Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 96  —  96. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um samskipti ríkis og sveitarfélaga.

Frá Eiríki Birni Björgvinssyni.


     1.      Telur ráðherra þörf á að efla og bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga? Ef svo er, með hvaða hætti hyggst ráðherra gera það?
     2.      Telur ráðherra að unnt sé að færa ákvarðanatöku nær íbúum með því að auka sveigjanleika og bæta ákvarðanatöku sveitarfélaga? Ef svo er, hvaða aðgerðir og útfærslur sér ráðherra fyrir sér?


Munnlegt svar óskast.