Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Nr. 3/156.
Þingskjal 193 — 91. mál.
Þingsályktun
um fullgildingu samnings um viðskipti og efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Indlands.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um viðskipti og efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Indlands sem undirritaður var 10. mars 2024 í Nýju-Delí á Indlandi.
Samþykkt á Alþingi 17. mars 2025.