Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 175  —  165. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um samfélagslegan kostnað af áfengisneyslu.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Er ráðherra sammála því að ætla megi að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu á ári sé 2,6% af vergri landsframleiðslu í hátekjulöndum, líkt og haldið var fram í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í nóvember árið 2024, og hafi því verið um 112 milljarðar kr. á Íslandi árið 2023?
     2.      Er ráðherra sammála því að gera megi ráð fyrir því að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu ykist á Íslandi ef Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins verður lögð niður?
     3.      Ef svo er, hve mikil gæti sú aukning samfélagslegs kostnaðar orðið miðað við rannsóknir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar?


Skriflegt svar óskast.