Ferill 148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 153  —  148. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar).

Frá félags- og húsnæðismálaráðherra.



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 1. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir“ í 1. málsl. kemur: stofnun sem þjónustar.
     b.      Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heiti stofnunarinnar skal vera Sjónstöðin.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. a laganna:
     a.      Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Sjónstöðin.
     b.      Í stað orðsins „Miðstöðin“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Stofnunin.
     c.      Í stað orðsins „miðstöðvarinnar“ í 3. mgr. kemur: stofnunarinnar.

3. gr.

    Heiti laganna verður: Lög um Sjónstöðina.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

5. gr.

    Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
     1.      Lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021: Í stað tilvísunarinnar „laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: laga um Sjónstöðina.
     2.      Lög um Barna- og fjölskyldustofu, nr. 87/2021:
                  a.      Í stað tilvísunarinnar „laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: laga um Sjónstöðina.
                  b.      Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 1. málsl. 3. mgr. 3. gr. laganna kemur: Sjónstöðina.
     3.      Bókasafnalög, nr. 150/2012:
                  a.      Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 3. málsl. 4. mgr. 15. gr. laganna kemur: Sjónstöðinni.
                  b.      Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. málsl. 1. mgr. 17. gr. laganna kemur: Sjónstöðinni.
     4.      Lög um Samskiptastöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990: Í stað orðanna „Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu“ í 2. mgr. 2. gr. a laganna kemur: Sjónstöðinni.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Með frumvarpinu er lagt til að heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu verði breytt í Sjónstöðina. Er breytingin lögð fram til einföldunar og til samræmis við almenna málnotkun notenda stofnunarinnar, augnlækna og stofnunarinnar sjálfrar.
    Lög um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, nr. 160/2008, tóku gildi 1. janúar 2009. Með lögunum voru lög um Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra, nr. 18/1984, sem öðru nafni nefndist Sjónstöð Íslands, felld úr gildi. Hinn 2. desember 2015 samþykkti Alþingi lög um breytingu á ýmsum lögum til undirbúnings fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nr. 115/2015, en með 15. gr. þeirra laga var heiti laga nr. 160/2008 breytt í lög um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
    Með lögum nr. 160/2008 var Sjónstöð Íslands lögð niður og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda sjónskerta og daufblinda einstaklinga, sem nú er Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, sett á fót. Hin nýja stofnun var hýst í sama húsnæði og Sjónstöð Íslands og kölluðu notendur stofnunarinnar, ásamt starfsfólki hennar, hana áfram Sjónstöðina.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Í frumvarpi þessu er lagt til að heiti þeirrar stofnunar sem sinnir þjónustu við blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu verði breytt. Stofnunin ber nú hið óþjála heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Heiti stofnunarinnar er því þrettán orð sem innihalda rúmlega 90 bókstafi.
    Stofnunin tók við af Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra sem starfrækt var á grundvelli laga nr. 18/1984 og hét Sjónstöð Íslands. Í gegnum árin hefur heiti stofnunarinnar tekið breytingum og lengst með endurskoðun laga nr. 160/2008. Almennt tíðkast ekki að telja upp hvert einstakt viðfangsefni stofnana í heiti þeirra. Því er engin ástæða til að beita þeirri aðferð einungis gagnvart þeirri stofnun sem hér um ræðir. Því er talið rétt að stofnuninni verði gefið hefðbundið heiti. Sjónstöðin endurspeglar vel hlutverk hennar, þ.e. aðstoð við blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Þá tengja notendur stofnunarinnar mun fremur við það heiti, enda var Sjónstöð Íslands starfrækt í sama húsnæði og umrædd stofnun til ársins 2008. Notendur stofnunarinnar, starfsfólk hennar og augnlæknar sem vísa skjólstæðingum sínum þangað kalla stofnunina enn Sjónstöðina þrátt fyrir að Sjónstöð Íslands hafi verið lögð niður árið 2008.
    Heiti stofnunarinnar hefur þegar verið breytt í Sjónstöðina á vef hennar. Á vefnum kemur fram að Sjónstöðin starfi samkvæmt lögum nr. 160/2008 og er því ekki samræmi á milli þess heitis sem þar kemur fram og í lögunum sem stofnunin vísar til.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Lögð er til breyting á heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008. Nýtt heiti stofnunarinnar verði Sjónstöðin. Breyting á heiti stofnunarinnar er til skýringar og einföldunar fyrir alla hagaðila sem eru í sambandi við Sjónstöðina eða starfa þar. Samhliða þarf að breyta vísun í lögin og heiti stofnunarinnar í lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021, lögum um Barna- og fjölskyldustofu, nr. 87/2021, Bókasafnalögum, nr. 150/2012, og lögum um Samskiptastöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar. Eru tillögur í frumvarpinu einungis til einföldunar og til samræmis við það sem stofnunin er kölluð dagsdaglega.

5. Samráð.
5.1. Ósk um breytingu á heiti stofnunarinnar.
    Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og Blindrafélagið hafa óskað eftir því að heiti stofnunarinnar í lögum nr. 160/2008 verði breytt í Sjónstöðina.

5.2. Áform um lagabreytingu lögð fyrir samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks.
    Áform um fyrirhugaða lagabreytingu voru lögð fyrir samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks 30. janúar 2025. Nefndin starfar á grundvelli 36. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og hefur það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherra við stefnumörkun í málefnum fatlaðs fólks. Nefndin er skipuð fulltrúum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, sveitarfélaga og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Afstaða nefndarinnar til breytingar á heiti stofnunarinnar var jákvæð og engar athugasemdir gerðar við hana.

5.3. Drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda.
    Áform um lagasetningu voru ekki birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem frumvarp þetta var unnið samhliða þeim. Drög að frumvarpi voru birt til umsagnar í samráðsgátt á tímabilinu 6. til 20. febrúar 2025 (mál nr. S-20/2025). Fimm umsagnir bárust, frá stjórn Augnlæknafélags Íslands, yfirlækni hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, ÖBÍ réttindasamtökum, Blindrafélaginu og stjórnendum og starfsmönnum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Af umsögnum að dæma ríkir almenn ánægja með efni frumvarpsins. Í umsögn stjórnar Augnlæknafélags Íslands lýsir félagið yfir ánægju með fyrirhugaða breytingu á heiti stofnunarinnar. Í umsögn yfirlæknis hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er ánægju og stuðningi lýst yfir við fyrirhugaða breytingu á heiti stofnunarinnar. Í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka kemur fram að samtökin fagni því að lagt sé til að breyta heiti stofnunarinnar í Sjónstöðina en það heiti hafi verið tillaga starfsfólks og notenda um langt skeið. Í umsögn Blindrafélagsins lýsir félagið yfir stuðningi við tillögu um breytingu á heiti stofnunarinnar og að nýtt heiti verði Sjónstöðin. Í umsögn stjórnenda og starfsmanna Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu kemur fram að þau taki heils hugar undir tillögu um breytingu á heiti stofnunarinnar og telji hana mikið fagnaðarefni. Sjónstöðin sé notendavænt og lýsandi heiti en núverandi heiti sé aftur á móti mjög langt, afskaplega óþjált og geti að auki valdið ruglingi við aðrar þjónustumiðstöðvar. Þá þekki augnlæknar sem vísi fólki í þjónustu til stofnunarinnar, sem og fjölmargir aðrir, heitið Sjónstöðin frá þeim tíma þegar stofnunin hét Sjónstöð Íslands.

6. Mat á áhrifum.
    Ekki þarf að gera aðrar breytingar á lögunum en þær sem lúta að heiti stofnunarinnar. Heitið hefur þegar verið uppfært á vef stofnunarinnar. Flest gögn stofnunarinnar eru á rafrænu formi. Fyrirhugaðar breytingar yrðu því gerðar innan húss og hefðu í för með sér óverulegan kostnað.
    Ekki er gert ráð fyrir að efni frumvarpsins hafi í för með sér útgjaldaauka fyrir ríkissjóð. Kostnaður vegna breytingar á heiti er óverulegur og verður fjármagnaður innan ramma málaflokks 29.4.