Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 147 — 142. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (breytingar á neyslurými).
Frá heilbrigðisráðherra.
1. gr.
a. Á eftir orðinu „sveitarfélagi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: heilbrigðisstofnun eða frjálsum félagasamtökum.
b. Í stað orðanna „Sveitarfélagi sem fengið hefur“ í 2. mgr. koma: Sveitarfélagi, heilbrigðisstofnun eða frjálsum félagasamtökum sem fengið hafa.
c. 3. mgr. orðast svo:
Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem fólk sem er 18 ára og eldra getur notað ávana- og fíkniefni undir eftirliti starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingarvarna.
d. Á eftir orðinu „sveitarfélagi“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: heilbrigðisstofnun eða frjálsum félagasamtökum.
e. Á eftir orðinu „sveitarfélagi“ í 6. mgr. kemur: eða heilbrigðisstofnun.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í heilbrigðisráðuneytinu og byggist á tillögum í lokaskýrslu starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun. Heilbrigðisráðherra skipaði starfshópinn með það að markmiði að leggja drög að fyrstu stefnu stjórnvalda í skaðaminnkun og aðgerðaáætlun á grunni hennar. Starfshópurinn skilaði skýrslunni til ráðherra í nóvember 2024 og var hún birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Í skýrslunni eru lagðar til 15 tillögur að aðgerðum og byggist lagafrumvarp þetta á tveimur þeirra, þ.e. aðgerð 6.2.4 um að reykrými verði heimilað í neyslurými og 6.2.5 um að heilbrigðisstofnunum verði heimilað að opna og reka neyslurými.
Í greinargerð þessari er notað hugtakið vímuefni um ávana- og fíkniefni þrátt fyrir heiti laganna, enda er það nútímalegra orð um efnin og tekur jafnframt mið af orðræðu og hugtakanotkun á þessu sviði í heilbrigðisþjónustu.
Undanþáguákvæðið í 2. gr. a laga um ávana- og fíkniefni gerir aðeins ráð fyrir þeirri notkunarheimild vímuefna í neyslurými að sprauta efnum í æð. Starfshópurinn lagði til að heimila einnig að reykja vímuefni þar og er tillagan í lið 6.2.4 í skýrslunni. Við vinnslu frumvarpsins var tekin sú ákvörðun að leggja til að heimilt væri að nota efni með hverjum þeim hætti sem talinn er skaðaminni en með því að sprauta þeim í æð. Það rímar við ábendingar fulltrúa frjálsra félagasamtaka. Var því lagt til að ákvæðinu yrði breytt og heimilt væri að nota vímuefni í neyslurými án þess að notkunaraðferð væri tilgreind.
Upphaflega var gert ráð fyrir að aðeins heilbrigðisstofnunum yrði heimilað að opna og reka neyslurými, auk sveitarfélaga eins og nú er kveðið á um í 2. gr. a laga um ávana- og fíkniefni. Á síðari stigum var ákveðið að leggja jafnframt til að frjálsum félagasamtökum yrði veitt sama heimild og er það viðbót við tillögu 6.2.5 frá starfshópnum. Sú breyting er einnig í samræmi við ábendingar frjálsra félagasamtaka, m.a. Matthildar – samtaka um skaðaminnkun, Afstöðu – félags fanga og Rauða krossins á Íslandi.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Með lögum nr. 48/2020 var lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, breytt á þann hátt að við bættist ný grein, 2. gr. a, sem kvað á um að embætti landlæknis væri heimilt að veita sveitarfélagi leyfi til að stofna og reka neyslurými þar sem varsla og meðferð ávana- og fíkniefna, sbr. 6. gr., væri heimil.
Fimm ár eru liðin frá því að breytingalögin tóku gildi, en rekstur fyrsta staðbundna neyslurýmisins hér á landi hófst 7. ágúst 2024 í Reykjavík. Neyslurýmið nefnist Ylja og hefur Reykjavíkurborg samið við Rauða krossinn á Íslandi að reka það. Áður hafði Rauði krossinn í samstarfi við Reykjavíkurborg rekið Ylju, færanlegt neyslurými, til reynslu í eitt ár, þ.e. frá mars 2022 til mars 2023.
Á grundvelli reynslu af Ylju og skaðaminnkunarúrræðinu Frú Ragnheiði hefur komið í ljós breytt neyslumynstur fólks sem felst í að reykja tiltekin vímuefni fremur en að sprauta þeim í æð. Það er í sjálfu sér skaðaminnkandi þar sem það er talið geta dregið úr hættu m.a. á sýkingum.
Af þeim 25 löndum sem teljast til Vestur-Evrópu samkvæmt Alþjóðlegu skaðaminnkunarsamtökunum (e. Harm Reduction International) er neyslurými í 12 þeirra, þar á meðal á Íslandi. Af þeim löndum sem Ísland ber sig oft saman við má nefna Belgíu, Danmörku, Frakkland, Þýskaland, Holland, Noreg og Sviss. Í öllum þeim löndum þar sem neyslurými eru rekin er heimilt að nota hvaða vímuefni sem er óháð neysluaðferð. Þar sem heimilt er að reykja er aðeins gerð krafa um loftræstingu. Í þeim löndum eru víðtækari heimildir til reksturs neyslurýmis og geta rekstraraðilar verið sveitarfélög, spítalar, heilbrigðisstofnanir og frjáls félagasamtök.
Samkvæmt lögunum hafa aðeins sveitarfélög heimild til að opna, stofna og reka neyslurými, en þeim er heimilt að semja við félagasamtök um rekstur neyslurýmisins. Verði jafnframt heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum veitt heimild til að opna og reka neyslurými getur það leitt til þess að fleiri neyslurými verði stofnuð og rekin. Með því myndi aukast aðgangur fólks að öruggu rými til að nota vímuefni, en sýnt hefur verið fram á að neyslurými draga úr líkum á ofskömmtun og öðrum skaða, m.a. tengdum sprautum. Frjáls félagasamtök búa sum hver yfir talsverðri þekkingu og reynslu af því að veita skaðaminnkandi þjónustu, enda samdi Reykjavíkurborg við Rauða krossinn á Íslandi um rekstur Ylju, staðbundins neyslurýmis í höfuðborginni.
Þar sem heimild til að reka neyslurými er lögbundin er ekki unnt að gera breytingar með öðrum hætti en lagabreytingum og því kemur ekki til greina að breyta framkvæmdinni t.d. með reglugerðarsetningu. Verði ekkert aðhafst getur það leitt til þess að færri neyslurými verði opnuð en ella í ljósi þess að sveitarfélög ein hafa heimild til þess. Sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins gætu mögulega veigrað sér við því að opna neyslurými, þrátt fyrir þörf, vegna smæðar sinnar en heilbrigðisstofnanir gætu aftur á móti nýtt bæði húsnæði og mannauð sem þær hafa nú þegar yfir að ráða. Þá eru vísbendingar um að skaðaminnkandi inngrip virki best þegar þau eru aðgengileg í nærumhverfi fólks. Margir einstaklingar með langvarandi vímuefnavanda eru í eftirfylgd hjá heilbrigðisstofnunum og væri því ákjósanlegt að stofnununum væri heimilt að opna neyslurými sem nýst gæti sem einn þáttur í heildrænu þjónustuframboði til að mæta betur fjölþættum þörfum einstaklinganna. Auk þess getur það verið skaðlegra ef jaðarsettur hópur sem sækir í neyslurými getur ekki notað vímuefni með öðrum notkunaraðferðum en að sprauta þeim í æð.
Markmiðið með þessari lagasetningu er að mæta þörfum jaðarsettra einstaklinga um allt land og draga úr líkum á skaða.
3. Meginefni frumvarpsins.
Frumvarp þetta lýtur að breytingum á 2. gr. a laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974. Annars vegar að heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum verði veitt sama heimild og sveitarfélög hafa nú til að stofna og reka neyslurými. Hins vegar að heimila 18 ára og eldri að nota vímuefni í neyslurými óháð neysluaðferð. Um er að ræða minni háttar lagabreytingar sem eru mikilvægar fyrir fólk sem notar vímuefni.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Við mat á því hvort ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, feli í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrána eða alþjóðlegar skuldbindingar þá er það metið svo að lagasetning þessi kunni að hafa jákvæð áhrif á rétt fólks til bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu hverju sinni.
Ákvæði stjórnarskrárinnar eru ávallt höfð til hliðsjónar við lagasetningu sem tengist skaðaminnkun, einkum jafnræðisreglan í 65. gr. og 76. gr. um félagsleg réttindi, en hluti af þeim hópi sem notar vímuefni telur sig ekki njóta sömu félags- og heilbrigðisþjónustu og aðrir.
Einnig er talið að í samræmi við 12. gr. alþjóðasamningsins Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi beri aðildarríkjum að tryggja rétt fólks til að njóta líkamlegrar og sálrænnar heilsu að hæsta marki sem unnt er og er því litið svo á að með útvíkkun á 2. gr. a laga nr. 65/1974 sé það ákvæði virt.
5. Samráð.
Frumvarp þetta snertir fyrst og fremst þá einstaklinga sem eru jaðarsettir félagslega og efnislega og nota vímuefni.
Áform um frumvarp þetta ásamt frummati á áhrifum voru birt í fjórar vikur í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is, frá 30. september til 28. október 2024 (mál nr. S-194/2024). Engin umsögn barst um áformin.
Einnig má geta þess samráðs sem fór fram í starfshópi um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun sem nefndur var í 1. kafla. Starfshópurinn lagði fram alls 15 tillögur að aðgerðum og um þær tvær aðgerðir sem frumvarp þetta byggist á var sátt í hópnum. Lokaskýrsla starfshópsins var jafnframt birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá 28. nóvember til og með 26. desember 2024 (mál nr. S-234/2024) og var ekki gerð nein athugasemd við þær í þeim sex umsögnum sem bárust um skýrsluna. Þess skal getið að m.a. áttu ríkislögreglustjóri, ríkissaksóknari, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Afstaða – félag fanga, dómsmálaráðuneyti og Matthildur – samtök um skaðaminnkun fulltrúa í starfshópnum, en fulltrúar tveggja síðastnefndu sátu í kjarnahópi starfshópsins sem átti náið samstarf um efni aðgerðanna.
Að auki var haldinn samráðsfundur í heilbrigðisráðuneytinu með fulltrúum Afstöðu – félagi fanga, Matthildar – samtökum um skaðaminnkun, Rauða krossins á Íslandi og dómsmálaráðuneytinu um drög að frumvarpinu.
Vegna þess samráðs sem hafði þegar átt sér stað var ákveðið að birta frumvarpið í tvær vikur til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, þ.e. 12.–26. febrúar 2025.
Umsagnir bárust frá Matthildi – samtökum um skaðaminnkun sem fagnaði frumvarpinu og telur það framfaraskref, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og embætti ríkislögreglustjóra.
Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er gagnrýnt að sveitarfélög hafi heimild til að reka neyslurými því að sú starfsemi sé fyrst og fremst heilbrigðisþjónusta sem sé á ábyrgð ríkisins. Það sé mat Sambandsins að engin haldbær rök séu fyrir því að sveitarfélögin hafi með höndum það verkefni að stofna og reka neyslurými heldur ætti reksturinn fremur að vera tengdur annarri heilbrigðisþjónustu til að tryggja heildræna þjónustu við þann notendahóp sem um ræðir. Sambandið fari fram á að heimild sveitarfélaga til að stofna og reka neyslurými verði felld brott úr 2. gr. a laganna en mikilvægt sé þó að rekstur neyslurýma sé í nánu samstarfi við sveitarfélögin.
Í þeirri skilgreiningu á skaðaminnkun sem lögð er til grundvallar í lokaskýrslu starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun sem birt var í desember 2024, sem og hjá sérstökum skýrslugjafa mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, segir að skaðaminnkun vísi til stefna, inngripa og verklags sem miði að því að draga úr neikvæðum áhrifum, tengdum notkun vímuefna, vímuefnastefnu og vímuefnalöggjöf, á heilbrigði og félagslega og lagalega stöðu einstaklings. Þá byggist skaðaminnkun á réttlæti og mannréttindum og áhersla sé lögð á jákvæðar breytingar og unnið sé með fólki án fordóma, þvingunar eða mismununar og þess er ekki krafist að notkun vímuefna sé hætt. Neyslurými er eitt af þeim úrræðum sem leiðir til skaðaminnkunar með þeim hætti að draga úr dauðsföllum vegna ofskömmtunar vímuefna meðal jaðarsettra einstaklinga og öðrum skaða sem notkun vímuefna þessa hóps getur leitt til. Neyslurými nýtast best fólki sem glímir við heimilisleysi og langvarandi vímuefnavanda, enda notar þessi jaðarsetti hópur annars vímuefni á opnum svæðum eða í byggingum á vegum sveitarfélaga, svo sem á bókasöfnum, almenningssalernum og í bílastæðahúsum. Einn þáttur í inngildingu jaðarsettra einstaklinga í sveitarfélagi er að þeir hafi aðgang að neyslurými og njóti félagslegrar þjónustu á vettvangi. Aðgengi fyrir jaðarsetta að öruggum stað til að nota vímuefni, þ.e. neyslurými, var ekki til staðar fyrr en með tilkomu Ylju. Sú breyting að heimila jafnframt frjálsum félagasamtökum og heilbrigðisstofnunum, auk sveitarfélaga, að reka og opna neyslurými, er í takt við það sem tíðkast í flestum öðrum Evrópuríkjum sem hafa heimilað neyslurými. Áréttað er að um heimild er að ræða til handa þessum aðilum, en ekki er verið að leggja þá skyldu á herðar þeim að stofna og reka neyslurými.
Í umsögn embættis ríkislögreglustjóra kemur fram að embættið styðji það markmið frumvarpsins að bæta aðgengi að skaðaminnkandi úrræðum fyrir einstaklinga sem nota ávana- og fíkniefni í æð, en að nauðsynlegt sé að tryggja skýrt regluverk og virkt eftirlit með starfseminni og vísar í því skyni í skýrslu Ríkisendurskoðunar um ópíóíðavandann. Í umsögn ríkislögreglustjóra er áréttað mikilvægi þess að í lögum eða reglugerð um ávana- og fíkniefni verði skilgreind nánari útfærsla á tegund og því magni sem heimilt er að neyta í neyslurýminu til þess að koma í veg fyrir óvissu um framkvæmd lögreglustarfa. Megintillögur embættis ríkislögreglustjóra eru að frumvarpið verði hluti af heildrænni stefnu um vímuefnamál á Íslandi, að tryggt verði fjármagn fyrir rekstur neyslurýma og að sett verði upp skilvirkt eftirlitskerfi með rekstri félagasamtaka sem koma að rekstri slíkra rýma, að lögregla hafi skilgreint hlutverk í öryggismálum án þess að fæla notendur frá úrræðinu, að gripið verði til mótvægisaðgerða gegn mögulegum neikvæðum afleiðingum í nærsamfélaginu og að skilgreint verði í lögum eða reglugerð hvað neysluskammtur er.
Tekið er undir að nauðsynlegt er að reglugerð um neyslurými, nr. 170/2021, verði endurskoðuð, aðallega er lýtur að eftirliti og öðrum skilyrðum sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla áður en þeim verður heimilt að stofna og reka neyslurými.
6. Mat á áhrifum.
Verði frumvarp þetta samþykkt mun fólk 18 ára og eldra geta nýtt neyslurými óháð því hvernig það notar vímuefnin. Þannig verður unnt að draga úr alvarlegum afleiðingum vímuefnanotkunar. Einnig mun fólk sem notar vímuefni í náinni framtíð mögulega hafa aukinn aðgang að neyslurýmum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og um land allt, ef heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum verður auk sveitarfélaga heimilt að stofna og reka neyslurými.
Þau skref sem tekin eru með skaðaminnkandi hugmyndafræði að leiðarljósi eru talin hafa persónulegan ávinning fyrir notendur, samfélagslegan ávinning fyrir umhverfi og fjárhagslegan ávinning fyrir heilbrigðiskerfið. Það má sjá m.a. af bættu heilsufari fólks sem notar vímuefni, minna er um notaðan sprautubúnað á víðavangi og tilfellum HIV-smita og lifrarbólgu C fækkar, t.d. samkvæmt gögnum frá smitsjúkdómadeild Landspítala og samantektarskýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þannig er talið að beinn kostnaður ríkisins af samþykkt þessa frumvarps sé enginn þar sem um heimildarákvæði í lögum er að ræða. Af sömu ástæðu er heldur ekki gert ráð fyrir að um sé að ræða fjárhagsáhrif á stjórnsýslu ríkis eða sveitarfélaga. Kveðið verður á um þau skilyrði í reglugerð um neyslurými sem rekstraraðilar verða að uppfylla, svo sem varðandi fjárhagsáætlun og fjármögnun.
Tölulegar upplýsingar, m.a. frá Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarúrræði á vegum Rauða krossins á Íslandi og Ylju, staðbundnu neyslurými sem rekið er í Reykjavíkurborg, sem og erlendis frá, sýna að algengt er að hlutfall þeirra sem nýta skaðaminnkandi úrræði sé 70% karlar og 30% konur. Ef heilbrigðisstofnanir gætu rekið neyslurými innan stofnunar væri aðgengi fyrir alla aukið og á sama tíma líklegra að neyslurými innan heilbrigðisstofnana myndu ná til fleiri kvenna en önnur neyslurými. Algengara er að konur fremur karlar verði fyrir ofbeldi og þurfi því á heilbrigðisþjónustu að halda vegna afleiðinga þess. Auk þess væri unnt að nýta þann mannauð sem heilbrigðisstofnanir búa yfir til að þjónusta notendur neyslurýma.
Skaðaminnkandi inngrip eins og nálaskiptiþjónusta og neyslurými hafa borið mikinn árangur og eflt lýðheilsu þeirra sem nýta þá þjónustu. Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafa í því ljósi ítrekað hvatt til þess að lönd innleiði og festi skaðaminnkun í sessi sem eina af undirstöðum lýðheilsustefnu og vímuefnastefnu landanna, til viðbótar við forvarnir, meðferð og endurhæfingu vegna vímuefnavanda. Má sem dæmi nefna skýrslu sérstaks skýrslugjafa mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um vímuefnanotkun, skaðaminnkun og rétt til heilsu, sem gefin var út í apríl 2024, þar sem tekið er m.a. fram að ríkjum beri skylda til að innleiða gagnreyndar leiðir til heilsueflingar, forvarna og inngripa sem lágmarki neikvæð áhrif og hættur tengdar notkun vímugjafa. Skaðaminnkandi inngrip verði því að vera sniðin að mismunandi þörfum fólks. Jafnframt er áréttað í skýrslunni að vísbendingar séu um að skaðaminnkandi inngrip virki best þegar þau eru aðgengileg fólki í nærumhverfi og aðlöguð að þörfum þess. Sýnt hafi verið fram á að fjölmörg inngrip hafi dregið úr dauðsföllum vegna ofskömmtunar eða eitrunar. Jafnframt er upplýst í skýrslu Alþjóðlegu skaðaminnkunarsamtakanna (e. Harm Reduction International) frá 2024 að frá því ári hafi 108 lönd innleitt skaðaminnkun í stefnu sína í vímuefnamálum. Gögn sýni að verulegur árangur hafi náðst í þeim löndum sem veita lyfjameðferð við ópíóíðafíkn og nálaskiptiþjónustu með tilliti til fækkunar HIV-smita og dauðsfalla vegna ofskömmtunar. Þá hafi dreifing öruggs búnaðar til reykingar vímuefna í stað notkunar í æð aukist um heim allan, sem og aðgengi fyrir notendur að efnagreiningu vímuefna til að draga úr líkum á að menguð eða eitruð vímuefni verði notuð. Við blasir því að sú breyting að heimila fólki m.a. að reykja vímuefni í stað þess að sprauta þeim í æð hefur mikinn heilsufarslegan ávinning fyrir notendur.
Ávinningur þess að samþykkja frumvarpið er að unnt verður að bregðast á heildrænni hátt við vímuefnanotkun fólks sem er með samþættan geð- og vímuefnavanda og í því felst inngilding þess í samfélagið. Með því að bjóða upp á neyslurými innan þjónustueiningar heilbrigðisstofnunar fengi fólk tækifæri til að nýta sér þjónustuna strax. Þá kemur þekking ýmissa frjálsra félagasamtaka á skaðaminnkandi úrræðum sér vel. Í lokaskýrslu starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun má greina að sveitarfélög eru mismunandi langt á veg komin með að taka upp skaðaminnkandi þjónustu. Fái heilbrigðisstofnanir sömu heimild og sveitarfélög hafa til að stofna og reka neyslurými mun það bæta eða a.m.k. stuðla að jöfnum aðgangi fólks að neyslurými. Auk þess dregur það úr hættu á skaða þess jaðarsetta hóps sem sækir í neyslurými ef ekki verður eingöngu heimilað að nota vímuefni þar með því að sprauta þeim í æð.
Markmiðið er eins og áður sagði að mæta þörfum jaðarsettra einstaklinga um allt land og draga úr líkum á skaða sem þeir geta orðið fyrir þegar efni eru notuð í æð. Breytingarnar myndu jafnframt hafa jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið, m.a. með færri veiru- og bakteríusýkingum, styttri legutíma á sjúkrahúsum, snemmbúnum inngripum og minni lyfjakostnaði vegna meðferðar, t.d. við HIV og lifrarbólgu C. Loks má gera ráð fyrir samfélagslegum áhrifum um allt land með fjölgun neyslurýma, sem felast m.a. í auknu hreinlæti og öryggi á almenningsstöðum.
Ólíklegt er talið að efni frumvarpsins hafi áhrif á réttindi og frelsi einstaklinga, nema síður sé. Með lögum nr. 48/2020 var lögfest heimild til vinnslu persónuupplýsinga í neyslurými, sjá 5. mgr. 2. gr. a laga um ávana- og fíkniefni, og eru engar breytingar gerðar á því ákvæði í frumvarpi þessu sem kalla á breytingar þar að lútandi.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Vonir standa til að þessi heimild leiði til þess að fleiri neyslurými verði opnuð og greiði þar með fyrir aðgengi fólks að öruggu rými til að nota vímuefni. Heilbrigðisstofnanir hafa mögulega húsrými til að veita þá þjónustu sem margir skjólstæðingar neyslurýma hafa nú þegar þegið í Ylju, staðbundnu neyslurými í Reykjavíkurborg, en þar er hluti mannaflans nýttur til að þjónusta fólk í neyslurými. Sama á við um frjáls félagasamtök um allt land.
Verði frumvarpið samþykkt verður heilbrigðisstofnunum heimilt, rétt eins og sveitarfélögum nú, að fela frjálsum félagasamtökum að reka neyslurými, svo fremi að þau uppfylli skilyrði 2. gr. a laganna og reglugerðar, sbr. 4. mgr. 2. gr. a.
Í c-lið er lögð til ný 3. mgr. þar sem kveðið verði á um að fólk sem er 18 ára og eldra geti notað vímuefni undir eftirliti starfsfólks þar sem gætt verði fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingarvarna, óháð notkunaraðferð. Þessi heimild er skaðaminnkandi úrræði enda er vitað að töluvert færri hættur eru tengdar því t.d. að reykja vímuefni öndvert við að sprauta þeim í æð og dregur úr hættu á veirusýkingum vegna HIV og lifrarbólgu C sem og alvarlegum bakteríusýkingum eins og í hjartalokum og graftarkýlum, minnkar hættu á ofskömmtun og neikvæðum afleiðingum þegar efnin eru blönduð, sér í lagi hættulegum efnum. Áréttað er að ekki er þar með fullyrt að skaðlaust sé að reykja efni heldur snýst málið um að minnka skaða.
Um 2. gr.