Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 99  —  99. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um fjármagnstekjur vegna arðgreiðslna úr einkahlutafélagi.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu margir einstaklingar höfðu fjármagnstekjur vegna arðgreiðslna, úr einkahlutafélagi í a.m.k. 25% eigu þeirra, umfram launatekjur og reiknað endurgjald á árunum 2013–2023, flokkað eftir eftirfarandi fjárhæðum samanlagðra launatekna og reiknaðs endurgjalds:
                  a.      0–999.999 kr. á mánuði,
                  b.      1.000.000–1.999.999 kr. á mánuði,
                  c.      2.000.000–2.999.999 kr. á mánuði,
                  d.      3.000.000–3.999.999 kr. á mánuði,
                  e.      4.000.000–4.999.999 kr. á mánuði,
                  f.      5.000.000 kr. eða meira á mánuði?
     2.      Hverjar voru meðalfjárhæðir fjármagnstekna og greidds fjármagnstekjuskatts í sömu flokkum á árunum 2013–2023 og hver eru efri og neðri fjórðungsmörk?
     3.      Hverjar voru meðalfjárhæðir launatekna, reiknaðs endurgjalds, greidds tekjuskatts og útsvars í sömu flokkum á árunum 2013–2023 og hver eru efri og neðri fjórðungsmörk?


Skriflegt svar óskast.