Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 138  —  93. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um auglýsingasölu RÚV.


     1.      Hyggst ráðherra bregðast við tillögum starfshóps um málefni Ríkisútvarpsins hvað varðar veru RÚV á auglýsingamarkaði og takmörk á sölu RÚV á auglýsingum?
    Ekki hefur enn sem komið er verið tekin ákvörðun um starfsemi Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði til næstu ára. Unnið er að stefnumótun á málefnasviði fjölmiðla í ráðuneytinu, með það að markmiði að fjölmiðlastefna og aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla verði lögð fram á haustþingi 2025. Endurskoðun á starfsemi Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verður hluti af þeirri stefnumótun.

     2.      Var vinnuhópur skipaður um nánari útfærslu á tillögum fyrrnefnds starfshóps? Ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar?
    Þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra skipaði í mars 2024 vinnuhóp um minnkuð umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Hópnum var falið það verkefni að láta ráðherra í té ábendingar um leiðir til að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði í samræmi við viðauka II í samningi ráðherra og Ríkisútvarpsins um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu 2024–2027. Hópnum var jafnframt ætlað að leggja mat á áhrif tillagna sinna á starfsemi Ríkisútvarpsins.
    Vinnuhópurinn hefur skilað ábendingum sínum og tillögum til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Vinna við rýni þeirra stendur yfir.

     3.      Hyggst ráðherra bregðast við veru RÚV á auglýsingamarkaði?
    Vísað er til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.

     4.      Hyggst ráðherra bregðast við aukinni auglýsingasölu RÚV þrátt fyrir markmið um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði samkvæmt þjónustusamningi?
    Markmið um minni umsvif RÚV á samkeppnismarkaði, sbr. yfirlýsingu útvarpsstjóra og þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra í viðauka II við þjónustusamning ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins 2024–2027, felur í sér að draga eigi úr umsvifum Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði á samningstímabilinu. Það þýðir að dregið verður úr umsvifum RÚV á samkeppnismarkaði í síðasta lagi fyrir árslok 2027. Sem fyrr segir verður endurskoðun á starfsemi Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði hluti af fjölmiðlastefnu sem lögð verður fram á þinginu í haust.

     5.      Hvernig samræmist aukin auglýsingasala RÚV árið 2024 markmiðum um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði?
    Vísað er til svars við 4. tölul. fyrirspurnarinnar.