Ferill 83. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 83 — 83. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um norrænt samstarf árið 2024.
1. Inngangur.
Vinna að endurskoðun Helsingforssamningsins, grundvallarsáttmála norræns samstarfs, og kröfur Færeyinga og Grænlendinga um fulla og sjálfstæða aðild að opinberu samstarfi Norðurlanda voru þau mál sem settu mestan svip á störf Norðurlandaráðs á árinu. Grænlendingar hótuðu að ganga úr Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra um að fá sambærilega stöðu í samstarfinu og Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Ísland fór með formennsku í Norðurlandaráði á árinu. Bryndís Haraldsdóttir gegndi stöðu forseta og Oddný G. Harðardóttir var varaforseti. Norðurlandaráðsþing var haldið í Reykjavík í lok október. Volodymyr Zelenskyj, forseti Úkraínu, kom til Íslands og ávarpaði þingmenn og aðra þátttakendur. Jafnframt kom á þingið Svjatlana Tsíkhanoúskaja, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús, og margir aðrir erlendir gestir. Á þinginu var einróma samþykkt tillaga forsætisnefndar Norðurlandaráðs um að hvetja ríkisstjórnir Norðurlanda til að endurskoða Helsingforssamninginn. Norðurlandaráð leggur meðal annars til að bætt verði við ákvæðum um varnar- og öryggismál, almannaöryggi, viðbúnað og samfélagsöryggi, loftslagsmál, stjórnsýsluhindranir, réttindi barna og ungmenna og hlutverk Norræna ungmennaráðsins í norrænu samstarfi. Jafnframt vill ráðið að ákvæði um fjölmörg málefni, þar á meðal félagsmál, menntun, rannsóknir, menningu, tungumál, umhverfismál og samgöngumál, verði endurskoðuð. Enn fremur er lagt til að staða Færeyja, Grænlands og Álandseyja í samstarfinu verði efld.
2. Almennt um Norðurlandaráð.
Rætur norræns þingmannasamstarfs má rekja til ársins 1907 þegar Norræna þingmannasambandið var stofnað. Alþingi tók þátt í störfum þess frá þriðja áratugnum. Með stofnun Norðurlandaráðs árið 1952 varð samstarfið formfastara. Stofnríki ráðsins voru Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð en Finnland bættist í hópinn árið 1955.
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga á Norðurlöndum. Álandseyjar, Færeyjar og Grænland taka þátt í samstarfinu. Það kemur að jafnaði saman til þingfundar tvisvar á ári og ræðir og ályktar um norræn málefni. Auk þess kemur Norðurlandaráð saman til nefndafunda þrisvar á ári. Á vegum Norðurlandaráðs er unnið að margvíslegum norrænum verkefnum sem þingmenn, nefndir, flokkahópar eða landsdeildir ráðsins hafa átt frumkvæði að. Norðurlandaráð hefur tillögu- og umsagnarrétt um fjármagn sem er veitt til norrænnar samvinnu árlega. Norræna ráðherranefndin tekur verulegt tillit til þeirra ábendinga.
Fulltrúar í Norðurlandaráði eru þingmenn sem eru valdir af norrænum þjóðþingum í samræmi við tillögur þingflokka. Í ráðinu eiga sæti 87 fulltrúar. Þing Noregs og Svíþjóðar eiga tuttugu fulltrúa, Finnlands átján fulltrúa, Danmerkur sextán fulltrúa, Íslands sjö fulltrúa, Færeyja tvo fulltrúa, Grænlands tvo fulltrúa og Álandseyja tvo fulltrúa. Skipan í sendinefndir þinganna, sem einnig eru nefndar landsdeildir, skal endurspegla styrk stjórnmálaflokka á þjóðþingum. Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð skiptast á um að fara með formennsku í ráðinu. Forseti og varaforseti hvers árs eru frá formennskulandinu.
Þingfundir eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári. Á þingfundum er fjallað um framkomnar tillögur og beinir þingið tilmælum til ríkisstjórna landanna eða Norrænu ráðherranefndarinnar. Vorþing er að jafnaði haldið í mars eða apríl og haustþing um mánaðamót október og nóvember. Vorfundurinn er einnig nefndur þemaþing og er þar lögð áhersla á ákveðið málefni. Haustþingið er haldið í formennskulandi ársins. Þar gefa forsætisráðherrar, utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar Norðurlanda Norðurlandaráðsþingi skýrslu og samstarfsráðherrar eða fagráðherrar svara fyrirspurnum í sérstökum fyrirspurnatíma. Fjárhagsáætlun norræns samstarfs fyrir komandi ár er að jafnaði samþykkt á haustþingi en Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin móta fjárhagsáætlun í sameiningu í viðræðum sem hefjast allt að ári fyrr. Á þinginu eru jafnframt forseti og varaforseti komandi árs kjörnir og skipað í nefndir og aðrar trúnaðarstöður.
Í Norðurlandaráði starfa fimm flokkahópar: jafnaðarmenn, miðjumenn, hægrimenn, norrænt frelsi og norræn vinstri græn. Flokkahóparnir móta sameiginlega afstöðu til einstakra mála og velja þingmenn í nefndir. Flestar tillögur sem lagðar eru fram í Norðurlandaráði koma frá flokkahópum.
Málefnastarf Norðurlandaráðs fer að mestu fram í fjórum fagnefndum auk forsætisnefndar. Á milli þinga stýrir forsætisnefnd starfi ráðsins, vísar tillögum til nefnda eða afgreiðir þær. Forsætisnefnd fer jafnframt með utanríkis- og öryggismál svo og samskipti Norðurlandaráðs við aðrar alþjóðastofnanir. Þá fer eftirlitsnefnd yfir ársreikninga ráðsins og stofnana sem starfa innan Norðurlandasamstarfsins. Loks kemur kjörnefnd saman til að gera tillögu að skipan í nefndir og trúnaðarstöður á vegum Norðurlandaráðs.
Forsætisnefnd.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs er æðsta ákvörðunarvald milli þingfunda ráðsins og getur tekið ákvarðanir fyrir hönd þess. Hún stýrir starfi nefnda Norðurlandaráðs og samræmir það, ber ábyrgð á heildrænum pólitískum og stjórnsýslulegum áherslum og utanríkis- og varnarmálum, og gerir framkvæmda- og fjárhagsáætlanir ráðsins. Forsætisnefnd er skipuð forseta, varaforseta og allt að þrettán öðrum fulltrúum sem kosnir eru á þingi Norðurlandaráðs. Öll ríki á Norðurlöndum og allir flokkahópar eiga fulltrúa í forsætisnefnd.
Forsætisnefnd getur skipað undirnefndir, vinnuhópa, áheyrnarfulltrúa og eftirlitsaðila um sérstök málefni í afmarkaðan tíma, svo sem fjárlagahóp sem ræðir við Norrænu ráðherranefndina um fjárhagsáætlun hennar. Forsætisnefnd sér einnig um samskipti við þjóðþing utan Norðurlanda og aðrar svæðisbundnar og alþjóðlegar stofnanir. Norðurlandaráð á m.a. í nánu samstarfi við Eystrasaltsþingið, samstarfssamtök þinga Eistlands, Lettlands og Litáens.
Þekkingar- og menningarnefnd.
Þekkingar- og menningarnefnd Norðurlandaráðs fer með málefni sem snerta menningu, rannsóknir og menntun, grunn- og framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu og alþýðufræðslu, þar á meðal mál sem snerta tungumálasamstarf, nýmiðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntamála. Nefndin vinnur einnig að málum sem snerta borgaralegt samfélag og störf sjálfboðaliða. Íþróttir, tungumál, kvikmyndir og fjölmiðlar, almenn og fjölbreytt list, og menning barna og ungmenna eru jafnframt á starfssviði norrænu þekkingar- og menningarnefndarinnar.
Hagvaxtar- og þróunarnefnd.
Norræna hagvaxtar- og þróunarnefndin vinnur að málefnum og viðfangsefnum sem snerta vinnumarkað og vinnuumhverfi, atvinnulíf, viðskipti, iðnað, orku, baráttu gegn stjórnsýsluhindrunum, samgöngumál og öryggi í samgöngumálum. Nefndin fjallar einnig um mál sem tengjast fjármála- og atvinnustefnu, þar á meðal rammaskilyrði rannsókna, framleiðslu og viðskipta, og í framhaldi af því um frjálsa för á mörkuðum og vinnumörkuðum á Norðurlöndum. Byggða- og uppbyggingarstefna, fjarskipti og upplýsingatækni eru einnig á starfssviði norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndarinnar.
Sjálfbærninefnd.
Norræna sjálfbærninefndin vinnur að viðfangsefnum og málum sem snerta umhverfis- og náttúruvernd og náttúruauðlindir, þar á meðal nýtingu náttúruauðlinda í landbúnaði, sjávarútvegi og skógrækt. Loftslagsmál eru jafnframt mikilvægur hluti af starfi nefndarinnar, þar á meðal afleiðingar loftslagsbreytinga sem einkum má merkja á nyrstu svæðum Norðurlanda. Meðal annarra viðfangsefna nefndarinnar má nefna réttindi neytenda, fiskveiðistjórn, stefnumótun í landbúnaði, matvæli, kjarnorkuöryggi, líffræðilegan fjölbreytileika og sjálfbærni.
Velferðarnefnd.
Norræna velferðarnefndin leggur áherslu á hið norræna velferðarlíkan. Nefndin fæst við mál sem snerta umönnun barna, ungmenna og aldraðra, fötlun, áfengi, fíkniefni og misnotkun. Einnig er unnið með viðfangsefni sem tengjast jafnrétti, borgaralegum réttindum, lýðræði, mannréttindum og baráttu gegn afbrotum. Samþætting innflytjenda, fólksflutningar og flóttamenn heyra jafnframt undir nefndina og sama er að segja um húsnæðismál og málefni frumbyggja Norðurlanda.
Eftirlitsnefnd.
Eftirlitsnefnd Norðurlandaráðs fylgist fyrir hönd þingsins með starfsemi sem fjármögnuð er úr sameiginlegum sjóðum Norðurlanda. Nefndin hefur einnig umsjón með málefnum sem snerta túlkun samninga um norræna samvinnu, vinnutilhögun Norðurlandaráðs og önnur innri málefni.
Kjörnefnd.
Kjörnefnd Norðurlandaráðs undirbýr og gerir tillögur að kjöri sem fram fer á þingfundum og með aukakosningum í forsætisnefnd.
3. Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Skipan Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Aðalmenn í Íslandsdeild Norðurlandaráðs fram að alþingiskosningum 30. nóvember sl. voru: Bryndís Haraldsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks, sem var formaður, Oddný G. Harðardóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, sem var varaformaður, Teitur Björn Einarsson, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokki Flokks fólksins, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingflokki Framsóknarflokks, Hanna Katrín Friðriksson, þingflokki Viðreisnar, og Orri Páll Jóhannsson, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Varamenn voru Eyjólfur Ármannsson, þingflokki Flokks fólksins, Líneik Anna Sævarsdóttir, þingflokki Framsóknarflokks, Njáll Trausti Friðbertsson, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Steinunn Þóra Árnadóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Vilhjálmur Árnason, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingflokki Viðreisnar, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokki Samfylkingarinnar. Ritari Íslandsdeildar Norðurlandaráðs á árinu 2024 var Helgi Þorsteinsson.
Nefndaskipan Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir og Hanna Katrín Friðriksson áttu sæti í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir í þekkingar- og menningarnefnd, Guðmundur Ingi Kristinsson og Teitur Björn Einarsson í velferðarnefnd og Orri Páll Jóhannsson í hagvaxtar- og þróunarnefnd.
Vilhjálmur Árnason var fulltrúi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingarbankans (NIB), Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins (NEFCO) og Norræna þróunarsjóðsins (NDF). Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir sat fyrir hönd landsdeildarinnar í stjórn Norræna menningarsjóðsins en Guðmundur Ingi Kristinsson var varamaður. Oddný G. Harðardóttir var fulltrúi landsdeildarinnar gagnvart Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC).
Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir voru aðaltalsmenn forsætisnefndar Norðurlandaráðs gagnvart Eystrasaltsþinginu og Þingmannaráðstefnunni um norðurskautsmál (CPAR). Hanna Katrín Friðriksson var annar tveggja aðaltalsmanna forsætisnefndar Norðurlandaráðs gagnvart Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC) og aðaltalsmaður gagnvart Benelúx-þinginu.
Starfsemi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs fundaði níu sinnum á árinu. Fundað var í janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, september og október. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, fundaði tvisvar með landsdeildinni.
4. Fundir Norðurlandaráðs 2024.
Fundir sem þingmenn Íslandsdeildar sóttu sem fulltrúar Norðurlandaráðs eða Íslandsdeildar Norðurlandaráðs:
Janúar
* 24. janúar: Fjarfundur starfshóps forsætisnefndar Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins (Hanna Katrín Friðriksson).
Febrúar
* 5.–6. febrúar: Fundir nefnda og flokkahópa Norðurlandaráðs í Stokkhólmi (Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir, Orri Páll Jóhannsson, Teitur Björn Einarsson).
* 6. febrúar: Fundur starfshóps Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins í Stokkhólmi (Hanna Katrín Friðriksson).
* 7.–8. febrúar: Fundir í Kaupmannahöfn með norrænum samstarfsráðherrum o.fl. vegna formennsku í Norðurlandaráði í Kaupmannahöfn (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir).
Mars
* 1. mars: Fundur starfshóps Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins í Kaupmannahöfn (Hanna Katrín Friðriksson).
* 12. mars: Fjarfundur starfshóps Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins (Hanna Katrín Friðriksson).
* 20.–22. mars: Þátttaka Norðurlandaráðs á ráðstefnu þingmannanefndar um norðurslóðamál í Kiruna í Svíþjóð (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir).
Apríl
* 7. apríl: Fundur starfshóps Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins í Þórshöfn í Færeyjum (Hanna Katrín Friðriksson).
* 8.–9. maí: Vorþing Norðurlandaráðs í Færeyjum (Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hanna Katrín Friðriksson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Teitur Björn Einarsson).
* 23.–24. apríl: Fjarfundur – þátttaka á lýðræðishátíð í Úkraínu (Bryndís Haraldsdóttir).
Maí
* 6. maí: Evrópuráðstefna í Kristiansand í Noregi (Bryndís Haraldsdóttir).
* 7.–8. maí: Hringborð norðurslóða (Arctic Circle Forum) í Berlín (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir).
Júní
* 10. júní: Fundur fastanefndar Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins í Kaupmannahöfn (Oddný G. Harðardóttir, Hanna Katrín Friðriksson).
* 11. júní: Fundur með framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar um fjárhagsáætlun norræns samstarfs í Kaupmannahöfn (Oddný G. Harðardóttir).
* 13.–15. júní: Benelúx-þing í Haag (Hanna Katrín Friðriksson).
* 13.–15. júní: Lýðræðishátíð (Folkemøde) á Borgundarhólmi (Oddný G. Harðardóttir).
* 18. júní: Fjarfundur forseta og varaforseta Norðurlandaráðs með forseta írska þingsins (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir).
* 23.–26. júní: Sumarfundur hagvaxtar- og þróunarnefndar Norðurlandaráðs í Kiruna í Svíþjóð (Orri Páll Jóhannsson).
* 24.–25. júní: Sumarfundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Vestmannaeyjum (Bryndís Haraldsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir).
* 24.–26. júní: Sumarfundur velferðarnefndar Norðurlandaráðs í Árósum og Viborg í Danmörku (Guðmundur Ingi Kristinsson).
Júlí
* 3.–7. júlí: Lýðræðishátíðin Lampa í Lettlandi (Bryndís Haraldsdóttir).
* 27. júlí: Heimsókn í sumarbúðir norrænna og úkraínskra ungmenna á Utøya (Bryndís Haraldsdóttir).
Ágúst
* 12.–15. ágúst: Lýðræðishátíð (Arendalsuken) í Arendal í Noregi (Bryndís Haraldsdóttir).
* 16. ágúst: Fundur íslensku formennskunnar í Norðurlandaráði með samstarfsráðherra Svíþjóðar í Kaupmannahöfn (Oddný G. Harðardóttir).
* 25.–27. ágúst: Ársfundur Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Hanna Katrín Friðriksson).
September
* 9. september: Varnarmálaráðstefna forsætisnefndar Norðurlandaráðs og NORDEFCO í Kaupmannahöfn (Bryndís Haraldsdóttir).
* 16.–17. september: Septemberfundir Norðurlandaráðs á Álandseyjum (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Orri Páll Jóhannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Teitur Björn Einarsson).
* 23.–25. september: Heimsókn forseta og varaforseta Norðurlandaráðs til Grænlands (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir).
Október
* 26.–27. október: Þing Norræna ungmennaráðsins í Reykjavík (Bryndís Haraldsdóttir).
* 28.–31. október: Norðurlandaráðsþing á Íslandi í Reykjavík (Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Orri Páll Jóhannsson).
Desember
* 2.–3. desember: Fundur með samstarfsráðherrum um fjárhagsáætlun norræns samstarfs í Kaupmannahöfn (Bryndís Haraldsdóttir).
* 9.–10. desember: Fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Ósló (Bryndís Haraldsdóttir).
5. Reglulegir fundir Norðurlandaráðs.
Febrúarfundir Norðurlandaráðs í Stokkhólmi.
Febrúarfundir Norðurlandaráðs vor haldnir í Stokkhólmi dagana 23.–24. Dagskráin hófst mánudaginn 5. febrúar með fundum flokkahópa. Síðar sama dag buðu sænsku gestgjafarnir til sameiginlegs fundar þingmanna með yfirskriftinni „Stafræn bylting – nýjar aðstæður, tækifæri og áskoranir með gervigreind. Hvernig getum við á Norðurlöndum unnið saman að málum er varða áhrif gervigreindar á samfélagsþróunina?“. Að frumkvæði íslensku formennskunnar í Norðurlandaráði kom Johan Olsson, yfirmaður hjá sænsku lögreglunni, á fund forsætisnefndar til að segja frá baráttu lögreglunnar gegn glæpagengjum sem starfa þvert á landamæri Norðurlanda.
Vorþing Norðurlandaráðs í Þórshöfn í Færeyjum.
Vorþing Norðurlandaráðs var haldið í Þórshöfn í Færeyjum dagana 8.–9. apríl. Þema þingsins var „Öryggi, friður og viðbúnaður á Norður-Atlantshafi“. Fundarhaldið var sögulegt að því leyti að þetta var í fyrsta sinn sem vorþing Norðurlandaráðs var haldið í Færeyjum. Louise Dedichen, aðstoðaraðmíráll og fulltrúi Noregs í hernaðarnefnd NATO, var gestafyrirlesari við þemaumræðurnar í upphafi þingsins mánudaginn 8. apríl. Meðal annarra ræðumanna var Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, og Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs. Rætt var um mikilvægi sameiginlegra norrænna innviða, stöðlun hergagna, vilja ungs fólks til að verjast og baráttuna gegn fjölþættum ógnum. Síðar sama dag fór fram umræða um framtíð norræns samstarfs í samgöngumálum. Jessika Roswall, samstarfsráðherra Svíþjóðar, tók þátt í þeim umræðum. Á þinginu kynnti Hanna Katrín Friðriksson lokaskýrslu starfshóps um endurskoðun Helsingforssamningsins.
Á vorþinginu var samþykkt einróma tillaga Oddnýjar G. Harðardóttur að yfirlýsingu um málefni Ísraels og Palestínu. Orðalagið sótti Oddný í tilmæli til ríkisstjórna Norðurlanda sem Norðurlandaráð samþykkti árið 2015: „Norðurlandaráð beinir þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að þær hvetji Ísraelsmenn og Palestínumenn og veiti þeim stuðning til að stuðla að friði og sáttum með friðarsamningi sem byggi á alþjóðarétti og ályktunum SÞ.“
Sumarfundir nefnda Norðurlandaráðs.
Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir og Hanna Katrín Friðriksson sóttu sumarfund forsætisnefndar Norðurlandaráðs sem haldinn var í Vestmannaeyjum dagana 23.–25. júní. Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, kom á fundinn og kynnti tillögur að fjárhagsáætlun norræns samstarfs fyrir árið 2025. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri kom einnig á fundinn og sagði frá samfélagsöryggi og almannavörnum á Íslandi, einkum að því er varðar eldgos og aðrar náttúruhamfarir. Enn fremur komu á fundinn Hrannar B. Arnarson, formaður Norræna félagsins á Íslandi og formaður Sambands norrænu félaganna, og Ásdís Eva Hannesdóttir framkvæmdastjóri og kynntu störf norrænu félaganna.
Orri Páll Jóhannsson sótti sumarfund hagvaxtar- og þróunarnefndar Norðurlandaráðs í Kiruna í Svíþjóð 23.–26. júní og Guðmundur Ingi Kristinsson fór á fund velferðarnefndar Norðurlandaráðs í Viborg og Árósum í Danmörku dagana 24.–26. júní.
Septemberfundir Norðurlandaráðs á Álandseyjum.
Dagana 16.–17. september funduðu flokkahópar og nefndir Norðurlandaráðs í Maríuhöfn á Álandseyjum. Einnig var haldinn sameiginlegur fundur allra þingmanna með yfirskriftinni „Á Norðurlöndum geta allir blómstrað – Hvernig getur framtíðarsýn Norðurlanda dýpkað og þróast?“ Meðal ræðumanna þar voru Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, og Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu. Auk Bryndísar sóttu Oddný G. Harðardóttir, Orri Páll Jóhannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson og Teitur Björn Einarsson fundina á Álandseyjum.
Þing Norræna ungmennaráðsins.
Norræna ungmennaráðið (sem áður nefndist Norðurlandaráð æskunnar) hélt að vanda þing sitt helgina fyrir upphaf Norðurlandaráðsþings. Fundir voru haldnir í Smiðju, nýbyggingu Alþingis, dagana 25.–27. október. Á þinginu var sænski jafnaðarmaðurinn Alexander Winge kjörinn nýr forseti Norræna ungmennaráðsins til eins árs.
Norðurlandaráðsþing í Reykjavík.
Norðurlandaráðsþing var að þessu sinni haldið í húsum Alþingis, í Ráðhúsi Reykjavíkur og nálægum byggingum dagana 28.–31. október. Allir þingmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu þingið. Að vanda funduðu forsetar norrænu þinganna í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Einnig komu á þingið Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra, Willum Þór Þórsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Þinghaldið var um margt óvenjulegt. Langt var liðið síðan þing var síðast haldið á Íslandi. Árið 2020, þegar halda átti þingið í Reykjavík, féll það niður vegna Covid-19 faraldursins og því voru níu ár liðin frá síðasta þinghaldi. Að þessu sinni voru fundir tengdir þinginu í fyrsta sinn haldnir að mestu í húsakynnum Alþingis þó að sjálfur þingfundurinn hafi farið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Af þessum sökum reyndi meira á starfsfólk skrifstofu Alþingis en við fyrri þing sem haldin hafa verið meðal annars í Hörpu og á ýmsum hótelum. Gott samstarf tókst við Reykjavíkurborg um að nota Tjarnarsal undir þingfund Norðurlandaráðs og önnur rými í Ráðhúsinu undir fundi flokkahópa og nefnda. Jafnframt voru leigð fundarherbergi á Parliament Hotel og í Oddfellow-húsinu.
Fjölmargir alþjóðlegir gestir komu á þingið en það sem setti mest svip á þinghaldið var þátttaka Volodymyrs Zelenskyjs, forseta Úkraínu. Zelenskyj kom til Íslands mánudaginn 28. október og fór af landi brott degi síðar. Hann fundaði með forsætisráðherrum Norðurlanda, heimsótti forseta Íslands og ávarpaði Norðurlandaráðsþing í Smiðju, nýbyggingu Alþingis. Annar alþjóðlegur gestur sem fékk mikla athygli var Svjatlana Tsíkhanoúskaja, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús. Jafnframt kom á þingið Seán Ó Fearghaíl, forseti írska þingsins, ásamt fylgdarliði, og þingmenn frá Eystrasaltsríkjunum, Bretlandi, Skotlandi, Kanada og Þýskalandi. Enn fremur komu fulltrúar frá ýmsum alþjóðasamtökum, þar á meðal Eystrasaltsþinginu, Benelúx-þinginu, Evrópuþinginu og Vestnorræna ráðinu.
Síðastliðinn áratug hefur það fyrirkomulag verið haft að öllum þeim sem tilnefndir hafa verið til bókmennta-, barnabókmennta-, tónlistar-, kvikmynda- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs hefur verið boðið á þing Norðurlandaráðs. Tilkynnt hefur verið um verðlaunahafana við hátíðlega athöfn í tengslum við þingið og sú athöfn hefur verið send út í sjónvarpi í sumum norrænu landanna. Dregið hefur úr áhuga norrænna sjónvarpsstöðva á að senda út verðlaunaafhendingar af þessu tagi og jafnframt hefur kostnaður og fyrirhöfn við athöfnina sætt gagnrýni. Norðurlandaráð hefur þess vegna ákveðið að breyta fyrirkomulagi verðlaunaafhendingarinnar. Þingið á Íslandi var haldið í millibilsástandi þar sem ákveðið hafði verið að hætta við hefðbundið fyrirkomulag en nýtt snið hafði ekki verið fullmótað. Það kom því í hlut Alþingis að reyna nýjar leiðir í þessum efnum og reynslan frá Íslandi verður nýtt við skipulagningu verðlaunaafhendinga næstu ára. Í samræmi við ákvörðun Norðurlandaráðs var tilkynnt um verðlaunahafa Norðurlandaráðs fyrir upphaf þingsins. Það var gert í sjónvarpsþætti sem RÚV framleiddi í samstarfi við skrifstofu Alþingis og Norðurlandaráð og sem sýndur var 22. október. Verðlaunahöfunum var síðan boðið til Íslands og skipulögð fyrir þá sérstök dagskrá dagana 28.–29. október. Þeim var meðal annars boðið í heimsókn til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á Bessastöðum.
Dagskrá Norðurlandaráðsþings hófst með fundum flokkahópa Norðurlandaráðs mánudagsmorguninn 28. október. Um kvöldið var haldinn viðburður þar sem handhafar verðlauna Norðurlandaráðs voru kynntir. Þangað var boðið þingmönnum Norðurlandaráðs, ungu fólki í listnámi og fleiri gestum. Þriðjudagurinn 29. október hófst með fundum nefnda Norðurlandaráðs en síðar um morguninn söfnuðust þingmenn, ráðherrar, erlendir gestir og fleiri saman í Smiðju, nýbyggingu Alþingis, til að hlusta á ávarp Volodymyrs Zelenskyjs, forseta Úkraínu. Að því loknu fór hópur þingmanna og ráðherra í heimsókn til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á Bessastöðum. Þingfundur Norðurlandaráðs hófst klukkan rúmlega 2 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur með ávarpi Birgis Ármannssonar, forseta Alþingis. Einar Þorsteinsson borgarstjóri ávarpaði einnig fundargesti en að því loknu tók Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, við fundarstjórn. Dagskrá þingfundarins hófst að venju með norrænum leiðtogafundi og fyrirspurnatíma með þátttöku forsætisráðherra Norðurlanda og þingmanna Norðurlandaráðs. Rætt var um varnar- og öryggismál, frið, Helsingforssamninginn og framtíð norræns samstarfs og fleiri mál. Síðdegis kynnti Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, formennskuáætlun Finna og Álendinga í Norrænu ráðherranefndinni en yfirskrift hennar er „Sameinuð og sterk Norðurlönd“. Um kvöldið bauð ríkisstjórn Íslands til móttöku í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel fyrir þátttakendur á þinginu og jafnframt voru þar afhent verðlaun Norðurlandaráðs.
Miðvikudaginn 30. október hófst þingfundur á skýrslugjöf utanríkisráðherra Norðurlanda til Norðurlandaráðs. Að því loknu flutti Svjatlana Tsíkhanoúskaja, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús, ávarp og svaraði spurningum þingmanna. Að venju bauð forsætisnefnd Norðurlandaráðs alþjóðlegum gestum til hádegisverðarfundar. Á dagskrá þingfundar eftir hádegi var skýrsla varnarmálaráðherra Norðurlanda, en hana flutti Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur, en Danir eru í formennsku í NORDEFCO, varnarmálasamstarfi Norðurlanda, á þessu ári. Að þeirri umræðu lokinni tók Norðurlandaráð fyrir og samþykkti fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2025. Morten Dahlin, samstarfsráðherra Danmerkur, flutti skýrslu samstarfsráðherranna um stjórnsýsluhindranir og svaraði spurningum þingmanna í kjölfarið. Jessica Rosencrantz, samstarfsráðherra Svíþjóðar, tók síðan við og flutti greinargerð ráðherranna um norrænt samstarf en allir samstarfsráðherrarnir sem staddir voru á þinginu sátu síðan fyrir svörum. Síðar um daginn voru teknar fyrir og ræddar greinargerðir Norrænu ráðherranefndarinnar um störf að jafnréttis-, heilbrigðis- og félagsmálum á árinu 2024. Dagskrá dagsins lauk síðan með því að teknar voru fyrir ýmsar þingmannatillögur á sviði velferðarmála.
Á síðasta degi þingsins, fimmtudaginn 31. október, hófst dagskrá með umræðu um ýmsar tillögur sem lágu fyrir Norðurlandaráði á sviði varnar- og öryggismála og stjórnsýsluhindrana, um uppfærslu Helsingforssamningsins, um umhverfis- og sjálfbærnimál, menningar- og menntamál og samgöngu- og innviðamál. Eftir hádegishlé var gengið til kosninga um nýjan forseta og varaforseta Norðurlandaráðs. Sænski jafnaðarmaðurinn Heléne Björklund var kjörin forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2025 en samlandi hennar, Maria Stockhaus, úr flokkahópi hægrimanna, verður varaforseti. Þingi lauk með kveðjuávarpi fráfarandi forseta, Bryndísar Haraldsdóttur. Næsta þing Norðurlandaráðs verður haldið í Stokkhólmi dagana 27.–30. október.
Í mars lagði Íslandsdeild Norðurlandaráðs fram tillögu um að skipa alþjóðlega ráðgjafarnefnd til að vera menntamálaráðherrum landanna til ráðgjafar um aðgerðir til að bæta námsárangur nemenda á Norðurlöndum. Í starfi nefndarinnar átti að leggja sérstaka áherslu á að efla les- og orðskilning nemenda. Tilefni tillögunnar var meðal annars versnandi árangur norrænna nemenda í PISA-könnuninni. Tillagan var samþykkt á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík 31. október með nokkrum breytingu á orðalagi, meðal annars var lagt til að stofnað yrði „norrænt samstarfsnet um menntamál“ í stað ráðgjafarnefndar eins og lagt var til upprunalega.
Desemberfundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Noregi.
Desemberfundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs var haldinn í sænsk-norsku menningarmiðstöðinni Voksenåsen í Ósló dagana 9.–10. desember. Bryndís Haraldsdóttir sótti fundinn og var það síðasti fundur sem hún stjórnaði sem forseti Norðurlandaráðs. Að vanda komu gestir frá Eystrasaltsþinginu á fundinn til að ræða við forsætisnefndina. Haldin var sameiginleg málstefna samtakanna þar sem fjallað var um áhrif gervigreindar á lýðræðið. Jafnframt var rætt um stjórnmálaþróun á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum og möguleika á auknu samstarfi Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins. Að fundum loknum var þingmönnum boðið að vera viðstaddir afhendingu friðarverðlauna Nóbels í Ráðhúsi Óslóarborgar.
6. Formennska Íslands í Norðurlandaráði og alþjóðastarf.
Formennskuáætlun Íslendinga.
Íslendingar gegndu formennsku í Norðurlandaráði árið 2024. Forseti Norðurlandaráðs var Bryndís Haraldsdóttir og varaforseti var Oddný G. Harðardóttir. Yfirskrift formennskuáætlunar Íslendinga var „Friður og öryggi á norðurslóðum“. Í henni var fjallað um mikilvægi þess að tryggja öryggi Norðurlanda og bandalagsþjóða þeirra á norðurslóðum en jafnframt nauðsyn þess að draga úr spennu á svæðinu, leggja aukna áherslu á friðsamlegar lausnir og bæta stöðu íbúa á norðurslóðum. Enn fremur var lögð áhersla á að halda áfram vinnu við endurskoðun Helsingforssamningsins, grundvallarsamnings norræns samstarfs, meðal annars til þess að styrkja stöðu Grænlands, Færeyja og Álandseyja í samstarfinu.
Evrópuráðstefna í Kristiansand.
Síðastliðin ár hafa bærinn Kristiansand í suðurhluta Noregs og Evrópuráðið í sameiningu staðið fyrir Evrópuráðstefnu um lýðræði og mannréttindi. Á árinu 2024 var ráðstefnan haldin 6. maí og Bryndís Haraldsdóttir var meðal ræðumanna við opnunarathöfn hennar. Í erindi sínu ræddi Bryndís um mikilvægi samstöðu Norðurlanda og Evrópu og stuðning við Úkraínu.
Þátttaka á fundi Norræna ungmennaráðsins á Utøya.
Í lok júlí fór Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, til eyjunnar Utøya í Noregi, þar sem Norræna ungmennaráðið (UNR) stóð fyrir sumarbúðum ungmenna frá Norðurlöndum og Úkraínu. Bryndís flutti þar ávarp og ræddi við þátttakendur um norðurslóðamál og fleira tengt formennsku Íslands í Norðurlandaráði og önnur mál.
Ólafsvaka í Færeyjum.
Eftir heimsóknina til Utøya fór Bryndís áfram til Færeyja þar sem hún tók þátt í Ólafsvöku með Kristinu Háfoss, framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs, sem er frá Færeyjum. Bryndís ræddi þar við færeyska þingmenn og ráðherra en tók jafnframt þátt í gleðigöngu hinsegin fólks í Þórshöfn, heimsótti Norræna húsið, Norræna félagið og skrifstofu Norræna Atlantshafssamstarfsins (NORA) og fylgdist með setningu færeyska þingsins.
Hringborð norðurslóða.
Í tengslum við áherslu íslensku formennskunnar í Norðurlandaráði á norðurslóðamál ákvað Norðurlandaráð í samstarfi við Vestnorræna ráðið og Þingmannaráðstefnuna um norðurslóðamál að standa fyrir metnaðarfullri dagskrá á árlegri ráðstefnu Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle) sem haldin var í Reykjavík dagana 17.–19. október. Haldnar voru tvær málstofur (e. breakout selsins) á þinginu. Önnur fjallaði um réttindi hinsegin fólks á norðurslóðum og hin um framtíð þingmannasamstarfs á norðurslóðum. Báðar þessar málstofur voru vel sóttar og umræður voru líflegar. Jafnframt stóðu samtökin þrjú fyrir tengslanetsviðburði á fyrsta degi Hringborðs norðurslóða fyrir alla þingmenn í hópi þátttakenda. Þar kynntu jafnframt Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir formennskuáætlun Íslendinga í Norðurlandaráði. Í tengslum við Hringborð norðurslóða funduðu Bryndís og Oddný með Lisu Murkowski, þingmanni Alaska í öldungadeild Bandaríkjaþings. Auk þátttökunnar á aðalráðstefnunni í Reykjavík sóttu Bryndís og Oddný ráðstefnu Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle Forum) sem haldin var í Berlín 7.–8. maí.
Samskipti við Norrænu ráðherranefndina.
Í tengslum við formennsku Íslands í Norðurlandaráði áttu Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir ýmis samskipti við fulltrúa Norrænu ráðherranefndarinnar á árinu, einkum samstarfsráðherra Svíþjóðar, sem var í formennsku í samstarfi ríkisstjórnanna, og við Karen Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Jessika Roswall var samstarfsráðherra Svíþjóðar fram til 10. september en eftir það tók Jessica Rosencrantz við. Þær eru báðar úr flokki Hægrimanna (Moderaterna). Samskiptin hófust með fundi sem Bryndís og Oddný áttu með Guðmundi Inga Guðbrandssyni samstarfsráðherra, Jessiku Roswall og Karen Ellemann í desember 2023 þar sem rætt var um fjárhagsáætlun ársins 2025 og fleiri mál. Roswall og Ellemann komu einnig á fund forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 6. febrúar og Roswall kynnti þar formennskuáætlun Svíþjóðar í Norrænu ráðherranefndinni og fjallaði almennt um fjárhagsáætlun norræns samstarfs fyrir árið 2025. Þær komu enn fremur á vorþing Norðurlandaráðs í Færeyjum þar sem Roswall kynnti meðal annars tillögu Norrænu ráðherranefndarinnar að áætlun fyrir norrænt samstarf á tímabilinu 2025–2030. Á sumarfundi forsætisnefndar í Vestmannaeyjum í Vestmannaeyjum 24.–25. júní kynnti Karen Ellemann tillögu sína að fjárhagsáætlun fyrir norrænt samstarf á árinu 2025. Oddný fundaði með Roswall og Ellemann í Kaupmannahöfn 13. ágúst um fjárhagsáætlun norræns samstarfs. Loks fundaði Bryndís Haraldsdóttir með Rosencrantz og Ellemann í desember í Kaupmannahöfn.
Fjárhagsáætlun norræns samstarfs.
Eitt af hlutverkum forseta og varaforseta Norðurlandaráðs hvert ár er að stýra samningaviðræðum við Norrænu ráðherranefndina um fjárhagsáætlun komandi árs. Það varð að samkomulagi milli Bryndísar Haraldsdóttur og Oddnýjar G. Harðardóttur að Oddný myndi að mestu leyti taka að sér það verk á formennskuári Íslands. Hún sá því um samskipti við samstarfsráðherra Svíþjóðar og framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar um þessi mál og stýrði fundum fjárhagsáætlunarhóps Norðurlandaráðs sem skipaður er fulltrúum flokkahópa ráðsins.
Árið 2019 setti Norræna ráðherranefndin sér framtíðarsýn til ársins 2030 um að Norðurlönd ættu að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Í framhaldi af því var mótuð framkvæmdaáætlun fyrir árin 2021–2024. Í henni eru þrjár stefnumarkandi áherslur um græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Útfærslan á þessari framtíðarsýn hefur mjög mótað tillögur Norrænu ráðherranefndarinnar að fjárhagsáætlunum sem lagðar hafa verið fyrir Norðurlandaráð undanfarin ár. Í þeim hafa tilfærslur milli málefnasviða verið meiri en oft áður. Fjármagn hefur verið veitt til verkefna sem miða að því að gera framtíðarsýnina að veruleika og skorið var niður á öðrum sviðum. Menningar- og menntamál hafa löngum verið fyrirferðarmikil í fjárhagsáætlunum norræns samstarfs og framlög til þeirra áttu að dragast verulega saman samkvæmt tillögum Norrænu ráðherranefndarinnar. Þingmenn í Norðurlandaráði gagnrýndu þennan niðurskurð og töldu hann of harkalegan og vöruðu þeir við því að með honum væri verið að veikja sjálfan grundvöll norræns samstarfs. Samkomulag hefur þó alltaf tekist milli Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar um fjárhagsáætlanirnar og verulega hefur verið dregið úr fyrirhuguðum niðurskurði, m.a. með því að nýta afgang frá fyrri árum og með tilfærslu fjármuna milli sviða.
Á árinu 2024 bárust þau skilaboð frá Norrænu ráðherranefndinni að niðurskurði í mennta- og menningarmálum yrði hætt. Þessari stefnubreytingu var vel tekið í Norðurlandaráði og hún varð til þess að lítið bar í milli samtakanna tveggja varðandi skiptingu fjármuna milli málaflokka. Meiri ágreiningur varð vegna breytingar á úthlutun styrkja til kjarnaverkefna. Ákveðin menningarverkefni og félagasamtök, þar á meðal norrænu félögin, hafa um langt árabil verið sérstaklega tilgreind sem styrkþegar í fjárhagsáætlun norræns samstarfs. Norræna ráðherranefndin ákvað að frá og með árinu 2025 yrði þessu fyrirkomulagi að mestu leyti hætt og að fjármunirnir yrðu í staðinn auglýstir til umsóknar. Sú skýring sem gefin var á þessari ákvörðun var einkum sú að danska ríkisendurskoðunin hefði gert athugasemdir við fyrirkomulag styrkveitinga og því væri nauðsynlegt að koma þeim í nýtt horf. Síðar kom þó í ljós í samtölum íslensku formennskunnar í Norðurlandaráði við fulltrúa Norrænu ráðherranefndarinnar að breytingin væri fyrst og fremst gerð af pólitískum ástæðum og athugasemdir ríkisendurskoðunarinnar væru ekki þess eðlis að nauðsynlegt væri að bregðast við þeim með þessum hætti. Íslenska formennskan og aðrir þingmenn Norðurlandaráðs bentu á að breytingin hefði í för með sér óvissu fyrir ýmis samtök og verkefni sem hefðu grundvallargildi fyrir norrænt samstarf, ekki síst norrænu félögin. Íslenska formennskan ítrekaði jafnframt í viðræðum sínum við Norrænu ráðherranefndina þær óskir sem Norðurlandaráð hefur haldið á lofti sl. ár um að fjárframlög til norræns samstarfs verði látin fylgja breytingum á vergri landsframleiðslu. Hlutfall framlaganna sem hlutfall af landsframleiðslu hefur lækkað mjög á undanförnum árum og áratugum.
Í því samkomulagi sem að endingu náðist milli Norrænu ráðherranefndarinnar um pólitískar áherslu og fjárhagsáætlun norræns samstarfs fyrir árið 2025 voru eftirfarandi málefni í forgrunni:
1. Aðlögunarmál og frjáls för: Vinna að aðlögunarmálum og frjálsri för á milli landanna verði efld með auknum tilföngum til vinnunnar gegn stjórnsýsluhindrunum, upplýsingamiðlun og fjölda verkefna sem auðvelda frjálsa för.
2. Stuðningur við stofnanir borgarasamfélagsins: Frá árinu 2025 verði fjármagnsstuðningur enn aukinn með nýjum fjárhagsliðum sem stofnanir sem hafa það að höfuðstarfi að sinna norrænni samvinnu geti sótt um fjármagn úr fyrir þrjú ár í senn. Einnig verður möguleiki á hverju ári að sækja um fjármagn til verkefna tengdum norrænum málefnum.
3. Börn og ungmenni: Frá árinu 2025 beinast aðgerðir einkum að lýðræðisþátttöku ungmenna og vinnunni gegn vanlíðan og geðsjúkdómum.
4. Samstarfið í mennta- og menningarmálum: Norrænt mennta- og menningarsamstarf verði eflt með áherslu á þróun lýðræðislegs norræns samstarfs.
5. Aukinn viðnámsþróttur í norrænu löndunum: Aukið þverfaglegt samstarf um samfélagsöryggi, þ.m.t. almannavarnir og viðnámsþrótt.
Norrænu félögin og upplýsingaþjónustan Info Norden.
Það jók enn á vanda norrænu félaganna á árinu að Norræna ráðherranefndin ákvað samtímis með breytingum á úthlutun styrkja að færa rekstur landsskrifstofa upplýsingaþjónustunnar Info Norden frá félögunum til stofnana ráðherranefndarinnar. Info Norden, sem áður hét Halló Norðurlönd, veitir upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita að styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi. Það voru norrænu félögin sem komu henni á fót fyrir rúmum aldarfjórðungi. Norræna ráðherranefndin tók síðar við yfirumsjón hennar og fjármögnun en félögin sáu um að reka upplýsingaskrifstofur í norrænu löndunum í umboði ráðherranefndarinnar. Í sumum landanna hafði rekstur skrifstofanna þegar verið færður frá norrænu félögunum en með ákvörðun Norrænu ráðherranefndarinnar voru þær skrifstofur sem enn voru í umsjón félaganna, þar á meðal á Íslandi, í Danmörku og Finnlandi, færðar til stofnana sem heyra undir ráðherranefndina. Norrænu félögin kvörtuðu yfir því að með þessu væri verið að veikja þau og raska rekstrargrundvelli félaganna samtímis með breytingum á styrkveitingum. Jafnframt töldu þau að ekki hefði verið haft nægilegt samráð við félögin um ákvörðunina og drógu í efa að hún myndi efla starfsemi upplýsingaþjónustunnar. Norðurlandaráð tók undir þessa gagnrýni að hluta og ræddi málið við fulltrúa Norrænu ráðherranefndarinnar. Í endanlegu samkomulagi ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs um fjárhagsáætlun ársins 2025 var sérstaklega fjallað um gildi og sérstöðu Norrænu félaganna í norrænu samstarfi og mikilvægi þess að tryggja þeim stuðning til grunnstarfsemi og verkefnastyrki til framtíðar. Einnig var tekið fram að úthlutun rekstrarstyrkja myndi framvegis fara fram fyrr á árinu og að farið yrði yfir úthlutunarferlið með hliðsjón af reynslunni af úthlutun haustsins 2024 og að samráð yrði haft við Norðurlandaráð í framhaldinu.
Ráðherranefnd í samgöngumálum.
Í tengslum við umræður um fjárhagsáætlun norræns samstarfs og við ýmis önnur tækifæri hélt Norðurlandaráð á lofti kröfu um stofnun ráðherranefndar í samgöngumálum. Slík ráðherranefnd var áður starfandi en lögð niður í tengslum við skipulagsbreytingar árið 2005. Þrátt fyrir þrýsting af hálfu Norðurlandaráðs fékkst þessi krafa ekki samþykkt á árinu en viðræður við Norrænu ráðherranefndina halda áfram. Í samkomulagi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar um pólitískar áherslur og fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 er krafa Norðurlandaráðs í þessum efnum sérstaklega nefnd.
Alþjóðastarf.
Þingmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs tóku virkan þátt í alþjóðastarfi Norðurlandaráðs á árinu og Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir sóttu marga alþjóðlega fundi í tengslum við störf sín sem forseti og varaforseti Norðurlandaráðs. Ýmsar tillögur voru til umræðu í forsætisnefnd og á þingfundum sem snerta þennan málaflokk.
Eystrasaltsþingið.
Norðurlandaráð hefur um árabil átt í nánu samstarfi við Eystrasaltsþingið sem eru samstarfssamtök þinga Eistlands, Lettlands og Litáens. Þau voru stofnuð árið 1990 og svipar um margt til Norðurlandaráðs. Samstarfið styrktist enn í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu 2022 og mikilvægi þess var undirstrikað í nýrri alþjóðastefnu Norðurlandaráðs sem samþykkt var í mars 2023. Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttur voru talsmenn forsætisnefndar Norðurlandaráðs gagnvart Eystrasaltsþinginu á árinu. Fulltrúar forsætisnefndar Eystrasaltsþingsins sóttu vorþing Norðurlandaráðs í Færeyjum í apríl og Norðurlandaráðsþing í Reykjavík í október. Bryndís Haraldsdóttir hitti jafnframt fulltrúa Eystrasaltsþingsins á lýðræðishátíðinni Lampa í Lettlandi í júní. Í desember komu fjórir fulltrúar Eystrasaltsþingsins til Óslóar á fund forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Haldin var málstofa um áhrif gervigreindar á stöðu lýðræðis á Norðurlöndum. Jafnframt var fjallað um möguleika á að efla enn frekar samstarf landanna.
Benelúx-þingið.
Benelúx-þingið er samstarfsvettvangur þinga Belgíu, Hollands og Lúxemborgar og hefur það einnig átt í töluverðum samskiptum við Norðurlandaráð undanfarin ár. Formlegt samstarf Benelúx-landa á rætur að rekja til ársins 1944 en Benelúx-þingið, samstarfsvettvangur þingmanna, var stofnað 1955. Hanna Katrín Friðriksson var talsmaður forsætisnefndar Norðurlandaráðs gagnvart Benelúx-þinginu á árinu. Hún sótti Benelúx-þing í Haag í júní þar sem öryggi í höfnum var til umræðu. Fundarmenn fóru meðal annars í kynnisferð til að skoða höfnina í Rotterdam.
Ráðstefna um norðurslóðamál.
Norðurlandaráð á áheyrnaraðild að Þingmannaráðstefnunni um norðurskautsmál (CPAR) sem er samstarfsvettvangur þingmanna aðildarríkja Norðurskautsráðs. Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir voru talsmenn forsætisnefndar Norðurlandaráðs gagnvart CPAR á árinu enda voru norðurslóðamál meginþema formennskuáætlunar Íslands í Norðurlandaráði. Bryndís og Oddný sóttu ráðstefnu þingmannanefndar um norðurslóðamál í Kiruna í Svíþjóð 20.–22. mars.
Lýðræðishátíðir á Norðurlöndum, Eystrasaltsríkjunum og Úkraínu.
Í hlutverkum sínum sem forseti og varaforseti Norðurlandaráðs sóttu Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir lýðræðishátíðir í nokkrum löndum og tóku þar þátt í umræðum um ýmis mál.
Lýðræðishátíð í Úkraínu.
Úkraínumenn ákváðu í fyrsta sinn á árinu 2024 að halda lýðræðishátíð að norrænni fyrirmynd. Hún fór fram í bænum Trúskavets, vestast í landinu, dagana 22.–26. apríl. Bryndís Haraldsdóttir tók þátt í umræðum á nokkrum viðburðum með hjálp fjarfundarbúnaðar. Mánudaginn 22. apríl var hún í pallborði á fundi um áskoranir sem öryggiskerfi Vesturlanda stendur frammi fyrir. Meðal annarra þátttakenda þar voru Ívan Havryljúk, varavarnarmálaráðherra Úkraínu, og Karen McTear, yfirmaður sendinefndar NATO í Úkraínu. Síðar sama dag flutti Bryndís ávarp við formlega opnun hátíðarinnar. Þriðjudaginn 23. apríl tók Bryndís þátt í umræðum um leiðir til að tryggja sigur Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi og gildi þess fyrir öryggismálin í heiminum í heild. Skipuleggjendur hátíðarinnar lögðu mikla áherslu á þátttöku forseta Norðurlandaráðs og gerðu mikið úr henni í frásögnum af viðburðum.
„Folkemødet“ á Borgundarhólmi.
Oddný G. Harðardóttir sótti lýðræðishátíðina Folkemødet á Borgundarhólmi 13.–15. júní og tók þátt í pallborðsumræðum á þremur fundum. Á fyrsta fundinum tóku einnig þátt Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, og sendiherrar Benelúx-landanna Belgíu, Hollands og Lúxemborgar í Danmörku. Þessi þrjú lönd hafa með sér samstarf sem um margt minnir á samvinnu norrænna landa og til var stofnað eftir síðari heimsstyrjöld. Á fundinum var rætt um reynslu landanna af samstarfinu og sérstaklega hvernig gengið hefur í baráttu gegn stjórnsýsluhindrunum sem standa í vegi fyrir þeim sem sækja vinnu eða nám yfir landamæri ríkjanna. Á næsta umræðufundi sem Oddný tók þátt í sátu einnig við pallborðið Anders P. Hansen, formaður Norðurlandaráðs æskunnar, Rasmus Dahlberg, fræðimaður við háskóla danska hersins, sem rannsakað hefur öryggis- og varnarmál og sérstaklega almannavarnir, Jarl Vagn Hansen, formaður samtaka almannavarna í dönskum sveitarfélögum, og Marie-Louise Gotholdt, formaður Rauða krossins í Danmörku. Þar var rætt um vinnu Norðurlandaráðs að endurskoðun Helsingforssamningsins, grundvallarsáttmála norræns samstarfs, en í Norðurlandaráði ríkti samstaða um það að leggja til að bætt yrði í samninginn ákvæðum um samstarf á sviði samfélagsöryggis og varnarmála. Á þriðja fundinum sem Oddný tók þátt í var fjallað um málefni norðurslóða en meginþema formennskuáætlunar Íslands í Norðurlandaráði árið 2024 er öryggi og friður á norðurslóðum. Í pallborði voru auk Oddnýjar grænlenska þingkonan Aaja Chemnitz, færeyski þingmaðurinn Sjúrður Skaale, Alan Leventhal, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, og Carolyn Bennett, sendiherra Kanada í Danmörku. Þar var rætt um stöðu Grænlands og tengsl við annars vegar Norðurlönd og Evrópu og hins vegar Norður-Ameríku, sérstaklega við Inúíta í Kanada og Alaska sem Grænlendingar eru tengdir nánum menningarlegum böndum.
„Lampa“ í Lettlandi.
Lýðræðishátíðin Lampa hefur verið haldin í bænum Cesis í Lettlandi, um 90 kílómetra norðan höfuðborgarinnar Ríga, frá árinu 2015. Að þessu sinni fór hún fram dagana 5.–6. júní. Bryndís Haraldsdóttir sótti hátíðina og tók þátt í tveimur hringborðsumræðum. Sú fyrri var skipulögð af Dönsku menningarstofnuninni í Lettlandi. Þar var fjallað um samskipti Belarús við Norðurlönd og Eystrasaltsríkin. Meðal þátttakenda var Svjatlana Tsíkhanoúskaja, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús. Við það tækifæri áttu Bryndís og Tsíkhanoúskaja samtal um mögulega þátttöku hinnar síðarnefndu á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í október. Aðrir þátttakendur voru sænski sagnfræðingurinn Andrej Kotljarchuk, danski sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Birgitte Hammer og Mãrtins Stakis, þingmaður á Evrópuþinginu og fyrrverandi borgarstjóri í Ríga. Síðari umræðurnar sem Bryndís tók þátt í voru skipulagðar af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Ríga. Umræðuefnið var breytt staða í öryggismálum við Eystrasalt eftir innrás Rússa í Úkraínu og möguleikar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á að efla samstarf sitt á þessu sviði. Þátttakendur voru auk Bryndísar Baiba Braze, utanríkisráðherra Lettlands, og Jãnis Vucãns, varaforseti Eystrasaltsþingsins. Umræðufundirnir voru báðir vel sóttir. Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Ríga sá um að skipuleggja þátttöku Bryndísar í hátíðinni og umræðunum.
„Arendalsuka“ í Noregi.
Lýðræðishátíðin Arendalsuka (Arendalsvikan) hefur verið haldin í bænum Arendal í sunnanverðum Noregi frá árinu 2012. Hátíðin var að þessu sinni haldin dagana 12.–16. ágúst. Bryndís Haraldsdóttir tók þátt í þremur viðburðum á hátíðinni. Sá fyrsti var skipulagður af Norrænu ráðherranefndinni, stofnuninni Nordforsk og sendiráðum Bandaríkjanna og Kanada í Ósló. Umræðuefnið var alþjóðlegt samstarf til að tryggja öryggi og sjálfbærni á norðurslóðum. Þátttakendur auk Bryndísar voru Amy Baker, sendiherra Kanada, Jamal Al-Mussawy, varasendiherra Bandaríkjanna, Maria Varteressian, aðstoðarráðherra í norska utanríkisráðuneytinu, Bård Ludvig Thorheim, þingmaður norska Hægriflokksins, og Jørgen Berge, prófessor við Norðurslóðaháskólann í Noregi. Næsti viðburður sem Bryndís tók þátt var á vegum norsku friðar- og mannréttindamiðstöðvarinnar Arkivet og nýstofnaðrar lýðræðishátíðar í Úkraínu, Carpathian Sea Democracy Week. Þátttakendur, auk Bryndísar, voru dr. Lílíja Hontsjarevytsj, forstöðumaður úkraínsku lýðræðishátíðarinnar, úkraínski þingmaðurinn Andríj Kít, Júríj Zarko, borgarstjóri úkraínsku borgarinnar Bílopíllja, Øystein Djupedal, einn af stofnendum Arendalsvikunnar og fyrrverandi menntamálaráðherra í Noregi, og Oleksandra Romantsova, framkvæmdastjóri Miðstöðvarinnar um borgaraleg réttindi í Úkraínu, en sú miðstöð hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2022.
7. Endurskoðun Helsingforssamningsins.
Helsingforssamningurinn, grundvallarsáttmáli opinbers samstarfs Norðurlanda, átti 60 ára afmæli árið 2022 en skrifað var undir hann 23. mars 1962. Undir lok afmælisársins hófst umræða um hvort ástæða væri til að endurskoða samninginn en honum hefur verið breytt átta sinnum frá því að hann tók gildi, síðast árið 1995. Í byrjun árs 2023 ákvað forsætisnefnd Norðurlandaráðs að skipa starfshóp um endurskoðun samningsins. Íslandsdeild Norðurlandaráðs tilnefndi Hönnu Katrínu Friðriksson sem sinn fulltrúa í hópinn. Íslenskir þingmenn beittu sér einnig sérstaklega fyrir því að Færeyingar, Grænlendingar og Álendingar fengju að skipa fulltrúa í hópinn og jafnframt var ákveðið að Norræna ungmennaráðið fengi þar sæti. Hópurinn tók til starfa sumarið 2023. Samkvæmt umboði hópsins frá forsætisnefnd átti hann að meta hvort þörf væri á því að uppfæra og breyta samningnum og þá jafnframt að gera tillögur um hvaða hluta hans ætti að endurskoða og hvort bæta þyrfti við einhverjum málefnasviðum. Forsætisnefnd lagði jafnframt til að starfsáætlun hópsins yrði miðuð við að hægt væri að bera tillögu um endurskoðun samningsins undir þingfund á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík haustið 2024. Fyrsti fundur starfshópsins var haldinn í Stórþinginu í Ósló í ágúst 2023. Jorodd Asphjell, forseti Norðurlandaráðs, var þá kjörinn formaður en Hanna Katrín Friðriksson varaformaður. Vegna forfalla Jorodd Asphjell stjórnaði Hanna Katrín Friðriksson fundum hópsins frá desember 2023 og þar til hann skilaði lokaskýrslu sinni vorið 2024.
Þegar umræða hófst á vettvangi Norðurlandaráðs árið 2022 um mögulega endurskoðun samningsins var einkum rætt um að bæta þyrfti við ákvæðum um samstarf á sviði varnar-, öryggis- og utanríkismála. Fyrstu áratugina eftir stofnun Norðurlandaráðs voru þessi málefni að jafnaði ekki á dagskrá Norðurlandaráðs. Ástæðan var einkum þröng staða Finna sem urðu að taka tillit til hagsmuna og sjónarmiða Sovétríkjanna í utanríkis- og öryggismálum. Aðstæður breyttust eftir lok kalda stríðsins og með tímanum urðu utanríkismál og jafnframt öryggis- og varnarmál mjög áberandi í starfi Norðurlandaráðs. Málefni Eystrasaltsríkjanna og Belarús hafa þannig til dæmis oft verið til umræðu og eftir innrás Rússa 2022 hafa þingmennirnir lagt mikla áherslu á aðstoð við Úkraínu. Samstarf Norðurlanda í öryggis- og varnarmálum og samfélagsöryggi í breiðum skilningi hefur einnig verið þeim hugleikið. Helsingforssamningnum hefur ekki verið breytt til samræmis við þessar áherslur.
Í Norðurlandaráði eru utanríkis- og varnarmál á verksviði forsætisnefndar. Ólíkt flestum öðrum málaflokkum sem Norðurlandaráð fjallar um, til dæmis umhverfismál eða heilbrigðismál, er enginn gagnaðili í ríkisstjórnarsamstarfinu á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar sem fer með þessi málefni. Utanríkis- og varnarmálaráðherrar Norðurlanda hafa með sér náið samstarf en það heyrir ekki undir Norrænu ráðherranefndina. Um langt skeið hefur þó tíðkast að ráðherrar þessara málaflokka komi á Norðurlandaráðsþing, geri grein fyrir samstarfinu og svari spurningum þingmanna.
Eftir því sem umræðu um mögulega endurskoðun Helsingforssamningsins vatt fram komu fram tillögur um að horfa til fleiri málaflokka, Ákvæði um umhverfismál hafa verið í samningnum frá upphafi en loftslagsmál eru þar ekki nefnd þó að þau hafi verið eitt helsta áherslumálið í norrænu samstarfi á síðustu árum. Einnig komu fram tillögur um að fjalla í samningnum um samfélagsöryggi í breiðum skilningi og um stjórnsýsluhindranir, svo að dæmi séu tekin. Jafnframt var rætt um að hugsanlega þyrfti að skilgreina sameiginleg gildi Norðurlanda og mögulega að gera samstarf landanna meira skuldbindandi. Það málefni sem einna mest var rætt á fyrstu fundum starfshópsins um endurskoðun Helsingforssamningsins og sem mestur ágreiningur varð um var staða Færeyja í norrænu samstarfi. Færeyingar hafa um langt skeið sóst eftir því að fá fulla aðild að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni til jafns við Svía, Dani, Norðmenn, Finna og Íslendinga en hingað til án árangurs. Breytingar voru þó gerðar á Helsingforssamningnum árið 1983 til að styrkja stöðu Álandseyja, Færeyja og Grænlands í norrænu samstarfi og svonefnt Álandseyjaskjal frá árinu 2007 miðaði að sama marki. Stuðningur við óskir Færeyinga um fulla aðild hefur í gegnum tíðina helst komið frá íslenskum þingmönnum, auk fulltrúa Álendinga og Grænlendinga. Strax eftir að starfshópurinn hóf að funda varð ljóst að Færeyingar myndu sækja það fast að fá í gegn kröfur sínar í tengslum við endurskoðun samningsins. Töluverður ágreiningur varð milli fulltrúa Færeyinga og Dana í hópnum um þetta atriði en jafnframt fór af stað vinna innan og utan hópsins til að reyna að ná samkomulagi sem báðir aðilar gætu sæst á.
Vinnan við endurskoðun Helsingforssamningsins hélt áfram eftir að Íslendingar tóku við formennsku í Norðurlandaráði af Norðmönnum í upphafi árs 2024. Í formennskuáætlun Íslands var lögð sérstök áhersla á þetta verkefni. Í því sambandi var nefnt að koma mætti öryggis-, varnar- og loftslagsmálum að í samningnum, að tryggja í honum rétt til að nota móðurmál sitt í norrænu samstarfi og jafna stöðu annars vegar þeirra sem hafa skandinavísk mál að móðurmáli og hins vegar þeirra sem tala íslensku, finnsku eða önnur mál. Jafnframt var lagt til að kannað yrði hvort rétt væri að skilgreina í samningnum sameiginleg gildi Norðurlanda á borð við virðingu fyrir kynjajafnrétti, stöðu hinsegin fólks, lýðræði og mannréttindi.
Starfshópurinn um endurskoðun samningsins fundaði alls tíu sinnum á tímabilinu frá ágúst 2023 til apríl 2024 þegar hann skilaði lokaskýrslu sinni til forsætisnefndar Norðurlandaráðs. Niðurstaða hópsins var að full þörf væri á að endurskoða og uppfæra Helsingforssamninginn. Í skýrslunni er meðal annars lagt til að bætt verði við ákvæðum um loftslagsmál, stjórnsýsluhindranir, réttindi og inngildingu barna og ungmenna, hlutverk Norræna ungmennaráðsins í norrænu samstarfi, almannaöryggi, viðbúnaðarmál, samfélagsöryggi og varnar- og öryggismál. Um flest þessi málefni var breið samstaða í starfshópnum. Ekki tókst að ná samkomulagi um breytingar á stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja í norrænu samstarf. Fulltrúar Færeyja og Grænlands sóttu það fast að fá sjálfstæða og fulla aðild að opinberu samstarfi norrænu landanna og höfðu til þess stuðning Dana, Íslendinga og Álendinga. Svíar og Finnar höfðu efasemdir um að rétt væri að fara þessa leið en afstaða Norðmanna var óljósari. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná samkomulagi um orðalag um þessi mál og það varð lendingin að hafa í lokaskýrslunni tvær mismunandi tillögur að orðalagi og fylgja þær hér á eftir:
* Tillaga 1: að ríkisstjórnir norrænu landanna breyti Helsingforssamningnum á þann hátt að þátttaka í norræna samstarfinu byggi á jafnræði á milli landanna og að þátttaka Álandseyja, Færeyja og Grænlands í norræna samstarfinu endurspegli þróun í sjálfstjórnarmálum og veiti sveigjanleika til að mæta mismun og framtíðarþróun.
* Tillaga 2: að ríkisstjórnir norrænu landanna kanni hvernig breyta megi Helsingforssamningnum þannig að hægt verði að auka aðkomu Álandseyja, Færeyja og Grænlands að norræna samstarfinu með hliðsjón af þeim lagarömmum sem stjórna sambandi Danmerkur, Færeyja og Grænlands annars vegar og Finnlands og Álandseyja hins vegar.
Hanna Katrín Friðriksson kynnti lokaskýrslu starfshópsins á þingfundi í Þórshöfn þriðjudaginn 9. apríl. Töluverðar umræður urðu um efni hennar á fundinum en í Færeyjum vakti þó mesta athygli viðtal sem færeyska ríkissjónvarpið tók við Jessiku Roswall, samstarfsráðherra Svíþjóðar, í tengslum við þingið. Þar talaði Roswall skýrt gegn því að Helsingforssamningnum yrði breytt og staða Færeyja, Grænlands og Álandseyja styrkt. Miklar umræður urðu á færeyska þinginu og í færeyskum fjölmiðlum í kjölfarið og kom fram töluverð reiði gagnvart ráðherranum en jafnframt voru nefndar hugmyndir um að endurskoða stöðu Færeyja í danska ríkinu.
Framhald málsins var nú í höndum forsætisnefndar Norðurlandaráðs undir forystu íslensku formennskunnar. Bryndís Haraldsdóttir forseti og Oddný G. Harðardóttir varaforseti reyndu að miðla málum þannig að samkomulag næðist um sameiginlegt orðalag um breytingar á stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja og áttu í því skyni samtöl og fundi við þingmenn frá öllum norrænu löndunum. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ræddi málið á sumarfundi í Vestmannaeyjum, á septemberfundum á Álandseyjum og í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Ósló. Ekki tókst að komast að samkomulagi um sameiginlegt orðalag en íslenska formennskan tók þá stefnu að reyna að ná sem breiðustum stuðningi við þá tillögu sem lá fyrir með tvenns konar orðalagi um stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Þar skipti miklu óformlegur fundur sem Bryndís, Oddný og Kristina Háfoss, framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs, áttu með landsdeildum Færeyja og Grænlands í tengslum við Norðurlandaráðsþing, þar sem samkomulag varð um að greiða atkvæði með tillögu forsætisnefndar Norðurlandaráðs, þrátt fyrir þá annmarka sem á honum voru frá sjónarhóli Færeyinga og Grænlendinga, til þess að senda skýr skilaboð til Norrænu ráðherranefndarinnar um þörfina á að taka Helsingforssamninginn til endurskoðunar. Þegar tillaga forsætisnefndar um endurskoðun Helsingforssamningsins kom til atkvæða á þingfundi Norðurlandaráðsþings í Reykjavík 31. október var hún enda samþykkt einróma.
Tillögum Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins er beint til ríkisstjórna Norðurlanda. Lagt er til að nýjum greinum verði bætt í samninginn á ýmsum sviðum og að ákvæði um önnur svið verði uppfærð þannig að þau eigi betur við um norrænt samstarf í nútímanum. Lagt er til að í samningnum komi fram að gera eigi norrænum gildum og sjónarmiðum hátt undir höfði á vettvangi ESB og EES og að orðalag um norrænt samstarf við mótun og innleiðingu nýrra reglna verði meira bindandi. Jafnframt segir að gera þurfi almenna uppfærslu á orðalagi í samningnum og að nefnd verði norræn grundvallargildi á borð við lýðræði, mannréttindi og jafnrétti. Norðurlandaráð leggur til að ríkisstjórnirnar skipi nefnd til að vinna tillögur að breytingum á Helsingforssamningnum á grundvelli tillagna ráðsins og jafnframt að Norðurlandaráð eigi fulltrúa í nefndinni og að hún starfi í samráði við Norðurlandaráð. Lagt er til að nefndin skili tillögu að uppfærðum samningi árið 2025 og að breytingarnar geti tekið gildi árið 2026.
Staða Grænlands í norrænu samstarfi.
Lengi vel voru það einkum Færeyingar sem börðust fyrir því að fá sterkari stöðu í Norðurlandaráði og norrænu samstarfi til jafns við Danmörku, Finnland, Ísland, Noreg og Svíþjóð, en frá árinu 2023 fór að bera á samsvarandi kröfugerðum frá Grænlendingum. Þáttaskil urðu með ræðu sem Múte B. Egede, formaður landsstjórnar Grænlands, hélt á Norðurlandaráðsþingi í Ósló 2023 þar sem hann sagði að norrænt samstarf væri eins og átta manna vinahópur þar sem aðeins fimm fengju að vera með á mikilvægustu vinafundunum. Hann sagði að fyrirkomulag samstarfsins væri ekki í takt við tímann og margt þyrfti að bæta. Hann sagði að ef ekki yrði að gert myndu Grænlendingar þurfa að endurskoða þátttöku sína í samstarfinu. Orð Egedes vöktu mikla athygli, ekki síst meðal íslenskra þingmanna í Norðurlandaráði.
Hefð er fyrir því að forsætisráðherrar Norðurlanda hittist að minnsta kosti tvisvar á ári, á sumarfundum og í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Það er formennskuland hvers árs í samstarfinu sem býður til fundanna og árið 2024 var það því í höndum Svía. Oftast á undanförnum árum hefur stjórnarleiðtogum Færeyja, Grænlands og Álandseyja verið boðið að sitja að minnsta kosti hluta fundanna með forsætisráðherrum hinna landanna. Það var meðal annars gert árið 2023 í formennskutíð Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni. Í mars 2024 sendi Múte B. Egede bréf til sænsku formennskunnar í Norrænu ráðherranefndinni og spurði hvort stjórnarleiðtogum Grænlands, Færeyja og Álandseyja yrði boðið til næsta sumarfundar. Síðar í sama mánuði barst neikvætt svar frá Jessiku Roswall, samstarfsráðherra Svíþjóðar, þar sem vísað var til þess að fundirnir myndu snúast um varnar- og öryggismál. Egede svaraði með opnu bréfi dagsettu 6. maí sem stílað var bæði á sænsku formennskuna í Norrænu ráðherranefndinni og á forsætisnefnd Norðurlandaráðs þar sem hann tilkynnti að hann myndi ekki taka frekari þátt í norrænu ríkisstjórnarsamstarfi fyrr en Grænland fengi sömu stöðu í samstarfinu og önnur norræn lönd. Hann túlkaði svar Roswall þannig að meðal annars væri verið að halda Grænlandi utan við forsætisráðherrafundinn vegna þess að þar væru varnar- og öryggismál á dagskrá en benti á að það væri undarlegt í ljósi mikilvægis Grænlands á norðurslóðum sem væri einmitt í sviðsljósinu í utanríkis-, varnar- og öryggismálum um þessar mundir. Hann benti á að Grænland tæki þátt í samstarfi á þessum sviðum innan danska ríkjasambandsins. Enn fremur sagði Egede að grænlenska þingið hefði ákveðið að gera úttekt á áframhaldandi þátttöku landsins í norrænu samstarfi. Egede tók í bréfi sínu sérstaklega fram að hann myndi ekki koma á þing Norðurlandaráðs í Reykjavík í október.
Eftir þessa atburði var staða Grænlands í norrænu samstarfi mjög í sviðsljósinu og mótaði starf íslensku formennskunnar í Norðurlandaráði. Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir svöruðu Egede fyrir hönd forsætisnefndar Norðurlandaráðs með bréfi dagsettu 8. maí þar sem þær hörmuðu þá stöðu sem upp var komin og lýstu þeirri von sinni að hægt væri að finna lausn sem gerði formanni grænlensku landsstjórnarinnar kleift að koma á Norðurlandaráðsþing í Reykjavík. Þær bentu á að meginþema íslensku formennskunnar í Norðurlandaráði væri friður og öryggi á norðurslóðum og það yrði jafnframt þema Norðurlandaráðsþings og mikilvægt væri að hafa Grænlendinga með í þeirri umræðu. Bryndís og Oddný héldu fjarfund með grænlensku landsdeildinni í Norðurlandaráði 13. maí til að fara yfir stöðu mála. Næstu mánuðina höfðu þær ítrekað samráð við grænlenska þingmenn, en ræddu einnig við danska og aðra norræna stjórnmálamenn með það að leiðarljósi að finna leiðir til að tryggja áframhaldandi þátttöku Grænlendinga í norrænu samstarfi. Síðari hluta september héldu Bryndís og Oddný til Nuuk til viðræðna við grænlenska stjórnmálamenn. Þær hittu meðal annars að máli Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, Doris J. Jensen og Mariane Paviasen í grænlensku landsdeildinni í Norðurlandaráði, Mimi Karlsen, forseta grænlenska þingsins, og marga fleiri. Þær áttu jafnframt fund með Múte B. Egede þar sem þær hvöttu hann til að endurskoða ákvörðunina að koma ekki á Norðurlandaráðsþing í Reykjavík. Við setningu grænlenska þingsins, sem fram fór örfáum dögum fyrir komu Bryndísar og Oddnýjar, hafði Egede ítrekað óánægju sína með stöðu Grænlands í norrænu samstarfi. Í frétt grænlenska ríkisútvarpsins sem birtist í lok september sagði Egede að fundurinn með forseta Norðurlandaráðs hefði verið jákvæður en að hann myndi ekki breyta afstöðu sinni til þátttöku í samstarfinu fyrr en fram væru komnar skýrar tillögur um breytingar á fyrirkomulagi þess. Lengi var óljóst hvort ákvörðun Egedes um að taka ekki þátt í Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík ætti einungis við um hann sjálfan eða hvort sama myndi gilda um aðra grænlenska ráðherra og þingmenn Grænlendinga í Norðurlandaráði. Svo fór að lokum að enginn grænlenskur ráðherra sat þingfund Norðurlandaráðs en landsdeildin í Norðurlandaráði tók öll þátt.
Tillaga Færeyinga um breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs.
Samkvæmt starfsreglum Norðurlandaráðs er forsætisnefnd ráðsins skipuð forseta, varaforseta og allt að 13 öðrum fulltrúum. Jafnframt segir í reglunum að öll lönd og allir flokkahópar skuli eiga fulltrúa í nefndinni. Ákvæðið um að öll lönd eigi fulltrúa hefur verið túlkað þannig að það eigi við um Danmörku, Finnland, Ísland, Noreg og Svíþjóð en ekki Færeyjar, Grænland og Álandseyjar. Fulltrúum síðastnefndu landanna er heimilt að sitja fundi forsætisnefndar þegar verið er að ræða mál sem varða þau sjálf. Þeir hafa þá málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Í tengslum við umræðu um að breyta Helsingforssamningnum til að styrkja stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja í norrænu samstarfi var einnig rætt hvort hægt væri að gera breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs í sama augnamiði. Sú leið er að því leyti einfaldari en endurskoðun Helsingforssamningsins að ekki þarf samþykki ríkisstjórna og þinga aðildarlandanna. Í mars lagði landsdeild Færeyinga í Norðurlandaráði fram tillögu um að breyta starfsreglunum þannig að öll átta aðildarlöndin, þ.e. einnig Færeyjar, Grænland og Álandseyjar, skuli eigi fulltrúa í forsætisnefnd. Tillagan var tekin til meðferðar á fundi forsætisnefndar í Færeyjum í apríl. Henni var fremur vel tekið en margir þingmenn höfðu áhyggjur af því að erfitt gæti orðið að uppfylla bæði kröfur um að öll lönd ættu fulltrúa og að þingstyrkur og aðrir hagsmunir flokkahópa endurspegluðust í skipan forsætisnefndar. Ákveðið var að fela skrifstofu Norðurlandaráðs að gera úttekt á áhrifum breytingarinnar á störf og skipan nefndarinnar. Sú úttekt var tilbúin fyrir fund forsætisnefndar í september. Í henni kom fram að engar formlegar hindranir væru í vegi fyrir breytingunum sem færeyska landsdeildin leggur til og bent var á mögulegar leiðir til að taka tillit til hagsmuna bæði flokkahópa og landsdeilda. Meirihluti forsætisnefndar leit áfram jákvæðum augum á tillögu Færeyinga en vildi fara enn betur yfir mögulegar afleiðingar. Í þessu skyni var ákveðið að skipa starfshóp með fulltrúum allra flokkahópa, auk Færeyja, Grænlands, Álandseyja og Norræna ungmennaráðsins. Starfshópurinn hélt sinn fyrsta fund í desember 2024 en ráðgert var að hann myndi skila lokaskýrslu til sumarfundar forsætisnefndar í júní 2025.
8. Þingmannaráðstefna Eystrasaltssvæðisins.
Fyrsta þingmannaráðstefna Eystrasaltssvæðisins (BSPC) var haldin í Helsinki í janúar árið 1991, tæpu ári áður en Sovétríkin liðu undir lok. Boðað var til ráðstefnunnar að frumkvæði Kalevi Sorsa, þáverandi forseta finnska þingsins. Síðan þá hafa ráðstefnur verið haldnar árlega en ársfundur árið 2020 var haldinn með fjarfundarfyrirkomulagi vegna heimsfaraldurs.
Markmið þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins er að stuðla að samvinnu þjóð- og héraðsþinga og umræðu um málefni er snerta svæðið. Þingmannaráðstefnan er þannig vettvangur umræðu og gagnkvæmrar upplýsingagjafar þinga og annarra þátttakenda. Samtökunum er ætlað að efla undirstöður lýðræðis í aðildarríkjunum, styrkja samskipti ríkisstjórna, þinga og borgaralegs samfélags, efla samkennd á Eystrasaltssvæðinu með nánu samstarfi á jafnræðisgrundvelli milli þjóðþinga og héraðsþinga, og eiga frumkvæði að og leiða pólitískar aðgerðir á svæðinu og þar með veita þeim aukið lýðræðislegt og þinglegt lögmæti. Niðurstöður ársfundar þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins eru settar fram í formi ályktunar sem samþykkja þarf samhljóða. Stjórnarnefndin gerir drög að ályktun fyrir ráðstefnuna.
Tíu þjóðþing, sjö héraðsþing og fimm alþjóðastofnanir eiga aðild að BSPC. Hvert aðildarþing og hver aðildarsamtök mega senda allt að fimm fulltrúa á árlegu ráðstefnuna. Frá Alþingi kemur að jafnaði einn fulltrúi. Jafnframt hefur einn íslenskur þingmaður stundum setið ráðstefnuna sem fulltrúi í sendinefnd Norðurlandaráðs og á kostnað þess. Milli ráðstefna fer stjórnarnefndin (e. Standing Committee) með æðsta ákvörðunarvald BSPC. Hún tekur ákvarðanir um markmið, pólitískar áherslur, starfshætti, fjármál og stjórnsýslu samtakanna. Stjórnarnefndin hefur jafnframt yfirumsjón með skipulagningu árlegu ráðstefnunnar. Í stjórnarnefndinni situr einn fulltrúi frá hverju aðildarþingi og aðildarsamtökum ráðstefnunnar. Einn íslenskur þingmaður sækir að jafnaði vorfund fastanefndar BSPC en aðra fundi sækja þingmenn aðeins ef þeir hafa verið valdir til að vera fulltrúar Norðurlandaráðs.
Aðildarlönd og aðildarsvæði fara með formennsku í samtökunum eitt ár í senn. Formennskuskipti verða á ársfundum sem að jafnaði eru haldnir í ágúst. Ólíkt því sem tíðkast í Norðurlandaráði hefur formennskan ekki fylgt fastákveðinni röð heldur sækja lönd og svæði sérstaklega um að gegna henni. Ísland hefur aðeins einu sinni gegnt formennsku í samtökunum og var það 2005–2006. Danir gegndu formennsku í þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins fram að ársfundi samtakanna 2024 sem haldinn var í Helsingør í ágúst. Yfirskrift ársfundarins var „Öryggi á Eystrasaltssvæðinu“ (e. Safety in the Baltic Sea Region). Þar var meðal annars rætt um varnarmálasamstarf, orkuöryggi og loftslagsmál. Forseti í formennskutíð Dana var Henrik Møller úr flokki jafnaðarmanna. Álendingar tóku við formennsku að loknum ársfundinum og Alfons Röblom úr umhverfisverndarflokknum Hållbart initiativ var kjörinn forseti.
Oddný G. Harðardóttir var fulltrúi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs í BSPC á árinu. Hún sótti einn fund fastanefndar samtakanna í Kaupmannahöfn í júní og ársfundinn í Helsingør í ágúst. Hanna Katrín Friðriksson sótti einnig báða þessa fundi sem fulltrúi Norðurlandaráðs. Bryndís Haraldsdóttir fór jafnframt í hlutverki sínu sem forseti Norðurlandaráðs á ársfundinn í Helsingør. Á þeim fundi var lögð fram tillaga um að breyta reglum um formennsku í samtökunum þannig að hún fylgi framvegis fastákveðinni röð. Þessar hugmyndir voru einnig ræddar á fundi fastanefndar BSPC í nóvember en engin endanleg ákvörðun var tekin. Samkvæmt þeim drögum að formennskuröð samkvæmt nýju fyrirkomulagi sem liggja fyrir á Ísland að taka við formennskunni sumarið 2026 og halda ársfund samtakanna í ágúst 2027.
9. Verðlaun Norðurlandaráðs.
Verðlaun Norðurlandaráðs eru fimm, þ.e. bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun, náttúru- og umhverfisverðlaun, kvikmyndaverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Þau nema 300.000 dönskum krónum.
Verðlaunin voru að þessu sinni afhent við athöfn á Parliament Hotel í Reykjavík í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Á vef Norðurlandaráðs, norden.org, eru nánari upplýsingar um verðlaunin.
10. Starfsáætlun og áherslur Norðurlandaráðs árið 2025.
Svíar fara með formennsku í Norðurlandaráði árið 2025. Heléne Björklund er forseti ráðsins árið 2025 og Maria Stockhaus varaforseti. Norðurlandaráðsþing verður haldið í Stokkhólmi. Yfirskrift formennskuáætlunar Svía árið 2025 er „Samstíga Norðurlönd – norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum“.
Alþingi, 6. febrúar 2025.
| Dagbjört Hákonardóttir, form. |
Bryndís Haraldsdóttir, varaform. |
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. |
| Guðbrandur Einarsson. | Guðmundur Ingi Kristinsson. | Guðmundur Ari Sigurjónsson. |
| Halla Hrund Logadóttir. |
Fylgiskjal I.
Tilmæli sem samþykkt voru á árinu:
* Tilmæli 1/2024 – Einföldun norræna tvísköttunarsamningsins.
* Tilmæli 2/2024 – Norrænu landamæranefndirnar.
* Tilmæli 3/2024 – Norræn málstefna.
* Tilmæli 4/2024 – Norrænt átak til að aðstoða námsmenn frá óstöðugum löndum.
* Tilmæli 5/2024 – Útlánskerfi fyrir menningarverðmæti milli norrænna stofnana.
* Tilmæli 6/2024 – Sjálfbær ferðaþjónusta.
* Tilmæli 7/2024 – Norræn Eystrasaltsstefna.
* Tilmæli 8/2024 – Efling samstarfs milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
* Tilmæli 9/2024 – Gera Norðurlönd sjálfnæg og óháð einræðisríkjum.
* Tilmæli 10/2024 – Norræn stefna um landsbundnar samgönguáætlanir (Norræna ráðherranefndin).
* Tilmæli 11/2024 – Norræn stefna um landsbundnar samgönguáætlanir (ríkisstjórnir Norðurlanda).
* Tilmæli 12/2024 – Gerð sameiginlegra norrænna byggingartæknireglugerða og -krafna til að draga úr kostnaði.
* Tilmæli 13/2024 – Gerð sameiginlegra norrænna byggingartæknireglugerða og -krafna til að draga úr kostnaði.
* Tilmæli 14/2024 – Flýta afnámi stjórnsýsluhindrana með efldu starfsumboði stjórnsýsluhindranaráðsins.
* Tilmæli 15/2024 – Samstarfsáætlanir 2025–2030.
* Tilmæli 16/2024 – Tillaga ráðherranefndarinnar um fjárhagsáætlun 2025.
* Tilmæli 17/2024 – Jafnréttismiðuð loftslagsstefna.
* Tilmæli 18/2024 – Norrænt samstarf gegn rasisma og annarri öfgahyggju (norrænu ríkisstjórnirnar).
* Tilmæli 19/2024 – Norrænt samstarf gegn rasisma og annarri öfgahyggju (Norræna ráðherranefndin).
* Tilmæli 20/2024 – Norræn varnarmála- og öryggisnefnd.
* Tilmæli 21/2024 – Uppfærsla Helsingforssamningsins.
* Tilmæli 22/2024 – Ógnir loftslagsbreytinga á norðurslóðum og þörf á samstarfi um sjálfbærnimál.
* Tilmæli 23/2024 – Bann við námuvinnslu á djúpsjávarbotni.
* Tilmæli 24/2024 – Gagnsæi um jarðefnaeldsneytisauðlindir (Norræna ráðherranefndin).
* Tilmæli 25/2024 – Gagnsæi um jarðefnaeldsneytisauðlindir (norrænu ríkisstjórnirnar).
* Tilmæli 26/2024 – Norrænt samstarf um að tryggja vindorku í Eystrasalti.
* Tilmæli 27/2024 – Útflutningur affallsvatns á Norðurlöndum (Norræna ráðherranefndin).
* Tilmæli 28/2024 – Útflutningur affallsvatns á Norðurlöndum (norrænu ríkisstjórnirnar).
* Tilmæli 29/2024 – Mótun sameiginlegra viðmiða um norræna ábyrgð framleiðenda vefnaðarvara.
* Tilmæli 30/2024 – Grænar skattaumbætur og loftslagsstefna til framtíðar (Norræna ráðherranefndin).
* Tilmæli 31/2024 – Grænar skattaumbætur og loftslagsstefna til framtíðar (norrænu ríkisstjórnirnar).
* Tilmæli 32/2024 – Stuðningur við smábýli.
* Tilmæli 33/2024 – Notkun sólarsellna á stærri bílastæðum.
* Tilmæli 34/2024 – Norrænt samstarf um líffræðilega fjölbreytni og náttúruvernd.
* Tilmæli 35/2024 – Norðurlönd fylgi eftir markmiðum alþjóðasamnings um lífbreytileika.
* Tilmæli 36/2024 – PISA-könnun.
* Tilmæli 37/2024 – Efla og einfalda samgöngur á Norðurlöndum.
* Tilmæli 38/2024 – Innviðir á hættutímum.
Ákvarðanir um innri málefni.
* IB 1/2024 – Aukið samstarf milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
* IB 2/2024 – Viðbót við 72. grein starfsreglnanna.
Fylgiskjal II.
Formennskuáætlun Svíþjóðar í Norðurlandaráði 2025.
Norræna fjölskyldan myndar eitt elsta og umfangsmesta svæðisbundna samstarf í heimi, byggt á sameiginlegum gildum og svipuðum samfélagskerfum. Samkvæmt því umboði sem Norðurlandaráð hefur fengið frá norrænum borgurum vill sænska landsdeildin að ráðið leggi áherslu á norrænt notagildi fyrir Norðurlandabúa í daglegu lífi þeirra og efli enn frekar norrænt samfélag og samkennd. Markmiðið um að Norðurlönd verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims fyrir árið 2030 verður áfram leiðarstef, en umfram þá framtíðarsýn þarf fólk að fá raunverulega aðstoð varðandi málefni þar sem löndin geta náð meiri árangri ef þau vinna saman en ef hvert land starfar á eigin vegum. Sænska landsdeildin vill að vinnan við að afnema stjórnsýsluhindranir og að fyrirbyggja tilkomu nýrra verði í brennidepli, henni hraðað og hún sett í forgang. Listinn yfir þær stjórnsýsluhindranir sem enn standa í vegi sýnir að nokkuð er í land áður en framtíðarsýnin 2030 verður að veruleika. Norðurlandaráð mun þrýsta á að stjórnsýsluhindrunum verði rutt úr vegi, en það eru yfirvöld og ákvörðunaraðilar í löndunum sem þurfa að sjá til þess að hrint verði í framkvæmd þeim eiginlegu aðgerðum sem þarf til að svo verði. Orðum verða að fylgja aðgerðir svo að árangur náist og þurfa löndin því að forgangsraða norrænum málefnum enn frekar. Frjáls för og samvinna þvert á landamæri eru lykilatriði og miðli löndin sín á milli reynslu af umbótum á mismunandi sviðum samfélagsins náum við fram norrænu notagildi.
Samþætt Norðurlönd.
Ráðið á að vinna að því að leysa vandamál og ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum þannig að norrænir borgarar geti stuðlað að hagvexti og þróun þvert á landamæri. Til að skapa græn og samkeppnishæf Norðurlönd þarf að fjárfesta í þekkingu og nýsköpun og samþættum norrænum vinnumarkaði. Þau tækifæri til þróunar sem skapast af hinum grænu, tæknilegu og stafrænu umskiptum og vaxandi lífhagkerfi gagnast borgurum okkar, fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Þetta stuðlar að því að efla Norðurlönd sem nýskapandi og sjálfbært svæði sem skarar fram úr. Öflugra samstarf yfir landamæri um innviði og samgöngumál, sem er mikilvægt fyrir loftslagið og öryggi okkar, eykur hreyfanleika á svæðinu. Þetta skapar skilyrði fyrir raunveruleg norræn notagildi. Tengslin milli loftslagsmála og atvinnulífs eru mjög sterk og miðpunktur grænna umskipta. Á sama tíma er mikilvægt að finna lausnir á loftslagsmálum til að tryggja norrænum borgurum og öðrum öruggt og gott líf. Sjálfbærni tekur til umhverfis, loftslags og líffræðilegrar fjölbreytni og þarf bæði að draga úr losun koltvísýrings og vernda hina líffræðilegu fjölbreytni. Norrænt samstarf um heilbrigði og velferð beinist áfram að því að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum, einfalda daglegt líf á Norðurlöndum og tryggja félagslegt öryggi. Margir Norðurlandabúar krefjast samræmdari umönnunar, sem einkennast skal af skýrri heildrænni sýn á þarfir einstaklingsins. Nýsköpun í tækni og vísindum ætti að stuðla að lýðheilsu og góðum lífskjörum. Norrænu löndin eru sterk, en saman erum við miklu sterkari.
Samheldni.
Við lifum á ólgutímum og samheldni og samvinna eru mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Norðurlönd þurfa að vinna að því að efla enn frekar tengsl fólks svo að það geti í sameiningu leyst samfélagslegar áskoranir og sýnt samstöðu, jafnvel á krísutímum. Sænska landsdeildin vill sjá aukið norrænt samstarf og meiri samheldni. Hin reglufasta reglumiðaða heimsskipan stendur andspænis áskorunum vegna árásarstríðs Rússlands í Úkraínu, átaka í Mið-Austurlöndum, nýrrar geópólitískrar spennu, loftslagskreppunnar og stöðnunar í hagkerfum heimsins. Þar sem ástand öryggismála hefur versnað verulega má fullyrða að norrænt samtal og samráð um varnarmál séu einkar mikilvæg og öryggismál ofarlega á dagskrá í hinu norræna samstarfi. Ráðið verður að vinna að sterkari tengslum milli landanna okkar og nánari samvinnu við Eystrasaltsríkin. Eystrasaltið er mikilvægt fyrir Norðurlönd hvort sem er af umhverfis- og varnar- eða öryggisástæðum. Ráðið þarf að efla samstarf við löndin umhverfis Eystrasalt, Norðurskautssvæðið og Evrópu og halda áfram að styðja Úkraínu og hina lýðræðislegu stjórnarandstöðu í Belarús. Með því að styrkja þinglega aðkomu í varnar- og öryggisstefnu Norðurlanda, einkum í tengslum við borgaralegan viðbúnað og afhendingaröryggi, verða Norðurlöndin betur í stakk búin til að takast á við sameiginlegar áskoranir. Við þörfnumst hvert annars í norrænu fjölskyldunni. Á Norðurlöndum eiga lýðræðisleg, opin og jöfn samfélög og norrænt velferðarkerfi að halda áfram að veita fólki frelsi og tækifæri til að þróast. Þetta skapar inngildandi, velmegandi og félagslega sjálfbær samfélög. Margir telja að þróunin á undanförnum árum hafi valdið þrýstingi á sameiginleg norræn grundvallargildi, svo sem lýðræði, jafnrétti og borgaraleg réttindi. Jafnrétti er eitt af þeim grunngildum sem hafa fengið bakslag á Norðurlöndum og annars staðar. Norrænt samstarf um jafnréttismál hefur skilað góðum árangri, en áskoranir eru enn til staðar, svo sem ofbeldi í nánum samböndum og efnahagslegur ójöfnuður. Brýnt er að efla samstarfið til að auka jafnrétti innan svæðisins og tryggja að Norðurlönd séu öflug rödd í jafnréttismálum á alþjóðavettvangi. Þar sem við íbúar á Norðurlöndum viljum standa vörð um grunngildi okkar verður norræna samstarfið sífellt mikilvægara. Með því að fara á undan með góðu fordæmi getum við sent skýr merki til umheimsins um að raunveruleg framþróun sé möguleg. Norðurlönd búa að einstakri sögu og samfélagi og á þeim grunni er mikilvægt að Norðurlandabúar sýni samstöðu eins og áður og vinni saman að því að vernda og varðveita norræna menningu. Þannig getum við viðhaldið trausti og samheldni á Norðurlöndum, grundvallargildunum og norrænu samfélagi. Menningin er ein af undirstöðum samfélagsins og mikilvægur hluti atvinnulífs og vinnumarkaðar og jafnframt stuðlar hún að því að efla jafnrétti og lýðræði. Menningin er einnig leið til að styrkja samfélög og samheldni á erfiðum tímum. Norðurlönd þurfa að halda áfram að fjárfesta í menntun og við Norðurlandabúar verðum að finna fyrir meiri hlutdeild í samfélögum okkar. Almenn menntun skiptir miklu máli fyrir lýðræði, menningarlíf og borgarasamfélagið. Hún skapar grundvöll fyrir opinbera umræðu og lausn deilumála með samræðu og samtali.
Landsbundnar tengingar.
Norræn málefni eru einnig innanríkismál. Er því við hæfi að Norðurlandaráð sé áfram um að vekja máls á að norrænum málefnum sé sinnt innan landanna og sendi norrænu ríkisstjórnunum sterk skilaboð um mikilvægi frjálsrar farar á Norðurlöndum. Ráðið þarf að sanna framkvæmdagetu sína fyrir borgurunum. Mikilvægt er að starfsemin í ráðinu sé tengd inn í fagnefndir þjóðþinganna. Fulltrúar ráðsins þurfa að hafa góða þekkingu á núverandi stjórnsýsluhindrunum og leggja áherslu á frjálsa för borgara og atvinnulífs og styðja þannig við framtíðarsýnina fyrir 2030. Áfram er uppi sú ósk þingmanna að gera starfið í Norðurlandaráði hagnýtt, auka tengingu inn í löndin og hraða vinnuferlum.