Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 202 — 185. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um málefni Grindavíkur.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Stendur til að Fasteignafélagið Þórkatla greiði fasteignagjöld til Grindavíkurbæjar eða að ríkissjóður komi á annan hátt að rekstri grunninnviða Grindavíkur?
2. Verður umönnunarsamningum Fasteignafélagsins Þórkötlu breytt svo að fólk megi gista í Grindavík og geti þannig búið sig undir að flytja heim? Eru fleiri hugmyndir eða úrræði til að stuðla að hraðari endurkaupum fyrri eigenda eða leigu á húsnæði Fasteignafélagsins Þórkötlu?
3. Eru uppi áform um að styðja uppbyggingu atvinnulífs í Grindavík?
Skriflegt svar óskast.