Ferill 101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 101 — 101. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152.
Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Alþingi ályktar að eftirfarandi breytingar verði á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152:
1. Eftirtaldir liðir í A-lið 2. tölul. (Biðflokkur) færist í A-lið 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur):
a. Suðurland, Skrokkalda, Skrokkölduvirkjun, R3126A,
b. Suðurland, Þjórsá, Holtavirkjun, R3130A.
2. Eftirfarandi breytingar verði á liðnum „Suðurland, Þjórsá, Urriðaholtsvirkjun, R3131A“ í A-lið 2. tölul. (Biðflokkur):
a. Í stað orðsins „Urriðaholtsvirkjun“ komi: Urriðafossvirkjun.
b. Liðurinn svo breyttur færist í A-lið 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur).
3. Eftirtaldir liðir í A-lið 2. tölul. (Biðflokkur) færist í A-lið 3. tölul. (Verndarflokkur):
a. Suðurland, Þjórsá – vestur, Kjalölduveita, R3156A,
b. Norðurland, Héraðsvötn, Skatastaðavirkjun C, R3107C,
c. Norðurland, Héraðsvötn, Skatastaðavirkjun D, R3107D,
d. Norðurland, Héraðsvötn, Villinganesvirkjun, R3108A,
e. Norðurland, Héraðsvötn, Blanda, Vestari-Jökulsá, R3143A.
4. Á eftir B-lið 3. tölul. kemur nýr stafliður, C-liður – Kort af verndarsvæðum, svohljóðandi:
a. Fljótshnjúksvirkjun – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
b. Hrafnabjargavirkjun A – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
c. Hrafnabjargavirkjun B – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
d. Hrafnabjargavirkjun C – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
e. Búlandsvirkjun – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
f. Markarfljótsvirkjun A og B – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
g. Kjalölduveita – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
h. Skatastaðavirkjun C – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
i. Skatastaðavirkjun D – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
j. Villinganesvirkjun – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
k. Blanda, Vestari-Jökulsá – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Greinargerð.
Tillaga þessi til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 24/152 er lögð fram í samræmi við 1. mgr. 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Vorið 2022 afgreiddi Alþingi 3. áfanga áætlunarinnar með áðurnefndri þingsályktun. Við afgreiðsluna voru gerðar breytingar frá því sem lagt var til í tillögu að þingsályktuninni á flokkun tiltekinna virkjunarkosta með það að markmiði að tilteknir þættir í mati þeirra yrðu endurmetnir. Virkjunarkostirnir Skatastaðavirkjun C, Skatastaðavirkjun D, Villinganesvirkjun og Blanda, Vestari-Jökulsá í Héraðsvötnum voru færðir úr verndarflokki yfir í biðflokk, virkjunarkostirnir Urriðafossvirkjun og Holtavirkjun í neðri hluta Þjórsár færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk, virkjunarkosturinn Kjalölduveita í Þjórsá færður úr verndarflokki yfir í biðflokk og virkjunarkosturinn Skrokkölduvirkjun færður úr nýtingarflokki í biðflokk.
Í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar (þingskjal 1210 í 332. máli á 152. löggjafarþingi) kom fram rökstuðningur fyrir breytingum á flokkun fyrrgreindra virkjunarkosta auk þeirra atriða sem að mati meiri hlutans þyrfti að endurskoða. Verkefnisstjórn 5. áfanga áætlunarinnar óskaði í kjölfarið eftir leiðsögn frá ráðuneytinu um hvernig hún ætti að vinna að endurskoðuninni. Í bréfi til verkefnisstjórnar, dags. 12. september 2022, komu fram þau tilmæli að miða endurmat þessara tilteknu virkjunarkosta við þá þætti sem fram kæmu í áðurnefndu nefndaráliti. Verkefnisstjórnin forgangsraðaði umfjöllun sinni um þessa virkjunarkosti og skilaði tillögum að flokkun þeirra til fyrrverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 5. apríl 2024. Tillagan var hvorki lögð fram á 154. né 155. löggjafarþingi en er nú lögð fram af ráðherra nýrrar ríkisstjórnar.
2. Vinna verkefnisstjórnar við endurmat virkjunarkosta.
Eins og fram hefur komið miðaðist vinna verkefnisstjórnar við endurmat virkjunarkostanna við tiltekin atriði sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar mat þannig að þá þyrfti að skoða sérstaklega. Vinnulag við endurmatið fór því eftir því hvaða atriði það voru sem voru tiltekin í áðurnefndu nefndaráliti. Í skýrslu verkefnisstjórnar er að finna umfjöllun um þá þætti sem verkefnisstjórn skoðaði við endurmatið en hvað aðra þætti varðar, sem ekki komu til endurmats í vinnu verkefnisstjórnar 5. áfanga, vísar hún til skýrslu verkefnisstjórnar 3. áfanga áætlunarinnar.
2.1. Skatastaðavirkjun C, Skatastaðavirkjun D, Villinganesvirkjun, Blanda – Vestari Jökulsá.
Með ályktun Alþingis voru virkjunarkostirnir Skatastaðavirkjun C, Skatastaðavirkjun D, Villinganesvirkjun og Blanda, Vestari-Jökulsá í Héraðsvötnum flokkaðir í biðflokk en tillagan gerði ráð fyrir að virkjunarkostirnir yrðu flokkaðir í verndarflokk. Í áðurnefndu nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar kemur fram að „mikilvægt [sé] að ákvarðanir um flokkun virkjunarkosta í verndarflokk eða nýtingarflokk grundvallist á mati sem byggist á bestu mögulegum upplýsingum um viðkomandi svæði og áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á náttúru þess og lífríki. Því [sé] nauðsynlegt að óvissu um raunveruleg áhrif viðkomandi virkjunarkosta á þau viðföng sem eru til staðar á svæðinu sé eytt áður en tekin er ákvörðun um hvort svæðið eigi að fara í verndarflokk eða nýtingarflokk.“ Ástæða þessarar niðurstöðu var að við umfjöllun nefndarinnar um tillöguna höfðu komið fram ábendingar um að neikvæð áhrif umræddra virkjunarkosta á vistgerðir með verulega hátt verndargildi, og þá sérstaklega flæðiengjar, kynnu að vera ofmetin. Með hliðsjón af þessari niðurstöðu ákvað verkefnisstjórn að fela faghópi 1, sem fjallar um náttúru- og menningarminjar, að vinna rannsóknir og mat á á því hvort áhrifin hefðu verið ofmetin eður ei.
Faghópur 1 fjallaði um málið og skilaði greinargerð til verkefnisstjórnar þar sem niðurstaðan var að ekki hafi verið um ofmat að ræða á áhrifum fyrirhugaðra virkjana í Héraðsvötnum. Í ljósi þessa leggur verkefnisstjórn til að virkjunarkostirnir fjórir verði flokkaðir aftur í verndarflokk.
2.2. Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.
Með ályktun Alþingis voru virkjunarkostirnir Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun í Þjórsá flokkaðir í biðflokk en tillagan gerði ráð fyrir að virkjunarkostirnir yrðu flokkaðir í nýtingarflokk. Tilmæli Alþingis voru að samfélagsleg og efnahagsleg áhrif umræddra virkjana yrðu endurmetin. Vilji Alþingis var að verkefnisstjórn myndi láta faghópa 3 (samfélagsleg áhrif) og 4 (hagkvæmni og arðsemi) fjalla sérstaklega um virkjunarkostina á grundvelli nýrrar nálgunar í aðferðafræði þeirra faghópa. Í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram að stór hluti þeirra umsagna sem bárust vegna málsins fjallaði sérstaklega um virkjunarkostina í neðri hluta Þjórsá. Augljóst sé að ekki sé sátt um slíkar virkjunarhugmyndir, enda séu fyrirhugaðar virkjanir í byggð og myndu óhjákvæmilega hafa í för með sér miklar breytingar á umhverfinu sem í huga margra íbúa eru óásættanlegar. Hvað varðar aðferðafræði matsins kemur eftirfarandi fram í álitinu: „Þá hefur komið fram gagnrýni þess efnis að sú aðferðafræði sem notuð er við flokkun virkjunarkosta geti leitt til skekkju í verðmætamati þegar eitt viðfang hefur mjög hátt verðmætamat en verðmætamat annarra viðfanga er lítið eða í kringum meðaltal. […] Þannig er staðan þegar horft er til virkjunarkostanna í neðri hluta Þjórsá. Þar er um að ræða landsvæði sem þegar er raskað en innan svæðisins er hins vegar að finna laxastofn sem talinn er vera einstakur á landsvísu.“ Með hliðsjón af þessu taldi meiri hlutinn mikilvægt að virkjunarkostirnir tveir yrðu flokkaðir í biðflokk á meðan faghópar 3 og 4 fengju það hlutverk að endurmeta þá á grundvelli nýrrar nálgunar í aðferðafræði faghópanna.
Faghópur 3 fékk það hlutverk að fjalla um virkjunarkostina út frá samfélagslegum áhrifum. Við vinnu sína horfði faghópurinn á alla þrjá virkjunarkostina sem er að finna í neðri hluta Þjórsá, þ.e. Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun annars vegar og Hvammsvirkjun hins vegar sem þegar hefur verið flokkuð í nýtingarflokk. Meðal helstu niðurstaðna faghópsins er að á meðal íbúða sveitarfélagsins sé ekki hægt að greina yfirgnæfandi stuðning með eða á móti virkjun í neðri hluta Þjórsár. Þá eru vísbendingar þess efnis að skipting tekna ráði talsvert miklu um viðhorf gagnvart virkjanaframkvæmdum og heildarmat íbúa á réttmæti virkjanaframkvæmdanna virðist að einhverju leyti háð mati þeirra á efnahagslegum ávinningi af slíkum framkvæmdum fyrir samfélagið. Samkvæmt niðurstöðum faghópsins er mestur stuðningur við Hvammsvirkjun, fleiri eru hlynntir Holtavirkjun en á móti en meiri andstaða er við Urriðafossvirkjun.
Niðurstaða faghóps 4 sýnir fram á að Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun eru hagkvæmir og arðsamir virkjunarkostir með tilliti til þeirra forsenda sem mat faghópsins grundvallast á og þá sérstaklega Urriðafossvirkjun.
Á grundvelli niðurstaðna faghópa 3 og 4 var það niðurstaða verkefnisstjórnarinnar að leggja til að virkjunarkostirnir Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun yrðu flokkaðir aftur í nýtingarflokk.
2.3. Skrokkölduvirkjun.
Með ályktun Alþingis var virkjunarkosturinn Skrokkalda flokkaður í biðflokk en tillagan gerði ráð fyrir að hann yrði flokkaður í nýtingarflokk. Tilmæli Alþingis voru að skoðaðir yrðu tilteknir þættir í matinu á þeim virkjunarkosti. Meðal annars var staðsetning hans, þ.e. á miðhálendinu, og nálægð við friðlýst svæði Vatnajökulsþjóðgarðs, ástæða þess að ákveðið var að flokka virkjunarkostinn í biðflokk að svo stöddu. Þá var það mat Alþingis að mikilvægt væri að horfa til landslagsheilda við ákvörðun um nýtingu lands auk þess sem vísað var til aukinnar áherslu á vernd óbyggðra víðerna og verðmæti miðhálendisins.
Faghópur 1 (náttúru- og menningarminjar) og 2 (aðrir hagsmunir) fengu það verkefni að vinna mat á framangreindum þáttum. Ítarlegar niðurstöður faghópanna er að finna í fylgiskjali með þingsályktunartillögu þessari en helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
. Virkjunarkosturinn er á miðhálendinu. Hann færir til mörk þeirra landslagsheilda sem hann tilheyrir og aðliggjandi landslagsheildir verða fyrir áhrifum.
. Öræfaupplifun skerðist með tilkomu nýrra mannvirkja og virkjunarkosturinn rýrir víðerni en þó mismikið eftir því hvaða forsendum byggt er á þar sem ekki liggur fyrir opinber skilgreining á því hvað skerði víðerni.
. Virkjunin mun líklega ekki hafa bein neikvæð áhrif á verndargildi Vatnajökulsþjóðgarðs.
Niðurstöður faghópanna voru metnar í samhengi við það heildarmat sem virkjunarkosturinn fór í gegnum í 3. áfanga áætlunarinnar. Í þeim áfanga fékk Skrokkalda næstlægstu einkunn hjá faghópi 1 (náttúru- og menningarminjar) og hjá faghópi 2 (aðrir hagsmunir) raðaðist Skrokkalda í fjórða neðsta sæti varðandi möguleg áhrif. Niðurstaða 3. áfanga áætlunarinnar var að leggja til að Skrokkalda yrði flokkuð í nýtingarflokk og var það mat verkefnisstjórnar 5. áfanga, eftir að hafa endurmetið þá þætti sem Alþingi taldi að þyrfti að endurmeta, að leggja til að virkjunarkosturinn yrði aftur flokkaður í nýtingarflokk.
2.4. Kjalölduveita.
Með ályktun Alþingis var virkjunarkosturinn Kjalölduveita flokkaður í biðflokk en tillagan gerði ráð fyrir að hann yrði flokkaður í verndarflokk. Tilmæli Alþingis voru þau að mikilvægt væri að hafið yrði yfir allan vafa að virkjunarkostir sem óskað væri eftir mati á fengju fullnægjandi meðferð í samræmi við ákvæði laga nr. 48/2011. Tilefni ábendinganna var sú gagnrýni Landsvirkjunar að Kjalölduveita væri ekki sami virkjunarkosturinn og Norðlingaölduveita, sem í gildandi áætlun væri flokkuð í verndarflokk, og hefði Kjalölduveita því átt að fá fulla málsmeðferð í samræmi við ákvæði laga nr. 48/2011 en verkefnisstjórn hefði hins vegar eingöngu óskað eftir umfjöllun frá faghópum 1 og 2 um tiltekna þætti virkjunarkostsins við mat sitt.
Við mat sitt á virkjunarkostinum Kjalölduveitu ákvað verkefnisstjórn að afla gagna og upplýsinga um málsmeðferð kostsins, lögfræðilegrar ráðgjafar og ráðgjafar frá faghópum 1 og 2. Verkefnisstjórn vann síðan skoðun á virkjunarkostinum til að tryggja að hann fengi fullnægjandi málsmeðferð svo sem lög nr. 48/2011 kveða á um. Á grundvelli þeirrar vinnu er það niðurstaða verkefnisstjórnarinnar að leggja til að virkjunarkosturinn verði flokkaður í verndarflokk.
2.5. Samráð um tillögur verkefnisstjórnar.
Eins og kveðið er á um í lögum um áætlun um vernd- og orkunýtingu landsvæða, nr. 48/2011, fóru tillögur verkefnisstjórnar áætlunarinnar í gegnum tvö samráðsferli. Í 1. og 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna er fjallað um fyrra samráðsferlið. Þar segir að að fengnum niðurstöðum faghópa vinni verkefnisstjórn drög að tillögum um flokkum virkjunarkosta og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða í samræmi við flokkunina. Verkefnisstjórnin skuli leita samráðs við almenning og umsagna um drögin hjá viðeigandi stofnunum, stjórnvöldum ríkis og sveitarfélaga, félagasamtökum og hagsmunaaðilum. Í samræmi við ákvæðið hófst fyrra samráðsferlið 4. desember 2023 og var umsagnarfrestur veittur til 18. desember 2023 (mál nr. S-254/2023 í samráðsgátt stjórnvalda).
Í 3. og 4. málsl. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011 er kveðið á um síðara samráðsferlið. Þar segir að þegar fyrra samráðsferlinu sé lokið taki verkefnisstjórn afstöðu til fyrirliggjandi virkjanaáforma og kynni áðurnefndum aðilum tillögur að verndar- og orkunýtingaráætlun auk þess sem hún auglýsi þær opinberlega í dagblaði sem gefið er út á landsvísu, Lögbirtingablaðinu og á vefsíðu sinni. Frestur til að koma á framfæri athugasemdum í síðara samráðsferlinu skal ekki vera skemmri en tólf vikur frá birtingu auglýsingar. Í samræmi við ákvæðið hófst síðara samráðsferli verkefnisstjórnar 22. desember 2023 og frestur til að koma að athugasemdum og ábendingum var til 15. mars 2024 (mál nr. 265/2023 í samráðsgátt stjórnvalda). Nánar er fjallað um þær athugasemdir sem bárust í báðum samráðsferlum í skýrslu verkefnisstjórnar sem finna má í fylgiskjali með tillögu þessari.
3. Um afmörkun verndarsvæða.
Í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, segir að í áætluninni sé mótuð stefna um hvort landsvæði þar sem er að finna virkjunarkosti megi nýta til orkuvinnslu eða hvort ástæða sé til að friðlýsa þau eða kanna frekar. Virkjunarkostir á viðkomandi svæðum eru samkvæmt því flokkaðir í orkunýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk. Þá segir í 3. mgr. 10. gr. laganna að verkefnisstjórn vinni drög að tillögum um flokkun virkjunarkosta og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða í samræmi við flokkunina.
Hinn 27. mars sl. féll dómur í Hæstarétti í máli nr. 36/2023 þar sem friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar var felld úr gildi. Niðurstaða Hæstaréttar var að ráðherra hefði aðeins getað tekið ákvörðun um friðlýsingu landsvæðisins þegar Alþingi hefði í þingsályktun um vernd og orkunýtingu afmarkað með einhverjum hætti þau landsvæði sem féllu í verndarflokk. Með þingsályktun nr. 13/141 var mælt fyrir um að Arnardalsvirkjun og Helmingsvirkjun á vatnasviði Jökulsár á Fjöllum féllu í verndarflokk án þess að því fylgdi tilgreining á landsvæði vegna þeirra virkjunarkosta. Þá má leiða af dómnum að grundvallaratriði sé að kort af fyrirhuguðum verndarsvæðum virkjunarkosta í verndarflokki komi fyrir í ályktunartextanum sjálfum, ekki sé nægilegt að þau séu í fylgiskjali við tillögu til þingsályktunar enda eru fylgiskjöl ekki hluti af lokaútgáfu þingsályktunarinnar.
Afmörkun landsvæða virkjunarkosta í verndarflokki áætlunarinnar hefur verið þrætuefni frá samþykkt fyrstu áætlunarinnar um vernd- og orkunýtingu landsvæða í janúar 2013. Ekki er kveðið á um það í ákvæðum laganna hvernig verndarsvæði skuli afmörkuð, en í greinargerð með frumvarpinu sem varð að lögum nr. 48/2011 er sérstaklega fjallað um virkjunarkosti og afmörkun þeirra, sbr. VI. kafla greinargerðarinnar.
Við umfjöllun Alþingis um 3. áfanga áætlunarinnar á 152. löggjafarþingi vorið 2022 var afmörkun verndarsvæða eitt stærsta umræðuefni umhverfis- og samgöngunefndar þegar hún fjallaði um tillöguna, eins og fram kemur í nefndaráliti meiri hlutans (þingskjal 1210 í 332. máli): „Meiri hlutinn telur því brýnt að við endurskoðun laganna verði þeirri óvissu eytt sem uppi hefur verið um afmörkun verndar- og virkjunarsvæða sem falla í verndarflokk.“ Þá beindi meiri hlutinn þeim tilmælum til ráðherra að bíða með friðlýsingu verndarsvæða virkjunarkosta í Skjálfandafljóti „þar til mati á friðlýsingu heilla vatnasviða er lokið og lög um verndar- og orkunýtingaráætlun hafa verið endurskoðuð.“
Hinn 26. janúar 2024 skipaði þáverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra starfshóp sem fékk það verkefni að yfirfara gildandi lög um verndar- og orkunýtingaráætlun og leggja til endurskoðun á þeim í samræmi við slíka yfirferð. Í hópnum sátu Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi ráðherra umhverfis- og auðlindamála, Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi alþingismaður og Hilmar Gunnlaugsson, hrl., sem var formaður hópsins. Hópurinn skilaði skýrslu í nóvember 2024. Í viðhengi skýrslunnar er að finna drög að frumvarpi til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Skýrslu starfshópsins er að finna í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. S-235/2024. Í skýrslunni er að finna sérstaka umfjöllun um afmörkun verndarsvæða. Í henni er vísað til fyrrnefndrar niðurstöðu dóms Hæstaréttar vegna friðlýsingar Jökulsár á Fjöllum og lagt til að „kveðið verði á um sérstaka skyldu verkefnisstjórnar til að afmarka verndarsvæði einstakra virkjunarhugmynda með kortlagningu og hnitsetningu sem skuli vera hluti af ályktunartexta verndarflokks áætlunarinnar.“
Með hliðsjón af framangreindu, þ.e. niðurstöðu Hæstaréttar og tillögum starfshóps um endurskoðun laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, er í tillöguskjali þessu að finna kort af fyrirhuguðum verndarsvæðum vegna virkjunarkosta í verndarflokki áætlunarinnar. Tekið skal fram að verndarsvæði vegna nokkurra virkjunarkosta í verndarflokki gildandi áætlunar er ekki að finna í tillögu þessari. Um er að ræða verndarsvæði fyrir Djúpárvirkjun, Norðlingaölduveitu, Bitru og Grændal. Ástæða þess er fyrst og fremst að upp hafa komið álitaefni um afmörkun þessara tilteknu svæða sem nauðsynlegt er að leysa áður en afmörkunin er lögð fyrir Alþingi. Viðkomandi virkjunarkostir eru samt sem áður flokkaðir í verndarflokk áætlunarinnar og er ekki verið að leggja til breytingu þar á. Þegar afmörkun liggur fyrir mun hún verða lögð fyrir Alþingi í samræmi við málsmeðferðarreglur þar að lútandi.
4. Afturkallanir friðlýsinga verndarsvæða.
Eins og fram hefur komið komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu með dómi sínum 27. mars 2024, að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum hefði verið ólögmæt þar sem Alþingi hefði ekki fjallað um afmörkun verndarsvæðisins líkt og lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, kveða á um. Ekki hefði verið heimilt að ákvarða friðlýsinguna heldur hefði þurft að leggja nýja tillögu til þingsályktunar fyrir Alþingi með afmörkun verndarsvæðisins áður en hægt væri að friðlýsa svæðið.
Alls voru átta svæði friðlýst með vísan til þess að virkjunarkostir innan þeirra hafi verið flokkaðir í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar. Allar friðlýsingarnar voru gerðar á sömu forsendum, þ.e. virkjunarkostir viðkomandi verndarsvæða voru flokkaðir í verndarflokk áætlunarinnar, en Alþingi fjallaði ekki um afmörkun verndarsvæðanna eins og lög nr. 48/2011 kveða á um. Niðurstaða Hæstaréttar hafði því áhrif á lögmæti friðlýsinganna allra.
Friðlýsing Jökulsár á Fjöllum var afturkölluð með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 7. júní 2024 í kjölfar dóms Hæstaréttar. Þá var friðlýsing verndarsvæðis Gjástykkis afturkölluð sama dag, en landeigendur þess svæðis höfðu áður stefnt ríkinu fyrir dóm til greiðslu bóta vegna friðlýsingarinnar. Með dómi Hæstaréttar féllu málsástæður ríkisins niður og var friðlýsingin því afturkölluð.
Með hliðsjón af fordæmisgildi dómsins og meginreglum stjórnsýslulaga um afturkallanir ógildanlegra ákvarðana voru friðlýsingar þeirra sex verndarsvæða sem eftir stóðu afturkallaðar.
Virkjunarkostirnir sem friðlýsingar verndarsvæðanna byggðust á voru flokkaðir í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar með ályktun Alþingis nr..13/141, sem samþykkt var 14. janúar 2013. Hinn 15. júní 2022 samþykkti Alþingi nýja ályktun.um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr..24/152. Í þeirri ályktun er ekki að finna þá virkjunarkosti eða landsvæði sem friðlýst höfðu verið á grundvelli áætlunar nr. 13/141, enda var málsmeðferð þeirra virkjunarkosta lokið með friðlýsingu þeirra. Í samræmi við 4. mgr. 5. gr..laga nr. 48/2011.lúta umræddir virkjanakostir. sömu reglum og virkjunarkostir í biðflokki áætlunarinnar. Til að bæta úr þeim ágalla við friðlýsingarferlið sem rakinn er í dómi Hæstaréttar þurfa kostirnir því að fara aftur í gegnum lögbundið ferli verndar- og orkunýtingaráætlunar og Alþingi þarf að flokka þá í verndarflokk með afmörkuðu verndarsvæði til að hægt sé að friðlýsa þá aftur. Af þeim sökum er umrædda virkjunarkosti ekki að finna í tillögu þessari en gert er ráð fyrir að þegar endurmat verkefnisstjórnar áætlunarinnar á viðkomandi virkjunarkostum liggur fyrir verði þingsályktunartillaga með tillögu um flokkun þeirra lögð fram á Alþingi til lokaákvörðunar. Þá munu kort af verndarsvæðum viðkomandi svæða einnig verða hluti af tillögunni eins og er í þeirri tillögu sem hér um ræðir.
Fylgiskjal.
Endurmat á virkjunarkostum úr 3. áfanga rammaáætlunar.
Tillögur verkefnisstjórnar 5. áfanga til ráðherra.
www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0101-f_I.pdf