Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 199 — 3. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheilsu (fækkun hæfnisnefnda).
Frá velferðarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti og Samtökum atvinnulífsins.
Nefndinni barst ein umsögn auk tveggja minnisblaða frá heilbrigðisráðuneytinu sem aðgengileg eru undir málinu á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og hins vegar lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Lagt er til að þrjár fastar, lögbundnar hæfnisnefndir sem hafa haft það hlutverk að meta hæfni umsækjenda um stöður stjórnenda eða millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisráðuneytis verði lagðar niður. Í fyrsta lagi er um að ræða nefnd sem hefur haft það hlutverk að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, og umsækjenda um stöðu embættis landlæknis, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Í öðru lagi er það stöðunefnd lækna, sbr. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, og í þriðja lagi stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar, sbr. 37. gr. sömu laga. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar muni auka skilvirkni og hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins og tryggja aukið gagnsæi við ráðningu æðstu stjórnenda stofnana.
Við umfjöllun málsins í nefndinni voru gerðar athugasemdir við að lögð verði niður nefnd sem hefur haft það hlutverk að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana og að varhugavert gæti verið að skipanir forstjóra heilbrigðisstofnana og landlæknis færu fram án undangengins hæfnismats.
Með vísan til framangreinds þá er í 39. gr. b laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, kveðið á um heimild ráðherra eða stjórnar til skipunar sérstakrar hæfnisnefndar um störf forstöðumanns, en niðurstaða slíkrar nefndar er ráðgefandi. Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði frá ráðuneytinu að ekki sé ástæða til að sérstök, föst hæfnisnefnd verði áfram starfandi á heilbrigðissviði, en leggur áherslu á að ráðherra nýti sér þá heimild laga nr. 70/1996 til skipunar hæfnisnefndar þegar kemur að því að skipa landlækni og forstjóra heilbrigðisstofnana.
Nefndin tekur undir markmið frumvarpsins sem ætlað er að hafa jákvæð fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 17. mars 2025.
| Ragna Sigurðardóttir, frsm. |
Grétar Mar Jónsson. | Ingibjörg Isaksen. |
| Jón Gnarr. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. |
| Njáll Trausti Friðbertsson. | Rósa Guðbjartsdóttir. | Sigríður Á. Andersen. |