Ferill 140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 145  —  140. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sjávarflóð og mögulegan sjávarflóðasjóð.

Frá Degi B. Eggertssyni.


     1.      Hvert er mat á heildarkostnaði af tjóni vegna sjávarflóða fyrstu helgina í mars 2025?
     2.      Hvernig er ábyrgð á tjóni vegna sjávarflóða háttað samkvæmt lögum?
     3.      Hver ber ábyrgð á að halda utan um upplýsingar um tjón vegna sjávarflóða á landsvísu og hvar birtist það?
     4.      Liggur fyrir mat á tjóni vegna sjávarflóða síðasta áratug?
     5.      Er til heildstætt áhættumat á hættu af sjávarflóðum við strendur Íslands, nú og til framtíðar?
     6.      Hver ber ábyrgð á og annast gerð sjóvarnargarða og annarra varna og hvernig er ákveðið hver það er hverju sinni?
     7.      Í hvaða tilvikum greiðir ríkissjóður fyrir gerð sjóvarnargarða eða annarra varna við sjávarflóðum og eftir hvaða viðmiðum er farið varðandi val, forgangsröðun og fjármögnun þessara verkefna?
     8.      Er til sjóður eða fjárhagslegt fyrirkomulag til að fjármagna rannsóknir, greiningar, áhættumat og sjóvarnargarða eða aðrar varnir gagnvart sjávarflóðum?
     9.      Er ástæða til að setja upp svipað fyrirkomulag fyrir sjávarflóð og gildir varðandi snjóflóð þar sem stofnaður var ofanflóðasjóður og skoða stofnun sjávarflóðasjóðs?


Skriflegt svar óskast.