Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 128  —  1. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Frá meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti frá forsætisráðuneyti. Þá bárust nefndinni tíu umsagnir auk minnisblaða sem eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
Aðkoma Alþingis að breytingum í Stjórnarráði Íslands.
    Þingsályktunartillaga þessi er lögð fram í samræmi við 1. mgr. 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Þar segir að ákveða skuli fjölda ráðuneyta og heiti þeirra með forsetaúrskurði, sbr. 15. gr. stjórnarskrárinnar, samkvæmt tillögu forsætisráðherra. Áður en forsetaúrskurður er gefinn út skal tillagan lögð fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu sem komi þegar til umræðu og afgreiðslu hjá þinginu. Með þessu fyrirkomulagi er tryggt að tillagan hljóti formlega og opna umræðu á Alþingi þar sem kjörnir fulltrúar þjóðarinnar fá tækifæri til að fjalla efnislega um þær breytingar sem forsætisráðherra hverju sinni leggur til að séu gerðar á æðstu yfirstjórn framkvæmdarvaldsins.

Markmið með fyrirhuguðum breytingum á Stjórnarráði Íslands.
    Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ráðuneytum í Stjórnarráði Íslands verði fækkað um eitt, úr tólf í ellefu. Nánar tiltekið er lagt til að í stað félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, matvælaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis komi atvinnuvegaráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
    Markmið þessara breytinga er að hagræða í rekstri Stjórnarráðs Íslands en styrkja um leið skipulag og verkaskiptingu innan þess í samræmi við þá meginreglu laga um Stjórnarráð Íslands að eðlislík málefni skuli heyra undir eitt og sama ráðuneytið. Markmið áformaðra breytinga er þó ekki aðeins fjárhagslegur sparnaður til skamms tíma heldur fyrst og fremst að gera Stjórnarráð Íslands öflugra og skilvirkara til lengri tíma með því að skerpa betur á og skýra verkaskiptingu milli ráðuneyta. Með breytingunni sé þannig stefnt að aukinni stefnumótun í málaflokkum sem áður voru í mismunandi ráðuneytum og skapa jafnframt ný tækifæri varðandi samlegð verkefna sem ekki voru augljós áður. Almennt er talið að stærri og öflugri ráðuneyti leiði til betri og skilvirkari samskipta við undirstofnanir ráðuneyta, aukins fjárhagslegs og faglegs eftirlits með þeim og að endingu betri þjónustu við almenning.
    Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem þingsályktunartillagan byggist á. Mikilvægt er á tímum hraðra breytinga, hvort sem er hér á landi eða erlendis, að skipulag Stjórnarráðs Íslands sé þannig úr garði gert að það fái sem best sinnt sínum verkefnum. Rík þörf er á sveigjanleika í stjórnkerfinu gagnvart krefjandi verkefnum og áskorunum sem upp kunna að koma. Með stærri ráðuneytum megi jafnframt tryggja betri yfirsýn og samþættingu stefnumótunar. Að mati meiri hlutans skiptir skýr verkstjórn og virk samvinna og samstarf jafnframt lykilmáli í því sambandi. Er það sérstaklega mikilvægt í litlu stjórnsýslukerfi eins og hinu íslenska. Meiri hlutinn leggur því áherslu á að þær breytingar sem lagðar eru til í þingsályktunartillögu þessari séu nýttar til að efla samvinnu, samráð og samstarf þvert á ráðuneyti til að tryggja að þekking og mannauður Stjórnarráðs Íslands sé nýttur til fulls. Þá leggur meiri hlutinn jafnframt áherslu á mikilvægi þess að ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands eigi í virku samstarfi og samtali við almenning og hagsmunaaðila.

Tilfærsla á málaflokkum sem varða öldrunarþjónustu.
    Nefndin fjallaði sérstaklega um fyrirhugaða tilfærslu á málaflokkum sem varða öldrunarþjónustu frá heilbrigðisráðuneyti til verðandi félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Nefndin óskaði eftir minnisblaði frá forsætisráðuneytinu um það málefni. Í minnisblaðinu kemur fram að heilbrigðisþjónusta í hjúkrunarrýmum, sérhæfðri dagdvöl og heimahjúkrun verður áfram í heilbrigðisráðuneyti en stjórnarmálefni sem snúa að opinni öldrunarþjónustu, þ.m.t. félags- og virkniþjónusta, búsetuúrræði og uppbygging hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir aldraðra, verða í nýju félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Tilfærslan sé liður í þjóðarátaki í umönnun eldra fólks sem ríkisstjórnin mun leiða, m.a. með verkefnum um aukna fjárfestingu til að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt, fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar.
    Að lokinni þinglegri meðferð þingsályktunartillögu þessarar verður gefinn út forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands þar sem félags- og húsnæðismálaráðuneyti mun fara með málefni aldraðra, þar á meðal stjórn, skipulag og stefnumótun öldrunarmála fyrir landið í heild, annað en heilbrigðisþjónustu. Gert er ráð fyrir að sérfræðingar sem sinnt hafa húsnæðisþætti hjúkrunarheimila flytjist við breytingarnar frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis og jafnframt er gert ráð fyrir flutningi fjárheimilda sem munu nýtast til frekari styrkingar málaflokksins. Meiri hlutinn leggur áherslu á að fjármagn fylgi málaflokkunum og að sérfræðiþekking sem byggst hefur upp glatist ekki.
    Ríkisstjórnin hefur samþykkt að starfrækja ráðherranefnd um öldrunarþjónustu til að vinna að eflingu samhæfingar félags- og heilbrigðisþjónustu við eldra fólk. Hlutverk ráðherranefndarinnar er að efla samráð og samhæfingu meðal ráðuneyta sem vinna að öldrunarþjónustu innan Stjórnarráðs Íslands og eiga forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra fast sæti í nefndinni. Að mati meiri hlutans felur stofnun ráðherranefndar um öldrunarþjónustu í sér jákvætt skref í átt að bættri stefnumótun og umræðum um aðgerðir á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu er varðar eldra fólk og áréttar nauðsyn þess að fram fari virk samvinna, samráð og samstarf í þessum mikilvæga málaflokki.

Ýmis sjónarmið sem fram komu við meðferð nefndarinnar.
    Við umfjöllun málsins barst nefndinni fjöldi umsagna þar sem reifuð voru ýmis fagleg sjónarmið við fyrirhugaða skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
    Í nokkrum umsögnum eru reifuð sjónarmið gegn fyrirhuguðum flutningi stjórnarmálefnis varðandi Heyrnar- og talmeinastöð Íslands frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Fram kemur að stofnunin sinni heilbrigðisþjónustu fyrir fólk með skerta heyrn, heyrnarlaust fólk og fólk með margvísleg heyrnar- og talmein. Þar af leiðandi ætti stofnunin að heyra undir ráðuneyti heilbrigðismála. Í greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögu þessari kemur fram að ráðuneyti félagsmála fari með málefni fatlaðs fólks, auk málefna Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Með flutningi Heyrnar- og talmeinastöðvar muni ráðuneytið einnig fara með þjónustu við heyrnarlausa, heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar- og talmein. Markmið breytinganna sé að auka samfellu og samþættingu í þjónustu við framangreinda hópa fatlaðs fólks. Í minnisblaði forsætisráðuneytisins, dags. 28. febrúar 2025, kemur fram að málefni Heyrnar- og talmeinastöðvar séu enn til skoðunar á vettvangi heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis.
    Þá kemur fram í umsögn Fjarskiptastofu athugasemd við orðalag í greinargerð með þingsályktunartillögunni þar sem segir að unnið verði að eflingu utanríkisráðuneytis í öryggis- og varnarmálum, og þar sé m.a. litið til flutnings verkefna á því sviði ráðuneytisins, þ.m.t. netöryggismála. Að mati Fjarskiptastofu er orðalagið óljóst en það megi ekki vera vafa undirorpið hver fari með forsvar og ábyrgð á málaflokki netöryggis hér á landi. Í minnisblaði forsætisráðuneytisins, dags. 28. febrúar 2025, kemur fram að fyrir liggi að Fjarskiptastofa og utanríkisráðuneyti áformi að gera samkomulag sín á milli vegna flutnings á CERT-IS í starfsstöð utanríkisráðuneytisins. Í samkomulaginu verði skýrt tekið fram að flutningurinn breyti hvorki eðli starfsemi CERT-IS né lögbundnu hlutverki á nokkurn hátt og það feli ekki í sér flutning á ábyrgð á starfsemi CERT-IS sem hvíli áfram hjá Fjarskiptastofu og stjórnarmálefnið heyri því áfram undir innviðaráðuneyti.
    Að lokum leggst Dýraverndarsamband Íslands gegn því að fallið verði frá því að færa málaflokk dýravelferðar frá matvælaráðuneyti (sem verður atvinnuvegaráðuneyti) til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Í minnisblaði forsætisráðuneytis, dags. 28. febrúar 2025, kemur fram að við ákvörðun um að hverfa frá flutningi á málefni dýravelferðar hafi verið litið til þess að málefni velferðar dýra eru samþætt málefnum dýraheilbrigðis og heilbrigðisþjónustu við dýr, auk fleiri viðfangsefna. Ekki var talið rétt að aðskilja þessi málefni auk þess sem sérfræðiþekking væri á hendi tiltölulega fárra sérfræðinga. Þá þyrfti að horfa til þess að Matvælastofnun, sem heyrir undir atvinnuvegaráðherra, fer með framkvæmd laga um velferð dýra. Sá ráðherra hefur því á hendi yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir með stofnuninni sem annar ráðherra hefur ekki. Í minnisblaðinu kemur þó fram að töluverðra umbóta sé þörf á sviðum er tengjast dýravelferð og dýraheilsu og því brýnt að unnið sé heildstætt að stefnumótun á þessu sviði.
    Þau sjónarmið sem hér hafa komið fram varða skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem mælt verður fyrir um í forsetaúrskurði sem gefinn verður út að lokinni afgreiðslu Alþingis á þingsályktunartillögu um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Um er að ræða atriði sem varða ekki sem slík efni þeirrar tillögu sem hér er til umfjöllunar sem fjallar um fjölda ráðuneyta og heiti þeirra. Þrátt fyrir það telur meiri hlutinn mikilvægt að forsætisráðuneyti, sem fer með forustu- og samræmingarhlutverk í Stjórnarráði Íslands, hafi þær umsagnir og athugasemdir sem hér hafa verið reifaðar og aðrar sem henni hafa borist til hliðsjónar við það breytingaferli sem nú fer í hönd. Þá leggur meiri hlutinn áherslu á að gætt verði að því að nýta þá þekkingu og reynslu af stefnumörkun og stefnumótun sem byggst hefur upp hjá starfsfólki Stjórnarráðs Íslands og gætt verði að réttindum starfsfólks, sbr. þau sjónarmið sem fram koma í umsögn Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og BHM.

    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Ingibjörg Davíðsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 3. mars 2025.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, frsm. María Rut Kristinsdóttir. Dagbjört Hákonardóttir.
Grímur Grímsson. Jónína Björk Óskarsdóttir.