Ferill 119. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 119  —  119. mál.




Skýrsla


forsætisráðherra um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland á árinu 2023.



    Skýrsla þessi er send Alþingi til upplýsingar í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 98/2016, um þjóðaröryggisráð, sbr. þingsályktanir nr. 26/145 og nr. 7/153. Samkvæmt framangreindu lagaákvæði skal þjóðaröryggisráð árlega upplýsa Alþingi um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar.
    Með samþykkt þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland fól Alþingi ríkisstjórninni að fylgja þar greindri stefnu um þjóðaröryggi. Framkvæmd einstakra málefnasviða þjóðaröryggisstefnunnar fellur undir ábyrgðarsvið mismunandi ráðuneyta í samræmi við forsetaúrskurð nr. 6/2022 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
    Hlutverk þjóðaröryggisráðs er að hafa eftirlit með því að framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sé í samræmi við ályktun Alþings. Skýrsla þessi er byggð á greinargerðum ráðuneytanna um framkvæmd einstakra áhersluþátta þjóðaröryggisstefnunnar og var samþykkt á 35. fundi þjóðaröryggisráðs.


Fylgiskjal.


Skýrsla þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
á árinu 2023.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0119-f_I.pdf