Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 124  —  124. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 145/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 170/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.
                  b.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.
                  c.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.
                  c.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.
                  d.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu
                  e.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á þremur ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–XII). Þingsályktunartillagan var lögð fram á 155. löggjafarþingi en var ekki afgreidd og er nú lögð fram aftur efnislega óbreytt.

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.
     b.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.
     c.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.
    Markmið reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020, og þeirra gerða sem af henni leiða, er að tryggja öruggt og skilvirkt eftirlit með vörum og stuðla að því að eingöngu vörur sem uppfylla kröfur um heilbrigði og almannaöryggi verði gerðar aðgengilegar á innri markaðnum. Í því skyni að tryggja öryggi neytenda er með reglugerðinni kveðið á um ábyrgð og skyldur rekstraraðila og birgja varðandi viðkomandi vörur, svo sem um hönnun og merkingar, eftirlit á ytri landamærum og eftirlit með vörum sem eru seldar í gegnum netið. Einnig er mælt fyrir um valdheimildir eftirlitsstjórnvalda, ráðstafanir við eftirlit og samvinnu eftirlitsstjórnvalda, jafnt innan einstakra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins sem og samvinnu markaðseftirlitsstjórnvalda í ríkjum innri markaðarins. Jafnframt er kveðið á um samvinnu eftirlitsstjórnvalda og rekstraraðila sem framleiða eða flytja inn vörur sem falla undir gerðina.
    Upptaka gerðanna í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á breytingar á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995, sem og á sérlögum um tiltekin eftirlitsstjórnvöld. Fyrirhugað er að atvinnuvegaráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á haustþingi 2025. Búast má við að einhver kostnaður fylgi innleiðingunni. Unnið er að kostnaðarmati og nánari upplýsingar þar um verður að finna í frumvarpinu.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd um upptöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála en framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1121 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/1267 kalla ekki á lagabreytingar. Gerðu nefndirnar ekki athugasemdir við upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og reglugerðin kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.
     b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.
     c.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.
     d.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.
     e.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.
    Um er að ræða svokallaðan verðbréfunarpakka Evrópusambandsins. Markmið hans er að koma á styrkri lagaumgjörð í kringum verðbréfunarviðskipti, með það að markmiði að draga úr áhættunni sem felst í verðbréfun og tryggja aðgreiningu einfaldra, gagnsærra og staðlaðra verðbréfunarafurða frá flóknum, ógagnsæjum og áhættusamari afurðum.
    Verðbréfun getur verið mikilvægt tæki fyrir fjármagns-, lausafjár- og áhættustýringu og er álitin mikilvægur þáttur í vel starfhæfum fjármálamarkaði, enda sé hún byggð á traustu skipulagi.
    Ákvæði 3. kafla reglugerðar (ESB) 2017/2402 (STS-reglugerðarinnar) fjalla um skilyrði og verklag við skráningu verðbréfunarskrár hjá Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni (ESMA). Verðbréfunarskrá er lögaðili sem safnar saman og viðheldur gögnum um verðbréfanir miðlægt. Að því er EFTA-ríkin innan Evrópska efnahagssvæðisins varðar fer Eftirlitsstofnun EFTA með þau verkefni sem falin eru ESMA í reglugerðinni, með vísan til laga um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017.
    Í STS-reglugerðinni, með áorðnum breytingum, eru lykilhugtök og helstu aðilar verðbréfunar skilgreindir og settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar, auk þess sem settar eru fram sértækar kröfur til einfaldrar, gagnsærrar og staðlaðrar verðbréfunar eða svokallaðrar STS-verðbréfunar (e. simple, transparent and standardized).
    STS-reglugerðin tók gildi í Evrópusambandinu 1. janúar 2019. Henni var breytt með reglugerð (ESB) 2021/557 er miðaði sérstaklega að því að gera lánastofnunum kleift að draga úr kostnaði og losa um fjármagn fyrir endurbótaferli eftir efnahagslega áfallið sem heimsfaraldur kórónuveiru hefur valdið.
    Samhliða samþykkt STS-reglugerðarinnar voru breytingar gerðar á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og fjárfestingarfyrirtæki (CRR-reglugerðin), sem hefur lagagildi á Íslandi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingar á CRR-reglugerðinni er tengjast verðbréfun er því hluti af verðbréfunarpakkanum. Árið 2021 voru á ný gerðar breytingar á CRR-reglugerðinni, með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á CRR-reglugerðinni sem varðar aðlögun að almennum ramma fyrir verðbréfun til að stuðla að efnahagsbata í kjölfar COVID-19 faraldursins. Reglugerðir (ESB) 2017/2401 og 2021/558 verða innleiddar hér á landi með breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
    Breytingar af svipuðum meiði og gerðar voru á CRR-reglugerðinni voru gerðar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2015/35 (undirgerð Solvency II-tilskipunarinnar), með framseldri reglugerð (ESB) 2018/1221 um útreikning og kröfur til gjaldþols vegna verðbréfunar af hálfu vátrygginga- og endurtryggingafélaga. Lagastoð er til innleiðingar á henni í lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
    Aðlaganir í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 taka fyrst og fremst mið af tveggja stoða kerfi EES-samningsins, ekki síst að því er varðar vísanir til heimilda og hlutverka Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, sem í tilviki EFTA-ríkjanna innan Evrópska efnahagssvæðisins er falið Eftirlitsstofnun EFTA, auk þess sem ákvæði um gildistökutíma eru aðlöguð.
    Upptaka fyrrgreindra gerða í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á lagabreytingar. Fyrirhugað er að fjármála- og efnahagsráðherra leggi á yfirstandandi löggjafarþingi fram frumvarp til nýrra sérlaga um verðbréfun og um breytingar á ýmsum lögum, í samræmi við ákvæði 6. kafla STS-reglugerðarinnar og fyrrgreindar breytingar á CRR-reglugerðinni. Með lögunum verða ekki lagðar nýjar skyldur á aðila á fjármálamarkaði nema þeir hyggi á verðbréfun og þau munu leiða til aukinnar verndar fjárfesta. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga. Ef í ljós kemur að breyta þurfi eftirlitsgjaldinu sem stendur undir rekstri Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðra laga verður brugðist við með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og verðbréfunargerðirnar kynntar nefndinni sérstaklega. Jafnframt fengu reglugerð (ESB) 2017/2402 og reglugerð (ESB) 2021/557 umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd sem gerði ekki athugasemdir við upptöku þeirra í samninginn.

4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).
    Með reglugerð (ESB) 2021/1230 eru sameinuð ákvæði reglugerðar (EB) nr. 924/2009 um greiðslur yfir landamæri í Bandalaginu og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2560/2001, tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 og ákvæði reglugerðar (ESB) 2019/518 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 að því er varðar tiltekin gjöld vegna greiðslna yfir landamæri í Sambandinu og gjöld vegna umreiknings gjaldmiðils.
    Fyrrnefndar reglugerðir (EB) nr. 924/2009 og (ESB) nr. 260/2012 voru innleiddar í íslenskan rétt með lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Upptaka reglugerðar (ESB) 2021/1230 í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á lagabreytingar. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur í því skyni lagt fram frumvarp til nýrra laga um greiðslur yfir landamæri í evrum (111. mál á 156. löggjafarþingi) sem felli úr gildi samnefnd lög nr. 78/2014.
    Veigamesta breytingin, sem lögfesting framangreinds frumvarps hefur í för með sér er rýmkun meginreglunnar um jöfn gjöld á greiðslur í evrum yfir landamæri. Rýmkuð meginregla felur í sér að gjöld fyrir greiðslur í evrum til annars EES-ríkis skuli vera þau sömu og fyrir samsvarandi greiðslur innanlands í innlendum gjaldmiðli, en áður var aðeins miðað við samsvarandi greiðslur innanlands í evrum. Rýmkuð meginregla leiðir til sparnaðar fyrir greiðendur en lækkunar á tekjum greiðsluþjónustuveitenda. Þá mun lögfesting frumvarpsins einnig leiða til bættrar upplýsingagjafar til greiðenda um gjöld vegna gjaldmiðilsumreiknings.
    Innleiðing reglugerðar (ESB) 2021/1230 er ekki talin hafa áhrif á stjórnsýslu aðrar en þær sem leiða af lögum nr. 78/2014. Þá er ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á ríkissjóð.
    Aðlaganir í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar á ákvæðum reglugerðar (ESB) 2021/1230 eru minni háttar og eru þær þrenns konar. Í fyrsta lagi er um að ræða aðlögun á skilgreiningunni „örfyrirtæki“ til að tryggja að sambærileg skilgreining gildi innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem skilgreiningin í reglugerðinni vísar til tilmæla framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 2003/361/EB sem ekki hafa verið tekin upp í EES-samninginn. Í öðru lagi er um að ræða frestun á gildistöku tiltekinna ákvæða reglugerðarinnar sem varða upplýsingaskyldu greiðsluþjónustuveitenda varðandi umreikning gjaldmiðils í tengslum við kortatengdar færslur og millifærslu fjármuna. Í þriðja lagi er um að ræða aðlögun á einu ákvæði reglugerðarinnar varðandi umreikning gjaldmiðils í tengslum við kortatengdar færslur sem er tæknilegs eðlis þar sem tilvísun til gjaldmiðils Sambandsins er breytt í tilvísun til opinbers gjaldmiðils aðila að EES-samningnum.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðar (ESB) 2021/1230 til samræmis við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku hennar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og reglugerðin kynnt nefndinni sérstaklega.

5. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samningnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.



Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023
um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_I.pdf

Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019
um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu
á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008
og (ESB) nr. 305/2011.

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_II.pdf

Fylgiskjal III.


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_III.pdf

Fylgiskjal IV.


Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_IV.pdf

Fylgiskjal V.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_V.pdf

Fylgiskjal VI.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_VI.pdf

Fylgiskjal VII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_VII.pdf


Fylgiskjal VIII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_VIII.pdf


Fylgiskjal IX.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_IX.pdf

Fylgiskjal X.


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_X.pdf

Fylgiskjal XI.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_XI.pdf

Fylgiskjal XII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).

www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0124-f_XII.pdf