Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 137 — 136. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um tekjur eldri borgara.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hversu hátt hlutfall eldri borgara er með tekjur undir lágmarkslaunum? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, aldri og búsetu.
2. Hvernig skiptist þessi hópur eftir hjúskaparstöðu og tekjum maka? Óskað er eftir að sundurliðun sýni hvort einstaklingarnir:
a. búa einir og eru í lægstu tekjutíundunum,
b. eru í sambúð/giftir einstaklingum með sambærilegar tekjur,
c. eru í sambúð/giftir einstaklingum með hærri tekjur.
Skriflegt svar óskast.