Ferill 127. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 127 — 127. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um styrki til fjölmiðla og tekjur Ríkisútvarpsins.
Frá Árna Helgasyni.
1. Hvað hafa rekstrarstyrkir til einkarekinna fjölmiðla verið háir frá árinu 2021 þegar þeir voru í lög leiddir? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fjölmiðlum.
2. Hver hafa framlög ríkisins til Ríkisútvarpsins verið frá árinu 2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3. Hverjar hafa auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins frá árinu 2007 verið? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
4. Hvað hefur Ríkisútvarpið haft miklar tekjur af útvarpsgjaldi á þessu sama tímabili? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
5. Hverjar hafa aðrar tekjur Ríkisútvarpsins verið á þessu tímabili, svo sem af sölu lóðaréttinda? Svar óskast sundurliðað eftir árum og mismunandi tekjum.
Skriflegt svar óskast.