Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 84  —  84. mál.




Skýrsla


Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES fyrir árið 2024.


1. Inngangur.
    Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) og Evrópska efnahagssvæðið (EES) gegna veigamiklu hlutverki sem grunnstoðir íslenskrar utanríkisverslunar. Með aðildinni að EES njóta Íslendingar að langmestu leyti sömu viðskiptakjara og 30 önnur Evrópuríki með rúmlega 460 milljóna manna markað. Auk þess að koma að rekstri EES-samningsins hefur EFTA byggt upp öflugt net fríverslunarsamninga við ríki utan ESB, svonefnd þriðju ríki.
    Á árinu voru 30 ár frá því að EES-samningurinn öðlaðist gildi og var staða samningsins reglulega til umræðu. Samningsaðilar voru sammála um að samningurinn hafi sannað gildi sitt á þessu tímabili og væri ekki síður mikilvægur í dag en við gildistöku í ljósi þróunar á alþjóðavettvangi. Samningurinn byggist á hugmyndum um lýðræði og virðingu fyrir alþjóðalögum. Mikilvægt sé að viðhalda góðu gengi hans. Á fundum var einnig rætt um áskoranir sem eru uppi, sér í lagi varðandi upptöku þverlægra gerða ESB í EES-samninginn og hvernig nýjar gerðir sambandsins, sem miða að því að tryggja efnahagslegt öryggi aðildarríkja ESB, falla að gildissviði EES-samningsins. Eru samningsaðilar sammála um að finna þurfi lausn á þessum álitaefnum til að það myndist ekki gjá á innri markaðnum á milli aðildarríkja ESB annars vegar og EES-EFTA-ríkjanna hins vegar.
    Staða, þróun og samkeppnishæfni Evrópusambandsins var einnig áberandi umfjöllunarefni. Áhyggjur eru uppi um að Evrópa sé að dragast aftur úr í tækniþróun samanborið við Kína og Bandaríkin. Á árinu voru tvær skýrslur unnar fyrir Evrópusambandið, annars vegar eftir Enrico Letta og hins vegar eftir Mario Draghi, sem fjölluðu um stöðu og framtíð Evrópu og innri markaðarins. Sá fyrrnefndi tók þátt í fundi sameiginlegu EES-þingmannanefndarinnar í Strassborg í febrúar. Talið er nauðsynlegt að tiltekin svið, sem hingað til hafa ekki verið talin hluti af innri markaðnum, verði samræmd betur innan Evrópu. Er þar einkum horft til orkumála, fjarskipta og fjármálaþjónustu. Þá er talin þörf á því að Evrópa efli samvinnu sína á sviði varnarmála og efli viðbragðsgetu sína.
    Líkt og árin tvö á undan var staða Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands áberandi í starfi þingmannanefnda EFTA og EES á árinu. Stuðningur Evrópuríkja við Úkraínu hefur leitt til þess að þrátt fyrir aukna framleiðslu fari skotfærabirgðir Evrópuríkja minnkandi. Ljóst sé að efla verði framleiðslugetu Evrópuríkja. Rússneska hagkerfið hverfist um stríðsrekstur landsins í Úkraínu og erfitt sé að halda í við þá framleiðslu að óbreyttu. Einnig var rætt um þvingunaraðgerðir ESB, sem Ísland tekur þátt í. Ljóst sé að Rússar hafi náð að koma sér að einhverju leyti fram hjá þessum aðgerðum og þörf sé á að ganga lengra og efla eftirlit með þeim. Þá var rætt um aðildarumsókn Úkraínu að ESB en með aðild yrði Úkraína jafnframt aðili að EES-svæðinu.
    Á fundi þingmannanefndar EES í Strassborg í febrúar var fjallað um almannavarnakerfi ESB og hvernig það aðstoðar aðildarríki við neyðaraðstæður. Var umfjöllunin í tengslum við viðbrögð Íslands við jarðhræringum á Reykjanesskaga en Veðurstofa Íslands hefur notið aðstoðar kerfisins.
    Gerð fríverslunarsamninga EFTA við ríki utan ESB, svonefnd þriðju ríki, var ofarlega á dagskrá þingmannanefndar EFTA að venju. Fríverslunarsamningar fela í sér lækkun tolla og aukinn fyrirsjáanleika í alþjóðaviðskiptum, t.d. með ákvæðum um takmarkanir á beitingu tæknilegra viðskiptahindrana og um upprunareglur. EFTA hefur verið í fararbroddi á heimsvísu í gerð fríverslunarsamninga og eru gildir samningar nú 31 talsins og taka til 42 ríkja. Samanlagt eru þessi fríverslunarsamstarfsríki næststærsti útflutningsmarkaður EFTA á eftir ESB með 12% hlutdeild í vöruútflutningi EFTA. Fríverslunarsamningur við Indland var undirritaður í Nýju-Delí, Indlandi, 10. mars 2024. Þá var lokið við gerð fríverslunarsamnings við Kósovó á árinu en undirritun hans fór fram 22. janúar 2025 í Davos, Sviss. Uppfærður fríverslunarsamningur við Síle var síðan undirritaður í Genf 24. júní 2024. Loks náðist samkomulag 2. desember 2024 um uppfærðan fríverslunarsamning við Úkraínu sem bíður undirritunar. EFTA á nú í fríverslunarviðræðum við Malasíu, Mercosur-ríkin og Víetnam. Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga EFTA og beitir sendinefndum og þingmannaheimsóknum til þess að kynna slíka samninga og afla stuðnings við gerð þeirra. Farið var í slíka heimsókn til Argentínu og Brasilíu í mars 2024 þar sem sendinefnd EFTA-þingmanna átti fundi með þingnefndum, ráðherrum, stofnunum og hagsmunaaðilum um aukið efnahagslegt samstarf í ljósi þess að fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna og Mercosur-ríkjanna standa yfir.

2. Almennt um þingmannanefnd EFTA, þingmannanefnd EES og sameiginlega þingmannanefnd Íslands og ESB.
    Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES myndar sendinefnd Alþingis bæði í þingmannanefnd EFTA og þingmannanefnd EES. Þá myndar Íslandsdeildin ásamt fjórum þingmönnum úr utanríkismálanefnd sendinefnd Alþingis í sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og ESB.

Þingmannanefnd EFTA.
    Þingmannanefnd EFTA var stofnuð árið 1977 með það meginhlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherraráð EFTA. Aðild að EFTA eiga nú Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss. Þjóðkjörnir fulltrúar þessara ríkja sitja í þingmannanefndinni. Starfsemi nefndarinnar hefur aukist jafnt og þétt í samræmi við aukin umsvif EFTA, bæði hvað varðar samskipti við ESB og samstarf við svokölluð þriðju ríki, þ.e. ríki utan ESB. Starfssvið nefndarinnar jókst til muna með tilkomu EES-samningsins sem tók gildi 1. janúar 1994. Með gildistöku hans varð nefndin að formi til tvískipt þar sem Svisslendingar ákváðu að standa fyrir utan Evrópska efnahagssvæðið. Nefndin skiptist því annars vegar í fjögur ríki sem aðild eiga að EFTA og hins vegar í þau þrjú aðildarríki EFTA sem aðild eiga að EES. Þingmannanefnd EFTA fundar þó ávallt í einu lagi en Svisslendingar sitja fundi sem áheyrnarfulltrúar þegar málefni sem varða EES-samninginn eru tekin fyrir. Í eftirfarandi frásögnum af fundum verður fjallað um þessar tvær formlegu þingmannanefndir EFTA sem eina heild.
    Ísland á fimm fulltrúa í þingmannanefnd EFTA líkt og önnur aðildarríki. Þingmannanefnd EFTA heldur fundi að jafnaði þrisvar til fjórum sinnum á ári og tvisvar fundar hún með ráðherraráði EFTA og utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna innan EES. Nefndin fjallar almennt um starfsemi EFTA, málefni EES og ESB, gerð og framkvæmd fríverslunarsamninga og viðskiptamál í víðu samhengi. Nefndin á einnig samstarf við þing þeirra ríkja sem EFTA hefur gert fríverslunar- eða samstarfssamninga við.
    Framkvæmdastjórn þingmannanefndar EFTA undirbýr starf nefndarinnar og gefur álit á fjárhagsáætlun Eftirlitsstofnunar EFTA, auk þess sem hún fjallar um aðkallandi mál. Framkvæmdastjórnin kemur oft fram fyrir hönd þingmannanefndarinnar í samskiptum við þjóðþing þriðju ríkja. Í framkvæmdastjórn mega sitja tveir fulltrúar frá hverju EFTA-ríki en einungis annar þeirra hefur atkvæðisrétt á fundum.

Þingmannanefnd EES.
    Þingmannanefnd EES var komið á fót skv. 95. gr. EES-samningsins og er nefndin hluti af stofnanakerfi samningsins. Í þingmannanefnd EES eru 24 þingmenn, 12 frá Evrópuþinginu og 12 frá EFTA-ríkjunum sem eiga aðild að EES (EFTA-hluta sameiginlegrar þingmannanefndar EES). Af þessum 12 fulltrúum á Ísland fjóra, Noregur sex og Liechtenstein tvo. Þingmannanefndin fylgist með framkvæmd og þróun EES-samningsins og gefur álit sitt á EES-málum. Nefndin heldur fundi tvisvar á ári en framkvæmdastjórn hennar hittist milli funda eftir þörfum. Í framkvæmdastjórninni sitja sex fulltrúar, einn frá hverju EES-aðildarríki EFTA og þrír frá Evrópuþinginu. EFTA-hluti hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EES og Evrópuþingið skiptast á um formennsku í nefndinni milli ára.
    Þingmannanefnd EES lætur til sín taka á öllum sviðum EES-samstarfsins. Hún tekur ákveðin málefni til skoðunar, skrifar um þau skýrslur og samþykkir ályktanir. Skýrslugerð um mál sem tekið er fyrir er í höndum tveggja framsögumanna, annars vegar úr hópi EFTA-þingmanna og hins vegar úr hópi Evrópuþingmanna. Skýrsla framsögumanna er alfarið á þeirra eigin ábyrgð en nefndin samþykkir venjulega ályktun þegar umfjöllun um málið er lokið. Ályktanir nefndarinnar eru sendar til ráðherraráðs EES, sameiginlegu EES-nefndarinnar, Evrópunefnda þjóðþinga ESB, Evrópuþingsins og þjóðþinga EFTA- og EES-ríkja. Þingmannanefndin fylgist náið með því hvernig mál sem hún hefur tekið fyrir þróast og þegar hún telur að framvinda mála sé ófullnægjandi tekur hún þau upp aftur. Nefndin beinir einnig sjónum sínum sérstaklega að áhrifum þjóðþinga EFTA-ríkjanna á EES-samninginn og lagasetningu í tengslum við hann. Fulltrúar ráðherraráðs EFTA og embættismenn stofnana EFTA og ESB mæta á fundi nefndarinnar til að skýra frá framvindu mála og svara spurningum nefndarmanna.

Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og ESB.
    Sameiginlegri þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins var komið á fót í október 2010 og er hún skipuð níu þingmönnum frá Evrópuþinginu og níu alþingismönnum. Af hálfu Alþingis sitja fimm nefndarmenn úr Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES og fjórir nefndarmenn úr utanríkismálanefnd í hinni sameiginlegu þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins.
    Þegar sameiginlega þingmannanefndin var stofnuð í tengslum við aðildarviðræður Íslands og ESB leysti hún af hólmi tvíhliða fundi Alþingis og Evrópuþingsins sem haldnir höfðu verið árlega frá árinu 1987. Á fundi nefndarinnar 9. febrúar 2016 var gerð breyting á starfsreglum hennar og vísun í aðildarferlið tekin út. Eftir breytinguna er skilgreint hlutverk nefndarinnar að fjalla um samskipti Íslands og ESB á breiðum grunni.
    Sameiginlega þingmannanefndin kom saman tvisvar á ári framan af, til skiptis á Íslandi og í starfsstöðvum Evrópuþingsins í Brussel eða Strassborg. Í kjölfar þess að aðildarviðræðum við ESB var hætt var fundum nefndarinnar fækkað í einn á ári líkt og tíðkaðist fyrir tíma aðildarumsóknar. Sameiginlega þingmannanefndin tekur fyrir einstök málefni sem varða samskipti Íslands og Evrópusambandsins og getur hún sent frá sér tilmæli þeim viðvíkjandi. Tilmæli verða aðeins samþykkt með því að meiri hluti fulltrúa jafnt Evrópuþingsins sem Alþingis veiti þeim stuðning. Tilmælum sameiginlegu þingmannanefndarinnar er beint til Evrópuþingsins, framkvæmdastjórnar og ráðs Evrópusambandsins, Alþingis og ríkisstjórnar Íslands. Alla jafna sitja fulltrúar ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar og ráðs Evrópusambandsins fundi sameiginlegu þingmannanefndarinnar. Á vettvangi nefndarinnar gefst alþingismönnum því kostur á að eiga formbundnar og milliliðalausar viðræður við Evrópuþingmenn auk fulltrúa framkvæmdastjórnar og ráðs ESB. Nefndin er því mikilvægur vettvangur fyrir alþingismenn til að fjalla um samskipti Íslands og Evrópusambandsins. Ekki var haldinn fundur árið 2024, einkum vegna Evrópuþingskosninga. Mun næsti fundur fara fram á árinu 2025.

3. Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES.
    Í byrjun árs 2024 áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES: Ingibjörg Isaksen, formaður, þingflokki Framsóknarflokks, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður, þingflokki Viðreisnar, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingflokki Pírata, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Diljá Mist Einarsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks. Varamenn voru Birgir Þórarinsson, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Gísli Rafn Ólafsson, þingflokki Pírata, Jódís Skúladóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Sigmar Guðmundsson, þingflokki Viðreisnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokki Framsóknarflokks. Sú breyting var gerð hinn 15. apríl að Jódís Skúladóttir, þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, tók sæti aðalmanns en Eva Dögg Davíðsdóttir, sama þingflokki, sæti varamanns. Ritari Íslandsdeildar var Eggert Ólafsson, lögfræðingur EES-mála.

4. Fundir þingmannanefndar EFTA, þingmannanefndar EES og sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB á árinu 2024.
    Hér á eftir verður gerð stutt grein fyrir fundum þingmannanefnda EFTA og EES auk sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB sem Íslandsdeildin sótti í tímaröð.

Fundur þingmannanefndar EFTA í Genf 8.–9. febrúar 2024.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Ingibjörg Isaksen, formaður, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður, Birgir Þórarinsson og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Fundurinn var helgaður viðskiptamálum og var m.a. fjallað um stöðu og þróun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, Kína og fríverslunarsamninga EFTA (sjá fylgiskjal I).

Fundur þingmannanefndar EES í Strassborg 28.–29.febrúar 2024.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Á fundinum var einkum fjallað um þróun og framkvæmd EES-samningsins, þróun og samkeppnishæfni innri markaðarins og löggjöf ESB, sér í lagi um gervigreind og kolefnisjöfnun á landamærum. Einnig var fjallað um stuðning við Úkraínu og aðkomu almannavarnakerfis ESB að viðbrögðum við jarðhræringum á Reykjanesskaga (sjá fylgiskjal II).

Fundir framkvæmdastjórnar þingmannanefndar EFTA í Buenos Aires, Brasilíu og Rio de Janeiro 18.–22. mars 2024.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES sóttu fundina Ingibjörg Isaksen, formaður, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Markmið heimsóknar þingmannanefndar EFTA til Argentínu og Brasilíu var að eiga viðræður við þingmenn, ráðherra, stofnanir og hagsmunaaðila um fríverslunarmál og aukið efnahagslegt samstarf í ljósi yfirstandandi fríverslunarviðræðna milli EFTA-ríkjanna og Mercosur-ríkjanna (sjá fylgiskjal III).

Fundur þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Genf 24. júní 2024.
    Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundina Ingibjörg Isaksen, formaður, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Á fundinum var fjallað um stefnu EFTA í alþjóðaviðskiptum til framtíðar litið, stöðu viðræðna EFTA og tengsl fríverslunar við sjálfbærni (sjá fylgiskjal IV).

Fundur þingmannanefndar EES í Osló 21.–22. nóvember 2024.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA og EES sóttu fundinn Birgir Þórarinsson og Jódís Skúladóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Á fundinum var fjallað um framkvæmd EES-samningsins, stöðu samningsins eftir þrjátíu ára gildistíma, áherslur ESB í kjölfar Evrópuþingskosninga og samkeppnishæfni Evrópu. Þá var fjallað um getu evrópsks iðnaðar á sviði varnarmála til að styðja við Úkraínu og tengsl Sviss og ESB (sjá fylgiskjal V).

Fundur þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Brussel 25.–26. nóvember 2024.
    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sótti Birgir Þórarinsson fundinn, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Á fundinum var m.a. fjallað um stöðu innri markaðarins og samkeppnishæfni Evrópu, þverlægar gerðir ESB og hvernig leysa mætti áskoranir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var fjallað um ákvæði um sjálfbærni í fríverslunarsamningum EFTA (sjá fylgiskjal VI).

5. Ályktanir árið 2024.
     Ályktun þingmannanefndar EES:
     .      Ályktun um ársskýrslu um framkvæmd EES-samningsins árið 2023, samþykkt á fundi þingmannanefndar EES í Osló 21. nóvember 2024.

Alþingi, 10. febrúar 2025.

Grímur Grímsson,
form.
Ingibjörg Isaksen,
varaform.
Diljá Mist Einarsdóttir.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Kristján Þórður Snæbjarnarson.


Fylgiskjal I.


F R Á S Ö G N
af fundi þingmannanefndar EFTA í Genf 8.–9. febrúar 2024.


    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Ingibjörg Isaksen, formaður, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður, Birgir Þórarinsson og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara.
    Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum helgað fyrsta fund hvers starfsárs alþjóðlegum viðskiptamálum. Þessi fundur var haldinn ásamt ráðgjafarnefnd EFTA.
    Nefndirnar funduðu með sendiherrum EFTA-ríkjanna gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Rætt var um áskoranir sem blasa við fríverslun á heimsvísu. Í máli sendiherranna kom fram að 12. ráðherrafundur stofnunarinnar árið 2022 hefði verið árangursríkur þar sem náðst hefði samkomulag um ríkisstuðning í fiskveiðum. Þrír þættir hefðu nú einkum áhrif á vinnu stofnunarinnar; í fyrsta lagi vaxandi spenna á alþjóðavettvangi, í öðru lagi aukin gremja þróunarríkja sem telja sig ekki hagnast á alþjóðaviðskipum og í þriðja lagi auknar einhliða aðgerðir ríkja, til að mynda ríkisstuðningur. Þá hafi Alþjóðaviðskiptastofnunin ekki verið stofnuð með það að markmiði að takast á við félagslegar áskoranir eða loftslagsbreytingar. Í dag gerðu mörg ríki kröfu um slík ákvæði í fríverslunarsamningum og leituðust því frekar eftir því að gera svæðisbundna eða tvíhliða fríverslunarsamninga við líkt þenkjandi ríki. Fram undan væri 13. ráðherrafundur stofnunarinnar og er reiknað með að útkoman verði ályktun um að aðildarríki haldi áfram með vinnu stofnunarinnar, þar á meðal um ríkisstuðning í fiskveiðum. Þá var rætt um stöðu Kína í alþjóðaviðskiptakerfinu og skilgreinda stöðu þess sem þróunarríkis.
    Næst var fundað með sendiherrum Mercosur-ríkjanna gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Í mars fer sendinefnd þingmannanefndarinnar til Argentínu og Brasilíu til stuðnings við samningaviðræður sem eru yfirstandandi á milli EFTA-ríkjanna og Mercosur-ríkjanna. Sendiherrarnir veittu upplýsingar um alþjóðaviðskipti landanna og sögðu mikilvægt að ljúka viðræðum með samningi. Af þeirra hálfu skipti vernd náttúruauðlinda og landbúnaður miklu máli.
    Að þessu loknu kom Li Chenggang, sendiherra Kína gagnvart Alþjóðaviðskiptastofnuninni, á fund nefndarinnar. Hann lagði áherslu á mikilvægi stofnunarinnar fyrir alþjóðaviðskipti. Hann teldi alþjóðlegar virðiskeðjur vera almannagæði sem gegndu lykilhlutverki við að stækka hagkerfi. Frá 9. áratug síðustu aldar hefðu keðjurnar verið óraskaðar en nýverið hafi náttúruhamfarir, COVID-faraldurinn og aðrir atburðir raskað þeim. Þá leiddi þróun alþjóðastjórnmála til frekari einangrunarhyggju. Helstu fórnarlömb þeirrar þróunar væru fátæk ríki. Þörf væri á því að endurvinna traust á alþjóðavísu og endurskoða alþjóðaviðskiptakerfið. Um stöðu Kína sem þróunarríkis sagði hann að hún væri byggð á staðreyndum. Verg þjóðarframleiðsla væri lág og Kína ætti langt í land með að ná þróuðum ríkjum.
    Næst kom Rebeca Grynspan, aðalritari ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun (UNCTAD), á fund nefndarinnar til að ræða raskanir á alþjóðaviðskiptum og tengsl viðskipta og sjálfbærni. Hún sagði að alþjóðahagkerfið einkenndist af lágum vexti og litlu trausti. Hærri vextir, COVID-faraldurinn, loftslagsbreytingar og stríð spiluðu þar stórt hlutverk. Í ofanálag hafi alþjóðaviðskipti og -fjárfestingar ekki enn jafnað sig eftir fjármálakrísuna 2008. Þá hafi öryggisvandamál haft áhrif á fragtflutninga, sem standa undir 80% alþjóðaviðskipta.
    Loks funduðu nefndirnar með EFTA-nefndinni um samvinnu við þriðju ríki. Farið var yfir stöðu fríverslunarviðræðna EFTA. Samningaviðræður við Mercosur-ríkin hefðu dregist, einkum vegna COVID og ríkisstjórnarskipta. Viðræður af þessu tagi gengju ekki nægilega vel í fjarfundarformi. Það var mat gestanna að ríkisstjórnarskipti í Argentínu myndu hafa jákvæð áhrif á viðræðurnar og vonast var til að hægt væri að klára útistandandi atriði fljótlega. Viðræður við Indland væru á lokametrunum og búið að ná samkomulagi um lykilviðfangsefni á milli Indlands og Sviss. Þó væru enn áskoranir fram undan við að leysa spurningar um fjárfestingar. Viðræður við Taíland hefðu staðið yfir síðan 2022 og góður gangur í þeim. Reiknað var með að hægt væri að klára samning á þessu ári. Um samningaviðræður við Singapúr var að segja að komið var samkomulag en aðilar ákváðu að bæta við kafla um stafræna hagkerfið sem getur haft jákvæð áhrif á neytendavernd og skapar tækifæri fyrir tæknifyrirtæki. Erfiðari gangur hafi hins vegar verið í viðræðum við Malasíu. Viðræður lágu niðri en hefðu nú verið teknar upp að fullu og gengju betur. Mun næsta umferð fara fram í maí. Þá er búist við að viðræður um uppfærslu samnings við Úkraínu hefjist í júní. Einnig var fjallað um samskipti við önnur ríki, þar á meðal Víetnam, Mexíkó og Kósovó.



Fylgiskjal II.


F R Á S Ö G N
af fundi þingmannanefndar EES í Strassborg 28.–29. febrúar 2024.


    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara.
    Á fundinum var fulltrúum stofnana ESB og EFTA að venju boðið að hafa framsögu í umræðum um þróun og framkvæmd EES-samningsins. Frummælendur voru Kristján Andri Stefánsson, fyrir hönd formennsku EFTA í sameiginlegu EES-nefndinni og EES-ráðinu, Michael Mareel, fyrir hönd formennsku ESB í EES-ráðinu, Thomas McClenaghan, fyrir hönd formennsku ESB í sameiginlegu EES-nefndinni, og Árni Páll Árnason, stjórnarmaður Eftirlitsstofnunar EFTA. Í erindum þeirra og umræðunni sem á eftir fylgdi var fjallað um stöðu EES-samstarfsins, einkum í ljósi þrjátíu ára afmælis samningsins. Ljóst væri að samstarf ESB og EES-EFTA-ríkjanna hefði aldrei verið mikilvægara en nú í ljósi árásarstríðs Rússa og þróunar í Mið-Austurlöndum. Ríki EFTA og ESB byggjast á lýðræði, réttarríkinu og virðingu fyrir alþjóðalögum. Mikilvægt væri að viðhalda góðu gengi samningsins og viðhalda einsleitni innri markaðarins sem og að styrkja hann. Nýta þyrfti styrkleika EES-samningsins til að aðlagast áskorunum sem tengjast efnahagslegu öryggi og samkeppnishæfni innri markaðarins. Unnið sé að því að greina þverlægar gerðir ESB og áhrif þeirra á EES-EFTA-ríkin.
    Þá fundaði nefndin með Enrico Letta, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu og höfundi skýrslu um framtíð innri markaðarins. Hann tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað. Letta lagði áherslu á mikilvæga stöðu EES-EFTA-ríkjanna samhliða ESB-ríkjunum 27 við að starfrækja innri markaðinn. Nú séu uppi áskoranir í tengslum við stöðu alþjóðamála sem innri markaðurinn verði að taka mið af og auka samkeppnishæfni sína. Varnarmál verði þannig eitt af meginefnum skýrslunnar. Til þess að bæta samkeppnishæfni svæðisins verði að samræma betur ákveðin svið sem hafa hingað til ekki verið hluti af innri markaðnum, svo sem orkumál, fjármál og fjarskipti. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi þess að styrkja eftirlit en forðast of mikla regluvæðingu. Þá verði að huga að félagslegum þáttum og vernda betur réttindi vinnandi fólks.
    Næst var fjallað um almannavarnakerfi ESB ( European Civil Protection Mechanism) og aðkomu þess að viðbrögðum við jarðhræringum á Reykjanesskaga. Mattthew James Robert hjá Veðurstofu Íslands tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað. Hann fjallaði um þróun eldsumbrota og aðkomu almannavarnakerfis ESB sem hafi veitt daglegar upplýsingar um stöðu mála með aðstoð verkefna eins og Aristótelesar. Diljá Mist Einarsdóttir fjallaði um aðstoð íslenskra stjórnvalda við íbúa Grindavíkur og viðbrögð stjórnvalda til varnar mikilvægum innviðum. Hún lagði einnig áherslu á að almenningi stafaði ekki hætta af þessum eldsumbrotum og hægt væri að ferðast til og frá landinu.
    Að því loknu var rætt um stuðning við Úkraínu og stöðu aðildarumsóknar þess að ESB. Michael Gahler, Evrópuþingmaður, sagði að þrátt fyrir hótun Ungverjalands um að beita neitunarvaldi á fjármálaáætlun ESB hefði Evrópuþingið sameinast um að samþykkja fjárhagsstuðning til Úkraínu og verður fyrsta greiðsla í mars 2024. Þá lagði hann áherslu á að ríki Evrópu þyrftu að auka við framlög til varnarmála. Heidi Nordby Lunde, þingmaður norska þingsins, hafði framsögu fyrir EFTA-ríkin og gat þess að aðild að ESB fæli einnig í sér aðild að EES-svæðinu. Það yrði þörf fyrir ESB til að gera aðlaganir á ýmsum sviðum, til að mynda í landbúnaði. Þá væri mikilvægt að stutt væri við lýðræðið í Úkraínu. Í umræðum var rætt um muninn á því sem sagt væri og raunverulegum stuðningi við Úkraínu. Diljá Mist Einarsdóttir lýsti áhyggjum af aðstöðumun Rússlands og Úkraínu og sagði að nauðsynlegt væri að styðja betur við Úkraínu. Hún spurði um stöðu frystra eigna. Michael Gahler sagði að það væri þörf á lagaheimildum til að leggja hald á og nýta hinar frystu eignir.
    Því næst var fjallað um evrópskar reglur um gervigreind. Í desember 2023 samþykkti ESB reglugerð um gervigreind, sem er fyrsta heildstæða löggjöfin á þessu sviði. Brando Benifei hafði framsögu fyrir hönd Evrópuþingsins. Sagði hann að gerðin væri hluti af innri markaðnum og myndi þannig falla undir EES-samninginn. Með reglugerðinni væri reynt að ná jafnvægi á milli öryggis og réttinda annars vegar og hins vegar þess að stuðla að nýsköpun. Efla þyrfti traust almennings á gervigreind. Diljá Mist Einarsdóttir hafði framsögu fyrir hönd EFTA-ríkjanna. Hún sagði að þau væru sammála um mikilvægi þess að tryggja öryggi gervigreindar. Fylgst hafi verið með þróun löggjafarvinnu ESB og stjórnvöld landanna þyrftu nú að leggja mat á lokaútgáfu gerðarinnar. Þá sagði hún frá vinnu framtíðarnefndar Alþingis, sem hefur fjallað um þessa gerð. Þar hefðu komið fram sjónarmið um að þörf væri á að koma í veg fyrir að gervigreind geti verið misnotuð til að áreita fólk kynferðislega með fölsunum.
    Að síðustu var rætt um áhrif nýrra ákvæða um sjálfbærni á tollamál. Í nýjum reglum ESB, svo sem um kolefnisjöfnun á landamærum ( Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM) eru ákvæði sem varða tollamál, en þau falla utan við gildissvið EES-samningsins. EES-EFTA-ríkin munu þurfa að finna lausn á því hvort og þá hvernig þessar gerðir verða teknar upp í EES-samninginn. Framkvæmdastjórn ESB fjallaði um CBAM og sagði að það væri hannað til að hafa sem minnst áhrif á tolla. Það séu undanþágur á vörum sem eiga uppruna sinn í EFTA-ríkjunum. Kerfið væri byggt upp með sama hætti og ETS-kerfið og nái til vara sem losa kolefni í miklum mæli, svo sem sement, járn, stál, ál og áburður. Í fyrstu væri unnið að gagnaöflun og væri krafa um skýrsluskil en gjaldtaka hefjist ekki fyrr en í lok árs 2025. Þá munu innflytjendur þurfa að afla sér CBAM-skírteina. Sveinung Rotevatn, þingmaður norska Stórþingsins, sagði að í Noregi væri til skoðunar hvort gerðin teldist EES-tæk. Svo virtist að það væri ekki skylda að taka hana upp í samninginn en ekki væri þar með sagt að ríkin myndu ekki gera það. Afstaða Noregs til gerðarinnar væri almennt jákvæð.



Fylgiskjal III.


F R Á S Ö G N
af fundum framkvæmdastjórnar þingmannanefndar EFTA í Buenos Aires, Brasilíu og Rio de Janeiro 18.–22. mars 2024.


    Markmið heimsóknar þingmannanefndar EFTA til Indlands var að eiga viðræður við þingmenn, ráðherra, stofnanir og hagsmunaaðila um fríverslunarmál og aukið efnahagslegt samstarf í ljósi yfirstandandi fríverslunarviðræðna milli EFTA-ríkjanna og Mercosur-ríkjanna. Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA áttu sæti í sendinefndinni Ingibjörg Isaksen og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara.
    Fríverslunarsamningum hefur fjölgað ört á undanförnum árum og hafa samtök ríkja og einstök lönd í auknum mæli beint sjónum sínum að gerð tvíhliða eða marghliða fríverslunarsamninga. EFTA hefur verið í fararbroddi á þessu sviði og eru gildir fríverslunarsamningar EFTA nú 31 talsins. Þingmannanefnd EFTA hefur stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga samtakanna og hefur beitt sendinefndum og þingmannaheimsóknum til þess að kynna og afla stuðnings við gerð fríverslunarsamninga við EFTA.
    Mercosur- og EFTA-ríkin eiga í umfangsmiklum viðskiptum. Á árinu 2023 námu viðskipti milli svæðanna 7,3 milljörðum evra. Árið 2000 undirrituðu aðildarríki EFTA og Mercosur sameiginlega samstarfsyfirlýsingu. Formlegar viðræður milli ríkjanna um fríverslunarsamning hófust síðan 2017. Eftir níu samningalotur lá fyrir niðurstaða um efnislegt innihald samnings 23. ágúst 2019. Hins vegar reyndist ekki eining um túlkun á tilteknum ákvæðum er vörðuðu markaðsaðgang, upprunareglur og vernd hugverka. Síðan þá hafa staðið yfir viðræður til að leysa þessi mál. Mercosur-ríkin komust að samkomulagi um fríverslunarsamning við ESB 2019 en síðan þá hefur ekki tekist að fullgilda samninginn. Ræður þar mestu andstaða Frakklands sem telur að ákvæði um umhverfisvernd séu ekki fullnægjandi.
    Heimsókn þingmannanefndar EFTA til Argentínu og Brasilíu var sem fyrr segir liður í að auka skilning á og afla stuðnings við gerð fríverslunarsamnings ríkjanna. Í Buenos Aires átti sendinefndin fundi með þingmönnum öldungadeildar argentínska þingsins, sem Francisco Manuel Paoltroni, formaður utanríkismálanefndar þingsins, fór fyrir, og þingmönnum fulltrúadeildar þingsins, sem Juliana Santillán, 2. varaformaður utanríkismálanefndar þingsins, fór fyrir. Þá átti nefndin fundi með Gabriel Martinez, aðstoðarráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. Sendinefndin fundaði jafnframt með aðilum vinnumarkaðarins, hugveitum og sendinefnd ESB í Argentínu.
    Í borginni Brasilíu átti sendinefndin fundi með Rodrigo Otavio Soares Pacheco, forseta öldungadeildar brasilíska þingsins, Nelsinho Trad, öldungadeildarþingmanni og forseta sendinefndar Brasilíu á PARLASUL, Mercosur-þinginu, og öðrum þingmönnum. Sendinefndin átti einnig fundi með Geraldo Alckmin, varaforseta Brasilíu og ráðherra þróunar, iðnaðar, viðskipta og þjónustu, sem og Marinu Silva, ráðherra loftslags- og umhverfismála. Í Rio de Janeiro var fundað með þróunarbanka Brasilíu sem og öðrum stofnunum og fulltrúum fyrirtækja frá EFTA-ríkjunum sem hafa starfsemi í Brasilíu. Íslenska sendinefndin átti jafnframt fund með Tom Mario Ringseth, kjörræðismanni Íslands í Rio de Janeiro.
    Formaður þingmannanefndar EFTA hélt framsögu á öllum fundum nema á fundinum með forseta öldungadeildar brasilíska þingsins, sem Ingibjörg Isaksen stýrði fyrir hönd sendinefndarinnar sem varaformaður. Á fundunum var lögð áhersla á þann ávinning sem fríverslunarsamningur gæti skilað. Samskipti EFTA-ríkjanna og Mercosur væru góð og fríverslunarsamningur myndi ekki aðeins stuðla að auknum viðskiptum heldur myndu samskipti ríkjanna um leið verða skýrari og formfastari.
    Viðmælendur sendinefndar EFTA á fundum í Argentínu og Brasilíu voru jákvæðir gagnvart aukinni efnahagssamvinnu. Í Argentínu var þess sérstaklega getið að nýr forseti landsins, Javier Milei, stefndi að því að opna frekar á utanríkisviðskipti.


Fylgiskjal IV.


F R Á S Ö G N
af fundi þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Genf 24. júní 2024.


    Hefðbundinn sumarfundur þingmannanefndar, ráðgjafarnefndar og ráðherra EFTA fór fram í Genf í Sviss, auk þess sem þingmannanefndin hélt fund með ráðgjafarnefnd EFTA og eiginlegan nefndarfund. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundina Ingibjörg Isaksen, formaður, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Ingibjörg Isaksen stýrði fundum fyrir hönd þingmannanefndar EFTA.
    Á fundi ráðherra EFTA með þingmannanefnd og ráðgjafarnefnd samtakanna fjallaði fyrsti dagskrárliðurinn um stefnu EFTA til framtíðar litið í ljósi þróunar á alþjóðavettvangi. Var til umræðu hvort leggja ætti áherslu á að dýpka samvinnu við þau ríki sem EFTA hefur gert samninga við eða stækka net fríverslunarsamninga. Það var mat ráðherranna að það væri áskorun að ná til nýrra landa en áfram verði unnið að samningum við Mercosur-ríkin, Malasíu og Taíland. Hins vegar sé rétt að dýpka samvinnuna við önnur ríki og séu loftslagsmál mikilvægt áherslumál. Þá var rætt um tengsl nýrrar löggjafar ESB á sviði sjálfbærni og loftslagsmála og sjálfstæðrar fríverslunarstefnu EFTA-ríkjanna. Í máli ráðherranna kom fram að það sé í höndum hvers og eins ríkis að ákveða hvernig þau taka upp þessa löggjöf, annaðhvort í gegnum EES-samninginn eða tvíhliða samninga í tilfelli Sviss. Meginmarkmiðið ætti þó að vera að koma í veg fyrir hindranir og klofning á innri markaðnum.
    Því næst var rætt um stöðu fríverslunarsamninga og -viðræðna. Samningurinn við Indland var undirritaður 10. mars 2024. Nú er áhersla lögð á að samningsaðilar ljúki við fullgildingu samningsins. Þá halda viðræður við Mercosur-löndin áfram. Ingibjörg Isaksen gat þess að framkvæmdastjórn þingmannanefndar EFTA hefði nýverið verið í Argentínu og Brasilíu til að styðja samningaviðræðurnar og skynjað vilja til að ljúka viðræðum. Ráðherrar sögðu frá því að 11. umferð viðræðna hafi farið fram í apríl 2024 en þær skiluðu takmörkuðum árangri og næstu umferð, sem fara átti fram í júní, var frestað. Enn væri verið að vinna að því að komast að niðurstöðu um vernd hugverka, upprunareglur og kvóta á vín. Um uppfærslu fríverslunarsamnings við Úkraínu, sem hófst árið 2023, var það að segja að fyrsta umferð viðræðna fór fram í apríl 2024 og búið að ljúka fjölmörgum köflum, þar á meðal kafla um sjálfbærni. Næstu viðræður væru fyrirhugaðar í ágúst og búist við að viðræður gangi hratt fyrir sig. Einnig var farið yfir stöðu viðræðna við Kósovó, Taíland, Víetnam og Malasíu.
    Þingmannanefnd EFTA og ráðgjafarnefnd EFTA áttu einnig sameiginlegan fund þar sem rætt var um fríverslunarmál. Í fyrsta lagi kom Fanny Sauvignon frá CEPS á fund nefndarinnar í gegnum fjarfundarbúnað til að kynna tilskipun ESB um áreiðanleikakannanir á sjálfbærni fyrirtækja. Þessar reglur, sem munu taka gildi í skrefum á árunum 2028 til 2030, hafa áhrif á utanríkisviðskipti ESB. Tilskipunin setur lágmarkskröfur um hvað aðildarríki ESB innleiða í landsrétt. Upplýsingaskil eru minni fyrir smá fyrirtæki. Ingibjörg Isaksen spurði hvort tilskipunin gæti haft áhrif á markmið ESB um sjálfbærni í viðskiptum. Því var svarað að regluverkið á þessu sviði væri umfangsmikið og það mætti spyrja sig hvort það væri nægilega mikið samræmi meðal stofnana ESB. Næst kynnti EFTA-skrifstofan vinnu við mat á áhrifum fríverslunarsamnings við Taíland á sjálfbærni. Sú vinna er enn í gangi hjá sjálfstæðum aðila. EFTA-skrifstofan kynnti einnig uppfærðan fríverslunarsamning við Síle. Lokaumferð viðræðna fór fram í janúar 2024 og var samningurinn undirritaður sama dag og þessi fundur fór fram. Með uppfærslunni er markaðsaðgengi aðila bætt, þar á meðal fyrir sjávarafurðir. Að síðustu kom Alberto van Klaveren Stork, utanríkisráðherra Síle, á fund nefndarinnar til að ræða sama samning. Hann sagði að það væri stefna Síle að styrkja tengsl við evrópsk ríki og lýsti yfir ánægju með að lokið hafi verið við þessa uppfærslu sem hafi verið þörf. Þeirra helstu útflutningsafurðir séu vín, ferskir ávextir, frosin ber og fiskfóður. Ingibjörg Isaksen spurði ráðherrann hvort tækifæri væru til samstarfs á sviði grænnar tækni. Hann svaraði því til að samskipti á þessu sviði væru náin og góð. Jarðhiti væri til staðar í Síle og metnaður til að nýta hann betur.
    Loks hélt þingmannanefnd EFTA eigin fund. Fékk nefndin kynningu á verkefni á sviði kjarnorku sem eigi að vera örugg, kostnaðarhagkvæm og hafa betri umhverfisáhrif. Þá var rætt um stjórnmálaþróun í EFTA-ríkjunum. Ingibjörg Isaksen sagði frá úrslitum forsetakosninga á Íslandi og breytingar á ríkisstjórn Íslands. Þá sagði hún frá viðbrögðum stjórnvalda við jarðhræringum á Reykjanesskaga. Einnig sagði hún frá því að Alþingi hefði samþykkt þingsályktanir um fullgildingu fríverslunarsamnings við Moldóvu og um stuðning við Úkraínu.



Fylgiskjal V.


F R Á S Ö G N
af fundi þingmannanefndar EES í Osló 21.–22. nóvember 2024.


    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sóttu fundinn Birgir Þórarinsson og Jódís Skúladóttir, auk Eggerts Ólafssonar, ritara.
    Fundurinn hófst með opnunarávarpi Andreas Schwab, Evrópuþingmanni og formanni sameiginlegu EES-þingmannanefndarinnar. Hann ávarpaði fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og ræddi um áherslur ESB í kjölfar Evrópuþingskosninga en þetta var fyrsti fundur þingmannanefndarinnar eftir kosningarnar. Taldi hann að samkeppnishæfni yrði áberandi umfjöllunarefni á komandi misserum. Hagkerfi Bandaríkjanna yrði drifið áfram með það að markmiði og það yrði ESB einnig að gera.
    Á fundinum var fulltrúum stofnana ESB og EFTA að venju boðið að hafa framsögu um þróun og framkvæmd EES-samningsins. Frummælendur voru Anders H. Eide, sendiherra, sem jafnframt sinnir formennsku í sameiginlegu EES-nefndinni fyrir hönd EFTA-ríkjanna, Szabolcs Nagy, formaður EFTA-vinnuhóps ráðsins, og Nicolas von Lingen, formaður ESB í sameiginlegu EES-nefndinni. Anders H. Eide sagði að á þrjátíu ára afmæli EES-samningsins blöstu við áskoranir á heimsvísu. Lagði hann áherslu á að aðgerðir ESB til að auka samkeppnishæfni mættu ekki verða til þess að klofningur myndaðist á innri markaðnum, milli ESB-ríkjanna annars vegar og EES-EFTA-ríkjanna hins vegar. Szabolcs Nagy fagnaði einnig þrjátíu ára afmæli EES-samningsins og lýsti yfir stuðningi við áframhaldandi samstarf. Hann fagnaði því að tilteknir löggjafarpakkar hefðu verið teknir upp í EES-samninginn á síðustu fundum sameiginlegu EES-nefndarinnar en minntist á gerðir sem hafa ekki enn verið teknar upp í samninginn, m.a. á sviði samkeppnismála, fjármála og orkumála, og einnig regluverk um erfðabreytt matvæli. Í máli Nicolas von Lingen kom fram að EES-samningurinn væri enn ramminn um nánasta samstarf ESB við önnur ríki. Mikilvægt sé að lokið verði við upptöku eldri gerða sem enn hafa ekki verið felldar inn í EES-samninginn. Þá megi svið eins og orkumál ekki dragast aftur úr. Þá eru stór mál á döfinni sem þörf sé á að taka upp í samninginn, til að mynda CBAM. Þá minntist hann á mikilvægi þess að stjórnskipulegum fyrirvörum væri aflétt sem fyrst.
    Næst var fjallað um ársskýrslu um framkvæmd EES-samningsins fyrir árið 2023 og samþykkti þingmannanefnd EES ályktun um skýrsluna. Í ályktuninni er þrjátíu ára afmæli EES-samningsins fagnað. Þá er ánægju lýst með að á árinu hafi sjö EES-EFTA-umsagnir verið gefnar út. Þær séu mikilvægar til að koma sjónarmiðum EES-EFTA-ríkjanna á framfæri meðan á löggjafarvinnu ESB stendur. Þá er þess getið að ýmsar mikilvægar gerðir hafi ekki enn verið teknar upp í EES-samninginn. Loks er ánægju lýst með undirritun samkomulags 12. september 2024 um framlag EES-EFTA-ríkjanna í Uppbyggingarsjóð EES.
    Að því loknu var fjallað um stöðu EES-samningsins á þrjátíu ára afmæli hans. Framsögumenn voru Line Eldring, sem veitti EES-nefnd norska þingsins formennsku, og Sigríður Mogensen, 2. formaður ráðgjafarnefndar EES. Line Eldring fjallaði um skýrslu sem nefndin gaf út fyrr á árinu um framtíð EES-samningsins. Í skýrslunni er þróun EES-samningsins frá 2012 rakin og áhrif samningsins á norskt samfélag sem og kostir og gallar aðildar. Á þessu tímabili hafi verið vendingar á alþjóðavísu sem skipti máli við mat á stöðu EES-samningsins. Á síðastliðnum árum hafi ESB mótað stefnu sína á sviði viðskipta og fjárfestinga þannig að hún sé samofin öryggissjónarmiðum. Þetta auki mikilvægi evrópskrar samvinnu fyrir Noreg en skapi einnig áskoranir. Næstum 100 samningar séu í gildi milli Noregs og ESB en EES-samningurinn er langtum stærsti og mikilvægasti samningurinn og að mörgu leyti upphafspunkturinn fyrir samstarf á hinum ýmsu sviðum. Sigríður Mogensen fjallaði um stöðu EES-samningsins og þróun innri markaðarins frá sjónarhóli atvinnulífsins. Það sé mikilvægt að samkeppnishæfni verði leiðarstef í löggjöf sem fellur undir EES-samninginn. Í því sambandi verði að einfalda regluverk.
    Því næst var fjallað um getu evrópsks iðnaðar á sviði varnarmála til að styðja Úkraínu. Frummælendur voru Hans Christian Hveem Kjølseth, ráðuneytisstjóri norska varnarmálaráðuneytisins, og Andrius Kubilius, Evrópuþingmaður, sem tók þátt í gegnum fjarfundarbúnað. Þegar fundurinn fór fram hafði hann verið tilnefndur sem framkvæmdastjóri ESB á sviði varnar- og geimmála en átti eftir að hljóta staðfestingu í embættið. Í máli Hans Christian Hveem Kjølseth kom fram að hernaður Rússa í Úkraínu fæli í sér brot á alþjóðalögum og lögum á sviði mannúðarmála. Noregur hafi samþykkt stuðningsáætlun og fjárfesting í hernaðarstuðningi muni fara úr 75 í 110 milljónir norskra króna fram til ársins 2030. Þá fari varnarmálaiðnaður Noregs stækkandi. Birgðir fari hins vegar minnkandi og það verði að auka framleiðslu til að halda í við þessa þróun. Andrius Kubilius sagði fyrsta verkefni sitt verða að vinna að hvítbók um evrópsk varnarmál. Horfa verði strategískt á verkefnið og vera með áætlun sem geri ráð fyrir verstu sviðsmyndum. Rússneska hagkerfið sé stríðshagkerfi og eyði meira í hernað en ESB getur varið á næsta ári. Áætlun ESB muni taka mið af áætlunum NATO. Jafnframt þurfi að efla iðnaðinn á þessu sviði. Í gildi sé áætlun sem styðji við framleiðslu á hergögnum en auka þurfi við stuðninginn. Í umræðum um þetta málefni kom m.a. fram að klofinn iðnaður innan Evrópu skapi vandamál sem verði að leysa. Birgir Þórarinsson spurði Kubilius um áhrif stríðsins á rússneska hagkerfið, hversu lengi það geti haldið út með þessu móti. Því var svarað að erfitt væri að gera áætlanir sem gangi út á að efnahagsvandræði skapist. Það séu gögn um að hagkerfi landsins byggi á þessum hernaði. Landið sé að nútímavæðast hernaðarlega samanborið við árið 2022 og er að læra hvernig það eigi að komast fram hjá þvingunaraðgerðum. Hann leyfi sér því ekki að vera vongóður um að hagkerfi landsins gefi eftir þótt sumir segi að seinni hluti ársins 2025 verði erfiður fyrir landið. Á meðan á fundinum stóð var vakin athygli á því að ráðið hefði samþykkt einróma nýjan þvingunaraðgerðapakka ESB. Birgir Þórarinsson sagði við það tilefni að Rússar væru að koma sér fram hjá þessum þvingunaraðgerðum, til að mynda veiti Aserbaísjan þeim hjálparhönd, og spurði hvað hægt væri að gera við þessu. Í umræðum kom fram að ganga þurfi lengra og efla eftirfylgni. Þetta sé spurning um fjármagn sem er sett í verkefnið.
    Næsta dagskrármál var um samkeppnishæfni Evrópu til framtíðar litið. Frummælendur voru Christophe Grudler, Evrópuþingmaður, og Anniken Hauglie, staðgengill framkvæmdastjóra samtaka atvinnulífsins í Noregi. Í umræðum var áhyggjum lýst yfir því að Bandaríkin og Kína væru að stinga Evrópu af í tækniþróun sem hefði óhjákvæmilega neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Evrópu. Meðal þess sem einnig var bent á að takast þyrfti á við til að efla samkeppnishæfni væri samræmi á sviði fjármálaþjónustu, fjarskipta og orkumála. Skortur á því valdi því að mismunandi landsreglur flæki regluverk og veiki innri markaðinn. Í máli Anniken Hauglie var vakin athygli á því að EES stuðli að 410 þúsund störfum í Noregi.
    Loks var rætt um samband Sviss og ESB en viðræður eru í gangi þeirra á milli um uppfærslu á samningum um aðild Sviss að innri markaðnum. Framsögumenn voru Hans-Peter Portmann, þingmaður svissneska þingsins, og Christophe Grudler, Evrópuþingmaður. Í máli þeirra kom fram að vinnan við uppfærslu samninganna væri á lokametrunum og að vonast væri eftir því að hægt yrði að skrifa undir í desember. Aðkoma Sviss að innri markaðnum byggist á tvíhliða samningum. Viðræðurnar hafi farið fram í 14 mismunandi hópum og í 140 samningaumferðum. Þá sé vinna við að innleiða evrópska löggjöf í svissneskan rétt í gangi. Stefnt væri að því að búa til sameiginlega þingmannanefnd á milli Sviss og ESB. Fara mun fram þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 um niðurstöðu samninga og ómögulegt að spá fyrir um niðurstöðu. Útlendingamál, fullveldisframsal og greiðslur í þróunarsjóð verða stóru málin í umræðu fyrir atkvæðagreiðsluna.



Fylgiskjal VI.


F R Á S Ö G N
af fundum þingmannanefndar og ráðherra EFTA í Brussel 25.–26. nóvember 2024.


    Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sótti Birgir Þórarinsson fundinn, auk Eggerts Ólafssonar, ritara. Þingmannanefnd EFTA átti ásamt ráðgjafarnefnd EFTA fundi með fulltrúa ráðherraráðs EFTA um fríverslunarmál og fund með utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna innan EES um EES-samstarfið. Að auki hélt þingmannanefndin eigin fund.
    Þingmannanefnd EFTA og ráðgjafarnefnd EFTA fengu þrjár kynningar sem tengdust þróun Evrópumála og EES-samningsins. Í fyrsta lagi fjallaði Guntram Wolff, hagfræðingur hjá ráðgjafarfyrirtækinu Bruegel, um forgangsröðun ESB á sviði samkeppnishæfni og varnarmála. Hann ræddi mögulegar afleiðingar tollastríðs sem myndi vera áfall fyrir verga framleiðslu Evrópulanda. Um varnarmál sagði hann að umfangslítill varnariðnaður Evrópu í samanburði við þann rússneska sé mikil áskorun og spurning hvort innri markaðurinn geti brugðist við þessum áskorunum. Til að geta tekist á við þessar áskoranir og fjármagnað aðgerðir er það mat Wolff að þörf sé á að samþætta fjármálamarkaði í Evrópu. Fjallaði hann einnig um tillögur sem er að finna í skýrslum Enricos Lettas og Marios Draghis. Birgir Þórarinsson spurði um hvort hvatt sé til aukinnar fjárfestingar meðal ríkja ESB í framleiðslu á sviði varnarmála. Wolff vísaði m.a. til yfirlýsinga Ursulu von der Leyen um að styrkja eigi þennan iðnað. Því næst var fjallað um styrkingu innri markaðarins. Gestur fundarins var Jacques Pelkmans, ráðgjafi hjá CEPS og gestafyrirlesari hjá Evrópuháskólanum í Brugge. Í máli hans kom fram að það yrði að grípa til róttækra aðgerða á innri markaðnum, af sömu stærðargráðu og ráðist var í á níunda áratugnum með tilkomu innri markaðarins. Þetta nái til fjármálamarkaðarins til að bæta fjárfestingarumhverfið í Evrópu. Að síðustu var fjallað um svokallaðar þverlægar gerðir á innri markaðnum. Elisabeth Walaas, formaður starfshóps um þessi málefni, kynnti málið. Starfshópurinn fjallaði um hvernig EES-EFTA-ríkin ættu að leysa þær áskoranir sem leiddu af þessum gerðum. Á síðastliðnum 30 árum hafi innri markaðurinn þróast og hann þróast enn, nú í ljósi stöðunnar á alþjóðavettvangi. Áherslan sé nú á að taka á stöðu innri markaðarins gagnvart öðrum mörkuðum á alþjóðavísu. Gerðir hafi því tekið á innri markaðnum í heild en ekki á sértækum sviðum. Þá sé einnig fjallað um utanríkisviðskipti í þessum gerðum sem skapar vandamál gagnvart EES-samningnum. Niðurstaðan er að finna verði lausn á því ella gæti innri markaðurinn gliðnað og er það ekki þróun sem menn vilja. Leggja verði áherslu á tilgang EES-samstarfsins í þessu sambandi.
    Næsti fundur þingmannanefndarinnar og ráðgjafarnefndarinnar var með utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna, Esper Eide, utanríkisráðherra Noregs, Dominique Hasler, utanríkisráðherra Liechtensteins, og Kristjáni Andra Stefánssyni, sendiherra. Á fundinum var rætt um stöðu EES-samningsins á umbreytingartíma á alþjóðavettvangi. Ráðherrarnir lögðu áherslu á að EFTA-ríkin yrðu þátttakandi í þróun Evrópu, að auka þyrfti samkeppnishæfni svæðisins og vinna saman að grænu umskiptunum. Sendiherra Íslands, Kristján Andri Stefánsson, lagði áherslu á að varast ætti of mikla ríkisstyrki sem kæmu sér illa fyrir smáríki. Í umræðum var spurt hvernig EFTA-ríkin hygðust gæta þess að lenda ekki í tollum bæði frá Bandaríkjunum og Evrópu. Einnig var spurt um fyrirhugaða löggjöf Evrópu á innri markaðnum og hvort ekki væri hætta á að EFTA-löndin dragist aftur úr Evrópu ef hún er ekki tekin upp í EES-samninginn. Mat ráðherranna var að ESB skilji stöðu EES-landanna. Tollamálin þurfi samtal þannig að EFTA-löndin lendi ekki á milli aðilanna. Þetta eigi að vera ofarlega á baugi og framkvæmdastjórn ESB hefur sagt að hún muni huga að stöðu EFTA-landanna. Eitt vandamál í þessu sambandi sé upptökuhallinn. Þótt EFTA-löndin hafi staðið sig betur hafi upptökuhallinn aukist vegna fjölda gerða. Skiptir það máli að vinna hratt til að tryggja góð samskipti. Birgir Þórarinsson spurði hvað EES-ríkin gerðu til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri hvað varðar löggjöf ESB sem snýr að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þessu var svarað þannig að hvatt væri til betri reglusetningar og hafa yrði í huga að tekið væri tillit til allra aðila, ekki bara þeirra stóru. EFTA-löndin ráði hins vegar ekki för í lagasetningu en til að ná árangri verði þau að koma sjónarmiðum snemma á framfæri. Um þverlægar gerðir var sagt að gerðir af þessu tagi geta haft áhrif á þátttöku EFTA-landanna á innri markaðnum. Stjórnvöld væru að fara yfir tillögur og áætla að gera tillögur starfshópsins að aðgerðum fyrir lok árs.
    Nefndirnar tvær fengu síðan kynningu á áhrifamati á ákvæðum um sjálfbærni í fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Taílands. Gestur á fjarfundi var Elitsa Garnizova frá London School of Economics. Hún sagði að þetta væri flókið mál sem notað hafi verið í tengslum við fríverslunarviðræður. Reynt væri að meta þetta til 2030 og áhrifin á alla samningsaðila. Talið er að samningurinn muni auka vöruflutninga til allra aðila en einnig auka þjónustuviðskipti, til að mynda í ferðamennsku. Þá er talið að samningurinn geti haft jákvæð áhrif á réttindi launafólks sem vinnur í verksmiðjum. Þá þurfi að veita Taílandi stuðning við að styrkja mannréttindi og réttarríkið. Starfsfólk í fataframleiðslu og landbúnaði sé viðkvæmt. Varðandi umhverfisáhrif þá er talið að útblástur muni í fyrstu aukast lítillega en samningurinn eigi síðan eftir að leiða til lægri útblásturs á heimsvísu. Mest er þörfin á eftirliti hvað varðar skógareyðingu.
    Síðasti sameiginlegi fundur nefndanna var með starfandi formanni ráðherraráðs EFTA, Tomas Norvoll, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs. Hann fjallaði um stöðu fríverslunarviðræðna sem EFTA á í með ríkjum utan innri markaðarins, svokölluðum þriðju ríkjum. Rætt var um stefnu Evrópusambandsins í alþjóðaviðskiptum, sem leggi áherslu á samkeppnishæfni, öryggi og varnir. Þá var rætt um stöðu EFTA-ríkjanna í ljósi viðskiptastefnu Bandaríkjanna. Þótt ekki séu fríverslunarviðræður í gangi milli EFTA og Bandaríkjanna sé virkt samtal milli aðila um viðskiptastefnu. Þá var fjallað um fríverslunarsamninga við Indland og Kósovó sem lokið hefur verið við, uppfærslu samnings við Úkraínu og Mexíkó og stöðu annarra viðræðna, til að mynda við Malasíu og Mercosur-ríkin. Birgir Þórarinsson spurði í tengslum við fríverslunarsamning við Indland hvað myndi gerast ef EFTA-ríkin uppfylltu ekki kröfur um fjárfestingu í Indlandi. Þessu var svarað þannig að sett væru viðmið um fjárfestingu. Ef þau náist ekki þá séu ákvæði um viðræður við EFTA-ríkin og hvernig Indland megi bregðast við.
    Að síðustu hélt þingmannanefnd EFTA fund þar sem fjallað var stjórnmálaþróun í EFTA-ríkjunum og fjallaði Birgir Þórarinsson um ríkisstjórnarslit og boðaðar kosningar 30. nóvember 2024. Hann fjallaði einnig um stöðu efnahagsmála og jarðhræringa á Reykjanesskaga. Á fundinum var jafnframt tekin ákvörðun um formann og varaformann þingmannanefndarinnar árið 2025. Formennska færist á milli ríkja og kemur í hlut Íslands að leiða þingmannanefndina.