Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 155  —  150. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um að heiðra minningu Margrétar hinnar oddhögu.


Flm.: Karl Gauti Hjaltason, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Halla Hrund Logadóttir, Vilhjálmur Árnason, Víðir Reynisson.


    Alþingi ályktar að fela menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að heiðra minningu Margrétar hinnar oddhögu með því að reisa henni minnisvarða. Minnisvarðinn skal reistur í Skálholti verði því komið við. Ráðherra kynni áætlun þess efnis eigi síðar en á haustþingi 2025.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður flutt á 151. löggjafarþingi ( 138. mál) en náði ekki fram að ganga. Umsagnir sem bárust um tillöguna voru jákvæðar og tillögunni fagnað. Í þeim kom m.a. fram að minnismerki um Margréti hina oddhögu yrði táknrænt fyrir framlag íslenskra kvenna til listar þar sem hún hefði verið ein merkilegasta listakona Íslands á sínum tíma.
    Samkvæmt sögu Páls biskups Jónssonar var Margrét hin oddhaga prestskona í Skálholti á ofanverðum dögum biskups og var, eftir því sem sagan segir, „oddhögust allra manna á Íslandi“ um sína daga. Hvorki er vitað um föðurnafn hennar né ættir að öðru leyti.
    Páll Jónsson Skálholtsbiskup (f. 1155, d. 1211) var framkvæmdamaður mikill og listunnandi. Voru í biskupstíð hans listamenn í Skálholti sem unnu góða gripi í þágu stólsins og skreyttu helgidóminn með fögrum verkum. Margrét var í þjónustu biskups ásamt fleiri listamönnum og bjó í Skálholti ásamt manni sínum, séra Þóri.
    Í sögu Páls biskups segir um biskupsstaf af tönn, sem Margrét skar fyrir Pál og var sendur Þóri erkibiskupi í Niðarósi, að hann hafi verið gerður svo haglega að „engi maðr hafði fyrr sét jafnvel gervan á Íslandi“.
    Þegar steinkista Páls biskups var tekin úr jörðu og opnuð sumarið 1954 fannst í henni húnn af bagli úr rostungstönn, útskorinn í líki dýrshöfuðs og forkunnarvel gerður. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, sem stýrði uppgreftrinum, taldi líklegt að þarna væri á ferð verk Margrétar högu og hafa margir hallast að þeirri skoðun með honum en einnig hefur verið vakin athygli á því að form og handbragð útskurðarins bendi til þess að uppruna hans sé að leita á Bretlandseyjum.
    Margrét skar út margvíslega muni fyrir biskup og hefur verið orðuð við merkisgripi frá miðöldum sem fundust árið 1831 á Ljóðhúsum í Suðureyjum, undan norðvesturströnd Skotlands. Þar kom í ljós safn haglega útskorinna taflmanna sem flestir eru úr rostungstönn en nokkrir úr búrhvalstönn. Eru 78 þeirra úr manntafli en 14 eru taldir hafa verið hnefataflsmenn.
    Ekki liggur fyrir nákvæm vitneskja um fundarstað taflmannanna frá Ljóðhúsum né fundartíma. Ýmsar sögur gengu um þetta og komust á blöð og bækur, svo sem að taflmennirnir hefðu verið í fórum skipreika sjómanns sem látið hefði lífið fyrir morðvopnum gráðugra eyjarskeggja sem ágirntust gersemarnar eða að taflmannasveitin hefði fundist þegar kýr var dregin upp úr jarðfalli. Telja flestir þessar sögur og aðrar áþekkar til marks um hina frjóu sagnahefð Suðureyinga sem lifi og þrífist án þvingandi tengsla við staðreyndir og veruleika.