Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 172 — 162. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um stöðu þeirra sem hafa fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hversu margir einstaklingar sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eru nú á landinu? Og hversu margir hafa verið lengur hér á landi en í 30 daga eftir að umsókn þeirra var hafnað?
2. Hver er fjöldi þeirra sem ekki finnast eða eru skráðir týndir í opinberum gögnum?
3. Hver er fjöldi einstæðra mæðra með börn í þeim hópi?
4. Hvernig er aðstæðum þeirra sem bíða brottflutnings háttað?
5. Er markvisst eftirlit eða stuðningur við einstaklinga í þessari stöðu?
Skriflegt svar óskast.