Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 157  —  7. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um siglingavernd, nr. 50/2004 (áhættumat hafnaraðstöðu).

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá innviðaráðuneyti.
    Nefndinni bárust engar umsagnir um málið.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tveimur ákvæðum laga um siglingavernd, nr. 50/2004, í því skyni að bregðast við athugasemdum frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um ófullnægjandi innleiðingu Evrópureglna í kjölfar úttekta á hafnaraðstöðu í tveimur höfnum hér á landi. Í skýrslum ESA var það skilgreint sem meiri háttar frávik að samkvæmt lögum um siglingavernd væri gert væri ráð fyrir að verndarfulltrúi hafnarsvæðis gæti gert áhættumat fyrir hafnaraðstöðu, en samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 725/2004 um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu skal slíkt áhættumat aðeins gert af hlutaðeigandi stjórnvaldi eða viðurkenndum verndaraðila.
    Með frumvarpinu er lagt til að lög um siglingavernd kveði á um að Samgöngustofa geri áhættumat fyrir hafnaraðstöðu og staðfesti áhættumat hafnar. Jafnframt að Samgöngustofa staðfesti verndaráætlun hafnaraðstöðu og hafnar. Með þessum breytingum er því brugðist við framangreindu fráviki þannig að lög um siglingavernd endurspegli ákvæði fyrrgreindrar reglugerðar líkt og markmiðið var með innleiðingu hennar. Auk þess eru þær í samræmi við þá framkvæmd sem nú þegar er viðhöfð hjá Samgöngustofu við gerð áhættumats og verndaráætlunar fyrir hafnaraðstöðu.

Breytingartillaga.
    Lögð er til ein breytingartillaga sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið. Í 1. gr. frumvarpsins er notað orðalagið „áhættumat hafnaraðstöðu“ en í 2. gr. „áhættumat fyrir hafnaraðstöðuna“. Lagt er til að orðið „fyrir“ bætist við í 1. gr. þannig að orðalagið verði samræmt.
    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Á eftir orðunum „gera áhættumat“ í 1. gr. komi: fyrir.

    Ása Berglind Hjálmarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. mars 2025.


Guðbrandur Einarsson,
form.
Sigurður Helgi Pálmason,
frsm.
Ágústa Ágústsdóttir.
Dagur B. Eggertsson. Halla Hrund Logadóttir. Jens Garðar Helgason.
Jónína Björk Óskarsdóttir. Ólafur Adolfsson.