðinni yrði það hlutverk varnarmálaráðherra að standa vörð um mannréttindi en ekki að huga að vörnum ríkja vegna stríðsrekstrar í álfunni. Ráðherra hafði ekki nægan tíma til að eiga samtal við þingmenn en þeir nýttu tækifærið engu að síður til að minna á mikilvægi Evrópuráðsþingsins í framhaldi af ávarpi ráðherra. Þingið væri ekki samkunda sem væri einungis gott að hafa (e. a nice-to-have) heldur væri mikilvægt fyrir ráðherraráðið og stjórnvöld í aðildarríkjum að nýta vettvanginn til raunverulegs samtals nú þegar lýðræðið stæði höllum fæti.
Forseti Evrópuráðsþingsins flutti stjórnarnefndinni skýrslu um helstu störf sín frá því að hann tók við embætti ellefu mánuðum fyrr, í janúar árið 2024. Hann minntist á mikilvægan stuðning þingsins við Úkraínu og lýðræðisöfl í Belarús. Hann sagði að afmælisárið hefði nýst vel til að draga fram mikilvægi stofnunarinnar og það sem hún hefði áorkað undanfarin 75 ár. Það birtist t.d. í því að umfjöllun um Evrópuráðið hefði aukist um 60% á árunum 2023–2024 frá því árin á undan. Þá tilkynnti forseti að opið væri fyrir tilnefningar til Vigdísarverðlauna fyrir valdeflingu kvenna en verðlaunin verða veitt í annað sinn í þingfundaviku í Strassborg í júní. Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til 28. mars 2025.
Haldin var sérstök umræða um hertar aðgerðir gegn andófi í Aserbaísjan, ástand pólitískra fanga, ógnir við frelsi, lýðræðið og þingbundin réttindi þar í landi, og um erlend afskipti og ógn þeirra við lýðræðið. Þingmaður landsdeildar Georgíu gerði athugasemd við það að halda ætti sérstaka umræðu um stöðuna í Aserbaísjan og því var gengið til atkvæða um beiðni um að halda umræðuna. Einfaldur meiri hluti nægði til þess að umræðan færi fram. Var beiðnin samþykkt með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða.
Umræðan var lífleg. Því var haldið fram að lýðræðið í Aserbaísjan væri einungis tálsýn. Skýrslur og eftirlitsferðir í áranna rás hefðu sýnt að Aserbaísjan væri ekki á leið til lýðræðis og að staðan væri í raun verri en þegar fyrstu mál voru tekin upp á vettvangi Evrópuráðsþingsins, m.a. í tengslum við spillingu. Þingmenn lýstu áhyggjum af því hvernig bregðast ætti við í janúar þegar taka þyrfti afstöðu til kjörbréfa landsdeildar Aserbaísjans þar sem staða mannréttinda hefði í raun versnað síðan þingið tók ákvörðun um að samþykkja ekki kjörbréf hennar í upphafi árs 2023. Þingmenn lögðu áherslu á mikilvægi samtals og að nauðsynlegt væri að nýta allar leiðir til að snúa þróuninni við. Sumir þingmenn töldu að þessi leið væri ekki hin rétta því að hún gæti haft þær afleiðingar að aðildarríkjum Evrópuráðsins færi fækkandi. Í stað þess að vinna í sameiningu að þróun mannréttinda, lýðræðisins og réttarríkisins myndi kvarnast úr hópnum ef þingið ætlaði að hindra þátttöku ríkja í aðstæðum sem þessum. Aðrir sögðu að þar sem samtal hefði ekki skilað árangri væri nauðsynlegt að beita öllum mögulegum ráðum.
Í umræðu um erlend afskipti var vikið að afskiptum Rússlands af kosningum í Moldóvu og áhrifum þeirra á þróun mála í Georgíu. Einnig var bent á að áhrifa gætti víða, bæði í stafrænum heimi og óstafrænum, og að ekkert aðildarríki Evrópuráðsins væri ónæmt eða kæmist hjá því að verða fyrir erlendum afskiptum. Þá var minnst á eldri kosningar í þessu samhengi, Brexit og forsetakosningar í Bandaríkjunum árið 2016. Mikilvægt væri að vera vakandi fyrir ástandinu og bregðast við en gæta þyrfti að því að beita aðferðum sem græfu ekki undan stöðu mannréttinda.
Tvær skýrslur voru kynntar um nýafstaðið kosningaeftirlit, annars vegar í forsetakosningum og kosningum um stjórnarskrárbreytingar í Moldóvu 20. október 2024 og hins vegar í þingkosningum í Búlgaríu 9. júní og aftur 27. október 2024. Í Búlgaríu hefur gengið illa að mynda starfhæfa ríkisstjórn og voru þetta sjöttu og sjöundu þingkosningar í landinu síðan árið 2021. Forseti Moldóvu, Maia Sandu, var endurkjörin og breytingar á stjórnarskrá ríkisins samþykktar en þær sneru að því að staðfesta evrópska vegferð landsins og fella regluverk Evrópusambandsins inn í innlenda löggjöf. Stærsta áhyggjuefnið væri staða lýðræðisins í landinu í ljósi tíðra kosninga á stuttum tíma og dvínandi kosningaþátttöku. Kjörsókn var einungis um 33% í kosningunum 27. október.
Skautun í pólitísku landslagi og fordæmalausar tilraunir til að spilla fyrir kosningaferlinu settu svip sinn á kosningarnar í Moldóvu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður og töluverð erlend afskipti, sérstaklega frá rússneskum stjórnvöldum, tókst moldóvskum stjórnvöldum að tryggja lýðræðislegar kosningar. Eftirlit sýndi fram á skaðlegar aðferðir eins og atkvæðakaup, ólögmæta fjármögnun og misnotkun á aðstöðu. Allt gróf þetta undan trúverðugleika kosninganna. Upplýsingaóreiða á samfélagsmiðlum stuðlaði jafnframt að ójafnvægi í annars fremur opnu fjölmiðlaumhverfi. Í skýrslunni er bent á nokkrar tillögur til úrbóta og moldóvsk stjórnvöld sérstaklega hvött til að rannsaka brot á kosningalögum, berjast gegn erlendum afskiptum og upplýsingaóreiðu, bæta lagaumgjörð og framkvæmd kosninga, tryggja óhlutdræga og jafna fjölmiðlaumfjöllun um alla frambjóðendur, vinna gegn hatursorðræðu í kosningabaráttu, og stuðla að auknu gagnsæi í fjármögnun kosningaherferða.
Stjórnarnefnd Evrópuráðsþingsins sendi einnig frá sér yfirlýsingu þar sem þingmenn lýstu áhyggjum vegna ástandsins í Georgíu og ákvörðunar stjórnvalda um að stöðva aðildarviðræður við Evrópusambandið, þvert á kosningaloforð. Sneru áhyggjur þingmanna aðallega að því að ákvörðunin gæti falið í sér alvarlegar afleiðingar fyrir réttarríkið og starfsemi lýðræðislegra stofnana í landinu. Þingmaður landsdeildar Georgíu gagnrýndi umræðuna og sagði að ekkert færi fram í Georgíu sem væri gegn vilja borgara í landinu. Hann gerði jafnframt athugasemdir við yfirlýsinguna en meiri hluti var fyrir yfirlýsingunni og því var hún samþykkt.
1 pace.coe.int/en/files/search?page=1&category=2&before=2024&after=2024