Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 174  —  164. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um framtíð ÁTVR.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Stendur til að leggja niður ÁTVR sem starfar m.a. á grundvelli lýðheilsu, samfélagslegrar ábyrgðar og þess að vernda ungt fólk skv. 2. gr. laga um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011? Ef svo er, hefur farið fram lýðheilsumat á slíkri niðurlagningu?
     2.      Ef til stendur að leggja niður ÁTVR, hvenær má ætla að það verði gert?


Skriflegt svar óskast.