Ferill 135. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 136  —  135. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um Neyðarlínuna og dýr í neyð.

Frá Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur.


     1.      Hefur ráðherra kannað hvort Neyðarlínan geti tekið við tilkynningum frá almenningi um dýr í neyð og komið viðeigandi boðum til lögregluyfirvalda? Ef svo er, hvenær gæti það verklag hafist og hvernig hyggst ráðherra þá tryggja fjármagn til verkefnisins og þjálfun starfsfólks Neyðarlínunnar?
     2.      Telur ráðherra að tilkynningarskylda þeirra sem verða varir við dýraníð eða aðra ótilhlýðilega meðferð eða aðbúnað dýra ætti að vera bundin í lög?


Munnlegt svar óskast.