Ferill 143. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 148  —  143. mál.
Flutningsmaður.




Tillaga til þingsályktunar


um endurskoðun á reglum um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga.


Flm.: Ingibjörg Isaksen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn Stefánsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Halla Hrund Logadóttir.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að endurskoða reglur um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga sem þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar, með það að markmiði að tryggja rétt sjúklinga til endurgreiðslu á ferðakostnaði hafi skipulagður læknistími þeirra verið felldur niður af hálfu heilbrigðisstofnunar án lögmæts fyrirvara.
Ráðherra leggi fram tillögur til úrbóta eigi síðar en 1. nóvember 2025.

Greinargerð.

    Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er ein af grunnstoðum velferðarkerfisins og ætti að vera sjálfsögð réttindi allra landsmanna, óháð búsetu og efnahag. Þrátt fyrir öflugt heilbrigðiskerfi á Íslandi standa íbúar landsbyggðarinnar enn frammi fyrir hindrunum sem íbúar höfuðborgarsvæðisins þurfa ekki að glíma við. Ein af þessum hindrunum er ferðakostnaður við að sækja sér sérhæfða heilbrigðisþjónustu sem ekki er í boði í heimabyggð.
    Sjúklingar á landsbyggðinni sem þurfa að ferðast til Reykjavíkur eiga nú rétt á endurgreiðslu á fjórum ferðum árlega, að því gefnu að þeir framvísi staðfestingu á læknisheimsókn. Þrátt fyrir að þetta úrræði sé mikilvægt hefur komið í ljós að það er ekki alltaf sanngjarnt eða réttlátt. Tilvik hafa komið upp þar sem einstaklingar hafa farið langar vegalengdir í góðri trú, en læknistímar þeirra hafa verið afbókaðir með stuttum fyrirvara af hálfu heilbrigðisstofnana. Í slíkum tilfellum er sjúklingurinn ekki einungis sviptur nauðsynlegri læknisþjónustu, heldur einnig réttinum til endurgreiðslu á ferðakostnaði.
    Slíkt fyrirkomulag er óásættanlegt og veldur fjárhagslegu álagi á sjúklinga. Ferðakostnaður, gisting og annar tilfallandi kostnaður getur verið umtalsverður, sérstaklega fyrir þá sem eru tekjulágir eða búa á afskekktum svæðum. Þegar sjúklingur hefur þegar lagt í för og læknistíminn fellur niður af ástæðum sem hann sjálfur ræður ekki við, er ekki réttlátt að hann beri allan kostnaðinn. Þessi framkvæmd felur í sér mismunun eftir búsetu og stríðir gegn grundvallarjafnréttissjónarmiðum íslensks heilbrigðiskerfis.
    Til að tryggja sanngjarnara og réttlátara kerfi er nauðsynlegt að sjúklingar fái ferðakostnað endurgreiddan jafnvel þótt læknistími þeirra falli niður af hálfu heilbrigðisstofnana. Með því væri dregið úr fjárhagslegum áhyggjum sjúklinga og tryggt að landsbyggðarfólk hafi raunverulegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á sömu forsendum og íbúar höfuðborgarsvæðisins.
    Jafnrétti til heilbrigðisþjónustu verður að endurspeglast í framkvæmd kerfisins. Hið opinbera ber ábyrgð á því að jafnræði sé tryggt óháð búsetu. Ef sjúklingur hefur gert sitt til að mæta í læknistíma en tíminn fellur niður af hálfu heilbrigðisstofnunar er það heilbrigðiskerfisins að axla ábyrgð á þeim tilfallandi kostnaði. Enginn á að þurfa að bera aukabyrðar einungis vegna þess hvar hann býr.
    Með samþykkt þessarar tillögu væri stigið mikilvægt skref í átt að jafnrétti til heilbrigðisþjónustu og tryggt að allir landsmenn, óháð búsetu, njóti sama aðgengis að nauðsynlegri læknisþjónustu.