Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 196 — 180. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um þjónustu talmeinafræðinga.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
Hver er afstaða ráðherra til athugasemda og áskorana foreldra um þjónustu talmeinafræðinga við börn utan skrifstofu og í nærumhverfi barnanna? Hyggst ráðherra bregðast við þeim athugasemdum og áskorunum?
Skriflegt svar óskast.