Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 105  —  105. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um strandveiðar og útsvar.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hversu margir bátar voru með strandveiðileyfi ár hvert árin 2016–2024, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
     2.      Hver var heildarafli strandveiðileyfishafa, sundurliðað eftir sveitarfélögum, ár hvert árin 2016–2024?
     3.      Hversu háar voru útsvarsgreiðslur strandveiðileyfishafa vegna strandveiða ár hvert árin 2016–2024, sundurliðað eftir sveitarfélögum, og hvert var miðgildi, efri fjórðungsmörk og neðri fjórðungsmörk greiðslnanna?


Skriflegt svar óskast.