Ferill 92. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 92 — 92. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar ÖSE-þingsins fyrir árið 2024.
1. Inngangur.
Á vettvangi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE-þingsins, árið 2024 var árásarstríð Rússlands í Úkraínu enn í brennidepli og áhrif þess á starfsemi ÖSE og ÖSE-þingsins. Þá var umræða um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs mikil. Tvö ár voru liðin frá allsherjarinnrás Rússlands sem hófst 24. febrúar 2022 þegar vetrarfundur ÖSE-þingsins stóð yfir í Vín. Ekki hefur náðst pólitísk samstaða um að vísa Rússlandi burt af ÖSE-þinginu. Til þess þarf að gera breytingar á starfsreglum þess og þær þarf að samþykkja samkvæmt afbrigði af svokallaðri samstöðureglu (e. consensus-minus-one). Hún felur í sér að tvö eða fleiri ríki geta staðið í vegi fyrir því að slíkar breytingar nái fram að ganga. Rússar sendu ekki þingmenn á vetrarfund. Fundurinn einkenndist m.a. af umræðu um stöðu stofnunarinnar og því hvernig hægt yrði að tryggja henni nægt fjármagn svo að hún gæti sinnt hlutverki sínu til fulls þrátt fyrir að Rússar greiði ekki aðildargjöld. Þá var ástandið á Gaza og samskipti Armena og Asera í brennidepli.
Á ársfundi ÖSE-þingsins í Búkarest í Rúmeníu um mánaðamót júní og júlí voru aðaláherslumál enn árásarstríð Rússa í Úkraínu og átök fyrir botni Miðjarðarhafs. Þá var fjallað um flóttamannamál, mansal, fjölmiðlafrelsi og gervigreind svo að dæmi séu tekin. Á ársfundi tókst að samþykkja fjárhagsáætlun og móta leiðir til að vinna bug á áskorunum sem fylgja stöðvun á fjárframlögum Rússlands. ÖSE-þingið samþykkti á ársfundi Búkarest-yfirlýsinguna sem sett var saman úr ályktunum málefnanefndanna þriggja auk aukaályktana sem lagðar voru fram af einstökum þingmönnum. Birgir Þórarinsson, formaður Íslandsdeildar ÖSE-þingsins, var kjörinn formaður 1. nefndar um stjórnmál og öryggismál í lok ársfundar.
Haustfundur ÖSE-þingsins fór fram í Dyflinni á Írlandi 2.–4. október og bar yfirskriftina „Fimmtíu ár frá Helsinki-lokagerðinni: Hlutverk þingmanna í að styrkja alhliða líkan ÖSE um frið og öryggi“. Meginþemað var að leggja áherslu á mikilvægi alþjóðasamtaka þingmanna eins og ÖSE-þingsins. Sagði Pia Kauma, forseti ÖSE-þingsins, að pólitískur vilji og samtal væri nauðsynlegt til að takast á við verkefni eins og átakalausnir, loftslagsmál og fólksflutninga.
Í maí sótti Birgir Þórarinsson, formaður Íslandsdeildar, formannafund NB8-ríkja (Norðurlanda og Eystrasaltsríkja) í Kaupmannahöfn. Þar voru helstu dagskrármál undirbúningur fyrir ársfund ÖSE-þingsins í Búkarest og staða Rússa á ÖSE-þinginu. Birgir Þórarinsson og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður í Íslandsdeild, tóku þátt í kosningaeftirliti í Bandaríkjunum í nóvember þegar forsetakosningar fóru fram.
2. Almennt um ÖSE-þingið.
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, starfar á grundvelli Helsinki-lokagerðarinnar (e. Helsinki Final Act) frá árinu 1975. Með Helsinki-lokagerðinni skuldbundu aðildarríki sig til þess að bæta samstarf sín á milli, virða landamæri hvert annars og tryggja mannréttindi íbúa sinna. Markmið ÖSE er að stuðla að friði, öryggi, lýðræði og samvinnu á starfssvæði sínu og standa vörð um virðingu fyrir mannréttindum og meginreglum réttarríkisins. ÖSE sinnir hlutverki sínu m.a. með baráttu gegn hryðjuverkum, mansali, þjóðernisofstæki, eiturlyfjasmygli og ólöglegri vopnasölu.
Á leiðtogafundi ÖSE vorið 1990 var Parísarsáttmálinn samþykktur (e. Charter of Paris for a New Europe). Sáttmálinn kveður m.a. á um stofnun formlegs vettvangs fyrir þingmenn. ÖSE-þingið og ÖSE eru þannig greinar af sama meiði. Fyrsti fundur ÖSE-þingsins var haldinn í júlí 1992. Aðild að ÖSE-þinginu eiga 57 þjóðþing í Evrópu, Norður-Ameríku og Mið-Asíu. Þingið er skipað 323 fulltrúum. Þar af á Alþingi þrjá.
Hlutverk ÖSE-þingsins er að hafa áhrif á stefnumótun og áherslur í starfi ÖSE og að hafa eftirlit með og meta árangurinn af starfi stofnunarinnar. Í málefnanefndum þingsins er unnið að undirbúningi ályktana. Þær eru síðan afgreiddar á ársfundi og komið á framfæri við ráðherraráð ÖSE, sem er vettvangur utanríkisráðherra aðildarríkjanna, og við fastaráð ÖSE en þar eiga sæti sendiherrar eða fastafulltrúar aðildarríkja gagnvart ÖSE. Fastaráðið fundar vikulega í Vín. Í samspili við ÖSE er þingið hugmyndabanki fyrir áherslur í starfi ÖSE auk þess sem þingið veitir ÖSE bæði stuðning og aðhald með eftirliti sínu og umræðu um starf stofnunarinnar. Hvað viðvíkur formlegum samskiptum ÖSE-þingsins og ÖSE þá ávarpar formaður ráðherraráðs ÖSE-þingið og gefur skýrslu um verkefni sem unnið er að hjá ÖSE. Þá geta þingfulltrúar beint fyrirspurnum til ráðherrans. ÖSE-þingið tekur einnig þátt í því að þróa leiðir til að koma í veg fyrir ágreining milli ríkja og stuðla að eflingu lýðræðislegra stofnana á því svæði sem starfsemi ÖSE tekur til. Að lokum hefur kosningaeftirlit verið eitt helsta verkefni þingsins frá upphafi. Sú starfsemi hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. ÖSE-þingið hefur samvinnu við lýðræðis- og mannréttindastofnun ÖSE (ODIHR) um kosningaeftirlit. Einnig hefur ÖSE-þingið samvinnu um kosningaeftirlit við aðrar fjölþjóðlegar þingmannasamkundur, eins og Evrópuráðsþingið og Evrópuþingið.
ÖSE-þingið kemur saman til ársfundar í allt að fimm daga í júlí. Einstök aðildarríki skiptast á að halda ársfund. Ársfundur afgreiðir mál úr öllum þremur málefnanefndum þingsins í formi ályktunar ársfundar. Auk þess geta einstakir þingmenn eða landsdeildir lagt fram ályktunartillögur sem verða hluti af ályktun ársfundar ef þær hljóta samþykki í atkvæðagreiðslu.
Málefnanefndirnar eru nefnd um stjórnmál og öryggismál (1. nefnd), nefnd um efnahags-, vísinda-, tækni- og umhverfismál (2. nefnd) og nefnd um lýðræðis- og mannréttindamál (3. nefnd). Formaður, varaformaður og skýrsluhöfundur hverrar málefnanefndar eru kjörnir af viðkomandi nefnd í lok hvers ársfundar. Skýrsluhöfundur nefndar velur málefnið sem tekið verður fyrir í nefndinni það ár í samráði við formann og varaformann viðkomandi nefndar. Síðan undirbýr skýrsluhöfundur skýrslu og drög að ályktun sem lögð er fyrir nefndina til umræðu og að lokum til umræðu og afgreiðslu á ársfundi. Málefnanefndir þingsins koma einnig saman á vetrarfundi sem haldinn er í Vín í febrúar ár hvert. Þar fá þingmenn einnig tækifæri til að hlýða á framlag fastafulltrúa og embættismanna ÖSE sem hafa aðsetur í Vín, eins og fyrr segir. Auk ársfundar og vetrarfundar er haldinn haustfundur þar sem stjórnarnefnd og framkvæmdastjórn þingsins koma saman auk þess sem árleg málefnaráðstefna þingsins fer fram.
Þessu til viðbótar getur forseti þingsins skipað tímabundið sérlega fulltrúa og stjórnarnefnd tekið ákvörðun um stofnun sérnefndar (e. ad hoc committee) til að ræða, taka afstöðu til og vera ráðgefandi um aðkallandi málefni eða úrlausnarefni. Einnig eru stofnaðir sérstakir vinnuhópar (e. working group) og þingmannalið (e. parliamentary team) um ákveðin málefni. Sérnefndir hafa t.d. verið stofnaðar um málefni Abkasíu, Kósovós og Belarúss og um fangabúðir Bandaríkjahers í Guantánamo á Kúbu. Starf sérnefnda hefur oftar en ekki skilað miklum árangri við að fá deiluaðila að samningaborðinu og við að upplýsa mál og kynna fyrir almenningi. Í lok árs 2024 voru starfandi sérstakar nefndir eða hópar um fólksflutninga, baráttu gegn hryðjuverkum, starfsreglur og vinnulag ÖSE-þingsins og um málefni Úkraínu. Forseti ÖSE-þingsins getur einnig skipað sérlega fulltrúa í tilteknum málum. Í lok árs 2024 voru starfandi sérlegir fulltrúar um málefni norðurslóða, gervigreind, Mið-Asíu, loftslagsbreytingar, baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi, lýðræðisbreytingar og öryggi, upplýsingaóreiðu og áróður, baráttu gegn spillingu, jafnrétti kynjanna, mansal, málefni Miðjarðarhafsins, pólitíska fanga, Suður-Kákasussvæðið, Suðaustur-Evrópu og um virkjun ungmenna.
3. Íslandsdeild ÖSE-þingsins.
Við upphaf árs 2024 áttu eftirfarandi aðalmenn sæti í Íslandsdeild ÖSE-þingsins: Birgir Þórarinsson, formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Páll Jóhannsson, varaformaður, þingflokki Samfylkingarinnar, og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingflokki Framsóknarflokksins. Varamenn voru Bryndís Haraldsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Dagbjört Hákonardóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, og Ágúst Bjarni Garðarsson, þingflokki Framsóknarflokksins. Hinn 22. janúar tók Dagbjört Hákonardóttir sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild í stað Jóhanns Páls Jóhannssonar en hann tók sæti sem varamaður í stað Dagbjartar Hákonardóttur. Hún varð um leið varaformaður Íslandsdeildar ÖSE-þingsins. Íslandsdeild var þannig skipuð fram að alþingiskosningum 30. nóvember 2024. Ritari Íslandsdeildar þar til í mars 2024 var Auður Örlygsdóttir, sérfræðingur í alþjóðamálum, en þá tók Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum, við.
Skipan málefnanefnda starfsárið 2024 var eftirfarandi:
1. Nefnd um stjórnmál og öryggismál Birgir Þórarinsson.
2. Nefnd um efnahags-, vísinda-, tækni- og umhverfismál Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.
3. Nefnd um lýðræðis- og mannréttindamál Jóhann Páll Jóhannsson/
Dagbjört Hákonardóttir.
Á ársfundi 2024 var Birgir Þórarinsson kjörinn formaður 1. nefndar um stjórnmál og öryggismál.
Íslandsdeild hélt tvo fundi á árinu. Þar var þátttaka í fundum ÖSE-þingsins undirbúin auk þess sem formaður skýrði frá formannafundi landsdeilda NB8-ríkja.
Birgir Þórarinsson og Dagbjört Hákonardóttir tóku þátt í kosningaeftirliti á vegum ÖSE-þingsins í Bandaríkjunum í nóvember þegar forsetakosningar fóru fram. Birgir sinnti eftirliti í Nevada-ríki og Dagbjört í Michigan-ríki.
4. Fundir ÖSE-þingsins árið 2024.
Á venjubundnu ári kemur ÖSE-þingið þrisvar saman til funda. Vetrarfundur er haldinn í febrúar, ársfundur í júlí og haustfundur í október.
Vetrarfundur ÖSE-þingsins í Vín 22.–23. febrúar 2024.
Fundur ÖSE-þingsins var haldinn í Vín venju samkvæmt. Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins tóku þátt í fundinum Birgir Þórarinsson, formaður, Dagbjört Hákonardóttir, varaformaður, og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum. Helsta umræðuefni fundarins var staða stríðsins í Úkraínu en tvö ár voru liðin frá innrás rússneska hersins um það leyti sem fundur var haldinn (sjá fylgiskjal I).
Fundur formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) á ÖSE-þinginu.
Fundur formanna NB8-ríkja fór fram í Kaupmannahöfn í maí. Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sótti Birgir Þórarinsson fundinn, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Þar var rætt um mikilvægi þess að Norðurlönd og Eystrasaltsríki (NB8-ríki) stæðu saman sem ein heild. Þannig heyrðist rödd þeirra betur og auðveldara væri að koma skilaboðum á framfæri. Mikilvægi þess að sýna stuðning við Úkraínu í verki og leiðir til þess voru ræddar (sjá fylgiskjal II).
Ársfundur ÖSE-þingsins í Búkarest í Rúmeníu.
Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sóttu fundinn Birgir Þórarinsson, formaður, Dagbjört Hákonardóttir, varaformaður, og Ágúst Bjarni Garðarsson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Á ársfundi var samþykkt Búkarest-yfirlýsingin sem sett var saman úr ályktunum málefnanefndanna þriggja og aukaályktunum sem lagðar voru fram af einstökum þingmönnum. Meðal áherslumála voru árásarstríð Rússa í Úkraínu, átök fyrir botni Miðjarðarhafs, flóttamannamál, mansal, fjölmiðlafrelsi og gervigreind. Fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2024–2025 var samþykkt og Roberto Montella var endurkjörinn sem framkvæmdastjóri ÖSE-þingsins til næstu fimm ára (sjá fylgiskjal III).
Haustfundur ÖSE-þingsins í Dyflinni á Írlandi.
Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sóttu fundinn Birgir Þórarinsson, formaður, og Ágúst Bjarni Garðarsson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Fundurinn bar yfirskriftina „Fimmtíu ár frá Helsinki-lokagerðinni: Hlutverk þingmanna í að styrkja alhliða líkan ÖSE um frið og öryggi“ (sjá fylgiskjal IV).
Alþingi, 6. febrúar 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Pawel Bartoszek. |
Fylgiskjal I.
FRÁSÖGN
af vetrarfundi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Vín 22.–23. febrúar 2024.
Vetrarfundur ÖSE-þingsins fór að venju fram í Hofburg-höll í Vínarborg. Helsta umfjöllunarefni vetrarfundarins var árásarstríð Rússlands í Úkraínu, stuðningur ÖSE-þingsins við Úkraínu, gervigreind og pólitískir fangar. Áframhaldandi stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu bar töluvert á góma auk umræðu um dauða Alexei Navalní sem lést nýverið í haldi rússneskra stjórnvalda. Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sóttu fundinn Birgir Þórarinsson, formaður, Dagbjört Hákonardóttir, varaformaður, og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, auk Auðar Örlygsdóttur, sérfræðings í alþjóðamálum.
Vetrarfundur fór fram í skugga árásarstríðs Rússlands í Úkraínu en tvö ár voru liðin frá allsherjarinnrás Rússlands sem hófst 24. febrúar 2022. ÖSE-þingið hefur allt frá upphafi fordæmt innrásina harðlega og sagt hana skýlaust brot á alþjóðalögum og grunngildum ÖSE á borð við lýðræði, mannréttindi og réttarríkið. Þrátt fyrir harða gagnrýni hefur ekki náðst pólitísk samstaða um að vísa Rússlandi burt af ÖSE-þinginu. Til þess þarf að gera breytingar á starfsreglum þess og þær þarf að samþykkja samkvæmt afbrigði af svokallaðri samstöðureglu (e. consensus-minus-one). Hún felur í sér að tvö eða fleiri ríki geta staðið í vegi fyrir því að slíkar breytingar nái fram að ganga.
Í viðleitni sinni til að hindra þátttöku landsdeildar Rússlands hafa ríki brugðið á það ráð að veita rússneskum þingmönnum ekki vegabréfsáritun til þess lands sem heldur fundinn hverju sinni og þannig komið í veg fyrir þátttöku þeirra. Sú leið hefur ekki verið fær í Austurríki þar sem stjórnvöldum þar í landi er skylt að lögum að veita sendinefndum aðildarríkja ÖSE og annarra alþjóðlegra stofnana sem staðsettar eru í Vín vegabréfsáritun til landsins. Þetta hefur gert það að verkum að rússneskir þingmenn hafa tekið þátt í vetrarfundum ÖSE-þingsins í Vín, bæði þegar allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu hófst og eins þegar ár var liðið frá innrásinni. Sú varð þó ekki raunin í ár þar sem Rússland sendi ekki þingmenn til þátttöku á vetrarfundi. Rússnesk stjórnvöld höfðu gefið út yfirlýsingu í aðdraganda fundarins þess efnis að líklega myndi Rússland segja upp aðild sinni að ÖSE-þinginu og að málið yrði tekið fyrir í Dúmunni, neðri málstofu þjóðþings Rússlands, daginn fyrir vetrarfund. Þá gerðu rússnesk stjórnvöld ÖSE-þinginu ljóst að Rússar ætluðu sér ekki að greiða aðildargjöld sín til þingsins fyrir þetta starfsár líkt og undangengið ár en gjöldin nema um 6% af heildarframlögum til ÖSE-þingsins.
Áhrif af þessari ákvörðun rússneskra stjórnvalda á starfsemi þingsins hafa verið umtalsverð. Athygli stjórnarnefndar beindist nær alfarið að því að finna leiðir til að vega upp þennan skort á fjármagni til rekstrar þingsins. Fram kom að afar mikilvægt væri að ná samkomulagi um farsæla lausn þar sem fyrir lægi að samþykkja fjárhagsáætlun ÖSE-þingsins á komandi ársfundi í Búkarest í Rúmeníu í lok júní. Ef sátt næðist ekki um fjárhagsáætlun, sem samþykkja þarf með afbrigði af samstöðureglu, kæmi það verst niður á ÖSE-þinginu og starfsemi þess. Í umræðum greindi þingmenn helst á um það hvort takast ætti á við skort á fjármagni með hækkun aðildargjalda eða hvort skera þyrfti niður í starfseminni.
Í ávarpi Helgu Schmid, framkvæmdastjóra ÖSE, við upphaf þingfundar komu fram upplýsingar um áhrif árásarstríðs Rússlands á fjármögnun ÖSE. Fjárhagsáætlun fyrir stofnunina hefði ekki verið samþykkt þriðja starfsárið í röð. Þrátt fyrir þetta ynni starfsfólk ómetanlegt starf fyrir stofnunina sem næði að sinna mikilvægu hlutverki sínu. Við þetta má bæta að erfiðlega gekk að skipa í lykilstöður fyrir yfirstandandi starfsár, þar með talið í stöðu framkvæmdastjóra ÖSE og framkvæmdastjóra lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE (e. ODIHR). Töluverð óvissa er því um framhaldið. Þá má einnig geta þess að Rússland stóð í vegi fyrir því að Eistland tæki við formennsku í ráðherraráði ÖSE og því þurfti að semja um formennsku í ráðinu samhliða umræðu um fjárhagsáætlun og skipan í lykilstöður innan ÖSE. Niðurstaðan varð sú að Malta tók við keflinu og fer með formennsku í ráðherraráði ÖSE fyrir árið 2024. Ian Borg, utanríkis-, viðskipta- og Evrópumálaráðherra Möltu, ávarpaði fundinn af því tilefni og gerði grein fyrir forgangsmálum Möltu í formennskutíð sinni í ráðinu. Auk þess ávarpaði Wolfgang Sobotka, forseti þjóðþings Austurríkis, þingið.
Vetrarfundur ÖSE-þingsins einkenndist því af umræðu um stöðu stofnunarinnar og hvernig hægt yrði að tryggja henni nægt fjármagn svo að hún gæti sinnt hlutverki sínu til fulls. Önnur mikilvæg pólitísk málefni voru einnig í brennidepli. Má þar nefna neyðarástand á Gaza vegna hernaðaraðgerða Ísraelshers á svæðinu og samskipti Armena og Asera í kjölfar innrásar Aserbaísjans í Nagornó-Karabak. Þingmenn kölluðu einnig eftir því að kollegar þeirra frá Bandaríkjunum beittu sér fyrir því að samstaða næðist um áframhaldandi stuðning ríkisins við Úkraínu. Margir bandarískir þingmenn voru samþykkir þessum áherslum en þó virtist ekki gæta algerrar samstöðu í landsdeild Bandaríkjanna í málinu. Aðild stjórnvalda í Rússlandi að dauða stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís var fordæmd. Við upphaf þingfundar óskaði Pia Kauma, forseti ÖSE-þingsins, þess að þingmenn vottuðu Navalní virðingu sína með einnar mínútu þögn. Baráttu úkraínsku þjóðarinnar var einnig minnst með einnar mínútu þögn.
Birgir Þórarinsson tók til máls í almennri umræðu um öryggi í Evrópu og um sýn þingmanna á framtíð ÖSE. Í ræðu sinni sagði hann að aukin samvinna og úrræði vegna brottnáms úkraínskra barna væri algjört forgangsmál. Mikilvægt væri að þingmenn legðu sitt af mörkum til að koma á samskiptum milli aðila í Rússlandi og Úkraínu svo að tryggja mætti að börnin kæmust aftur til síns heima. Hann sagði að brottnámið væri stríðsglæpur og visst form þjóðarmorðs þar sem verið væri að ræna börnin framtíð sinni og sjálfsmynd. Dagbjört Hákonardóttir flutti einnig ræðu við sömu umræðu. Hún krafðist skjótra viðbragða alþjóðasamfélagsins vegna neyðarástands í mannúðarmálum á Gaza. Hún fordæmdi aðgerðir einstakra ríkja sem fryst hefðu fjárframlög til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu (e. UNRWA) og hvatti þingmenn til að beita sér fyrir tafarlausu vopnahléi á svæðinu.
Birgir Þórarinsson tók þátt í fundi 1. nefndar um stjórnmál og öryggismál þar sem fram fór sérstök umræða um starf ÖSE í Úkraínu á stríðstímum. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir sat fund 2. nefndar um efnahagsmál, vísindi, tækni og umhverfismál en þar var sjónum beint að gervigreind og öryggisafleiðingum hennar við sérstaka umræðu. Lilja Rannveig tók til máls undir þeim lið og fjallaði um mikilvægi þess að bregðast við nýjum veruleika með nauðsynlegu regluverki en gæta þyrfti þess jafnframt að það bitnaði ekki á mikilvægri nýsköpun á þessu sviði. Hættan væri mikil og því nauðsynlegt að banna misnotkun gervigreindar sem stríddi gegn mannréttindum, persónuvernd og almennu siðferði. Þá sótti Dagbjört Hákonardóttir fund 3. nefndar um lýðræðis- og mannréttindamál en þar voru málefni pólitískra fanga í brennidepli við sérstaka umræðu nefndarinnar með þátttöku Svjatlönu Tsíkanóskaju, leiðtoga lýðræðisafla í Belarús. Dagbjört ávarpaði nefndina undir þeim dagskrárlið þar sem hún þakkaði Tsíkanóskaju fyrir óeigingjarna og mikilvæga baráttu hennar í þágu lýðræðisins. Hún sagði atorku hennar og baráttuvilja gefa fólki von sem næði langt út fyrir Belarús og sýndi fram á mátt einnar manneskju gagnvart einræði og valdníðslu.
Íslandsdeild átti einnig fund með fastafulltrúa ÖSE í Vín, Helgu Hauksdóttur, og þá sat Birgir Þórarinsson fund með formönnum landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á ÖSE-þinginu. Frekari upplýsingar um vetrarfund ÖSE-þingsins má finna hjá ritara Íslandsdeildar og á vef ÖSE-þingsins, www.oscepa.org.
Fylgiskjal II.
FRÁSÖGN
af samráðsfundi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Kaupmannahöfn 14. maí 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sóttu fundinn Birgir Þórarinsson, formaður, og Hildur Edwald, sérfræðingur í alþjóðamálum. Fundinn sóttu ellefu þingmenn Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á ÖSE-þinginu auk þess sem forseti þingsins, Pia Kauma, tók þátt í hluta fundarins á fjarfundi. Á dagskrá var undirbúningur fyrir ársfund þingsins í Búkarest 29. júní til 3. júlí og staða Rússa á ÖSE-þinginu.
Peter Juel-Jensen, formaður landsdeildar Danmerkur, setti fund og bauð alla velkomna. Hann lagði áherslu á að þingmenn yrðu að horfa til þess tíma þegar allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu lyki. ÖSE-þingið ætti við ramman reip að draga en þingmenn þyrftu að sýna styrk og vinna saman þegar Úkraína sigraði í stríðinu. Hann sagði frá því helsta úr dönskum stjórnmálum og tók fram að í Danmörku væri óskiptur stuðningur við Úkraínu. Því næst sagði hver og einn formaður frá stjórnmálaástandinu og því sem helst væri á döfinni í hverju landi. Rauði þráðurinn er að alls staðar er einhugur um stuðning við Úkraínu auk þess sem aukning fjárframlaga og aukin áhersla á varnarmál eru ofarlega á baugi. Birgir Þórarinsson sagði frá nýrri ríkisstjórn á Íslandi og reifaði helstu mál sem til umræðu eru í íslenskum stjórnmálum, svo sem útlendingamál, háa verðbólgu og vexti.
Á fundinum kom fram mikilvægi þess að Norðurlönd og Eystrasaltsríki (NB8) stæðu saman sem ein heild. Þannig heyrðist rödd þeirra betur og auðveldara væri að koma skilaboðum á framfæri. Mikilvægi þess að sýna stuðning við Úkraínu í verki var nefnt og leiðir til þess ræddar.
Aukið samstarf NB8-ríkja við Mið-Asíuríki var einnig rætt. Þingmenn landsdeildar Svíþjóðar boðuðu fyrr á árinu til fundar til að ræða hvernig mætti koma því við. Ákveðið var að boða til fundar samhliða ársfundi í Búkarest milli NB8-ríkja og Mið-Asíuríkja (Úsbekistans, Túrkmenistans, Tadsíkistans, Kirgistans og Kasakstans) og jafnvel skipuleggja heimsókn til Kasakstans í framhaldinu. Í því samstarfi myndu NB8-ríki sýna stuðning sinn við Mið-Asíuríki og vinna að því að draga úr því hversu háð ríkin eru Rússum. Rússar kæmust hjá viðskiptaþvingunum Vesturlanda með því að eiga í viðskiptum gegnum Mið-Asíuríki. Sporna þyrfti við því.
Á fundinn mætti Flemming Splidsboel Hansen frá Rannsóknastofnun Danmerkur í alþjóðatengslum og sagði frá þróun og stöðu í Mið-Asíuríkjum. Hann benti á að þegar rætt væri um Mið-Asíu í þessu samhengi væri yfirleitt átt við fyrrverandi Sovétlýðveldi í Asíu (e. post-Soviet Asia) en ekki mætti gleyma löndum eins og Pakistan og Afganistan sem einnig væru mikilvæg. Pakistan gegndi til að mynda hlutverki þegar kæmi að útflutningi. Lönd í Mið-Asíu þyrftu að flytja út vörur gegnum Pakistan til að komast hjá því að fara gegnum Rússland.
Splidsboel Hansen sagði að kjarni málsins væri að rússneska heimsveldið, sem væri nú að hrynja, væri óformlegt heimsveldi sem vildi halda völdum í löndum eins og Moldóvu, Belarús, Georgíu og víðar. Rússar reyndu nú að ná Úkraínu á sitt vald og vonuðust til að ná fyrri áhrifum og stjórn á öðrum svæðum líka. Ríki í Mið-Asíu hefðu mikil tengsl við Rússland og farandverkamenn færu þangað til að vinna og sendu peninga heim. Stór hluti efnahags þessara ríkja byggðist á þessu fyrirkomulagi. Um væri að ræða fátæk ríki sem ættu við ýmsan vanda að etja, til að mynda mikla róttækni og trúarleg átök. Þó væru jákvæð teikn á lofti því að sum þessara ríkja reyndu nú að draga úr tengslum sínum við Rússland, festa hlutleysi sitt í sessi og byggja upp samfélagið. Þeim væri þó auðvelt að vinna með Rússum og þau kynnu það. Vesturlönd yrðu að styðja þau og aðstoða í viðleitni þeirra til að verða síður háð Rússum. Þó þyrftu vestræn ríki að gera sér raunhæfar hugmyndir í þessum efnum því að lýðræðisvæðing væri afar erfið og aðstæður til lýðræðisþróunar í þessum ríkjum að mörgu leyti verri nú en fyrir tuttugu árum.
Á fundinum voru fjármál ÖSE-þingsins rædd. Johan Büser, gjaldkeri ÖSE-þingsins og þingmaður úr landsdeild Svíþjóðar, fór yfir tillögur að fjárhagsáætlun sem hann hugðist leggja fyrir ársfund. Hann sagði að Rússar hefðu ekki greitt þátttökugjald en þeir stæðu straum af um 6% af heildarframlögum þátttakenda. Glíma þyrfti við þennan breytta veruleika og hagræða í starfi ÖSE-þingsins. Komast þyrfti að samkomulagi um hvernig það yrði gert.
Pia Kauma, forseti ÖSE-þingsins, tók þátt í dagskrárlið fundarins þar sem rætt var um ársfund í Búkarest, samstarf NB8-ríkja, aukaályktanir og kosningar og skipanir í embætti ÖSE-þingsins. Rætt var um breytingu á kjörtímabili forseta sem var áður með þeim hætti að forseti var kjörin til eins árs í senn, með möguleika á endurkjöri einu sinni í það að forseti verði kjörinn til tveggja ára. Kauma sagði einnig frá því að á ársfundi yrði umræðum á þingfundi skipt í tvennt, annars vegar yrði rætt um Úkraínu og hins vegar stöðuna í Miðausturlöndum. Þá var rætt um málefni Georgíu og umdeilt lagafrumvarp sem samþykkt var meðan á NB8-fundi stóð og snýr að fjölmiðlum. Í frumvarpinu er kveðið á um það að ef fjölmiðlar hljóta meira en 20% af fjármagni sínu frá útlöndum þurfi þeir að skrá sig sem aðila sem starfi í þágu erlends ríkis. Staða í Armeníu og Aserbaísjan var einnig rædd og kosningaeftirlit sem fram undan er.
Að loknum fundi í Kristjánsborgarhöll hélt hópurinn í heimsókn á skrifstofu ÖSE-þingsins í Kaupmannahöfn. Þar tók Roberto Montella, framkvæmdastjóri ÖSE-þingsins, á móti hópnum, sýndi honum skrifstofuna og sagði frá starfinu sem þar fer fram. Auk þess sagði hann frá því sem var á döfinni hjá sér. Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar og á vefsvæðinu www.oscepa.org.
Fylgiskjal III.
FRÁSÖGN
af ársfundi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Búkarest 29. júní til 3. júlí 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sóttu fundinn Birgir Þórarinsson, formaður, Dagbjört Hákonardóttir, varaformaður, og Ágúst Bjarni Garðarsson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Fundinn sóttu fleiri en 300 þingmenn frá ríkjum í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Á ársfundi var samþykkt Búkarest-yfirlýsingin, sem sett var saman úr ályktunum málefnanefndanna þriggja auk aukaályktana sem einstakir þingmenn lögðu fram. Meðal áherslumála voru árásarstríð Rússa í Úkraínu, átök fyrir botni Miðjarðarhafs, flóttamannamál, mansal, fjölmiðlafrelsi og gervigreind svo að dæmi séu tekin. Fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2024–2025 var samþykkt og Roberto Montella var endurkjörinn sem framkvæmdastjóri ÖSE-þingsins til næstu fimm ára.
Við setningu þingfundar ávarpaði forseti efri deildar þjóðþings Rúmeníu, Nicolae-Ionel Ciucã, fundinn. Þar kom fram að stjórnvöld í Rúmeníu hefðu hvorki veitt Rússum né Belarúsum vegabréfsáritun og því tækju þeir ekki þátt í fundinum. Hann fjallaði um árásarstríð Rússa í Úkraínu og mikilvægi þess að öll ÖSE-ríki styddu Úkraínu á allan þann hátt sem mögulegt væri, ekki einungis til að verja sig heldur einnig til að öðlast frelsi. Margar áskoranir væru uppi um þessar mundir, t.d. brot gegn mannréttindum, ógnir gegn umhverfinu, áróður sem yki öfgar og skautun, netárásir og aðrar ógnir gegn lýðræðinu. Því væri mjög áríðandi fyrir ÖSE-ríki að takast á við þessar áskoranir saman og berjast gegn þeim. Þá ávarpaði fundinn Dan Barna, varaforseti neðri deildar þjóðþings Rúmeníu og formaður landsdeildar Rúmeníu á ÖSE-þinginu. Hann fjallaði einnig um mikilvægi ÖSE-þingsins og samstarfsins þar, sérstaklega á tímum eins og nú. Hann lagði áherslu á að draga yrði Rússa til ábyrgðar og að stuðningur við Úkraínu og einnig Moldóvu væri aðalatriði. Pia Kauma, forseti ÖSE-þingsins, talaði á svipuðum nótum í ávarpi sínu. Hún fjallaði einnig um stríðið á Gaza. Nauðsynlegt væri að finna lausnir og leiðir til að stöðva slík átök og helst koma í veg fyrir þau.
Að opnunarávörpum loknum samþykkti þingið tvær ályktanir, aðra um öryggi og áskoranir á ÖSE-svæðinu, einkanlega um tíu ár af vopnuðum árásum Rússa á Úkraínu, og hina um hvernig dregið hefur úr mannréttindum í Transnistríu í Moldóvu.
Málefnanefndirnar þrjár tóku fyrir ályktanir framsögumanna nefnda og einnig aukaályktanir á málefnasviði sínu. Auk þess var kosið í embætti í nefndum. Í ályktun 1. nefndar um stjórnmál og öryggismál var sjónum beint að árásarstríði Rússa í Úkraínu og því hversu mikilvægt væri að stöðva það. Baráttan væri okkar allra en ekki bara Úkraínu. Í ályktuninni var einnig fjallað um stöðuna í Suður-Kákasuslöndunum Armeníu og Aserbaísjan. Flóttafólk, mannréttindabrot ýmiss konar, fjölmiðlafrelsi og Gaza var einnig meðal þess sem vakið var máls á í ályktuninni. Í umræðum um hana var áhersla lögð á mikilvægi þess að berjast gegn mannréttindabrotum og því að lýðræðinu væri ógnað. Sérstaklega þyrfti að veita þeim fjölda fólks sem er á flótta athygli. Fólksflótti færi sífellt vaxandi víða um heim og finna þyrfti lausnir á honum. Birgir Þórarinsson tók þátt í störfum 1. nefndar og var kjörinn formaður hennar. Það er í fyrsta sinn í sögu ÖSE-þingsins síðan starf þess hófst árið 1992 að Íslendingur gegnir formennsku í fastanefnd þingsins. Birgir fékk þar með sæti í framkvæmdastjórn ÖSE-þingsins sem formaður 1. nefndar um stjórnmál og öryggismál.
Ágúst Bjarni Garðarsson tók þátt í störfum 2. nefndar um efnahags-, vísinda-, tækni- og umhverfismál. Í ályktun nefndarinnar var lögð áhersla á fjölbreytt málefni á borð við orkuöryggi, græna orku, loftslagsbreytingar og viðbrögð við þeim. Þar var einnig fjallað um gervigreind, hraða tækniþróun, stafvæðingu og áhrif þessa á lýðræðið. Lýst var áhyggjum af umhverfisáhrifum vopnaðra átaka eins og árásar Rússa á mikilvæga innviði í Úkraínu, t.d. Kakhovka-stífluna. Þá var lögð áhersla á hraða uppbyggingu í Úkraínu sem leiddi til grænna umskipta. Í ályktuninni var einnig fjallað um vatnsskort, mengun jarðvegs í Mið-Asíu og mikilvægi þess að koma í veg fyrir misnotkun vatns á svæðinu. Áhersla var lögð á samvinnu og fjárfestingu í tækni sem ýtti undir öruggari vatnsnýtingu.
Dagbjört Hákonardóttir tók þátt í störfum 3. nefndar um lýðræðis- og mannréttindamál. Í ályktun nefndarinnar var sjónum beint að málefnum flóttafólks. Þá var fjallað um fjölmiðlafrelsi, mannréttindi og stöðu minnihlutahópa og annarra viðkvæmra hópa. Árásarstríð Rússa var einnig viðfangsefni ályktunarinnar. Þess var krafist að Rússar létu af árásum sínum, slepptu öllum pólitískum föngum og stöðvuðu mannréttindabrot. Kynferðisbrot sem vopn í átökum voru fordæmd í ályktuninni. Málefni Armeníu og Aserbaísjans voru rædd og átökin á Gaza. Árás Hamas á Gaza 7. október 2023 var fordæmd, lýst var miklum áhyggjum af stríðsglæpum á Gaza og fjallað var um bráðabirgðaúrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag um að Ísraelar hefðu mögulega framið þjóðarmorð.
Alls voru samþykktar 16 aukaályktanir á ársfundi. Þar á meðal voru ályktanir um opnar og öruggar leiðir fyrir flóttamenn, um tjáningarfrelsi og frelsi fjölmiðla, um gyðingahatur, um stuðning við Úkraínu, um gervigreind og baráttuna við hryðjuverk og um útbreiðslu fíkniefna á vegum glæpahringja og mansal sem tengist þeim.
Í umræðum um stöðuna í Mið-Austurlöndum talaði Birgir Þórarinsson um árás Hamas-samtakanna 7. október 2023 á Ísrael og afleiðingar hennar. Hann sagði að hryðjuverkasamtökin Hamas gætu bundið enda á stríðið með því að frelsa gísla og leggja niður vopn. Vesturlönd mundu ekki vinna með Hamas. Í almennum umræðum fjallaði Birgir um netárásir og sagði frá slíkum árásum sem hafa átt sér stað á Íslandi, frá árás rússneskra hópa á Árvakur og frá árásum á Alþingi og Hæstarétt Íslands rétt fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins á Íslandi. Ekkert land er öruggt fyrir netárásum og samvinna ríkja er mikilvæg í baráttunni gegn þeim. Netöryggi er mikilvægt og ÖSE-þingið þarf að hafa forystu um það. Dagbjört Hákonardóttir fjallaði í almennum umræðum um frjósemisfrelsi. Skert frelsi kvenna til frjósemi, takmarkaður aðgangur að getnaðarvörnum og frelsi til þungunarrofs er ekki aðeins staðreynd í ólýðræðislegum ríkjum heldur er þrengt að slíku frelsi í ríkjum á ÖSE-svæðinu, bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Frjósemisfrelsi er mikilvægt mannréttinda- og lýðræðismál og fyrir því þarf að berjast.
Í lok ársfundar var Pia Kauma frá Finnlandi sjálfkjörinn forseti ÖSE-þingsins en ekkert mótframboð barst. Kosið var í embætti þriggja varaforseta og voru Richard Hudson frá Bandaríkjunum, Gudrun Kugler frá Austurríki og Luís Graça frá Portúgal kjörin. Yfirlýsing ársfundar verður send til utanríkisráðherra og þjóðþinga aðildarríkja í þeirri von að hún hafi áhrif á ákvarðanir ráðherranefndar ÖSE og þar með pólitískar skuldbindingar aðildarríkja.
Meðan á ársfundi stóð var boðað til fundar formanna og varaformanna landsdeilda NB8-ríkja með formönnum og varaformönnum Mið-Asíuríkja. Fundurinn var haldinn til að þingmenn gætu kynnt sig hver fyrir öðrum og rætt hugsanlega samvinnu ríkjanna. Fundinn sóttu þingmenn frá Svíþjóð, Noregi, Íslandi, Eistlandi, Finnlandi, Danmörku, Kasakstan og Úsbekistan. Ákveðið var að stefna að aukinni samvinnu ríkjanna á milli.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar og á vefsvæðinu www.oscepa.org.
Fylgiskjal IV.
FRÁSÖGN
af haustfundi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Dyflinni 2.–4. október 2024.
Af hálfu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins sóttu fundinn Birgir Þórarinsson, formaður, og Ágúst Bjarni Garðarsson, auk Hildar Edwald, sérfræðings í alþjóðamálum. Birgir sótti fundi framkvæmdastjórnar og stjórnarnefndar ÖSE-þingsins samhliða haustfundi. Fundurinn bar yfirskriftina „Fimmtíu ár frá Helsinki-lokagerðinni: Hlutverk þingmanna í að styrkja alhliða líkan ÖSE um frið og öryggi“.
Seán Ó Fearghaíl, forseti neðri deildar þjóðþings Írlands, flutti opnunarávarp við upphaf haustfundar. Í ávarpi sínu fjallaði hann um að heimurinn stæði frammi fyrir óvissu, áskorunum og átökum sem ógnuðu lýðræðinu á heimsvísu. Hann sagði að þingmönnum bæri skylda til að vekja athygli á þessum áskorunum og stuðla að aukinni vitund um þær. Styrkleiki ÖSE-þingsins lægi í því að ólík sjónarmið, menning og hugmyndir fengju að mætast í opnu samtali. Það væri gríðarlega mikilvægt að þingmenn skildu gildi samtakanna og ynnu saman að því að styðja og styrkja lýðræðið, tryggja sanngjarnar kosningar og framfylgja þeim markmiðum sem þeir setji sér í sameiningu. Friður og öryggi væri alls ekki sjálfsagt og samkomulagið sem kennt er við föstudaginn langa minnti okkur á það. Vinna yrði að friðsamlegum lausnum og binda enda á þau átök sem ættu sér stað í heiminum nú.
Pia Kauma, forseti ÖSE-þingsins, fór í ávarpi sínu yfir þau málefni sem fjallað var um á fundinum. Meginþema fundarins væri að leggja áherslu á mikilvægi alþjóðasamtaka þingmanna eins og ÖSE-þingsins. Átakalausnir, loftslagsmál og fólksflutningar væru málefni sem við yrðum að láta okkur varða og það þyrfti pólitískan vilja og samtal til að takast á við og leysa þessi verkefni. Styrkurinn fælist í samvinnu og því að vinna að sameiginlegum markmiðum.
Þá ávarpaði Michael Creed, formaður landsdeildar Írlands á ÖSE-þinginu, fundinn og bauð alla velkomna til Dyflinnar. Hann sagði að samstaða og samvinna þingmanna snerist um að byggja brýr og auka vitund um öll þau málefni sem ÖSE-þingið stæði frammi fyrir. Það væri mikilvægara en nokkru sinni áður.
Fyrstu umræður á fundinum snerust um átakahring ÖSE sem samanstendur af samræðugrundvelli, átakalausn, stuðningi við sáttamiðlun, sáttum og enduruppbyggingu eftir átök.
Í upphafi umræðunnar ávarpaði Bertie Ahern, fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, fundinn. Ahern var einn aðalsamningamanna sem komu að samningnum sem kenndur er við föstudaginn langa. Hann sagði að einn helsti lærdómurinn af ferlinu við samninginn væri að friðarferli gæti tekist en það krefðist víðtæks alþjóðlegs stuðnings og allt samfélagið þyrfti að taka þátt. Friðarferlið væri ekki endapunktur heldur stöðug barátta um að verja friðinn. Í ávarpi sínu fjallaði hann um mikilvægi kvenna í friðarviðræðum og friðaruppbyggingu. Þegar konur tækju fullan og jafnan þátt í samningaviðræðum yrðu samningar traustari og entust lengur. Dæmi um þetta væri þátttaka stjórnmálaflokksins Kvennasamtaka Norður-Írlands í friðarferlinu á Norður-Írlandi. Þar hefði flokkurinn komið að borðinu með aðra sýn og frekar hefði verið horft til félagslegra málefna. Hann hefði ekki fest að sama marki og aðrir í ágreiningi milli þjóðernishreyfinga. Þetta væri dæmi um að hið borgaralega samfélag, konur, ungt fólk og minnihlutahópar væru mikilvægir þátttakendur í friðarviðræðum. Friðarferlið þyrfti að vera sveigjanlegt og taka tillit til þarfa og breytinga á hverjum stað. Friðaruppbygging væri ferli sem næði til margra kynslóða og hópa. Það krefðist þess að mynduð væru tengsl milli þeirra. Reynsla Íra sýndi að þótt gæfi á bátinn væri mikilvægt að gefast ekki upp.
Shawn DeCaluwe, yfirmaður öryggissamvinnuráðs ÖSE, ávarpaði þá fundinn. Hann sagði að nú stæðum við frammi fyrir stórum og erfiðum áskorunum. Þróun á heimsvísu hefði haft áhrif á sameiginlegt öryggi allra, sérstaklega í ljósi stríðsins í Úkraínu sem gengi gegn alþjóðalögum og grunngildum lýðræðisins. Líta þyrfti til þess hvað væri hægt að gera og hvaða verkfæri alþjóðasamtök eins og ÖSE og ÖSE-þingið hefðu. Átakahringurinn væri eitt af þeim verkfærum sem til væru en reglur þyrftu að gilda um það hver hefði rétt til að beita hringnum, hvenær og hvernig. DeCaluwe sagði að það sem kæmi í veg fyrir að samtök eins og ÖSE og ÖSE-þingið gætu fyllilega uppfyllt skyldur sínar væri skortur á pólitískri samstöðu og úrræðum. Hægt væri að setja ýmisleg markmið en pólitískan vilja þyrfti til að ná þeim fram.
Síðasti frummælandi við þessa umræðu var Argyro Kartsonaki, rannsakandi við rannsóknamiðstöð ÖSE. Hún fjallaði um hlutverk alþjóðlegra aðila í lausn átaka og um mikilvægi þeirra. Hún sagði að rannsóknir sýndu að alþjóðlegir aðilar stuðluðu að því að bundinn væri endi á átök og að Sameinuðu þjóðirnar væru gjarnan lykilaðili í friðarferlinu. Alþjóðlegt umboð, geta til að safna fjármagni og veita því til friðar og það að taka þátt í uppbyggingarferli eftir átök væru allt lykilatriði þegar kæmi að langtímafriðarferli. Að sama skapi gæti ÖSE-þingið skipt máli. Pólitísk þátttaka væri nauðsynleg í öllum átakaferlum og engin lausn væri möguleg án pólitískra aðgerða.
Í opinni umræðu eftir þessi erindi tók Birgir Þórarinsson til máls. Þar sagði hann að átakahringurinn skipti miklu máli þegar kæmi að því að stuðla að friði og halda hann á ÖSE-svæðinu. Þó yrði að viðurkenna að alþjóðasamfélaginu hefði mistekist að koma í veg fyrir að átök milli Rússa og Úkraínumanna yrðu að stríði þrátt fyrir ýmsar viðvörunarbjöllur. Verkfæri sem ÖSE hefði til umráða væru ekki nægilega góð til að takast á við þetta vandamál. Það hefði ekki verið forgangsmál að finna pólitíska lausn á vandanum. Ekki væri hægt að hunsa árásaraðilann og neita að ræða við hann. Viðræður yrðu að eiga sér stað. Það væri vænlegra til árangurs að eiga í viðræðum en að meina Rússum þátttöku.
Aðrar umræður fundarins báru yfirskriftina „Tökumst á við loftslagsvána: Hlutverk þingmanna í að uppfylla alheimsskuldbindingar sem samþykktar verða á COP29“. Frummælendur voru Eamon Ryan, ráðherra umhverfis, fjarskipta, loftslags og samgangna á Írlandi, Sinead Walsh, loftslagsstjóri í utanríkisráðuneyti Írlands, og Jim Skea, forstjóri milliríkjanefndar um loftslagsmál, IPCC. Þau fjölluðu um loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP29, sem fram fer í nóvember í Bakú í Aserbaísjan. Árið 2026 yrði Parísarsáttmálinn tíu ára og mikilvægt að meta hvort við nálguðumst markmið með honum. Erfitt væri að fá öll ríki til að samþykkja stórar breytingar vegna vandræða á alþjóðavettvangi. Samkomulag sem náðist í Dúbaí árið 2023 um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og fjárfesta í hreinni orku hefði verið ákveðin framför og væru vonir bundnar við enn frekari framför á þessu og næsta ári. Leggja þyrfti mikla fjármuni í loftslagsmál. Loftslagsráðstefnan þetta árið mundi snúa að því hvernig fjármagna mætti þær breytingar sem nauðsynlegar væru og flytja fjárfestingar frá óumhverfisvænum aðferðum og iðnaði yfir í hreinan og grænan iðnað og orku. Loftslagsbreytingar tengdust öðrum stórum vandamálum, svo sem átökum og fólksflutningum, og með því að leysa loftslagsvandann gætum við einnig stuðlað að friði. Sérstaklega þyrfti pólitískan vilja til að knýja fram breytingar á notkun jarðefnaeldsneytis og þróa nýjar leiðir til fjármögnunar loftslagsaðgerða. Þó að kolefnismarkaðir væru jákvætt skref í þessa átt væru mengunarmarkmið flókin og krefðust pólitískrar sáttar. Árið 2023 hefði verið heitasta ár frá því að mælingar hófust. Fólk fyndi fyrir loftslagsbreytingum í daglegu lífi því að þetta væru ekki einungis tölfræðigögn. Yfirborð sjávar hækkaði og við stæðum frammi fyrir vaxandi áskorunum eins og öfgakenndu veðri, þurrki og uppskerubresti. Enn væri vísindalega mögulegt að takmarka hlýnun við 1,5°C en það krefðist pólitísks vilja.
Í opinni umræðu kom fram að þingmenn áréttuðu mikilvægi alþjóðlegs samráðs og ákvarðanatöku til að takast á við vandann. Margir af þeim þingmönnum sem tóku til máls ræddu um þær hamfarir sem átt hefðu sér stað í heimalandi þeirra sökum loftslagsbreytinga eins og flóða, þurrks og annarra öfga í veðurfari.
Daniela De Ridder, formaður sérstakrar nefndar ÖSE-þingsins um fólksflutninga, stjórnaði þriðju og síðustu umræðum á fundinum sem báru yfirskriftina „Að efla stjórnun fólksflutninga á ÖSE-svæðinu og stuðla að sjálfbærri þróun“. Frummælendur voru Sarah Léonard, Jean Monnet-prófessor og meðstjórnandi við stofnun um átakafræði við Háskóla Dyflinnarborgar, og Amir Taha, svæðisfulltrúi og stefnumótunarfræðingur hjá svæðisskrifstofu fyrir Evrópu hjá Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni (IOM). Áhersla var lögð á mikilvægi þess að tryggja að enginn yrði út undan þegar kæmi að mannréttindum. Innflytjendur gætu lagt sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar, sérstaklega með aukinni félagslegri samheldni og styrkingu samfélaga. Stjórnmálamenn hefðu lykilhlutverki að gegna í því að móta raunverulega og staðreyndamiðaða stefnumótun og tryggja þátttöku hins borgaralega samfélags, innflytjenda og sérstaklega kvenna og ungmenna. Léonard benti á hættuna sem fælist í óöruggum flóttaleiðum og þá staðreynd að fleiri en 30 þúsund manns hefðu dáið eða týnst á Miðjarðarhafi síðan 2014. Fólk flýði átök, loftslagsbreytingar og náttúruhamfarir og þörf væri á öruggari flóttaleiðum. Evrópuríki ættu sér langa sögu um aðsókn innflytjenda. Ríkin þyrftu að viðurkenna mikilvægi innflytjenda við að takast á við áskoranir eins og hækkandi aldur þjóða og skort á vinnuafli. Taha lagði áherslu á að innflytjendur stuðluðu að sjálfbærri þróun og hagvexti. Gögn sýndu að aukinn hreyfanleiki fólks gæti aukið heimsframleiðslu. Innflytjendur greiddu meira í skatt en þeir þæðu í bótum og því væri mikilvægt að nýta þetta tækifæri til sjálfbærrar þróunar. Helstu skilaboð þeirra voru að aukinn hreyfanleiki fólks og frjálsara flæði og flutningar ykju hagvöxt og því ætti að líta fólksflutninga jákvæðum augum.
Í tengslum við haustfund ÖSE-þingsins funduðu fulltrúar NB8-ríkja á þinginu með fulltrúum Mið-Asíuríkja. Efni fundarins var annars vegar hugsanlegt samstarf Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Mið-Asíuríkja þar sem þau miðluðu reynslu sinni og þekkingu og hins vegar efling svæðisbundins samstarfs í Mið-Asíu. Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, tók þátt á fjarfundi. Hún sagði frá starfi Norðurlandaráðs, því hvernig ráðið ynni og því sem væri á döfinni.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá ritara Íslandsdeildar og á vefsvæðinu www.oscepa.org.