Ferill 157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 163 — 157. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiningu og úrræði fyrir alzheimersjúklinga og aðstandendur.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hve margir einstaklingar eru greindir með alzheimersjúkdóm á Íslandi og hvaða opinberu skráningar liggja til grundvallar þeirri tölu?
2. Hvaða sérhæfðu úrræði og þjónusta standa alzheimersjúklingum til boða á mismunandi stigum sjúkdómsins?
3. Hvernig er stuðningur við aðstandendur alzheimersjúklinga tryggður og hvaða þjónustu geta þeir leitað sér?
4. Hvaða áform eru uppi um að bæta skráningu, meðferð og stuðning við bæði alzheimersjúklinga og aðstandendur?
Skriflegt svar óskast.