Ferill 110. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 110 — 110. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um vegakerfi og vegaframkvæmdir á Vesturlandi.
Frá Maríu Rut Kristinsdóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við því að þjóðvegir 54, 56 og 60 eru að stórum hluta að verða ónýtir, nú síðast með verulegum bikblæðingum á vegum í febrúarmánuði 2025 og að á sama tíma hefur umferð um þá aukist verulega og fyrirséð er að hún aukist enn á komandi árum?
2. Telur ráðherra ástæðu til að endurskoða mat fyrri ráðherra er kemur fram í svari á þingskjali 1908 á 154. löggjafarþingi þar sem m.a. segir: ,,Að svo stöddu hafa ekki komið fram upplýsingar sem réttlæta breytingu á forgangsröðun vegaframkvæmda í samgönguáætlun“? Hyggst ráðherra endurskoða forgangsröðun vegaframkvæmda á Vesturlandi? Ef svo er, með hvaða hætti?
Skriflegt svar óskast.