Ferill 116. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 116 — 116. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda og Háholt í Skagafirði.
Frá Jóni Gnarr.
1. Hefur ráðherra skoðað möguleika á því að hefja rekstur á meðferðarheimili fyrir börn í Háholti í Skagafirði og endurvekja starfsemi þar sem hægt væri að vista allt að fimm einstaklinga?
2. Hefur farið fram mat á kostum og göllum þeirrar aðstöðu sem er í Háholti, m.a. með hliðsjón af niðurstöðum sem birtar voru í skýrslu stýrihóps um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda frá árinu 2023?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.