Ferill 151. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 156  —  151. mál.




Skýrsla


fjármála- og efnahagsráðherra
um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum.



    Skýrsla þessi er lögð fram í samræmi við fyrirmæli 9. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Skýrslunni er ætlað að styðja við meginmarkmið um bætt samhengi fjárlaga og fjármálaáætlana við framtíðarhorfur.
    Markmið skýrslunnar er að veita Alþingi yfirsýn yfir líklega þróun samfélags-, atvinnu-, umhverfis- og byggðaþátta og lýðfræðilegra breytna til næstu áratuga og áhrif þeirra á afkomu, fjárhagsstöðu og skuldbindingar opinberra aðila.
    Með því að stjórnvöld leggi mat á horfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum til næstu áratuga er reynt að fanga undirliggjandi þróun í efnahagskerfinu og uppbyggingu opinberra fjármála sem er það hægfara að áhrifin koma ekki að fullu fram fyrr en að nokkrum áratugum liðnum. Þetta á til að mynda við um áhrif af lýðfræðilegum breytingum íslensku þjóðarinnar.
    Fyrirkomulaginu er ætlað að stuðla að framsýnni stefnumörkun stjórnvalda, sem dæmi við mótun stefnu um viðbrögð í fimm ára fjármálaáætlun gagnvart helstu áhrifaþáttum í framtíðarhorfum til langs tíma litið.


     Fylgiskjal.


Skýrsla um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0156-f_I.pdf